Íslendingur - 16.08.1929, Side 3
ÍSLENDINGUR
3
Netastykki
flestar tegundir.
Sfldarnet
fyrirliggjandi.
sími 36 Pórsteinn Sigvaldason. sími 36
Húsmæður!
Ef þjer viljið fá þvottinn hvítan og
fallegan þá notið
Flik-Flak jivottaM.
Fæst alstaðar.
bótanna og skipun eftirlitsnefndar
með Rínarbygðum. Verður engu
spáð um árangurinn af þeim sam-
komulagstilraunum enn sem komið
er. Briand virðist tilleiðanlegur til
þess að semja um breytingar á
Young-samþyktinni.
Frá London: Bresk blöð segja,
að setulið Breta í Rínarlöndum verði
kallað heim fyrir áramót, án tillits
til úrslita Haag-fundarins.
Frá Moskva: Flugvjelin »Soviet-
Iand«, sem flugmennirnir Chesta-
kof og Bolotof stjórna, er á leið-
inni frá Moskva til New York yfir
Síberíu; er verið að rannsaka skil-
yrði fyrir reglubundnum flugferð-
um á þessari leið.
Frá London: Englendingurinn
Baird hefir fundið upp tæki, sem
gera mönnum kleift, þrátt fyrir þoku,
að uppgötva annars ósýnileg ljós,
í alt að 3 enskra mílna fjarlægð.
Uppfundningin er talin þýðingar-
mikil fyrir siglingar.
Frá New York: Bannlagayfirvöld-
in í Bandaríkjunum eru ákveðin í
að láta ölbruggun og vínbruggun í
heimahúsum til heimaneytslu af-
skiftalausa.
Frá Dover: Englendingurinn
Berry hefir farið yfir Ermarsund á
vatns-mótorhjóli. Hann var rúm-
lega 7 klukkustundir á leiðinni.
ínnlend:
Úr Borgarnesi: Brúin yfir Brák-
arsund er vel á veg komin. Dýpk-
unarskipið Uffe er hjer enn og mun
verða hjer þangað til í lok mánað-
arins. Vegna þess hve botninn er
leirkendur nálægt bryggjunni, verð-
ur að fá hingað mokstursvjel.
Bryggjusmíðinni miðar nú vel áfram.
Frá Vestmannaeyjum : Óðinn tók
enskan togara í landhelgi; var hann
sektaður um 13 þús. kr. og alt gert
upptækt. Dómnum áfrýjað.
lír heimahðgnm.
Kirkjan. Messað kl. 11 !. h. á sunnu-
daginn,
Vjelbátar farast. Síðla á þriðjudaginn
koin vjelbáturinn „Hakion“ til Siglufjarð-
ar sökkvandi. Hafði hann lent i hafís á
Húnaflóa, mist mestöll veiðarfæri sín og
laskast mikið. Komust skipverjar naum-
lega til Siglufjarðar, með pvi að dæla í
sifellu og sökk báturinn pvlnær strax
eftir þangað komuna. Annar vjelbátur
„Mardöll" var á veiðum á Húnaflóa á
miðvikudagsnóttina. Alt i einu urðu
menn þess varir, að eldur var kominn
upp í bátnum og fyrirsjáanlegt var, að
hann yrði eigi slöktur. Náði báturinn
sambandi við norska eftirlitsskipið „Mic-
hael Sars“, og dró skipið bátinn inn i
Kálfshamarsvík. Þar sökk báturinn, en
skipverjar björguðust. Báturinn var vá-
trygður hjá ,Danske Lloyd' og hefur komið
til orða, að bjarga honum, en liklegast
er þó talið, að það sje einskis vert.
U. M. F. A. fer skemtiför austur í
Vaglaskóg næstkomandi sunnudag ef
veður leyfir. — Lagt verður af stað frá
„Bifröst“ kl. 8 f. h. stundvislega.
Lyfjafrœðisprófi hefur Eyþór Thoraren-
sen, úr Lyfjabúð Akureyrar, lokið nýlega
í Rvík með I. einkunn.
Sjera Kristinn K. Ólafsson, forseti
lútherska Kirkjufjelagsins — i Vesturheimi
— er gestkomandi hjer í bænum. Hann
er prestur íslendinga í Argyle-bygðinni.
Síldveiðin. Búið en að salta og krydda
á öllum söltunarstöðum 92 þús. tunnur.
Riddari Fálkaorðurinar er Tönnes
Wathne nýlega orðinn.
Jónas Þorbcrgsson ritstjóri hefir nýlega
fyrir undirrjetti Reykjavikur verið dæmd-
ur í 150 kr. sekt og 50 kr. málskostnaðfyrir
skrif i Tímanum um hið svokallaða Ár-
bæjarmál. Greinarnar eru taldar skrif-
aðar af dómsmálaráðherra, en þar sem
þær voru nafnlausar ber ritstjórinn á-
byrgðina.
Steingrimur Matthiasson hjeraðslæknir
kom heim úr utanför sinni með íslandi
á föstudaginn var. Um sama leyfi kom
frú hans heim með „Veiðibjöllunni“. Hef-
ir frúin dvalið syðra sjer til heilsubótar,
en er nú við góða heilsu.
Hjúskapur. Á laugardaginn voru gef-
in saman i hjónaband hjer í bænum
ungfrú Hermina Sigurgeirsdóttir, söng-
kennara, og Björn Kristjánsson heildsali
frá Hamborg.
Opinberun. Ungfrú María Einarsdótt-
ir, Gunnarssonar konsúls, og Einar
Malmquist útgerðarmaður, hafa nýlega
birt trúlofun sína.
Árni Kristjánsson, kaupmanns Árna-
sonar, píanoleikari kom hingað heim
með Goðafossi síðast. Hefir hann verið
langdvölum erlendis við nám og er tal-
inn ágætur pianóleikari.
Leikfjelag Akureyrar hjelt þessa árs
aðalfund sinn á þriðjudagskvöldið. í
stjórn voru kosin: Hallgrímur Valde-
marsson, Sigurður Hlíðar og Þóra Hav-
steen.
Fimtugsafmœli átti A. Holdö fram-
kvæmdastjóri Krossanesverksmiðju í gær.
„Stefnir“ heitir nýtt þjóðmála- og
frjettatimarit sem Magnús Jónsson pró-
fessor og alþingismaður er farinn að
gefa út í Reykjavjk — 6 stór hefti á
ári. Árgangurinn 10 kr.
Kvikmyndahúsin. Nýja Bíó sýnir á
laugardagskvöldið frábærlega góða mynd
„Þegar ættiörðin kallar“. Leikur Richard
Barthelmess aðalhlutverkið af snild. —
Akureyrar-Bíó sýnir á laugardagskvöldið
mynd sem einnig hefur hlotið ágæta
dóma, og heitir „HJónal]ands-öhamlngJa“.
Standlampar og
borðlampar
íneð fallegum silkiskermum
nýkomnir.
Guðjón & Aðalbjörn.
Bókafregnir.
i.
Jón Dúason: Grönlands
Statsretslige Stilling í
Middelalderen. Oslo
1928.
Pelta er hin tnjög umtalaða dokt-
orsritgerð Jóns Dúasonar er Oslo há-
skóM sæmdi hann doktorsgráðunni
fyrir. Er þetta í rauninni allmikið rit,
216 blaðsíður í 4 bl. broti, og að
frágangi öllum hið vandaðasta. Er
þar samankominn fróðleikur mikill
um Grænland, og telur dr. Ragnar
Lundborg ritið að mörgu leyti hina
merkilegustu bók, og skrifuð er hún
þannig, að allir sem dönsku skilja
hafa ánægju af lestri hennar. Útsölu-
maður hennar hjer á staðnum er
Porsteinn M. Jónsson.
II.
Passlusálmar Hallgríms
Pjeturssonar.
Hjer er komin á bókamarkaðinn
ódýr alþýðuútgáfa af Passíusálmun-
um, gefin út samhljóða vísindaútgáfu
hins fslenska frœðafjelags í Kaup-
mannahöfn er kom út 1924. Er frá-
gangur hinn besti, og ætti þetta að
reynast vinsæl útgáfa. Bókaverslunin
»Emausr í Reykjavík er útgefandinn.
Pá hafa ísl. verið sendar »Fremstir í
röð*, smásögur frá Kristniboðinu fyr
og síðar, *Harpa Guðs«, »Meira
ijós« og nokkrar fleiri bækur guð-
irækilegs efnis.
Manchettskyrtur
Flibbar
Bindi
Slaufur
Treflar, ull og silki
Hanskar, herra og dömu
Herrahattar, linir&harðir
Kasketter
Sporthúfur
Nærföt, ull og baðmull
Kven-nærföt, ull & silki
Verkamannaföt
Herra- og unglingaföt
Regnkápur allskonar
Reiðbuxur
Sportsokkar
Herrasokkar, margar teg.
Barnasokkar,. — —
Kvensokkar, — —
Handklæði
Handklæðadregill
Ljereft 32 þuml. br. 0,95 m.
Tvisttau tvíbreið, 1,40 m.
Do — 1,00 m.
Sængurvera ta u
Boldang
Fiðurhelt ljereft m. t.
Kjólatau allskonar
Silki í svuntur
Kasmírsjöl, ýmsar stærðir
og margar fl. vörutegundir.
Veröið alstaðar
samkepisfært!
Verslun t. Kristjánssonar.
Auglýsið í ÍSLENDINGI,