Íslendingur


Íslendingur - 13.05.1932, Blaðsíða 2

Íslendingur - 13.05.1932, Blaðsíða 2
2 ISJb..LL-.CUR þaö ekki heldur nein fyrirmynd, aö opinberar stoínanir skuldi þannig.« Ferlugasta athugasemd er sv,o- hljóðandi: »í 23. lið 19. gr. er fasrt til út- gjalda meðal annars:. a) Útsvar séra Guðrn. Einarssonar kr. 1,116.67 b) — Markúsar Jónssonar — 300.00 t>) Bætur til þýzks togara — 10,889.72 Yfirskoðurarmenn spyrjast fyrir um, hvernig standi á þessum greiðslum. Svar stjórnarinnar hljóöar svo: a) Útsvarshluti greiddur samkv. lög- um nr, 59 frá 1928, um friðun f’ingvalla 3. gr., sbr. 9. og 10. gr. útsvarslaga frá 1926. b) Bætur til togarans »Caroline Spránger* vegna skemmda af skoti frá islensku varðskipi. Þótti ráðuneytinu ekki heppilegt að synja um skaðabætur þessar.« (Meira). Símskeyíi. (Frá Fróttastofu íslands). Rvík 12. maí 1Q32, Utlendi Frá New York: Lík barns Lind- berghs hefir fundist nálægt heimiii þeirra hjóna. Var myrt. — Kona Lindberghs, sem ber líf undir brjósti, kvað bera sig vel. Frá París: Doumer forseti frakk- neska lýðveldisins var skotinn til bana af rússneskum manni, Gorgu- loff að nafni, 6. þ. m. Skaut hann á forsetann þremur skotum og hittu þau öll. Einnig skaut hann á for- stjóra lögreglunnar í París og for- seta rithöfundasambandsins franska og særðust þeir báðir lítillega. Talið er að Gorguloff muni vitskert- ur. — Franska stjórnin ákvað 40 daga þjóðarsorg vegna fráfalls Doumers og fór útför hans fram á ríkisins kostnað. — Pjóðþingið kom saman í Versölum á þriðjudaginn til þess, að velja eftirmann Doum- ers og náði kosningu Albert Lebrun, forseti öldungadeildarinnar. Frá London: Englandsbanki hef- ir lækkað forvexti niður í 27s%- Frá Berlín: Bruning ríkiskanslari hefir í ræðu í ríkisþinginu sagt að óhugsandi sé að Pýzkaland geti hafið skaðabótagreiðslur að nýju. Vinna verði að samkomulagi um að allar skuldir stjórnmálalegs eðlis verði gefnar eftir. Frá París: Fullnaðarúrslit þing- kosninganna urðu þau, að vinstri flokkarnir, sem eru í andstöðu við núverandi stjórn, fengu 393 þing- sæti, hægri flokkarnir 198 þingsæti og kommúnistar 23 þingsæti. Rót- tæki flokkurinn (radikalir) er fjöl- mennastur, hefir 158 þingsæti, næst- ur bandaflokkur hans, sameinaðir jafnaðarmenn, 131 þingsæti. Búist er við að Herriot foringi radikala taki við stjórn af Tardieu. Frá Tokio: Opinberlega tilkynnt að Japanar ætli innan mánaðar að hverfa með landher sinn frá Shanghai. Innlend: Húseignin Holt Garðahreppi brann á þriðudagskvöldið til kaldra kola. Húsið stóð autt en f því voru geymdir ýmsir óvátryggðir munir. Húsið sjálft vátryggt ■HMHMMMWanBHœ Okkar alúðar fylsta hjartans þakk- læti vottum við öllum þeim, er veittu okkur svo margvíslega hjálp, og sýndu ckkur samúð við andlát og jarðarför Jóns Sigurðssonar smiðs, og heiðruðu minningu hans með nær- veru sinni við jarðarförina og með minnin gargj öf um. Akureyri 10. maí 1932. Fjölskyldan. Færeysk skúta »Fugioy« kom hingað í fyrradag með 15 innflú- enzusjúklinga. Eru þeir einangraðir í skipinu. Útflutningur í apríl nam 2,396,230 kr. og hefir hann yfir fyrstu 4 mán- uði ársins numið alls 11,989,630 kr. en innfluttningurinn yfir sama tíma um 51/* milj. kr. — Aflinn upp til 1. maí 31,985 þurrar smálestir. Fiskibirgðir í landinu 23,772 þurrar smálestir. Gullverð ísi. krónu er nú 61,8C. Karlakórið Vísir frá Siglufirði kom hingað með e.s. Gullfoss í gær, og söng hér í Nýja- Bíó í gærkveldi. Aðsóknin var slæm, og bæjarbúum til hinnar mestu van- sæmdar. Átti flokkurinn það full komlega skilið að fá húsfyllir áheyr- enda, bæði sakir þess, hve mikið hann hefir á sig lagt með aö takast þessa íerð á hendur, svo og eigi síður sakir frammistöðunnar, sem var hin sæmilegasta í alla staði. — Á söngskránni var margt ágætra viðfangsefna,. og margt af því söng- lög, sem ekki hafa heyrst hér fyr, og farið yfirleitt vel með. Einkum virtist Fanmarch Wennerbergs tak- ast mjög vel, sömuleiðis nýtt lag eftir Sig. Pórðarson. Úrðu þeir aö endurtaka þau lög og fleiri. Aage Schiöth lyfsali söng ein- söng með kórinu í nokkrum lögum, og tókst það prýðilega. Varð að endurtaka öll þau lög. Þormóður Eyólfsson konsúli hefir söngstjórnina á hendi, og ferst það mjög vel. Stjórnar einkar látlaust, og að því er virðist, af nákvæmni og næmum skilningi á því, sem meö er farið. — í kvöld verður söngskemtunin endurtekin, með þeirri breytingu, aö nú tekur Geysir þátt í söngnum. Munu báðir flokkarnir syngja sam- an nokkur lög, og svo hver um sig, Er þess að vænta að bæjarbúar fjölmenni, og láti á sjá, að þeir kunni að taka á móti jafngóðum gestum svo sem þeir eiga skilið. Hafi þeir beztu þökk fyrir komuna. Meflningarsjúðsbækur 1932 nýkomnar. Fuglinn í fjörunni, saga eftir Halldór Kiljan Laxness. Úrvalsgreinar, þýddar af Guðm. Finnbogasyni. í*ýdd ljóö II., eftir Magnús Ásgeirsson. Bókaverzl. Kr. Guðmundssonar. TIL LEIGU. Herbergi með sérinngangi, ræst- ing, ljósi vg hita, frá 1. júnf. Uppl. í síma 127, rvottapottar nýkomnir Tómas Björnsson. Frá Alþingi. Fimtardómsfrumvarpið er aftur komið til neðri deildar. Urðu mikl- ar umræður um það þar í gærkvöldi. Bar Héðinn Valdemarsson fram rök- studda dagskrá svohljóðandi: — »3?ar sem vitað er að tilgangurinn með ákvæðum þeim í fimtardóms- frumvarpinu, sem nú liggur fyrir, er lúta að veitingu fimtardómsembætta, er sá einn að lysa vantrausti á nú- verandi dómsmálaráðherra, en hrein- lega þykir að það vantraust komi fram í almennri greinilegri yfirlýs- ingu, ályktar deildin að lýsa van- trausti á núverandi dómsmálaráð- herra og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.« — Forseti frestaði atkv. greiðslu, og tók málið út af dagskrá. Guðbrandur ísberg o.fl. fiuttu fyr- ir nokkru í þinginu frumvarp um afnám laga um flugmálasjóð, en samkvæmt þeim lögum skvldi greiða 10 aura gjald af hverri tunnu salt- síldar og hverju máli bræðslusíldar og gjaldið renna í flugmálasjóð. — Gjald þetta hefir numið yfir 50 þús. kr. á ári, og hefir útgerðarmönnum þótt þetta þungur skattur, þar sem þeir töldu að síldarleit meö flugvél- um kæmi að litlu haldi. Frumvarp- ið fór til sjávarútvegsnefndar og klofnaði hún, Vildi meiri lfluti nefndarinnar, Framsóknarmennirnir, halda þessum skatti, en minni hlut- inn (G. ísberg og Jóh. Jós.) vildi afnema skatt þennan með öilu. — Hafði ísberg framsögu minni hlut- ans en Sveinn í Firði meiri hlutans. Urðu haröar umræður um málið viö 2. umr. en að henni lokinni var því vísaö til 3. umr. með 13. atkv. gegn 7 — og nú hefir þaö verið af- greitt til efri deildar. Frv. um gjaldfrest bænda og bátaútvegsmanna hefir verið sam- þykkt í Nd. og afgreitt til efri deild- ar. Samþykkt var breytingartillaga írá Jóhanni Jósefssyni, þess efnis, að ef lánsstofnanir (þar með talin verzlunarfyrirtæki svo sem kaup- menn og kaupfélög) lenda í greiöslu- örðugleikum, að öllu eða nokkru leyti vegna ákvæða þessara laga, skulu bú þeirra ekki verða tekin til gjaldþrotaskifta að þeim nauðug- um, meðan lög þessi eru í gildi, ef skattaframtöl, eða efnahagsreikning- ar sýna, að þau eða þeir eiga fyrir skuldum. Jón Ólafsson óg Einar Arnórsson bera fram till. til þingsályktunar um að láta fara fram þjóðaratkvæða- greiðslu um bannlögin, samfara næstu þingkosningum, eða í síðasta lagi 1. október í haust. Stjórnarskrármálið og fjárlög- in koma ekki til 3ju umr- i deild- unum fyr en eftir hátíð. ÁstrfSnr Runölfsdtittir nuddlæknir Viðtalstími kl. 2—4 síðd. á Hótel Akureyri Stór dós ..... Kr. i.io MiÖlungs stæiÖ Kr. o.6o Lítill pakki . . Kr. 0.25 BSOTHSR9 LUIIIED, fORT SWHUGHT, ENQWAHb HREIMSAR OG FAGAR M*V \ EA'BO IC

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.