Íslendingur - 05.12.1930, Blaðsíða 2
2
ISLENDINODR
ar voru í minni hluta á ráðsteín-
unni og komu engu af áhugamálum
sínum fram. Var f^ld tillaga þeirra
um stofnun óháðs verklýðssambands,
en samþvkt tillaga-- frá sósíal-demó-
krötum um að lýsa vantrausti og.
fordæmingu á málgagni þeirra
Verklýðsblaðinu. Varð árangur
ráðstefnunnar enginn. T’ingið var
svo sett þann 25. og lauk um mið-
nætti þess 29. —■ Kommúnistar þar
einnig í miklum minni hluta. Samt
bar E. Olgeirsson fram vantrausts-
yfirlýsingu á stjórn sambandsins. —
Urðu um hana langar og heitar um-
ræður. Fjellu óþvegin orð frá
kommúnistum i garð Sambands-
stjórnarinnar, sjerstaklega þeirrajóns
Baldvinssonar og Hjeðins. Jvallaði
Ingólfur Jónsson Hjeðinn »leiguþý
breska heimsveldsins« og fleira svip-
að og Einar jós sjer yfir Jón Bald.
og kallaði hann »auðvaldsþý«' Sagði
m. a, að þótt þeir báðir ynnu fyrir
auðvaldshringi, þá væri munurinn
sá, að hann ynni fyrir verkalýðinn
en Jón kappkostaði að viðhalda auð-
valdsskipulaginu. Vantraustsyfirlýs-
ingin var að lokum feld með 53
gegn 15 atkv. Eftir ófarir þeirra,
bæði við vantraustsyfirlýsinguna og
í andstöðunni gegn upptöku fjelags-
ins »Þórshamar« úr Vestmannaeyj-
um í Sambandið, gengu kommúnist-
ar af fundi, og var haldið að þeir
mundu ekki sýna sig á þinginu aft-
ur, en svo var þó ekki. Þeir komu
aftur en ljetu úr því lítið á sjer
bæra. Samþyktar voru á þinginu
ýmsar tillögur, er styrkja vald Sam-
bandsstjórnarinnar og draga úr á-
hrifum kommúnista innan flokksins.
Geta þeir nú aðcins íengiö að hýr-
ast í flokknum, að þeir hlýðnist
flokksaganum og stefnuskrá Alþýðu-
flokksins. Öllu þessu urðu þeir Ein-
ar og íjelagar hans að finna sig í
eða fara — og þeir kusu heldur að
sitja, þótt þeir væru sviftir öllum
völdum í flokknum. Eftirtektarverð-
asta tillagan, sem samþykt var á
þinginu, var að segja upp hlutleys-
inu við núv. ríkisstjórn. Var það
gert með 47 gegn 1 atkv. — Hvort
þingið ætlast til með þessu, að al-
þingismenn flokksins snúist til and-
stöðu við stjórnina eöa hjer sje að-
eins um klókindabragð að ræða, til
þess að knýja stjórnina til að launa
flokknum enn þá betur en hún hefir
gert, vita menn ógerla, en fult eins
má búast við því síðara — að þing-
mennirnir eigi kaupslaga við stjórn-
ina á ný, Á þinginu var samþykt
að Sambandsstjórnin skyldi skipuð 8
mönnum fleira en áður, og að viðbótin
skyldi vera úr kaupstöðum landsins
utan Reykjavíkur. Lenti því Erling-
ur í stjórninni. Er honum ætlað
að hafa gætur á Einari og rauð-
skinnum hans hjer. Formaður Sam-
bandsstjórnarinnar er Jón Bald. og
varaformaður Hjeðinn — báðir end-
urkosnir, og allir helstu burgeisar
flokksins hafa þar sæti.
Einar Olgeirsson
kvað hafa lýst því yfir á Alþýðu-
sambandsþinginu, að hann ætlaöi sjer
að íara frá Síldareinkasölunni við
lok yfirstandandi starfsárs hennar.
Fer sijórnin?
Sú ósennilega frjett hefir borist
hingað, að Framsóknarstjórnin muni
ætla segja af sjer, þegar þing kem-
ur saman — eða fyrri — sviíti Al-
þýðuflokkurinn hana »lilufleysi« því,
er hún hefir verið aðnjótandi frá
honum. Naumast þarf að gera ráð
fyrir slíku. Stjórninni eru völdin
svo kær að hún gefur þau ekki frá
sjer fyr en hún er neydd til — og
hver býst við því að Erlingur Frið-
jónsson, Jón Bald. og Hjeðinn verði
henni örðugir, þegar til alvörunnar
kemur? Að minsta kosti ekki hann
Jónas frá Hriflu — og þekkja fáir
þá betur.
»Jáfning Magn. Gnðmundssonar.
Dagur, í gær, er mjög kampa-
gleiður yfir því að Magnús Guð-
mundsson hafi nýlega játað það í
Morgunblaðinu, að öVs milj, króna
bráðabirgðalánið hjá Barcleys Bank
væri hluti af 12 miljóna króna lán-
inu — en Morgunblaðið sjálft hafi
áður haldið því gagnstæða fram. —
Það hefir Morgunblaðið alls ckki
gert. Páð hefir jafnan sagt skýrt
og skilmerkilega að þetta Barcleys-
bankalán væri bráðabirgðalán, sem
greiðast yrði er 12 milj. króna lán-
takan fengist, og ætíð dregið það
frá ríkisskuldunum í tilfelli af töku
12 milj. kr. lánsins; en ekki talið
það jafnframt eins og Dagur heldur
íram. — En eins. og málstað núv.
stjórnar er komið, hentar það henni
ekki, að sanníeikurinn sje sagður—
og Dagur hagar sjer þar eftir, trútt
hjú sem hann er.
Samband vinnuveitenda.
Fjelag ísl. botnvörpuskipaeigenda
í Reykjavík hefir ákveðið að gang-
ast fyrir því, að stofnað verði sam-
band vinnuveitenda hjer á landi. —
Aðaltilgangurinn með stofnun slíks
sambands, er að auka samvinnu og
fjelagsþroskavinnuveitenda, hvar sem
þeir starfa á landinu. Vinna að því
að tryggja vinnufriðinn og reyna
að koma í veg fyrir verkföll, verk-
bönn og aðrar vinnutafir, mcð samn-
ingum í vinnudeilum og yíirhöfuð
á allan hátt stuðla að því, að at-
vinnurekstur landsmanna verði rek-
inn á sem heilbrigðustum og ör-
uggustum grundvelii í framtíðinni.
Málinu er þegar komið það áleiðis,
að bráðlega mun verða leitað full-
tingis manna út um land, og sam-
bandið stofnað innan skams. ,
Frjettir
úr N.-Þlnyeyjarsíslu.
Árið 1930 verður altaf talið viðburða-
ríkt í sögu þessa lattds. Og veldur því
hin margumrædda Alþingishátíð. Og i
öðru lagi árferðið bæði til lands og
sjávar. Við hjer í Norður-Pingeyjarsýslu
höfum ekki farið varhluta af viðburðum
þessa Herrans árs.
Árferðið 1930. — Árið byrjaði með
fannkomu mikilli. Og þar af leiðandi
urðu bændur hjer i sýslu að gefa mikið
af heybirgðum sínum. En þrátt fyrir alt
þá björguðust skepnur manna vel af,
því bændur yfirleitt voru vel undir þann
vetur búnir. En nú horfir öðruvisí við
fyrir bændum. — Veðráttan síðastliðið
sumar var afar óhagstæð til heyskapar.
Sífeldir óþurkar og grasspretta í lakara
meðallagi, sjerstaklega á útengjum. Svo
heyfengur manna hjer í sýslu er afar
rir, og getur þvi með rjettu talist, að
bændur sjeu illa við því búnir að mæta
hörðum vetri. Enda ekki laust við kvíða
í mönnum, því þessi vetur er ýlgdur á
brún það sem af honum er liðið.
Verslunarhorfur. — Pá horfir verslun
ekki vel við. Ullin liggur óseld ennþá,
eins og ðllum er kunnugt, gærur lítt
seljanlegar og verðið frámunalega lágt.
Kjötverð er áætlað um kr. 0,90 kg., eða
likt og í fyrra.
Útgerðin. — Um útgerðina er það að
segja, að það hefir aflast í meðallagi.
En aftur á móti er afar tvlsýnt um,
hvernig muni ganga að koma sjávaraf-
urðunum í það verð, að úgerðin geti
borið sig, þvl kaupgjald var algerlega I
ósamræmi 'við verð afurðanna. Og þar
á ofan bætist að inikið af fiski liggur
óselt ennþá, og væri óskandi að það
rættist úr sölu með haiin bráðlega, ann-
ars stendur útgerðinni dauði fyrir dyrum.
Framkvœmdir. — En þrátt fyrir aila
erfiðleika höfuin við orðið stórfeldra
framkvæinda aðnjótandi, sein að vísu
liafa verið kostaðar af því opinbera.
Skal jeg þar tilnefna brú á á, þar sein
skilur hreppana Langanes og Þistilfjörð,
og heitir Hafralónsá. Er brúin talin vera
annað mesta mannvirki hjer í sýslu,
enda afburða vel gerð. Ennfremur voru
2 smærri brýr snúðaðar i sambandi við
hana, á Fossi á Langanesi og Laxá í
Pistilfirði. Einnig hefir verið unnið
ósleitiiega að vegngerð fra Fossá og að
Hafralónsá, eins og reyndar víðar hjer
í sýslunni.
Brúarvígsla. — Þann 12. okt. síðasti.
fór fram vígsla á hinni margþráðu Hafra-
lónsárbrú, að viðstöddu fjölmenni, þrátt
fyrir óhagstætt veður. Vigsluria fram-
kvæmdi forseti neðri deildar Ajþingis,
Bencdikt Sveinsson, alþingismaöur kjör-
dæmisins. Samkomuna setti brúarsmið-
ur Sigurður Jónsson nieð nokkrum vel-
völdum orðum. Pá flutti sjera Þórður
Oddgeirsson á Sauðárkróki guðsþjón-
ustu. Að því loknu stje forseti í ræðu-
stólinn og hjelt langa og snjaila ræðu,
er tekið var með dynjandi lófaklappi.
Næstur honum talaði sýslunefndarmaður
Jón Björnsson, og sagðist honum vel að
vanda. Þá talaði Jón hreppstjóri Guð-
mundsson i Garði, og var gerður góður
róinur að máli hans. Næstur honum
talaði Guðmundur Vilhjálmsson kaupfjel-
agsstj. á Syðra-Lóni, og hafði hann þau
orð I endir ræðu sinnar, sem hæglega
hefðu getað spilt veisiugleði manna, ef
tekin hefðu verið í alvöru sögð. Honum
fórust þannig orð: „Lengi lifi sú fram-
kvæmdasamasta og besta stjórn sem
verið hefir á íslandi", og bað að hrópa
húrra, og ætlaði að segja eitthvað fleira,
en þá kvað við þys mikill ineðal mann-
fjöldans, svo hann varð að hætta tali
sínu, en húrrahrópin voru ekki heyran-
leg. Pað hefði ekkert verið við það að
athuga þó hann hefði komist svona að
orði á pólitískum fundi, en það virðist
óheppilegt á gleðisainkomu. Enda þótti
mörgum súrt að mega ekki svara lioiium
með viðeigandi orðum, þvl allir vita hug
manna til núverandi stjórnar. Pað getur
þvi engum dulist, að það hefir verið á-
setningur kaupfjelagsstjórans, að etja
mönnuin sanian i pólitískt rlfrildi. — Þar
næst flutti Jóhannes bóndi Jóhannesson
kvæði sem hann hafði ort við þetta
tækifæri, og var þvi vel fagnað. — Enn-
fremur var -þarna söngflokkur undir
stjórn Ara Jóhannessonar. Brúarvígslu-
ljóð eftir þá Jón Guðmundsson hrepps-
stjóra í Garði og Jón Jónsson frá Giis-
bakka i Borgarfirði (syðra) voru sungin.
Þá töluðu jóhannes bóndi Árnason, Jón
Jónsson, Jóhannes Jóhannesson og Guð-
mundur Kristjánsson fyrv. póstur frá
Vopnafirði. Milli ræðuhaldanna voru
sungin ýms ættjarðarljóð. Að endingu
stje forseti aftur í ræðustól og jiakkaði
mönnum komuna ineð snjallri ræðu, og
fjekk dúndrandi húrrahróp að skilnaði.
Hjerineö tilkynnist vinum og
vanclamönnuin, aö okkar elsku-
lega eiginkona, dóttir og systir,
Ingibjörg Porláksdóttir, andaöist
á sjúkraliúsi Akureyrar þriöjud.
2. des. Jarðaríörin ákveöin síðar.
Aöstandendur.
Samsœti. — Nú fyrir skömmu hjeldu
hjeraðsbúar i læknishjeraði Pistilfjarðar,
samsæti Eggert lækni Einarssyni og frú,
í tilefni af vel unnu starfi í þágu hjer-
aðsins í 6 ár, sem þau hafa verið hier,
og færðu þeim að gjöf málverk mjög
vandað, eftir Jón Stefánsson listmálara.
Slys. — Pann 7. nóv. varð drengur
úti frá Eldjárnsstöðum á Langanesi. Var
hann að ganga við kindur ásamt hús-
bónda sínum, Jónasi Aðalmundssyni, og
var mjög skaint á milli þeirra. Svo
hvesti mjög snögglega með mikilli fann-
komu. Hljóp Jónas strax þangað sem
hann vissi að drengurinn átti að vera,
og kallaði og leitaði sein best hann gat
en alt kom fyrir ekki. Svo fór hann að
ná í menn, og var leit hafin sama dag
og næstu daga, en drengurinn fanst ekki
og er ófundinn enn. Hann hjet Þórður,
og var sonur Sigurðar Jónssonar skó-
srniðs á Þórshöfn.
YÖRÐUR
— fjelag ungra Sjálfstæðismanna —
heldur fund sunnudaginn 7. þ. rn.
kl. 1,30 e h, í Verslunarm.fjel húsinu,
DAGSKRÁ:
Inntaka nýrra fjelaga
Framhaldsumr. frá síðasta fundi.
Málefnanefnd.
Áríðandi er að menn mæti stund-
víslega, þar sem fundartíminn er
takmarkaður.
STIÓRNIN.
J. S. KVARÁN,
Akureyri,
sem fer utan með einhverri af fyrstu
ferðum eftir áramót og dvelur alls
nokkra mánuði í Þýskalandi, Hol-
landi, Sviss, Wien og Prag, tekur
að sjer kaup og sölu á flestum al-
gengum vörutegundum. Einkum
vildi jeg ná tali af þeim, sem eiga
refaskinn, selskinn og notuð íslensk
frímerki, sein allra fyrst.
Verslanir mínar á Akureyri og Eski-
firði geta gefið upplýsingar um veru-
stað minn ytra, þegar þar að kemur.
Efri hæð^tr^,
sölu og laus til íbúar 14. maí. —
Benedikt Pjetursson.
Útvarpskenslan.
Bækur þær, sem notaðar verða
við »Enskukenslu útvarpsins*
hefi jeg nú til sölu bæði fyrir
byrjendur og þá. sem lengra
eru komnir.
F. H. Berg, IKfe.27-
Gott Ijós
gleður á hvíldarstundum og
gerir vinnuna auðveldari.
Sparið eigi gott ljós.