Íslendingur


Íslendingur - 19.05.1933, Side 3

Íslendingur - 19.05.1933, Side 3
3 m GOTT HVEITI: HARVEST QUEEN, áerhveiti. GOLD CREST, hveiti gerlaust. PRIDE - - NECTAR ~ - Fæst í 140 lbs., 110 Ibs., 10 lbs. og 7 lbs. pokum. Þessar vinsælu hveitltegundir tást ( Dest- um verziunum á Norðuriandi. Heildsölubirgðir hjá: I. Brynjdlfsson & Kvaran. Sími: 175. Akureyri. Símn.: Verus. Reynslan hefir þegar sýnt, að það er ekki hægt aó framleiða betri MALNINGU LÖKK OG EN LEWI8 BERGER’s & 80N8, sem er stærzta og bezta málningarefna- verksmiðja Stóra-Bretlands. Nýkomið mikið úrval at a/lskonar nýjum má/ningarvörum frá BERGER’s. SS Eldur koin upp stðdegis í g*r i hús- inu Brekkugata 1 hér i bænum, og ger- eyðilagði það, að heita raá, að innan áður en tókst að slökkva. Eins urðu húsgögn fyrir miklum skenimduin og búðarvamingur á neðstu hæð eyðilagð- ist. Uúsið var úr steinsteypu en „inn- r4tting“ úr tré. Húsið var var vátryggt en innanstókksmuuir ekki nema að litlu leyti. Voru margir leigjendur í húsinu auk eigandans sjálfs. Hjá einum leigj- andanna, Hermanni Jónssyni kaupmanni, brunnu 400 krónur i seðlum, er hann hafði i hergergi sinu. Eiganndi hússins er frú Sigrún Haraldsdóttir. Eldurinn mun hafa komið upp inn af búð i suðurend- anum. — Þjóðerntshreyfingin. Nokkrir Pjóðern- issinnar bóðuðu til fundar í Akureyrar- Bió á raiðvikudagskvöldið, i því augna- miði að gera mönnum kunna stefnu Þjóðernishreyfingarinnar. Um 130 manns sóttu fundinn. Töluðu par: Sig. Ein. Hiiðar, Friðrik Karlsson verkstjóri, Valde- mar Steffensen læknir, Jón Guðmunds- son bankaritari, Karl Nikulásson og Fr. B. Arngrímsson. Að umræðum loknum innrituðu G0 sig i Pjóðernishreyfinguna. Axel Andrésson knattspyrnukennari er kominn hingað til bæjarins. — Er hann fenginn hingað til að kenna ípróttafélög- unum hér knattspyrnu. Lceknaskoðun á ifki Helgu Jónsdóttur framkvæmdu 1 Reykjavík prófessorarnir Ouðm Tboroddsen og Niels Dungal og -var úrskurður peirra sá sami og álit læknanna hér, að um drukknun væri að ræða. — Likið kemur aftur norður hing- að með Dettifossi i fyrramálið. Frd Amtbókasajninu. Allir, sem hafa bækur að láni úr Amtbókasafninu, eru áminntir um að skila peim fyrin 25. þ. Þeir, sem vilja, geta afhent bækurnar í ibúðinni niðri í bókasafnshúsinu, hvenær sera er að deginum. Steingr. Matthíasson héraðslæknir brá sér nýverið til útianda. Kemur heim aft- ur i næsta mánuði. Ferming fer fram i kirkjunni á sunnu- daginn. Verða fermd 51 barn, 32 stúlkur og 19 drengir. — Einnig verður fermt á uppstigningardag. — Verða pá 25 börn fermd. — Útsvörin. Af gjaldendalístánum í næst sl. blaði féllu niður Jón Steíánsson kaup- maður með 1200 og Brynleyfur Tobias- son kennari með 475 kr. útsvar. — Út- svarsupphæðin 370 átti að vera 375 og höfðu heir þrír gjaldendur, er stóðu undir fyrgteindri tölu það útsvar. Útvegjsbankastjórnin kærö. Einn fyrv. starfsmaður Útvegs- bankans, Pétur Magnússon frá Jaðri, heiir nyverið afhent lögreglustjóran um í Reykjavík sakamálakæru á hendur bankastjórn Útvegsbankans. Er efni hennar á þessa leiö: 1. Aö bankastjórnin heíöi gerst sek um að hafa ekki sjaldnar en fimm sinnum á árinu 1931 sett í umferð talsvert mikla fúlgu seðla fram yíit þær 4 milj. króna, sem bankanum var þá lögum samkvæmt heimilt að hafa í umferð. f’etta hafi verið gert með þeim hætti, að teknir hafi verið og settir í umferð seðlar, sem áður hafi verið inn dregnir og ógiltir og áttu að brenn- ast. 2. Að bankastjórnin hafi á önd- verðu ári 1932 átt óskilað Lands- bankanum andvirði fiskveðsvíxla, að upphæð ca. 600 þúsund krónur, er Landsbankinn hafði endurkeypt af Útvegsbankanum á árunum 1930 og 1931 — um 300 þús. kr. hvort árið, — En þá (árið 1932) hafi fiskurinn (veðin) fyrir löngu verið seldur og andvirði hans greitt upp í víxlana til Útvegsbankans, sem þá bljóti að hafa hagnytt sér andvirðið, í stað þess að skila því til hins rétta veð- haia og eiganda vixlanna. í*essar ákærur, segir kærandi að hafi verið bornar á bankastjórnina bæði í blöðum og á opinberum fundum og þeim hafi ekki verið hnekkt, hvorki af bankastjórunum eða nokkrum fyrir þeirra hönd. — Krefst kærandi því þess að lögreglu- stjóri höfði þegar sakamálarannsókn út af nefndum kæruatriðum sem fjalli um brot á 13. og 26. kapítula hinna almennu hegningarlaga, og hinir kærðu, ef sekir reynast, látnir sæta refsingu að lögum. Brú yfir Glerd er nú byrjað að byggja. — Er hún úr steinsteypu og liggur rétt fyrir austan gömlu brúna. Kommúnistar gerðu tiiraun tii vinnustöðvunar á mánu- daginn, — þótti kaupgjaldiö ekki nógu hátt, — en verkaraennimir ráku þá af höndum sér, og hafa þeir verið látnir óáreittir við vinnu sina siðan I. S. I. I. S. I. Iþróttamót verður haldiö 17. og 18. júní n. k. — Heimil er þátttaká öllum félögum í Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslu, sem eru í í. S. í. — Keppt verður í eftir- töldum íþróttagreinum: H/aup; 100 m., 800 m. og 5000 m. — Stökk: Hástökk, langstökk, þrístökk, stangarstökk. KÖSt beggja handa Kúluvarp, kringlukast, spjótkast. — Sund, bæði fyrir konur og karla. Boöhlaup 4 X 400 m. — Þátttökutilkynningar séu komnar til stjórnarinnar fyrir 1 ö‘ júní n. k. . Knattspyrnufélag Akuréyrar. íbúð o§ herbergi. Lítil sólrík ibúð með baði og nýtísku þægindum, er til leigu hjá mér í sumar eða yfir allt árið, ef þess er óskað — Einnig sérstök herbergi Frú Lindal, Svalbarði. Vantar tkki einhvern eins manns rúmstæði, mjög vandað, með dýnu? (Hægt að koma tveimur í þaö meé lagi). — Selzt með vægu verði. — Upplýsingar í síma 24. Hjúskapur. Þann 26. þ.in. verða gefin saman i hjónaband í Gautaborg ungfrú Greta Ásgeirsdóttir, Péturssonar útgerð- armanns, og P. O. Hanson fulltrúi. — Heimilisfang Linnégatan 4, Göteborg. — Þann 13. þ.m. voru gefin saman í hjóna- band hér í bænum ungfrú Björg Stefáns- dóttir frá Fjósatungu og Pormóður Sveinsson bókhaidari hjá Mjólkursam- laginu. — K. A. biður alla drengi, sem ætla að taka þátt i knattsp. námskeiðinu að mæta út á velli kl. 7,30 í kvöld. — Dánardœgur. Þann 16. þ.m. lézt hér í bænum úr lungnabólgu, Ágúst Sigvalda- son skósiniður, 67 ára gamall. — Hafði hann dvalið lengst af æfinni hér á Akur- eyri og var öllum að góðu kunnur. Þá er látin hér á sjúkrahúsinu ekkjan Helga Jónatansdóttir, til heimilis í Hafnarstræti 107B, eftir langa legu. I Reykjavik er nýiéga látinn Jóhannes Sigurjónsson frá Laxamýri, rúmlega sjðtugor að aldri. Heröubreið® café & restaurant. Opið frá kl. 9 árd. til kl. 11,30 síðd. * Heitur matur. Kaldur matur. Smurt brauð með ailskonar áleggi. Öl- og' gosdrykkir. Cigarettur og Vind/ar. lui! iugið! Kaffi með brauöi o.f/. sent tii yöar fyrirvara/aust frá kí. 3 til kl 5,3o e h. Mælum sérstaklega með okkar ágæta eftirmíðdagskaffi með ný- bökuðum pönnukökum, rjóma. > og sultutaui - og bezta bakarí- brauði. Allt sent með hæfilegum fyrirvara, Hringið ísírna: Einn, níu, sjö. 197 - /97. S/ÓNARHÆÐ: Kl. 5 á sunnudag. Fyrirlestur fluttur af Sæm. G. Jóh: »Hversvegna líflétu Gyðingar Krist?«

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.