Íslendingur

Útgáva

Íslendingur - 20.03.1931, Síða 2

Íslendingur - 20.03.1931, Síða 2
2 ÍSLENDINGUR fram á að núverandi ráðherrar o»- ýmsir fylgismenn þeirra hefðu hald- ið því fast fram fyrir stjórnarskiftin, að það væri alveg á valdi ríkis- stjórnarinnar, hvaða vexti bankarnir tækju. Hefðu Framsókn og banda- menn hennar þá kennt fyrv. stjórn um hina háu útlánsvexti og notað það sem kosningaagn. Loks hefði stjórnin í fyrra lofað vaxtalækkun — en úr þeim loforðum hefði orðið vaxtahækkun í öllum bönkunum. — Leiddist talið allmjög út í með- ferð þings og stjórnar á bankamál- um. Átaldi Sigurður Eggerz m. a. það harðlega, að stjórnin skyldi veita stærzta skuldunaut tveggja bankanna, æðstu yfirráð yfir þessum bönkum, þar sem Jón Árnason, for- stjóri Sambandsins, væri stjórnskip- aður formaður í bankaráði Lands- bankans, og Svafar Guðmundsson, starfsmaður Sambandsins, formaður bankaráðs Útvegsbankans. Og strax þegar Búnaðarbankinn hefði hafið starfsemi sína, hafi Sambandið feng- ið IY2 milj. kr., eða nálægt helming þess fjár, er bankinn hafi fengið af »Einars-láninu« og átt hefði að lána bændum landsius. Ýms mál. Meiri hluti fjárhagsnefndar efri deildar, jón Bald. og Ingvar leggja til að frv. um einkasölu 'á tóbaki og eldspítum verði samþykkt. — Minnihlutinn, J. f’orl. vill aítur á móti fella það. Snarpar umræður hafa orðið í Ed. um fimtardómsfrumvarp dóms- málaráðherra, sem hann hefir látið In§var fiytja að þessu sinni fyrir sína hönd. Urðu deilurnar aðallega milli dómsmálaráðherra annarsvegar og Péturs Magnússonar og J. Þorl. hinsvegar. — Frumvarpinu vísað til allsherjarneíndar. Páll Halldórsaon skólastjóri Stýri- mannaskólans hefir skrifað efri deild bréf og beðið um leyíi til að mega stefna dómsmálaráðherra, eða til vara Ingvavi Pálmasyni, fyrir um- mæli í greinargerð fimtardémsfrum- varpsins. Sveinn Ólafsson flytur í Nd., fyrir tilmæli dómsmálaráðherra, írv. um eftirlit með loftskeytum togara. — Er það »ömmu«-frumvarpið sem nú kemur í þriðja sinn fyrir þingið. Héðinn og Sigurjón flytja frumv. um að fjölga þingmönnum ^Reykja- víkur úr 4 upp í 9. F álækrallutningur. Frú Guðrún Lárusdóltir flytur svohljóðandi viðauka við 58. gr. fá- tækralaganna: »Fó má engan flytja fátækraflutn- ingi, sem orðinn er fullra 65 ára, nema samþykki hans komi til, Enn- fremur má atvinnumálaráðherra veita undanþágu frá lögmæltum fátækra- flutningi, ef sérstaklega stendur á, svo sem þegar í hlut á ekkja með börn. — Fann kostnaðarauka, sem framfaerslusveit sannar, að hún hafi af því, að flutningur er ekki fram- kvæmdur, skal greiða úr ríkissjóði.« V esturfarar! Hér með er skorað á alla þá, er ferðast hafa ti! Ameríku, og dvalið þar um Iengri eða skemmri tíma; en eru nú búsetiir á Akureyri eða í nágrenninu, að gefa sig fram til þáttöku í vesfur-íslensku kaffi- kvöldi, sem haldið verður bráðlega, ef naeg þáttaka fæst. Þeir, sem eiga vilja hlutdeild í kaffikvöldinu, ættu að skrifa nöfn sín á lista, sem liggja frammi hjá Jóni Rögnvaldssynf í Bókav. Kr. Guð- mundssonar, eða hjá F. H. Berg, Strand- götu 27, og hafa gert það fyrir 1. april n. k. Hér og þar. Kaupfélagsritið. Tíminn og Dagur gera mikið veð- ur út af því að Ólafur Thors hafi nú á þinginu riíið í sundur og kast- að í bréfakörfuna lofriti því er rík- isstjórnin gaf nýlega út um Kaup- félag Eyfirðinga. Telja blöðin, að Ólafur hafi með þessu sýnt bændum landsins fyrirlitningu og Ijóstrað því upp hvern hug hann bæri til Kaup- félags Eyfirðinga og samvinnuhreyf- ingarinnar yfirleitt. — Ólafur svar- ar nýlega Tímagreininni í Morgun- blaðinu. Bendir hann þar á, að það sé með öllu óeðlilegt að pólitísk verzlunarstarfsemi sé loísungin á kostnað ríkissjóðs eins og forsætis- ráðherra hafi með riti þessu leyít sér að gera. Og þetta sé meira en óeðlilegt, það sé hrein og bein ó- skammfeilni, sem sýni glögglega þá spillingu, sem ríki í meðferð stjórn- arinnar á alþjóðafé. — Með því að henda frá scr ríkissjóðsritinu um Kaupfélag Eyfirðinga haíi hann í engu fjandskapast við eyfirska Fram- sóknarmenn eða samvinnuhreyfing- una, heldur aðeins sýnt verðskuld- aða andslygð á þeim gripdeildar- mönnum, sem ekki kunni skil á rík- issjóði og fiokkssjóði — og kunni þó skil, því — segir Thors — „ég fullyrði óhikað, að bók þessi um Kaupfélag Eyíirðinga væri óprentuð ef flokkssjóður Framsóknarflokksins hefði mátt leysa hana út með 20 — 30 þúsundum króna,« Skuldaframfalið. Einar fjármálaráðherra sagði í fjárhagsræðu sinni á dögunum, að árin 1926—1927 heföu skuldir rík- issjóð verið rangt taldar um á ann- an tug miljóna. Nú er það þáver- andi ráðherra Framsóknarílokksins, Magnús heitinn Kristjánsson, sem samdi landsreikningana fyrir bæði þessi ár. Er fyrri reikningurinn undirskriíaður af honum 25. okt. 1927 en hinn 27, okt, 1928. Báðir eru reikningarnir úrskurðaðir réttir aí Alþingi, þar sem núverandi stjórn- arflokkur er þá ráðandi, og sjálfur Einar Árnason, sem nú kemur fram fyrir þingið og segir reikningana ranga, samþykkir þá báða með at- kvæði sínu. Það er slysalegt margt um Einar ráðherra,* síðan hann varð að lúta ráðum og fyrirskipunum sér verri manna, og annað ætti minning Magnúsar Kristjánssonar skilið af Framsóknarforingjunum en að á hann væri borið það illmæli, að hafa lagt ranga landsreikninga fyrir Alþingi. 33 miljónirnar. Framsóknarblöðin hafa nú fengið skipun um að gera töp bankanna síðustu 15 árin að veganesti flokks- ins í komandi kosningabaráttu og reyna að vega á þann hátt upp á móti fjársukki núverandi ríkisstjórn- ar í þjóðarbúskapnum — að leggja töpin að dyrum »braskaranna í í- haldsflokknum«. Töpin nemi 33 miljónum og þeim hafi þessi »brask- aralýður« komið í lóg, svo að þeirra sjái ekki stað, þær lent í óhófseyðslu og í útgáfukostnað »íhaldsblaða«, Lygin hefir löngum verið Framsókn- arhöfðingjunum töm. Töpin eru, eins og Framsóknarhöfðingjunum er kunnugt, mest að kenna aíleiðing- um stríðsins, óviðráðanlegum verð- breytingum og að borgað hefir ver- ið meira fyrir framleiðsluna en fyr- Maðurinn minn, ltaupm. Jakob Björnsson, andaðist á heiinili sínu á Svalbarðseyri þ. 17, þ. m. Jarðarförin verður ákveðin síðar. Sigríður Björnsson. ir hana fékst aftur, það er til’ þjóð- arinnar sjálfrar, sem þessar miljónir hafa runnið, í ríkissjóðinn og önnur opinber gjöld, í vinnulaun og verk- legar framkvæmdir. — Fi'amsóknar- blöðin þegja vendilega um það, aö nærfelt s/s af tekjum ríkissjóðs hafa runnið frá »braskaralýðnum« síðustu 2 áratugina og að atvinnulíí lands- manna og framfarir til lands og sjávar heíir átt þar aðallíftaug sína. Hvar værti framfarir landbúnaðarins ef atorkumennirnir, er rekið hafa sjávarútveginn, hefðu ekki verið að verki og hver hefði afkoma ríkis- sjóðsins- orðið án þeirra. Fær milj. sem bankarnir hafa tapað á óhöpp- um einstöku manna — þ. á m. nokkurra Framsóknarmánna — lief- ir þjóðin margfalt grætt á sjálfum þeim og öðrum er rekið hafa þann atvinnuveg, sem Tíminn og Dagur ber nú rógi og illmælum. Bænda- stéttin og allur almenningur stend- ur í þakklætisskuld við »braskarana«, öörum fremur, fyrir góða afkomu sína og heildarframfarir lands og þjóðar. Án þeirra væri þjóðin að hjakka í sama farinu og hún var í við síðustu aldamót. Hérmeð tilliynnist vinuin og vandamönnum, að móðir okkar, Jónína G. Jónsdóttir, lézt liér á Sjúkrahúsinu 17. þ. m. Jarðar- l’örin er ákveðin föstudaginn 25. þ. m. kl. 1 e. h. frá kirkjunni. Lára Gísladóttir, Gísli Kristinnsson. VÖRÐUR — fjelag ungra Sjálfstæðismanna — heldur fund í Verzlunarmannafélagshúsinn sunnud. 22. marz kl. 1,30 e.h. Fastlega skorað á félagsmenn að mæta. STJÓRNIN. fg orbát á Siglufirði j get skaffað 4 stúlkum at- vinnu við mót- vor fram að síld. Talið við mig fyrir lok þessa mán- Ingimar Jónsson, Gránufélagsgötu 22. Símskeyti. (Frá Fróttastofu Islands). Rvík 19. mars 1931. (Jt/end: Frá Helsingfors: Ettir að Kallio, foringi bændaílokksins, hafði árang- urslaust í viku reynt að mynda stjórn hefir hann horfið írá því, og Svinhu- fud forseti falið Eunila forseta land- búnaðarráösins stjórnarmyndun. Frá Glasgow : Eimskipið Citrine strandaði í fyrradag við Isle oí Man (Manareyju). 9 druknuðu. Frá London : Tala atvinnulausra í Énglandi hefir aukist um 56 þús. síðan í byrjun mánaðarins. Úr beimahOgum. I. O. O. F. 1123208'/2. Kirkjan: Messað á sunnudaginn kl. 2 á Akureyri. Gamanvisur söng Jón Norðfjörð í Nýja Bíó í gærkvöldi fyrir fullu húsi. Allir voru bragirnir nýir og um margskonar efni en misjafnir að kostum og í með- ferðinnni. Þó var að heyra á áheyrend- tinum að þeir skemtu sér vel. Beztur þótti bragurinn um >Sóttvarnirnar« og um »Saurbæjarkálfinn«. — Jón endurtekur skemtun þessa aftur á sunnudagskvöldið, en þá í Samkomuhúsfnu. Islendingur er 6 sfður i dag. /nnlend: Enskur botnvörpungur Lord Bea- konsfield strandaði í gærkvöldi á söndunum austan Kúðaíljóts. — Mannbjörg varð. Togararnir eru nú sem óðast að búast á saltfiskveiðar. Fara sumir út í kvöld og nótt. lnnfiutt í febrúarmánuði fyrir 2,309,755 kr., þar af til Rvíkur fyr- ir 1,800,598 kr. vantar okkur til sendiferða og og fleiri starfa frá 14. maí n.k. Umsóknum sé skilað fyrir 25, þ.m, Nánari upplýsingar á skrifstofunni. H.f, Smjörlíkisgerð Akureyrar. Ódýrt herbergi ,etr; bærum frá 14. maí n. k. Jpplýs- ingar í síma 83. Svarfdœlingamót var haldið hér á laug- ardagskvöldið. Sátu það um 150 manns, og fór allt hið bezta fram. Seladrdp. 12 selir voru drepnir hér innarlega á firðinum á sunnudaginn var. Skemmtun halda skólabörnin annað kvöld. Verður þar til skemtunar söngur, upplestur og smáleikur., allt sýnt og sagt af börnum. Barnaskólinn nýtur ágóðans. Látinn er á Svalbarðseyri Jakob Björns- son fyrv. yfirsíldarmatsmaður, hálf áttræð- ur að aldri. Var hann um allmörg ár kaupmaður á Svalbarðseyri og þar áður í mörg ár við verzlunarstörf hér í bænum. Vinsæll maður og hið mesta prúðmenni. Dansskemtun Verður haldin í Verklýðs- húsinu annað kvöid og byrjar kl. 9. —■ Fyrir dansinum verður spilað á harmoniku. — Aðgangseyrir 1 kr. og gengur hann til styrktar ekkju Arngríms Jónssonar. X-bandið spilar á Hótel Akureyri í kvöld og fyrst um sinn á hverju þriðju- dags- og föstudagskvöldi. HEMPEL’S skipamálning. Hempel’s Skipsfarvefabrik Kaupmannahöfn.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.