Íslendingur - 23.06.1933, Page 2
2
rSLJDíDOfGUR
framboð Sjálfstæðismanna er eins
og skýrt var frá í síðasta blaði.
Framsóknarmenti hafa Jón bónda
Hannesson í Deildartungu fyrir fram-
bjóðanda f Borgarfjaiðarsýslu en
ekki Þórir Steingrímsson, og í Suð-
ur-Múlasýslu Eystein Jónsson skatt-
stjóra en ekki Svein í Friði. Vildi
ekki gefa kost á sér að nýju. —
Önnur framboð Framsóknar eru eins
og skýrt var frá í síðasta blaði.
Alþýðuflokkurinn hefir auk þeirra
frambjóðenda sem getið var um í
síðasta blaði eftirfarandi í kjöri: í
Austur-Skaftafellssýslu séra Eirík
Helgason í Bjarnarnesi, f Suður-
Múlasýslu Árna Ágústsson, aukjón-
asar Guðmundssonar. í Borgarfjarð-
arsýslu Sigurjón Jónsson. í Mýrar-
sýslu Hallbjörn Halldórsson. í Barða-
strandarsýslu Pál f’orbjarnarson. í
Vestur-ísafjaröarsýslu Gunnar Magn-
úss. í Skagafjarðarsýslu Guðjón B.
Baldvinsson, einan saman. f Eyja-
fjarðarsýslu Felix Guðmundsson
kirkjugarðsvörð í Rej’kjavík (Sig-
urður fyrv. Flateyjarklerkur vildi
ekki) og Jóh. F. Guðmundsson verk-
stjóra á Siglufirði. í Rangárvalla-
sýslu Jón Guðlaugsson og Jens Páls-
son. —
Kommúnistar hafa f framboði auk
þeirra sem áður var skýrt frá: í
Hafnarfirði Björn Bjarnason, f Gull-
bringu- og Kjósarsýslu Hjört Helga-
son. í Mýrarsýslu Matthías Guð-
bjartsson. í Árnessýslu Hauk Björns-
son og Magnús Magnússon. í Barðar-
strandarsýslu Andrés J. Straumland.
í Norður-ísafjarðarsýslu Halldór Ól-
afsson, Á ísafirði Jón Rafnsson. í
Vestur-Húnavatnssýslu Ingólf Gunn-
laugsson. í Austur-Húnavatnssýslu
Erling Ellingsen, í Skagafjarðarsýslu
Elísabetu Eirfksdóttur og Pétur Lax-
dal. í Norður-Múlasýsla séra Gunnar
Benediktsson (en ekki í suður-sýsl
unni) og Sigurð Árnason og í Suð-
ur-Múlasýslu Jens Figved ásamt
Arnfinni.
Þjóðernissinnar hafa aðeins tvo
frambjóðendur: Oscar Clausen í Snæ-
fellsnes- og Hnappadalssýslu og Jón
á Laxamýri f S.-Þingeyjarsýslu. —
Gísli Bjarnason hætti við að bjóða
sig fram í Gullbringu- og Kjósar-
sýslu. —
Af þessum 115 frambjóðendum
eru 35 Sjálfstæðismenn, 28 Fram-
sóknarmenn, 25 kommúnistar, 26
Alþýðuflokksmenn, 2 þjóðernissinnar
og 1 flokksleysingi. — Sjálfstæöis-
flokkurinn hefir frambjóðendur í öll-
um kjördæmum nema einu, Stranda-
sýslu. Vildi ekki setja mann á móti
Tryggva Pórhallssyni, sem er veik-
ur og getur ekki tekið þátt í kosn-
ingabardaganum, enda honum þar
vís kosning. — Hefir hann hlotiö
hana að þessu sinni gangsóknar-
laust. —
Af þeim þingmönnum, er sæti
áttu á síðasta þingi, eru það þrír
sem ekki bjóða sig fram að þessu
sinni. Halldór Steinsson fyrv. þing-
maður Snæfellinga, Sveinn í Firði
1. þm. Sunn-Mýlinga og Jónas í’or-
bergsson fyrv. þm. Dalamanna, er
Halldór Sjálfstæðismaður, hinir báðir
Framsóknarmenn. Hafa þeir Hall-
dór og Sveinn setið lengi á þingi
en Jónas aðeins síðastliðið kjörtíma-
bil. —
B. S. A. — Sími 9.
t
Maðurinn minn, Jón Ó. Finnbogason bankaritari, andaðist 20.
þ.m. — Jarðarförin er ákveðin, laugardaginu 1. júlí, og hefst kl. 1
e.h. frá heimili okkar, Eyrarlandsveg 27.
Björg ísaksdóttir.
Sjálfstæðismenn,
sem eru kjósendur hér í bæn-
um og þurfa að fara í burtu,
og verða ekki komnir aftur
fyrir kjördag, eru alvarlega
áminntir um að kjósa hjá bæj-
arfógeta áður en þeir fara úr
bænum. Eins eru þeir Sjálf-
stæðismenn, sem kosningarrétt
eiga utan Akureyrar, en dvelja
hér fram yfir kjördag, beðnir
að muna eftir að greiða í tíma
atkvæði hjá bæjarfógeta. Skrif-
stofan opin frá kl. 10—12 árd,
og 1- -5 síðd. Enginn Sjált
stæðismaður má van-
rækja þessa skyldu sína.
Hér og þar.
Aðalfundur Sambandsins.
Honum var slitiö á mánudags-
kvöldið. Talsverður urgur var milli
Framsóknar-brotanna lengst af fund-
arins, en þó skarst ekki verulega
í odda fyr en undir fundarlokin að
til umræðu kom styrkveiting til
Framsóknar-blaðanna. — Vildi Jón-
asar-liðiö útiloka »Framsókn< —
blað Ásgeirs-manna — frá öllum
styrk og talaði Jónas sjálfur fyrir
því af miklu kappi og jós úr sér
svívirðingum yfir Ásgeirs-menn og
blað þeirra. En þeir Jón í Stóradal,
Runólfur á Kornsá og Svavar Guð-
mundsson o. fl. tóku hraustlega á
móti og léku Jónas grátt í ræðum
sínum. — Tillaga frá Bergsteini á
Leifsstöðum, um að veita 10 þús.
kr. til blaðanna, er skiftist á milli
þeirra eftir verðleikum, var felld með
11:15 atkv. en 14 fulltrúar sátu hjá
og greiddu ekki atkvæði. Voru þeir
15, sem tillöguna íeldu, Jónasar-
menn, Aftur var samþykkt tillaga
þess efnis, að stjórn Sambandsins
skyldi heimilt að styrkja blöðin með
fjárframlögum eftir því sem hún áliti
bezt henta. Bersýnilegt var að Jónas
var í minni hluta á fundinum, og
heíir vegur hans aldrei verið jafn
lítill á þeirri samkundu og að þessu
sinni. — Má hann muna fífil sinn
fegri, þegar allt laut þar boöi hans
og banni,
Kosningin í Eyjafjarðarsýslu.
Frambjóðendur Framsóknar hér í
sýslunni, eru nú báðir fallnir í ónáð
hjá Hriflu-Jónasi. — Hvað hann hafa
lagt svo fyrir vini sína að þeir sæju
svo um, að sem flestir Framsóknar-
kjósendur, er honum væru fylgjandi,
sætu heima á kjördegi, svo í ljós
kæmi þverrandi fylgi þeirra Bern-
harðs og Einars Árnasonar í sýsl-
unni. — Ekki munu Sjálfstæðismenn
harma þó svo verði, en hvatning
ætti þetta, ef satt væri, að vera fyrir
þá að sækja sem bezt kjörfund og
fylgja frambjóðendum slnum fram
til sigurs.
Dapurlegt ástand.
Alþingiskosningarnar, sem fram-
undan eru, hafa komið Alþýðumann-
inum — eða gáfnaljósunum, sem í
hann skrifa — til þess að sjá suma
af stjórnmálaflokkunum í algerlega
nýju ljósi, — Hehlur blaðið því fram,
að Sjálfstæðisflokkurinn, f’jóðernis-
hreyfingin og kommúntstar séu eitt
og hið sama og gangi þar ekki
hnífurinn á milli. — T.d. hafi hér á
Akureyri »verið látin koma upp ó-
ánægja milli »hreyfingarinnar« og
Sjálfstæðisins um fulltrúa-val,« — og
svo eigi »þeir óánægðu að fara yfir
á kommúnistann til að koma honum
að.< — Að menn, sem taldir eru
vera með vitglóru, skuli láta annað
eins endemis þvaður frá sér fara,
og hér er vitnað til, gegnir furðu
og er bágt að sjá hvaöa gagn þeir
hyggjast gera frambjóðenda flokks
síns með jafn augljósum lygum. —
Jafn vel hinum voluðustu einfelding-
um er það ljóst, að milli Sjálfstæð-
isflokksins og kommúnista er bilið
stærzt, og að þar getur aldrei orð-
ið neinn tengiliöur á milli. — Það
hlýtur því að vera næsta dapurlega
ástatt í hugsanabúi þeirra manna,
sem í Alþýöumanninn rita um þessi
efni. —
Þórs-kaupin.
Þegar Fórs-kaupin frægu voru
gerð haustið 1930 urðu deilur mikl-
ar í blöðunum út af þeim. — Gísli
Jónsson eftirlitsmaður véla og skipa
ritaði m. a. í Morgunblaðið þungar
ádeilugreinar til Pálma Loftssonar,
forstöðumanns skipaútgeröar ríkis-
ins, er kaupin hafði gert, og sann-
aði þar að uppgefið kaupverð Þórs
hefði verið tugum þúsunda króna
hærra en samskonar skip voru boð-
in fyrir á sama tíma á opnum mark-
aði í Þýzkalandi. Pálmi og aðrir
leigusnápar Hriflu-liðsins reyndu að
verja Þórs-kaupin og skrifuðu hverja
greinina af annari í Tímann til varn-
ar þessu athæfi. Meðal annars var
gefið út heilt aukablað af Tímanum
með myndum um þessi skipakaup
og lofi um Pálma útgerðarstjóra. —
Nú hefir það komið upp úr kafinu,
við rannsókn, sem gerð hefir verið
á Þórs-útgerðinni, samkv. fyrirmæl-
um núv. dómsmálaráðherra, að Pálmi
hefir látið Landhelgissjóð borga út-
gáfu þessa aukablaðs Tímans, með
640 kr. — Með því það er einnig
komið í ljós, að það, sem þetta
TímaMað hafði um Þórs-kaupin að
segja, voru að mestu leyti ósann-
indi og rangfærslur, — fer fram-
ferði Pálma að verða í meira lagi
vítavert, Hann hefir leyft sér að
taka úr Landhelgissjóði 640 kr. til
útgáfu Tíma-blaös, til þess að dreifa
út ósannindum um mál, sem almenn-
ing varðar. Er þetta gagnstætt öllu
því, sem talist getur opinbert vel-
sæmi, og á ekki að líðast. Annars
munu Þórs-kaupin og Þórs-útgerðin,
sem þeir Pálmi og Hriflu-Jónas
stjórnuðu, vera ein samhangandi
hneyksliskeðja, eftir því, sem heyrst
hefir af rannsókn þeirri, er fram hefir
farið. Á almenningur heimtingu á
þvi, að skýrsla endurskoðandans sé
birt svo allt komi ( dagsins ljós, er
hefir verið í myrkrunum hulið um
kaup og útgerð »Fjöru-Þórs« — og
hneykslin afhjúpuð.
Tll Cnlll nokkrir barna-
111 OUlli kjólar á 2—12
ára gömul börn, o. fl. Tækifærisverð.
Helga Kristjánsdóttir,
Oránufélagsgötu 41-A.
Það ber eigi oft við, að hér sé kost-
ur á að heyra aöra eins hljómlist
og í gærkvöldi f Samkomuhúsinu.—
Þar léku þau á fiðlur, ungfrú Lilli
Poulsen og hr. Einar Sigfússon, ung-
frú Elsa Sigfúss sttng, og frú Val-
borg Einarsson lék á slaghörpu,
Ungfrú Poulsen hefir til að bera
mikla leikni, bjartan, hreinan, hlýj-
an og blæfagran tón, og leikur
hennar er stílhreinn, fagur, göfugur
og innilegur. Aðalviðfangsefnið var
Sonata í D-dúr eftir Handel.
Hr. Einar Sigfússon er enn ung-
ur, en hefir þegar náð svo mikilli
leikni, að svo er sem fiðlan sé lif-
andi og leiki sjálf. Ég held, að varla
sé nokkurt viðfangsefni honum of-
vaxið. Tónninn er heitur og leikur
hans þrunginn eldi ríkra tilfinninga.
Viðfangsefnin voru mjög margbreyti-
leg, allt frá Aríu á G-streng eftir
Bach og að Gavotte eftir Gossec,
en öll voru þau flutt meö skilningi
og smekkvísi hins menntaða lista-
manns.
Að endingu léku þau bæði, ásamt
frú Valborgu Einarsson, Concert í
D-moll fyrir 2 fiðlur og piano eftir
Vivaldi, af mikilli snilld.
Ungfrú Elsa Sigfúss hefir mjög
djúpa, mjúka og dimma rödd (kontra-
alt), hlýja og blæfagra. Flutnlngur
hennar á lögunum var framúrskar-
andi (t.d. hefi ég aldrei heyrt »Ein
sit ég úti á steini*, eftir SigfúsEin-
arsson, jafn vel sungið), enda hreif
hún hjörtu áheyrenda undir eins með
fyrsta laginu.
Frú Valborg Einarsson lék af
mikilli snilld, enda er hún með beztu
slaghörpuleikurum, sem hér hafa
leikiö. —
Viðtökur áheyrenda roru mjög
góðar, og urðu þau öll að leika og
syngja aukalög.
Næsta sunnudag halda þau síðustu
hljómleika hér. Þá leikur hr. Einar
Sigfússon Sonötu i A-dúr eftir César
Franck, — ungfrú Elsa syngur 5 lög,
meðal þeirra eru: An die Natur eftir
Schulz og Rósin eftir Árna Thor:
steinson. — Ungfrú Poulsen leikur
meðal annars Sérénade eftir d’Am-
brosio og Romance eftir Wieniawski.
Að síðustu leika þau Concert í D-
moll fyrir 2 fiðlur og piano eftir Bach,
eitthvert fegursta fiðlutónverk, sem
til er. Áskell Snorrason.
Félag verzlunar- og skrlf^
stofufólks
efnir til skemmtiferðar í Vaglaskóg
um helgina. Leggur fyrri hópurinn
af stað á laugardagskvöld kl. 7 frá
Ráöhústorgi, seinni hópurinn kl. 8
á sunnudagsmorgun. Farið verður í
»body«-bílum. Hefir félagið keypt
stórt tjald sem notað verður í slíkum
ferðalögum, þó það hvergi nægi til
að rúma nema lítinn hluta félags-
manna, þaj; sem félagatala er nú
orðin nærri 80. — Um leiö og lagt
er af stað frá Ráðhústorgi á laugar-
dagskvöld, verður settur fundur og
teknir inn nýir félagar.