Íslendingur - 17.01.1930, Page 1
Talsími 105.
Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson.
Strandgata 29.
XVI ^ árgangur.
Akureyri, 17. janúar 1930
4. tölubl.
Kosningar.
Akureyri — Seyðisfjörður.
Bæjarstjórnarkosningin hjer á Ak-
ureyri, er fram fór þriðjudaginn 14.
þ. m., verður mörgum minnisstæð.
Var veður hið versta alian fyrri
hluta dagsins, hríð og kafald. En
er Ieið undir kvöld, slotaði veðrinu,
en þá höfðu flestir kosið, er ætl-
uðu sjer það, og er ekki sýnilegt
að hin óhagstæða veðrátia hafi
dregið nokkuð að ráði úr kjörfund-
arsókn. — Af um 2020, sem kosn-
ingarjett höfðu, greiddu 1532 atkv.
— Urðu úrslitin þannig:
A-listinn 400 atkv. — 3 fulltrúar
B-listinn 488 — — 3 —
C-listinn 620 — - 5 —
24 atkvæðaseðlar reyndust ógiidir.
Kosnir voru á listunum sem að-
alfulltrúar:
Sig. Ein. Hlíðar með 6I3’/22 atkv.
Hallgr. Davíðsson — 5867« —
Ólafur Jónsson — 55510/22 —
Tómas Björnsson — 525u/22 —
Gísli R. Magnúss. — 506l8/23 —
allir af C-lista.
Erl. Friðjónsson með 48410/22 —
Elísabet Eiríksd. — 4613/a2 —
Einar Olgeirsson — 438y/22 —
af B-lista.
Ingimar Eydal með 38418/22 —
Brynleifur Tobiass.— 36316/22 —
Jón Guðlaugsson — 363'/22 —
af A-lista.
Varamenn C-listans:
Páll Einarsson með 480 atkv.
Stefán Jónasson — 453 —
Jón Guðmundsson — 423 —
Jón Jónatansson — 365 —
Bened. Steingrímss. — 367 —
Varamenn B-listans:
Karl Magnússon með 413 atkv.
Stþ. Guðmundss. — 403 —
Þorst. Porsteinss. — 380 —
Varamenn A-listans:
Böðvar Bjarkan með 348 atkv.
Jóhannes Jónasson — 327 —
Har. Þorvaldsson — 309 —
Hjer er brotatölu slept við at-
kvæðatölu varamannanna.
Úrslitin hafa þá orðið þau, að
jafnaðarmenn hafa tapað tveimur
scetum í bæjarstjórninni og hafa
Framsóknarmenn unnið annað og
Sjálfstæðisflosksmenn — eða »Borg-
araflokkurinn* — hitt. Við bæjar-
stjórnarkosningarnar í fyrra fengu
sömu flokkar, er þá höfðu einnig
sömu lista bókstafi og nú, þessa
atkvæðatölu á lista sína:
A listinn 303 atkvæði
B-listinn 456 atkvæði
C-listinn 563 atkvæði
Hefir því A-listaatkvæðunum
fjölgað um 97 síðan, C lista-atkv.
um 57 og B-lista-atkvæðunum um
32 — og þó munu aðstandendur
hans — jafnaðarmennirnir — hafa
búist við mestri aukning honum til
hand, sakir ungu kjósendanna, sem
nýju kosriingalögin gerðu að kjós-
endum, töidu jafnaðarmenn að þeir
mundu koma undir merki þeirra —
en ekki er að sjá að svo hafi reynst.
— Hið aukna fylgi A-listans getur
Framsókn þakkað Jóni Guðiaugs-
syni; kusu margir listann aöeins
hans vegna, án tillits til stjórnmála-
skoðana. — Sjest það ljósast af því
að hann var næstum orðinn ofjarl
öðrum manni listans — Brynleifi
Tobiassyni; var aðeins broti úr at-
kvæði lægri.
Hrakfarir jafnaðarmanna, eða öliu
heldur kommúnista, í þessum kosn-
ingum, eru hinar verstu — en verð-
skuldaðar. Einar Olgeirsson lærir
vonandi af úrslitunum að hjá verlca-
lýð þessa bæjar fær hann ekki
frjósaman jarðveg fyrir kommúnista-
kenningar sínar — og að hann er
döluð stjarna á hinum pólitíska
himni. — Starfhæfasta rnann sinn
— Steinþór Guðmundsson — hafa
jafnaðarmenn mist úr bæjarstjórn-
inni, við þessar kosningar; — mega
þeir sjálfum sjer um kenna, því
furðulegt er að Eiísabet og Karl
Magnússon skuli hafa verið látin
silja í fyrirrúmi fyrir honum á list-
anum.
Jafnaðarmenn hóía að kæra yfir
kosningunni, fyrir þá sök að Fram-
sókn bieytti um lista. En senni-
lega fær sú kæra lítinn byr hjá
atvinnumálaráðherra, þar sem að
listaskiftin fóru fram innan þess
tíma er skila átti listunum til kjör-
stjórnarinnar. — Það eina, sem þeir
kæmu til að hafa upp úr því að
klaga, yrði það að hinum nýkosnu
bæjarfulltrúum væri meinað að taka
sæti sín í bæjarstjórninni, hálfsmán-
aðartíma eða svo. — En litla svöl-
un ætti það að veita kærendum.
II.
í gær var kosið á Seyðisfirði, —
Listarnir 3 eins og hjer: frá jafn-
aðarmönnum, Sjálfstæðismönnum og
flokksleysingjum.
Listi jafnaðarmanna fjekk 244 at-
kvæði og kom 5 að: Karli Finn-
bogasyni skólastj., Sigurði Bald-
vinssyni póstmeistara, Gunnlaugi
Jónassyni verslunarmanni, Brynjólfi
Eiríkssyni símaverksíjóra og Guðm.
Benediktssyni gullsmið.
Listi Sjálfstæðismanna fjekk 180
atkv. og kom 4 fulltrúum að:
Eyjólfi Jónssyni fyrv. útbússtjóra,
Sveini Árnasyni yfirfiskimatsmanni,
Sigurði Arngrímssyni riísljóra og
Jóni Jónssyni í Firði.
Flokksleysingja-listinn — eða
»sprengilistinn« — fjekk 25 aíkv.
og kom engum að,
Hlutföllin í bæjarstjórninn hald-
ast óbreytt.
Á morgun á að kjósa í Hafnar-
firði. — Þar eru tveir listar í vali,
frá Sjálfstæðismönnum og jafnað-
aðarmönnum.
AKUREYRAR BIÓ
Laugardagskvöldið kl. S1 /2;
M A D O A N A.
Stórfenglegnr kvikmyridasjónleikur í 10 þáttum, eftir hinni heims-
frægu skúldsögu iSovevognens Madonn^. Höf. Mauric
Dekobra hefir sjálfur undirbúið og stjórnað myndatökunni. Sagan
»Sovevognens Madonna« vakti strax afarmikla lirifningu og hefir
hún verið gcfin út í miklu stærra upplagi heldur en nokkur önn-
ur nútíma skáldsaga og þýdd á rnörg tungumál. — Myndin fjallar
urn enska aðalsfrú, sem ekki getur átt samleið méð enska aðilnum,
.en vill njóta gæða lífsins með aðstoð periinga sinna. — Aðalhlut-
verffin leika: Ciaude France, Olaf Fford og Boris De Fas
Sunnud. kl. 5: Alþýðusýning! Niðursett verð!
„JEG KY8SI H0ND YflAR, FAGRA FRÖ“
Kvíkmynd í 7 þáttum, tekin af Superfilm undir stjórn Robert Land.
Aðalhlutverkin leika: Harry Liedkte og Marlene Dietrich
Pessari ágætu mynd fylgja hinar vinsælu íallegu vísur, sem allir
kannast við hjer: »|eg kysser Deres Haand, Madame« og sungnar
verða af hr. Gunnari Magnússyni.
Sunnudagskv. kl. 8 '/2:
NY MYND!
Daiismeyjaii úr klaustrinu.
United Artists Stórfilm í 8 þáttum, tekin undir stjórn hins.heims-
fræga FRED NIBLO. Aðalhlutverkin leika: Gilda Gray og
Clive Brook. — Aðaleíni myndarinnar cr um unga stúlku, sem
er alin upp í Lamá-klaustri í Tíbet, cn strýkur þaðan með ungum
manrii, sem varð, ástfanginn a£ henni, en þrátt fyrir ást þeirra
beggja lendir hún í mörgum æfintýrum og miklum erfiðleilcum.
Myndin er afarspennandi og vel ieikin.
N Y J A B 1 O
Laugardagskvöldið kl. 81/2:
Ókunni maðurinn.
Kvikmynd í 7 þáttum frá Metro Goldwyn, tekin undir stjórn TOD
BRQWNING. Með hina ágætu leikendur í aðalhlutverkunum:
Lon Chaney —- Nortnan Kerry — Joan Grawford. —
Norman Kerry leikúr í þessari mynd ungan mann, sem gengur
undir nafninu »sterkasti maður heimsins*. Leikur hans og hinnar
fögru Joan Crawford er víða með afbrigðum góður.
Sunnudaginn kl. 51/2 Alþýðusýning. Niðursett verð.
Undra-læknirinn.
Kvikmynd í 8 þáttum. — Aðalleikendur eru: Ivan Petrowitsch
— Alice Terry — Paul Wegener. — Fjallar myridin urn
löfrá, dáleiðslu og marga hlufi yfirnáttúrlega. Frábærlega vel
leikin mynd.
Sunnudagskvöldið kl. 872:
H JÓHETJURNAR
Kvikmynd i 7 þáttum frá Metro Goldvvyn, bygð á sögu eftir
Joseph Gonrad. Leikstjóri ROBERT S. ROBERTSSON. í aðal-
hlutverkinu: RAMON NOVARRO, sem ' leikur spénnandi
hlutverk, spánskan sjóliðsfoyingja, sém lendir í k'asti við' sjóræn-
ingja í lvarabiskahafinu og kemst í þeirri viðureign í ótal mörg
rómantfsk æfintýri,. en vinnur síðast sigur.
1
Frá því hefir áður verið skýrt
hjer í blaðinu hvernig að Alþýðu-
flokkurinn í Vestmannaeyjum klofn-
aði í socialdemokrata og kommún-
ista. Fulltrúaráð flokksins var því-
nær eingöngu skipað kommúnist-
um og vildi það hafa lista flokks-
ins við bæjarstjórnatkosningarnar
skipaðan þvínær einvörðungu komm-