Íslendingur - 10.01.1930, Síða 3
ÍSLENDINGU&
3
0. Nilssen & Sön
(Bergens Notforretning)
BERGEN,
er besta veiöafæra verksmiðja á Norðurlöndum. Bj?r til
m. a. hinar viðurkendu »Geysis«-fiskilínur, af öllum
stærðum, bikaðar og óbikaðar. Einnig tauma, kaðla,
netagarn, net, herpinætur, nætur smáar og stórar. Enn-
fremur dufi, lóðarbelgi, kork, flár, neta- og nótasteina og
yfir höfuð alt, er að veiðarfærum lýtur. Sjerstaklega skal
vakin athygli á hinum ágætu síldarnetáslöngum okkar.
Umboðsmaður verksmiðjunnar á Norðurlandi er:
Þórsteinn Sigvaldason.
Á Seyöisfiröi á að kjósa þann 16
þ. m. Þar eru etnnig 3 listar í kjöri,
enginn þó írá Framsókn. Er þriðji
listinn »sprengilisti« og eru á honum
menn úr öllum fiokkum. Á lista
Sjálfstæðismanna eru þessir 5 eístir:
Eyjólfur Jónsson fyrv. útbússtjóri,
Sveinn Árnason yfirfiskimatsmaður,
Sigurður Arngrímsson ritstjóri, Jón
Jónsson í Firði, Theodór Blöndal-
sýslusk rifari og Þórarinn Benediktsson
bankaritari. — Á lista verkamanna
Karl Finnbogason skólastjóri, Sig.
Baldvinsson póstmeistari, Gunnlaug-
ur Jónasson verslunarmaður, Brynj-
ólfur Eiríksson verkstjóri og Guðm.
Benediktsson gullsmiður. Á »sprengi-
listanum* eru þessir 3 efstir: Jón
Waage kaupmaður, Sigmar Frið-
riksson bakari og Guðfinnur Jónsson
smiður. — 9 fulltrúa á að kjósa og
er gamla bæjarstjórnin skipuð 5
jafnaðarmönnum og 4 Sjálfstæðis-
mönnum.
/ Reykjavik verður Jcosið 25. þ.
m. Þar verða kosnir 15 fulltrúar.
— 3 listar eru í kjöri. Á lista Sjálf-
stæðismanna eru þessir 7 efstir:Jón
Ólafsson alþm., Jakob Möller, Guðm.
Ásbjörnsson, Guðrún Björnsdóttir,
Pjetur Halldórsson, Guðm. Eiríksson
og Pjetur Hafstein cand. jur.
Úr heimahögum.
Kirkjan. Messað á Akureyri, sunnu-
daginn kl. 1 e. h.
Bókasafniö. — Davíð Stefánsson skáld
og bókavörður flutti fyrirlestur í Sam-
komuhúsinu á sunnudaginn og nefndi
hann „Ein af skyldum Akureyrarbúa“.
Efni fyrirlestursins var Amtsbókasafnið
hjer f bænum. Þótti bókaverði bærinn
hafa sýnt því litla ræktarsemi og ráðandi
menn hans ekki skilið hvaða menningar-
gildi gott bókasafn í góðum húskynnum
hefði að færa. Gaf hann gagnorða lýs-
ingu á því ófermdarástandi er bókasafnið
væri, í og hvað það skyldu bæjarins að
bæta úr því, bæði með auknu fjárframlagi
til bókakaupa og svo með bættum hús-
kynnum. — Núverandi húsnæði væri ó-
viðunandi og á næstuiini ætti safnið að
missa það — en ekki væru ráðgerð betri
húskynni í staðinn; væri í ráði að flytja
safnið í gamla barnaskólann — en það
væri að fara úr öskunni í eldinn. — Slíkt
mætti ekki ske. Það yrði að reisa þegar
á þessu ári veglega og eldtrygga bók-
hlöðu, sem sæmandi væri höfuðstað
Norðurlands. Áleit bókavörður litinn vafa
á því, að Alþingi mundi hlaupa undir
bagga með bænum, hvað kostnað snerti.
En menn yrðu þegar að hefjast handa og
hrinda málinu áleiðis. — Var fyrirlestur
Daviðs hinn snjallasti og var gerður að
þonutn hinn besti rómur.
Launanefnd. A fundi bæjarstjórnarinn-
ar á þriðjudaginn var kosin 3ja manna
nefnd til að rannsaka launakjör starfs-
manna bæjarins og korna fram með til-
lögur þeim viðvikjandi. í nefndina voru
kosnir Hallgr. Davíðsson, Einar Olgeirsson
og Steinþór Guðmundsson.
Kjörstjórn. Kosnir voru 9 menn í með-
kjörstjórnir við bæjarstjórnarkosningarnar
á þriðjudaginn: Steingr. Jónsson, Böðvar
Bjarkan, Lárus Thorarensen, Kristján Árna-
son, Guðm. Pjetursson, Jón Steingrímsson,
fulltrúi, Jón Kristjánsson útgerðarmaður,
Hailgr. Jónsson og Lártts J. Rist. — í yf-
irkjörstjórn eru: Ingimar Eydal og Stein-
þór Guðmundsson.
Opinberunarbókin. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Þórhildur
Sfeingrímsdóltir og Herinann Stefánsson
fitnlcikakennati frá Grenivík.
Hljómleikar. Á þriðjudagskvöldið hjelt
lúðrasveitin „Hekla" og „Hljómsveit Ak-
uteyrar“ hljóntleika í Nýja-Bió. Þótti
mikið til þeirra koma, og er þess að
vænta að þeir verði endurteknir bráðlega.
„Geysir“ söng fyrir sjúklingana á Krist-
neshæli á sunnudagskvöldið. Þótti hann
góður gestur. Bitreiðastöð Akureyrar
flutti söngflokkinn ókeypis fram og aftur.
Axel Ásgeirsson hefir verið ráðinn fast-
ur lögregluþjónn hjer í bætiutn, frá ára-
mótum að telja.
Þorsteinn M. fónsson kennari heiir
fengið hálfsmánaðarfrí frá kennsluslörfum
sakir hæsi. Gegnir Aslcell Snorrason
kennslustörfum lians á meðan.
Berklarannsókn ú kúm. Bæjarstjórnin
samþykti á síðasta futtdi, tillögu frá heil-
brigðisnefnd, um berklaranusókn á kúm,
í Akureyrarumdæmi, skyldi fara fratn á
þessu ári, og dýralækni falið að annast
hana. Eru 9 ár síðan að hún fór siðast
fratn. Samþykt var tillaga frá Einari
Olgeirssyni að hjer eftir fari slík rann-
sókn frant annaðhvort ár.
Bœjargjaldkerastaðan. LI rnsækjendur
um hana urðu fjórir, gat ísl. 3ja þeirra
síðast, en sá fjórði er Árni Olafsson
sýslusktifati. Votu allar umsóknir lagðar
fyrir síðasta bæjarstjórnarfund en veitingu
frestað til næsta fundar.
Hriðárveður hefir verið siðustu dagana
og fannkoma mikil.
Þingmálafund auglýsir þingnta.ðttr baej-
arins i Satukomuhúsinu annað kvöld. t,
Samningar hafa tekist syðra ttm kjör
sjómanna á línuveiðurutn.
Oskilahross er gcýmt hjá mjcr
undirrituðum. Stcingrá hryssa, flat-
járnuð. Mark: Fjöður aftan hægra,
húfbiti framan vinstra. Er rjettur
eigandi beðinn að vitja hennar nú
þegar og greiða áfallinn kostnað á-
samt auglýsingu þessari.
Mýrarlóni, 9. jan. 1930.
Guðmundur Jónssou.
ATHUGIÐ!
Þeir, sem ætla sjer að fá srníðað hjá mjer til UPPHLUTS eða SKAUT-
BÚNINGS fyrir Alþingishátíðina í sumar, geri pantanir sínar sem allra
fyrst. — Stæi^ri stylcki, t. d. BELTI, með eða án sprota, og K O F F U R
verða verða að vera pöntuð í síðasta lagi fyrir marsmánaðarlok.
Akureyri, 9. jan. 1930.
Virðingarfylst.
Guðjón Bernharðsson,
gullsmiður.
Kosningaskrifstofa
borgaraflokksins,
(J-listans, verður fyrst um sinn í verslun-
armannafjelagshúsinu; opin frá 8—10 e. h.
hvern virkan dag. — Simi 237.
Kosninganefndin.
i-------------------------->
ISLENDINGUR
keniur út á föstudögum.
Árgangurinn kostar 6 kr. innanlands,
8 kr. i útlöndum.
Gjalddagi 15. júní.
Afgreiðslu og innheimtu annast:
Hallgr. Valdemarsson,
Hafnarstrœti 45.
t—---------------——————3
Sjöunda fjórðunsspins
Fiskifélagsdeilda Norðurlands.
9. Suudkcnnsla og sundlaugar.
Úessar tvær tillögur voru samþ.
með öllum atkvæðum.
1. „F'jórðungsþingið mælir með því,
að Ólafsfirðingum verði veittur
allt að 1000 kr. styrkur af Fiski-
fiélagssjóði til byggingar sund-
laugar; ennfremur að Svarfdæl-
inguni verði N’eittur svo ríflegur
styrkur, sem unt er, upp í sund-
skálabyggingu þeirra. Loks, að
styrkur sá, er Fiskiþingið síðasta
veitti Svalbarðsstrendingum til
sundlaugarbyggingar, 500 lcr.,
verði greiddur þeim á árinu 1930,
samlcv. umsókn þeirra."
2. „Fjórðungþingið leyfir sér að
vekja athygli Fiskiþingsins á
því, hvort eklct sé tímabært aö
að íá það lögboðið, að öilum
piltum innan 14 ára aldurs sé
lcennt sund.“
10. Sildarcinkasalan.
Þessi tillaga var borin upp af
Karli Nikulássyni:
„Fjórðungsþingið mótmælir alger-
lega þcirri ráðstöfun, að tveir bænd-
ur ofan úr sveit séu skipaðir endur-
skoðendur einkasölunnar — með
öllu ókunnir þessari atvinnugrein,
og telur sjálfsagt að síldareigendur
fái að útnefna annan endtirskoðand-
ann að minnsta lcosti, þar sem ver-
ið er að ráðstafa þeirra eigin íé;
AUGLYSIN G.
Jeg undirritaður tilkynni hjermeð,
að eyrna- og brennimark mitt, sem
af mistökum eklci lcomst í síðustu
márkabók, er: Stíft hægra, og gat
vinstra. Brennimarkið er: J. 1886.
Grimsey 12 des. 1929.
fósep Þorsteinsson.
óskar íjórðungsþingið að Fiskiþingið
komi þessum mótmælum áleiðis til
stjórnarinnar." Samþ. í einu hljóði.
11. Sdmvinna niiUifiskifél.deildanna.
J*essi tillaga var borin upp af
Páli Halldórssyni:
„Fjórðungsþingið ályktar, að bezta'
leiðin til þess að efla samvinnu
meðal liskideildanna innbj'rðis,- sé,
að deildirnar' haldi sameiginlega
fulltrúaíundi, til þess að ræða um
sameiginlegt félagsupplag aflans,
sameiginlega verkun, samsölu afurð-
anna í stærri stíl og samkaup nauð--
synja, er til útgerðarinnar heyra, á-
samt mörgu fieiru, er útvegmn varð-
ar og skorar á deildir fjórðungsins
að talca þessa ályktun til íhugunar
og framvæmdar nú þegar.“ Samþ.
tneð öllum atkvæðum.*
12. Frysting og frystihús.
Lessi tillaga var samþ. í einu hlj.:
„Fjórðungsþingið beinir þeirri áslcor-
un til Fiskiþingsins, að rannsaka,
hvort eklci sé útlit fyrir, að mark-
aður geti, áður en Jangt um líður,
opnast í stórum stíl fyrir harðfryst-
an fisk, og hvort íslendingar geti
elclci notfært sér þann markað, og
ef svo sé, þá að fræða almenning
sem fyrst og bezt í þessum efn-
um.“
Úá var eftírfarandi tillaga borin
upp og samþylckt:
„Fjórðungsþingið beinir þeirri áskor-
un til fiskideildanna við Eyjafjörð,
að íhuga hvort eklci væri tiltækilegt
að þær slái sér saman um byggingu
og starfrækslu fullkomins frystihúss-
til þess að tryggja sig íyrir beitu*