Íslendingur - 23.06.1933, Síða 3
ISLflHDWGUR
3
Ko sningaskrif stof a
Sfá/tstæðisf/okksíns er í Strandgötu 11 — þar sem Elektro
Co. áður var. — Allar upplýsingar kosningunum viðvíkjandi til
reiðu. — Kjörskrá liggur frammi.
TUXHAM
Báta- & landmötorar, 8-210 HA., 1 og2cylinðra.
Þessir mótorar eru af öllum, sem reynt hafa, viðurkenndir sem
þeir sterkustu, sparneytnustu og í alla staði ábyggilegustu mótor-
ar, sem til eru. — Þeir eru öruggastir í rekstri, ganga eins liðlega
eins og eimvél og viðhaldskostnaðurinn er minnstur.
»TUXHAM á sjó og landi « eru.orðin, sem allir
verða að muna, því reynslan hefir sýnt og sannað
að TUXHAM er BEZTUR.
Útgerðarmennl Leitið tilboða hjá okkur
áður en þið festið kaup annars staðar.
UMBOÐ:
Verzlunin „París” Akureyri.
(Sigv. E. S. Porsteinsson).
Símar 36 og 196. Box 38. Símnefni: Paris.
+
Þorsteinn Jörundsson
trá Hrfsey.
(Kveöjustef).
Við eigum of fáa ágætismentt
með alhvitan, fágaðan skjöld.
Vor Sturlungaöld er alþjóðarböl,
þegar allflestir berjast um völd,
en sannleik er traðkað og réttlæti hrjáð
og rök þýðir blekking og tál.
En breinskilni og drengskap er hent
fyrir borð
og hvarvetna tviræðismái.
Pvi er það sárara að sjá þeim á bak,
er sæmdarmenn voru í raun
og viku ei hársbreidd af veginum þeim
þó vegsemd þeim byðist og laun.
Og þess vegna er minningin, Þorsteinn,
svo hlý
um þig, og hve sannur þú varst.
Sem drengskaparmaður tii æðis og orðs
af þinni samtið þú barst.
Þitt heimili var það hervigi glæst,
sem hretviðri unnu ei mein,
þvi hreinleiki og mannvit héldu þar vörð
og háttprýði á sérhverja grein. —
Sú skapgerð er góð, að hafa ei hátt
né hlutast til annara um margt,
en taka þá fast ef að halda þarf hlut,
og hórfa fram öruggt og djarft.
Við kveðjum þig, Þorsteinn, allir sem einn
við endaðan samvistardag,
með alúðarþökk fyrir allt sem þú varst,
þú átt ekkert sólarlag
i hugum þeirra, sem þekktu þig bezt.
Ef þrætt er af mætti ( þin spór,
er ættjörðin ekki horfin að heill,
þá mun hamingju upp renna vor.
P. H.
Jóhannes Sigurðsson.
Vegna einangrunar og margvís-
legra örðugleika hefir íslenzka þjóð-
kirkján orðið eftirbátur systra sinna
í nágrannalöndunum, þó að ef til
vill megi færa henni margt til gildis
jfiram yfir þær. Og þá helzt það,
að íslenzka kirkjan hefir á liðnum
Öldum verið samgrónari þjóðlífinu
og þjóölegri, en hún hefir verið
víðast annars Staðar.
Á síðustu árum hefir veriö all-
mikið talað um deyfð og doða í öllu
kirkjulífi hér á landi. Aðfinnslurn-
ar í þá átt hafa komið úr tveimur
áttum. Annars vegar frá þeim mönn-
um, sera viljað hafa kirkjuna feiga,
ög bent á gagnleysi hennar og at-
hafnaleysi, máli sínu ti! stuðnings
en hins vegar frá áhugamönnum
um kristindómsmál, sem fundið hafa
til þess, að kirkjan hafi ekki unnið
eins og henni hafi borið, að þeim
málum, er henni liggja næst, og
ekki neytt áhrifa sinna, eins og
hún átti að gera. Þess vegna hafa
ýmsir slíkir áhugamenn um trúar
og siðferðismál farið út fyrir kirkj-
una, til að starfa þar sjálfstæðir og
reyna á þann h*tt, að vekja þann
starfshug og áhuga með öðrum, sem
þeim finnst að kirkjan láti hjá líða
að gera.
Á undanförnum áratugum hefir
-01.1 kristileg safnaðarstarfsemi tekið
miklum vexti í öllum nágrannalönd-
um vorum, og ekki síður vestan
hafs. í sambandi við kirkjurnar eru
þar reknar allskonar starfsgi einar,
æskulýðsstarfsemi í kristilega átt,
trúboðsstarfsemi, elliheimili og sjúkra-
hjálp m. m. Oddvitar þessa eru trú-
aðir og áhugasamir leikmenn innan
safnaðanna, sem vilja sýna trú sína
í verkum sínum og sjá og skilja að
gagnslaust er að loka kristindóminn
inni í kirkjunum, og vita að kristin-
dómurinn er ekki aðeins játning,
heldur líka líf og starf í anda Jesú
Krists. Nokkur áhrif þessa hafa þeg-
ar borist hingað til lands. í Reykja-
vík er nú rekin allfjörug safnaðar-
starfsemi í sambandi við kirkjurnar.
Má þar nefna Kristilegt félag ungra
manna og kvenna, trúboðsfélög karla
og kvenna, sjómannastofuna, elli-
heimilið, matgjafir safnaðanna o. fl.
Að þessu öllu standa trúaðir leik-
menn, og eiga svo vitanlega að baki
sér stuðning presta og kirkju.
Hér á Akureyri hefir lítið verið
unnið í þessar áttir, enn sem komiö
er. Þó eru hér til vísirar til hins
sama. Kvenfélagið hér vinnur ötul-
lega að fjársöfnun til elliheimils, sem
væntanlegt er að allir góðir nienn
vilji styðja með þeim. Trúboðsfélög
karla og kvenna eru hér tií, en hafa
ennþá lítils gaett í meðvitund safn-
aðarins, enda eru þau fámenn, og
fram að þessu lítils megnandi. —
Önnur safnaöarstarfsemi, á kirkju-
legum grundvelli, veit ég ekk.i til að
sé rekin hér, að undanteknum vísi
til sunnudagaskóla.
Nú ætlar trúboðsfélag kvenna að
færast mikið í fang, og má telja
kjark þeirra aðdáanlegan, þegar allir
tala um kreppu og vandræði. Kon-
urnar eru að byggja hús til sam-
komuhalds, stórt og myndarlegt, og
hafa ráðið til sín Jóhannes Sigurðs-
son, hinn góðkunna formann Sjó-
mannastofunnar í Reykjavfk, — Er
Jóhannes mörgum hér að góðu
kunnur vegna starfsemi sinnar á
Siglufirði, síðastliðin sumur. En þess-
vegna náðist í hann hingað, að Sjó-
mannastofan í Reykjavík varð að
hætta í bili, vegna fjárskorts.
Nú er ætlunin að Jóhannes starfi
hér næstkomandi vetur — í sumar
verður hann á Siglufirði -- og vinni
hér að kristindómsmálum, á vegum
trúboðsfélagsins. Vinnur hann fyrst
og fremst að eflingu þess félags og
vakningu fyrir málefnum þess, og
einnig að kristilegri starfsemi meðal
æskulýðsins í bænum. Er þess eng
in vanþörf, og vonandi að bæjar-
búar skilji og meti þá viðleitni og
mæti henni með samúð.
Friðrik J. Rafnar.
Mótorhjól!
Ódýrar ferðir um sveitir landsins
geta sportmenn fengið, sem éiga
mótorhjól. Nú er 30 % verðtollur
þeim. — Af sérstökum ástæðum
hefi ég til sölu nýtt 8 ha. mótor-
hjól, sem ég sel við tækifærisverði.
Axel Kristjánsson.
Munið að styrkja
lauyaveituna.
Prentsmiðia Björns Jónssonar.
Úr heimahögnm.
I yfirkjörstjórn, með bæjarfógeta, voru
kosnir á fundi bæjarstjórnarinnar á þriðju-
daginn, Hallgr. Davíðsson og Jakob Karls-
son, og til vara Erlingur Friðjónsson og
séra Friðrik J. Rafnar.
/ kjörstjórn voru kosnir á sama fundi
Sig. Ein. Hlfðar, Tómas Björnsson og
Böðvar Bjarkan, — og i undirkjörstjórn:
Axel Kristjánsson, Kristján Árnason, dr.
KristinnGuðmundsson, Svanbj. Frimanns-
son, Friðrik Magnússon og Halldór Frið-
jónsson. — Kosið verður í þremur kjör-
deildum.
Skemmtanaskatturinn hefir verið hækk-
aður um nær því helming. — Hafa því
aðgöngumiðar að Bíó hækkað sem hér
segir, frá og með deginum á morgun: —
Beztu sæti kosta .............kr. 1,75
Betri sæti —....................— 1,50
Almenn sæti — — 1,25
Á alþýðusýningar kosta sætin niðri kr.
1,00 en uppi kr. 1,25.
Sextugur varð Einar Gunnarsson kon-
súll 16. þessa mánaðar.
Sóknarpresturinn er farinn til Reykja-
vikur á prestaþing. Prestsverkum hér i
fjarveru hans gegna nágrannaprestarnir
séra Benjamin Kristjánsson á Tjörnum og
séra Sigurður Stefánsson á Möðru-
völlum. —
Hjúskapur. Ungfrú Halldóra Daviðs-
dóttir og Aðalsteinn Bjarnason trósmið-
ur. — Ungfrú Guðrún Friðriksdóttir og
Þorsteinn Bogason bflstjóri. — öli til
heimiiis hér í bænum.
Héraðslœknirinn er kominn heim úr
utanför sinni.
Embœttisprófi i læknisfræði hefir Jón
Geirsson, Sæmundssonar vfglubiskups,
nýverið Iokið við Háskólann með hárri
I. eink., 177 stigum, og Einar Bjarnason,
Jónssonar bankastjóra, í Iögfræði, með
II. eink. betri. Einnig hefir lokið prófi
f læknisfræði Jóhann Þorkelsson frá Siglu-
firði með hárri I. eink., 173^/a stigum.
Hjdlprœðisherinn. Kommandör Baugh,
sem er aðalendurskoðandi „Hersins" og
fulltrúi hershöfðingjans, heimsækir Akur-
eyri, ásamt Brigader Richards og Major
Beckett deildarstj. og talar á opinberri
samkomu í kvöld kl. 8,30 í sal Hjálp-
ræðisherins. —
Pétur A. fónsson óperusöngvari -hefir
haldið hér tvo konserta. — Var aðsókn
mjög lítil að báðum, og fóru bæjarbúar
þar mikils á mis, því söngurinn var hinn
piýðilegasti. — Átíi mesti og frægasti
söngvari íslands betri viðtökur skilið.
Fimleikaflokkur pilta úr Laugaskóla
var hér á ferðinni á þriðjudaginn áleiðis
til Reykjavíkur til að sýna þar fimleika
og keppa í knattspyrnu. — Efndu þeir
til sýningar hér, sem féll niður sökum
þess, hve hún var illa sótt, og er leið-
inlegt til þess að vita, því fiokkur þessi
hvað vera mjög vel æfður og liafa marga
ágætis fitnleikamenn. — Kepptu þeir í
knattspyrnu við I. flokk KA og töpuðu
með 1 : 2 málum.
Knattspyrnukappleikunum á sunnudag-
inn inilli KA og Þórs iauk þannig, að II.
fl, KA vann II. fl. Þors með 1 :0, en milli
I. flokks varð jafntefii, 1 : 1.
Knaitspyrnufél. „Fram“ úr Reykjavik
(I. flokkur) kom hingað til bæjaiins í
fyrradag með bil að sunnan. — Ætla þeir
að keppa við féiögin hér á föstudaginn
og sunnudaginn. - „Fram“ var lengi
bezta félagið í Reykjavfk og er nú óðum
'að vinna sig nær því marki aftur. —
Verður gaman að vita hvernig leikar fara
hér. —
Dánardœgur. Aðfararnótt 20. þ. m. iézt
að heimili sínu hér í bænuin Jón Ó. Finn-
bogason bankaritari, 72 ára gamall -
Banameinið var krabbi. Jón heitinn var
sannur heiðursmaður í hvívetna og ein-
stakt Ijúfmenni. - Þá er nýlátinn hér á
sjúkrahúsinu öldungurinn Kiemenz Frið-
riksson frá Vatnsieysu í Skagafirði -
Siðast til heimilis i Hrísey — 82 ára
gamall. Banaméin hans var hjartaslag.
Tvö Orœnlandsför, GustaV Hoim og
Godthaab, úr leiðangri dr. Lauge Kochs,
komu hingað á sunnudaginn og lágu hér
þar til f gær. Höfðu þau flugvélar með-
ferðis, Dr. Koch kom hingað landveg frá
Reykjavik og steig hér á skipsfjöl.
Séra Bcnjamin Kristjánsson flytur guðs-
þjónustu að Hólum, sunnudaginn 2. júli
n. k., kl. 12 á hád. og í Saurbæ kl 3
sama dag.
SfÓNARHÆÐ: Samkoma kl. I,
- --- Allir velkomnir. ———_L