Íslendingur - 10.01.1930, Blaðsíða 1
&
4»
Talsími 105. Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson. Strandgata 29.
XVI. árgangur.
Akureyri, 10. janúar 1930
2. tölubl.
7* milj. kr. ábyrgðar krafist
af bænum.
í ráði er að stofna hjer í bæn-
um »Samvinnufjelag s/'ómanna á
Akuteyri« og er tilgangur þess ráð-
gerður sá, að koma upp skipastól
og reka hjer útgerð.
Forspiiið fyrir þessari ráðgerðu
fjelagsstofnun gafst að heyra á síð-
asta bæjarstjórnarfundi. Sá Einar
Olgeirsson fyrir því. Kom hann
þessari ráðgerðu fjelagsstofnun inn
á fundinn og hafði margt og mikið
um hana að segja og stórtækar
kröfur að flytja. — Jú, hjer var svo
sem hagsmunamál sjómannanna á
ferðinni. — Ætlun fjelagsins — þeg-
ar það væri komið á laggirnar --
væri að byrja með 5 skipum að
minsta kosti, er yrðu látin stunda
bæði þorsk- og síldveiðar — en
þar sem engir peningar væru fyrir
hendi, yrði bærinn að hlaupa und-
ir bagga og bjarga við fjárhagslegu
hliðinni. Bæjarstjórnin yrði að skora
Alþingi að veita ríkisábyrgð fyrir
lántöku, er næmi 85% af andvirði
skipanna, veiðarfæra og annars út-
búnaðar, en bærinn yrði svo aftyr
að taka á sig ábyrgð gagnvart rík-
inu, — það yrði svona í kringum
7* milj. kr., sem bærinn kæmi til
að standa í ábyrgð fyrir. — Og^
hjer varð að hafa hraðan á, þing-
maðurinn væri að fara suður á þing
og hann yrði að hafa ábyrgðina
upp á vasann, er hann legði af stað.
Ekki minsta ástæða fyrir bæjarstjórn-
ina að kynna sjer málið frekar, bara
að samþykkja áskorunina til þings-
ins og ábyrgð bæjarins með það
sama — áhættan væri engin, bær-
inn fengi 1. veðrjett í skipunum!
En bæjarfulltrúarnir voru nú ekki
allir .sömu skoðunar og Einar Ol-
geirsson. — Fyrstur til andmæla var
Tómas Björnsson. Kvað hann sjer
það gleðiefni, að sjómenn ætluðu
nú að bindast samtökum til útgerð-
ar, en áleit hinsvegar varhugavert,
að draga bæinn inn í ábyrgð þá,
sem farið væri fram á, — Menn
þeir, sem hjer rækju útgerð nú,
hefðu byrjað með tvær hendur
tómar, en með hjálp kunningja
sinna og vina og einstaklingsábyrgð-
um, hefði þeim tekist að koma
undir sig fótunum. — Fyrir fáum
árum hefðu nokkrir ungir menn hjer
í bænum gengið í fjelag og leigt
skip til síldveiða; fjelagsskapnum
hefði verið haldið áfram, og nú ættu
þessir menn 3 skip. — Sýndi þetta
hvað framtak og dugur gæti áork-
að. Áleit Tómas að hið ráðgerða
samvinnufjelag sjómanna ætli að
fara líkt að og af eigin ramleik að
reyna brjótast áfram — því ósenni-
lega yrði því síður til um lántökur
en einstaklingum. — Var þó ekki
mótfallinn því, að bærinn hlypi að
einhverju leyti undir bagga með fje-
laginu — en ekki væri viðlit að
afgreiða málið eins og það nú lægi
fyrir. Hjer væri heimtuð af bænum
stórfeld ábyrgð, að algerlega órann-
sökuðu máli. Vildi vísa málinu til
sjerstakrar ^nefndar. — Brynleifui
Tobiasson var hlyntur málinu í
»principinu« en taldi með öliu ó-
forsvaranlegt að afgreiða það þá á
fundinum. Var sammáia Tómasi
að vfsa því í nefnd. — Sig. Ein.
Hlíðar vildi einnig vísa málinu til
nefndar, og taldi það ljelega ástæðu
að flýta þyrfti afgreiðslu þess, vegna
þess að þingmaðurinn væri á för-
um suður; skipsferðir færu úr þessu
að verða tíðar suður, og vandalítið
að koma erindum til þingsins með
þeim.
Nefndarkosning var feld; greiddu
auðvitað allir jaínaðarmannafulltrú-
arnir atkvæði á móti henni — og
ennfremur Ingimar Eydal. — Gerði
hann þá grein fyrir atkvæði sinu,
að hann væri málinu fylgjandi. —
Bæjarstjóri kvaðst einnig vera mál-
inu fylgjandi, en kvað algerlega <5-
löglegt að afgreiða það þá á fund
inum, því um öll fjárhagsmál er
bæinn snerti, yrðu að fara fram 2
umræður. Formaður bæjarstjórnar-
innar, herra Erlingur, áleit það ekki
fjárhagsmái, þó bærinn gengi í V*
milj. kr. ábyrgð, og úrskurðaði, að
1 umræða nægði um málið. —
Hallgr. Davíðsson lýsti sig alger-
lega mótfallinn því, að bærinn færi
að taka á sig jafn stórfelda ábyrgð
og hjer væri farið fram á, og kvað
það fjarstæðu hina mestu að halda
því fram, að bænum stafaði engin
hætta af ábyrgðinni, þar sem hon-
um væri trygður 1. veðrjettur í
skipunum. Veðrjettur í skipum
væri altaf ótryggur, pví sjó-
veð gæti hvenær sem væri
gert hann einskisverðan. Og
ósæmandi með öllu væri framkoma
jafnaðarmanna í málinu, er þeir
ætluðust til að bæjarstjórnin sam-
þykti yfirvegunarlaust stórfelda á-
byrgð fyrir fjelag — sem ekki einu
sinni væri til. — Brynleifur kom
næst með tillögu um að málinu
væri vísað til fjárhagsnefndar og
studdi Ólafur Jónsson hana. Lýsti
hann sig að sumu leyti hlyntan
tilgangi hins ráðgerða fjelags, þó
hann gæti ekki fylgt málinu á því
stigi, sem það nú lægi fyrir á, eða
verið með jafn hárri ábyrgð og far-
ið væri fram á. Kvað sjálfsagt að
nefnd fjallaði um málið, og það
kæmi til annarar umræðu; gæti það
breyst í þeirri mBÖferð í viðunan-
legra horf. — Ingimar lýsti því
þessu næst yfir, að þó hann hefði
verið á móti skipun sjerstakrar
nefndar til að yfirvega málið, gæti
hann verið með því að vísa því til
fjárhagsnefndar, því hún væri skip-
uð mönnum, sem hann vissi að
væru málinu hlyntir, en óvíst hvern-
ig að sjerstök nefnd hefði litið á
það. — Þessi yfirlýsing Ingimars
kom jafnaðarmönnum mjög á óvart,
AKUREYRAR BIO
Laugardagskvöldið kl. 8lh:
Maciste í undirheimum.
Áhrifamikill kvikmyndasjónleikur í 7 þáttum, þar sem hinn vin-
sæli og heimafrægi MACISTE' leikur aðalhlutverkið af sinni vcnju-
legu snild. í þessari mynd kemur hinn sterki og glæsilegi
MACISTE fram sem boðberi hins góða, og þar sem Maciste er,
þar er ávalt sigur, þrátt h-rir mikla erfiðleika og dularfull fyrirbrygði.
Sunnud. kl. 5: Alpýðusýning! Niðursett verð!
í hinni fögru og
skemtilegu mynd
Auk hennar leika í aðalhlutv.: Fred Solm og Warwick Ward.
Sunnudagskv. kl. 8l/2:
NY MYND!
M A D O N N A.
Stórfenglegur kvikmyndasjónleikur í 10 þáttum, eftir hinni heims-
írægu skáldsögu »Sovevognens Madonna«. Höfundurinn Maurice
Dekobra hefir sjálfur undirbúið og stjórnað myndatökunni. Sagan
»Sovevognens Madonna« vakti strax afarmikla hrifningu og hefir
hún verið gefin út í miklu stærra upplagi heldur en nokkur önn-
ur nútíma skáldsaga og þýdd á mörg tungumál. — Myndin íjallar
um enska aðalsfrú, sem ekki getur átt samleið með enska aðilnum,
en vill njóta gaeða lífsins-. með aðstoð peninga sinna. — Aðalhlut-
verkin leika: Claude France, Olaf Fjord og Boris De Fas.
NÝJA B í O
Laugardagskvöldið kl. 81/2:
Úkunni maðurinn.
Kvikmynd í 7 þáttum frá Metro Goldwyn, tekin undir^stjórn TOD
BROWNING. Með hina ágætu leikendur í aðalhlutverkunum:
Lon Chaney — Norman K/erry — Joan Grawford. —
Leikstjórinn Tod Browning segir um þessa mynd, að sjer hafi
tekist að gera hana. svo úr garði, að hún veiti áhorfendunum
ósvikna ánægjustund.
Sunnudaginn kl. 51/2 Alþýðusýning. Niðursett verð.
Þepr klukkurnar kalla.
7 þátta mynd. Leikstjóri George Fitzmaurice. — Aðalhlutverkin
leika: Gilbert Roland og Mary Astor. — Spánverjinn
Gilbert Roland er maður, sem gengur í augun á kvenfólkinu —
Skínandi falleg mynd!
Sunnudagskvöldið kl. 872:
Undra-læknirinnn.
Kvikmynd í 8 þáttum frá Metro Goldwyn, tekin eftir skáldverki
eftir W. Sommerset Maughun og hefir REX INGRAM stjórnað
upptöku myndarinnar. — Aðalleikendur eru: Ivan Petrowitsch
— Alice Terry — Paul Wegner. — Listavel leikin og á-
hrifamikil mynd. Börn fá ekki aðgang.
þeir höfðu gert ráð íyrir, að hann
mundi hjálpa þeim til þess að drífa
málið í gegti á fundinum og þröngva
XU milj. kr. ábyrgðinni yfir á bæinn
að órannsökuðu máli, því fylgi sínu
hafði hann heitið og felt tillöguna
um nefndarskipun — en Ingimar er
háll og sveigjanlegur sem állinn,
því höfðu þeir gleymt. — Var því
samþykt að vísa málinu til fjár-
hagsnefndar og 2. umræðu með 6
atkv. gegn 5 — og hvílist það þar
fram yfir kosningar.
Frekja og óskammfeilni jafnaðar-
manna í tnáli þessu er dæmafá. —
Þeir dirfast að koma fram með
kröfu um, að bærinn taki á sig lU
milj. kr. ábyrgð fyrir fjelag, sem
ekki einu sinni er stofnað, og berj-
ast með hnúum og hnefum gegn