Íslendingur - 17.01.1930, Blaðsíða 2
2
ÍSLENDINGUk
únistum. — Pessu undu social
demokratar ilia og hreyfðu andmæl-
um, sem höfðu það í för með sjer,
að fulltrúaráðið rak þá úr flokkn-
um. — Allir vita nú hvernig að
kosningarnar fóru, kommúnistar
fóru hinar mestu hrakfarir en soci-
aldemokratar fengu meginið af verka-
lýð Eyjanna undir sitt merki.
Aftur er afstaða þingmanns Ak-
ureyrar, Erlings Friðjónssonar, til
þessa klofnings, síður kunn. — En
strax og hann frjetti um hann, þókn-
aðist honum, sem formanns »fuil-
trúaráðs vsrkalýðsfjelaga Akureyrar,«
að senda kommúnistaforingjunum í
í Vestmannaeyjum svolátandi sím-
skeyti: ■
»Óskum fulltrúatáðíhu ogverka-
lýðnum allra heilla í baráttunni
gegn íhaldinu og verkalýðssvik-
urunum.
Fulltrúaráð verklýðsfjelaga Akureyrar
Erlingur Friðjónsson.«
Þingmaðurinn er ekkert að skera
utan af því. Hann óskar kommún-
istunum allra heilla og biessunar í
baráttunni en kallar socialdemokrata,
sem til þessa hafa verið skoðaðir
máttarstóipar Alþýðuf lokksins, verka-
lýðssvikara. — Pað er auðsjeð af
öliu, að þingmaðurinn hefir verið
næmur námssveinn í hinum póli-
tíska skóla Einars Olgeirssonar.
En hvað segja þeir Jón Baldvins-
son og Hjeðinn um öll þessi boð-
orð? — Þeir munu þó enn þá
kalla sig sociaidemokrafa.
Og Dagur? Hann lýsir því
hátíðlega yfir í gær, að þrátt fyrir
alt og ait, sem borið hafi í milli
í bæjarstjórnarkosningunum hjer,
staudi afstaða Framsóknar til Ai-
þýðufiokksins óbreytt: sama vin-
áttusambandið, sama bræðrabandið,
það sjeu aðeins kommúnistar sem
Framsókn viiji ekki þýðast. — Hver
verður þá afstaðan til Erlings Frið-
jónssonar?
Hjer og þar.
Stjórnin tapar máli.
Eins og menn muna eftir, urðu
ymsar af starfskonunum á Vífilstaða-
hæli fyrir barðinu á dómsmálaráð-
herranum um áramótin í fyrra. Hafði
hann nokkru áður lagt svo fyrir
yfirlæknir hælisins að þeim yrði sag.t
upp frá áramótum. Meðal þeirra er
þannig var farið með var ráðskona
hælisins, ungfrú Fjóla Stefánsdóttir.
— Yfirlæknirinn tilkynti dómsmála-
ráðherra, að ráðskonunni yrði ekki
sagt upp frá áramótum, því hún
væri ráðin með 6 vikna uppsagnar-
fresti. — En dómsmálaráðherra
skeytti því engu og skipaði aðra
konu í starfann frá áramótum. —
Ungfrú Fjóla gerði þá kröfu, að sjer
yrði greitt kaup fyrir þann tíma,
sem eftfr væri, til að fylla 6 mánaða
uppsagnarfrestinn, en þvf var heldur
ekki sint. — Rjeðist þá ungfrúin í
það að leita rjettar sfns með aðstoð
laganna og höfðaðiN mál á hendur
fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkis-
sjóðs, og kraíöist kaups frá áramót-
um til 6. aprí! og auk þess uppbót
fyrir fæöi og húsnæöi. — Nam krafa
ungfrúarinnar alls 1200 kr. — Und-
irrjettur sýknaði ríkissjóð af kröfum
ungfrúarinnar, en hún áfrýaði mál-
inu um hæl til Hæstarjettar. — Er
dómur hans nýlega fallinn og gekk
ungfrúnni algerlega í vil. Er ríkis-
sjóður dæmdur til að greiða ungfrú
Fjólu 1200 kr. í skaðabætur fyrir
samningsrof og 400 kr. í málskostn-
að. — J?ykir dómsmálaráðherra lít-
ið hafa vaxið af máli þessu — því
einn ber hann sökina.
t'ingundirbúningurinn.
Alþingi á að koma saman í dag.
— Ekki færri en 10 nefndir hafa
starfað fyrir stjórnina að undirbún-
ingi frumvarpa og ýmiskonar rann-
sókna, þingmálum viðkomandi, svo
ætla má að úr einhverju verði að
moða. — 22 nefndir hefir stjórnin
skipað síðan hún komst til valda og
flestallar launaðar. Mun það heims-
met á ekki lengri tíma.
Skuldir viö úflönd.
í siöasta blaði Hagtíðinda er
skýrsla um skuldir vorar við útlönd,
og nær yfir árin 1925 — 1928. Sje
skuldum þeim, sem greiðast eiga í
erlendum gjaldeyri, breytt í íslensk-
ar krónur eftir hver árslok, verður
heildarupphæö skuldanna við útlönd
þessi:
FASTASKULDIR:
í árslok 1925 33,836,000
- 1926 37,377,000
- — 1927 41,111,000
- 1928 41,987,000
LAUSASKULDIR:
í árslok 1925 5,665,000
- — 1926 16,436,000
- 1927 8,268,000
- — 1928 1,022,000
RÍKISSKULDIR:
Ef hluti bankanna af enska láninu
frá 1921 og veðdeildarbrjefalánin eru
talin til skulda ríkissjóðs, verður
skuldaupphæð hans við útlönd, talin
í íslenskum krónum. þannig:
1925 16,743,000 kr.
1926 19,454,000 —
1927 23,668,000 —
1928 23,063,000 —
Allar eru skuldir þessar við Dan-
mörku nema enska lánið, sem nam
alls rúml. 10 milj. kr. um síðastliðin
áramót. Og það er ekki nema þriðj-
ungur af útlendum skuldum rikis-
sjóðs, sem hann stendur sjálfur
straum af.
Alt eru þetta fastaskuldir, því að
árið 1925 greiddi ríkissjóður allar
erlendar lausaskuldir sínar,
SKULDIR KAUPSTAÐA.
í árslok 1928 voru erlendar skuld-
ir kaupstaða í íslenskum krónum
sem hjer segir:
Reykjavík kr. 4.471,000
Vestmannaeyjar — 233,000
Akureyri — 233,000
ísafjörður — 84,000
Allar þessar skuldir eru við Dan-
mörku.
AÐRAR SKULDIR.
Skuldir bankanna, að frádregnu
enska láninu, nam 81/* milj. kr. x
árslok 1928.
Fastaskuldir atvinnufyrirtækja
námu rúml. 5 milj. xsl. kr., þar af
hjá Eimskipafjelaginu rúml. 1 milj.
og hjá togarafjelögunum tæp 1 milj.
Upphæð fastaskuldanna hækkaði
árið 1926, ekki vegna þess að ný
lán væri tekin, heldur vegna þess
hvað danska krónan hækkaði. En
það ár hækka allar erlendar skuldir
þó ekki nema um 1,8 milj. kr., þráit
fyrir veðdeildarbrjefalánin, sem námu
2,5 milj. kr. Hafa því aðrar skuldir
lækkað um milj. kr.
AÐALFUNDUR
Skipstjórafjelags Norðlendinga
verður haldinn á Hótel Akureyri sunnudaginn 19. jan. 1930 kl. 1 e. h.
Dagski-á: Samkvæmt fjelagslögum.
Stjórnin.
Vígtennur og floltksfylgi.
Dagur — í gær — lýsir velþókn-
an yfir þeim orðum vinar síns, Stþ.
Guðmundssonar, að búið sje að brjóta
»allar vígtennur* úr »íhaldsflokk«
þessa ltjördæmis, sem þeir kalla svo
— og kveður þau sannmæli. —
Markmið íhaldsflokksins gamla var
aldrei að bíta og skemma, heldur
að lækna og gi'æða skemdir og bit
lxinna flokkanna — og sömu stefnu
hefir Sjálfstæðisflokkurinn — víg-
tennur hafa þeir hvorugur haft. —
Hvað því viðvíkur, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi ekki þorað að sigla
undir eigin heiti við nýafstaðnar
bæjarstjórnarkosningar og kallað sig
»borgaraflokk«, salcir þess að hann
skoöaði þaö fylgisvænlegra, er því
að svara, að bæði íhaldsflokkurinn
og Sjálfstæöisflokkurinn nú, hafa
viljað láta landsmálapólitíkina vera
bæjarmálefnum óviðkomandi og að
bandalag hefir verið við menn sem
stóðu utan flokkssamtakanna. Þessu
hefir aldrei verið lejmt. — Hinsveg-
ar vita það líka allir, að meginið af
fyigi því sem listar, bæði íhalds-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins, hafa
haft, hefir verið hreint flokksfylgi,
og vita má Framsókn það, að hún
á ekki — sem stjórnmálaflokkur,
helminginn af þeim 400 atkv., sem
listi hennar fjekk nú við kosningarn-
ar; hún á ekki yfir 180 atkv. hjer
í bænum. Það er persónufylgi fram-
bjóðendanna, og reynsla sumra þeirra
í bæjarmálum, sem gaf listanum
fylgið. — Þess vegna ætti Dagur
að státa sem minst af fylgi flokks
síns hjer í bænum. — En hvað
Sjálfstæðisflokknum viðvikur, þá er
hann ómótmælanlega stærsti flokkur
bæjarins — og C-lista-fylgið að
mestu leyti hans. Mun það betur
koma á daginn síðar.
Símskeyti.
Frjettastofu (slands).
Rvík í morgun.
Ut/end:
Frá Genf: Framkvæmdaráð
Pjóðabandalagsins hefir útnefnt
Helga P. Briem, skattstjóra í Rvík,
meðlim fjármálanefndar ráðsins til
þess að standa í brjefaskriftum við
nefndina út af tvísköttum.
Frá Haag: Opinberlega tilkynt,
að aðsetur Alþjóðabankans verði í
Basel í Sviss.
Frá New York: Kínverska bjarg-
ráðafjeiagið tilkynnir, að ö miijónir
manna hafi orðið hungúrmorða í
Kfna 2 síðustu árin. — Annar eins
fjöldi eigi í hættu sömu örlög á
þessu ári vegna uppskerubrests og
samgönguörðugleika.
Frá London: Tutfugu manns
druknuðu af dráttarbraut tilheyrandi
Atlantshafsflotanum á sunnudags-
kvöldið. Voru þeir við skotæfing-
ar í stormi.
Innlend:
Aiþingí verður sett í dag, en
þingstörf byrja ekki fyr en eftir
Yet karlm. 10 m rarhúfur & drg. seljast með ip íífQlSDttÍ
1U {Ji b.dlolCOUl fyrst um sinn.
Braims-Verzlim.
Páll Sigui-geirsson.
helgina, sakir fjarveru nokkra þing-
manna.
Sighvatur Gr. Borgfirðingur sagn-
fræðingur er nýiátinn.
Stjórn síldarbræðsluverksmiðjunn-
ar á Sigiufirði er skipuð Þormóði
Eyjólfssyni, Guðmundi Skarphjeð-
inssyni og Sveini Benediktssyni í
Reykjavík. Er hinn síðast-taldi kos-
inn af landsstjórninni. Þessir menn
velja síðan framkvæmdastjóra verk-
smiðjunnar.
Útflutningurinn síðastl. ár nemur
69,400,000 kr. Innílutningurinn nem-
ur sennilega svipaðri upphæð. At-
hugandi er, að mikið hefir verið
flutt inn af byggingarefni, tilbúnum
áburði, bifreiðum o. fl. slíku.
Aflinn 1. jan. var orðinn 417,273
skpd; fiskbirgðir 52,690 skpd.
Afar mikil snjóþyngsli eru sunn-
anlands. Umferðateppa fer þó
batnandi í urnhverfi Reykjavíkur.
atBwnni 'i.4'.ir
lír heimabðgum.
I. O. O. F. 11111781/*.
Snorri Sigfússon kennari kom með
Esju á inánudaginn, vestan af Flateyri.
VerBlaun úr Carnegie-sjóði. Sam-
kvæmt tilkynningu frá sendiherra Dana.
hafa tveimur íslendingum verið veit,
verðlaun úr hetjusjóði Carnegies. Eru
það H. Stefánsson á Pórðarstöðum í
Hálsahreppi i Suður-Pingeyjarsýslu, og
Benedikt Guðnason i Suður-Múlasýslu.
Skemdir. Á föstudaginn var fauk yfir-
byggingin — þah. ris og loft — af húsi
Matthíasar Hallgrímssonar kaupmanns á
Siglufirði og standa veggirnir einir eftir.
— Pakið fauk á tvö hús, tók reykháfinn
af öðru en braut gat á hitt. Skemdirnar
á húsi Matthíasar nema um 15 þús. kr
að minsta kosti.
„Alt Heidelberg“ verður sýnd á Nýja-
Bíó í síðasta sinn i kvöld. Geysir syng-
ur stúdentasöngvana.
Opinberunarbókinn. Nýiega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Anna Flóvents-
dótlirog Thorvald Mulander myndasmiðu r.
Óskilahross j^
undirrituðum. Steingrár hestur (ekki
hryssa eins og auglýst var á dögun-
nm) flatjárnaður. Mark: fjöður aftan
hægra og hófbiti eða lögg fr. vinstra.
Er rjettur eigandi beðinn að vitja
hans til mín nú þegar og boi-ga
áfallinn kostnað.
Mýrarlómi, 15. jan. 1930.
Guðmundur Jónsson.