Íslendingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - 27.10.1933, Qupperneq 1

Íslendingur - 27.10.1933, Qupperneq 1
Talsími 105. Ritstjóri: Gunnl. Tr. Jónsson. Strandgata 29. “ XIX. árgangur. Akureyrí, 27. okt. 1933. 47. tölubl. ■■■■■I NYJÁ-BIO Föstudags- og Laugardagskvöld kl. 9 og Sunnudaginn kl. 5 og 9: Ný myndl Grand Hótel Tal- og bljómmynd í 12 þíittum. — Aðalhlutverkin leika: Greta Garbo, Joan Crawford, John Barrymore, Wallace Beery, Lionel Barrymore, Lewis Stone og Jean Hersholt. Frægasta bók þeirrar skáldkonu, sem mest orð hefir iarið af á síðustu árum, þýzku konunnar VICKI BAUM, er GRAND HOTEL. —* Virki Baum fór sjálf til Hollywood og fylgdist með tdku myndarinnar og gerði þær breytingar á sögunni, er þurfa þóttu til kvikmyndunar. Sjö af frægustu leikurum heiinsins fengu aðalhlutverkin og miklu fé var varið til þess að gera myndina að því listaverki sem hún er. — GRAND HOTEL hefir vakið feikna athygli um allan heim og fengið ársverðlaun »Akademisins* í Hollywood. Urslit bannatkvæðagreiðslunnar. Atkvæðagreiðslan um bannið hef- ir fallið þannig í þeim kjördæmutn sem frést hefir úr: Já. Nei. Reykjavík 6972 2762 Hafnarfjörður 552 441 ísafjörður 326 702 Akureyri 564 620 Seyðisfjörður 175 138 Vestmannaeyjar 637 246 Rangárvallasýsla 527 166 Mýrasýsla 233 189 Dalasýsla 143 154 V. ísafjarðarsýsla 178 512 V. Húnavatnssýsla 106 132 N. Þingeyjarsýsla 155 153 V.-Skaftafeilssýsla 215 142 Oullbr. & Kjósars. 886 339 Borgaifjarðarsýsla 311 322 Snæfellsnessýsla 370 349 tlaja fallið 12,350. aíkvœði móti banninu, en 7367 með )'m, eða nœrfellt 5 þús. fleiri já cn nei. í dag fer fiam talning atkvæða í Eyjafjarðarsýslu og ef fil vill víðar. Bannið dauðadæmt. Fullnaðar úrslit atkvæðagreiðsl- unnar um bannið, er fór fram á laugardaginn var, verða ekki kunn fyr en um aðra helgi. Þó er nú þegar vissa fengin fyrir því, að langsamlega meiri hluti greiddra atkvæða hefir fallið á móti bann- inu — og að sá meirihluti veiður aldrei mikið undir 5 þús. atkv. af um 25 þús. atkv. er greidd voru, Árið 1908 er bannið var sam- þykkt af þjóðinni voru alls greidd 7827 atkv. og féllu 4645 með banni, en 3181 gegn því. Vilji þjóðarinnar kemur því greini- legar fram nú en hann gerði fyrir 25 árum — og það á hina hlið- ina. — Þar sem atkvæðagreiðslan að þessu sinni fór ekki fram samhliða kosningum, mátti ganga út frá því sem gefnu, að þátttakan yrði ekki eins almenn og ella hefði orðið, ef þetta tvennt hefði orðið samfara. Eins var veðráttan ekki sem hag- stæðust — slyddu-veður hér norð- anlands — og mun það einnig hafa dregið nokkuð úr þátttökunni. En þrátt fyrir þetta hvorutveggja getur enginn orðið til að draga vilja þjóðarinnar í efa eða treysta sér til að standa á móti honum á löggjafarþingi þjóðarinnar. Þjóðin krefst afnáms bannsins og það af- dráttarlaust. Af kaupstöðum landsins — sem eru sérstök kjördæmi — hafa 4 lýst sig andvíga banninu en tveir viljað halda í það. — Annar þess- ara kaupstaða er Akureyri, Tókst bann-templurum og bandamönnum þeirra, kommúnistum og kennara- liði barnaskólans, með látlausum blekkingum og víðtækri smala- mennsku að fá rúmlega 50 atkvæða meirihluta með banninu af nærfellt 1200 atkvæðum er greidd voru. Og þennan »sigur« eiga bannmenn því að þakka, að andbanningar höfðu engan viðbúnað og gerðu ekkert til að smala fólki á kjörstað- inn — en bannmenn höfðu 5 bíla 0g smala í hverri götu. — Ef and- banningar hefðu farið eins að og notað lík meðul, hefði útkoman otðið allt önnur. En þeir stóluðu á sinn góða málstað og dórrigreind almennings og létu þar við sitja. í Reykjavík, þar sein stórskotalið bannmanna hefir aðsetur — og ekkert var sparað til að afla bann- inu sigurs — biðu bannmenn hinn herfilegasta ósigur. Af nærfellt 10 þús. greiddum atkvæðum fékkst aðeins rúmlega 7, með banninu. Snérist alþýða manna öndverð gegn því — og hið sama geiði hún í Veslmannaeyjum. Einkum munu sjómennirnir hafa undantekningar- lítið verið á móti banninu. Hvað sýslurnar snertir, verður ekki sagt um heildarútkomuna þar ennþá, en það sem af er talningu, hafa fleiri atkvæði fallið móti bann- inu, svo að enn er meirihluti greiddra atkvæða utan Reykjavíkur gegn banninu, og mun aldrei mikil breyting verða þar á- Alstaðar um heim, þar sem þjóðir hafa greitt atkvæði um bann, eftir að hafa reynt það, hefir yfirgnæf- andi meirihluti verið mótfallinn því að halda lengur áfram á þeirri braut. — íslenzka þjóðin fyllir nú þann flokk, Bannið hefir leikið okkur íslend- inga illa, og öllum er það Ijóst, sem satt vilja segja, að það hefir ekki haldið hlífiskildi yfir neinum drykkju- manni, heldur beinlínis aukið á niðurlægingu slíkra manna. — Landinn, eða ólyfjanin, sem drukkin hefir verið, hefir oft og tíðum verið heilsuspillandi og jafnvel bannvæn, og svo hefir drykkjumaðurinn ekki ósjaldan verið ofsóttur lögbrjótur ofan á aðra ógæfu sína. Á þessu verður nú ráðin bót. Bannmenn munu enn um stund halda uppi þeim blekkingum sínum, að við afnám bannsins muni nýtt vínflóð steypast yfir landið og drykkjuskapurinn vaxa að sama skapi — en þetta gaspur þeirra mun hver skynbær maður láta sem vind um eyrun þjóta. — Það hefir sýnt sig, að hjá þeim þjóðurn, sem hafa haft bann og afnumið það, hefir drykkjuskapurinn enganveginn aukist við afnámið. — Þannig er það í Noregi, þannig í Finnlandi og þannig í Kanada. — Ennfremur hefir það sýnt sig, að þær þjóðir, sem ekkert bann hafa og aldrei hafa haft það, svo sem Danir, Eng- lendingar og Þjóðverjar, að þar fer drykkjuskapur stórum rénandi. — Er nokkur ástæða til að ætla að við íslendingar verðum frábrugðnir öðrum í þessum efnum. — Það sem gerist hér við afnám bannsins er: að löglegt áfengi, hreint og ó- mengað, kemur í staðinn fyrir landabruggið, ólyfjanina og smygl- uðu vínin, og sem svo aftur hefir það í för með sér að bæði erlendir og innlendir atvinnusmyglarar og bruggarar hætla að græða á áfeng- iskaupum landsmanna og að sá gróði fer þangað sem hann á að fara — í ríkissjóðinn, Þessi skiptum má þjóðin íagna. Er Kommúnistaflokk' urinii aö sundrast? Aðalmálgagn Kommúnistahokks íslands »Verklýðsblaðtð< í Reykja- vík, flutti nýlega >Opið bréf« frú Alþjóðasambandi kommúnista í Moskva, þar sem það er tekið fram að flokkurinn eigi að skoða Socialdemó- kratana, sem höfuð óvini sína, eigi aðeins innan verklýðsfélaganna held- ur líka utan þeirra. Hefir formaður flokksins hér á landi, Brynjólfur Bjarnason ritstjóri Verklýösblaðsins, að sögn, pantað bréfið frá Moskva, vegna ágreinings sem orðið læfir á milli hans annars vegar og Stefáns Péturssonar og Einars Olgeirssonar hins vegar, um afstöðu til Socíal- demókratanna og annað er að flokks- starfseminni lítur. — Hafa þeir háu herrar í Moskva litið sömu augum og Brynjólfur á málin, og víta Stef- án og félaga hans fyrir framferði þeirra. í bréfinu er því lýst yfir, að »fé- lagi Stefán Pétursson* og ýmsir aðrir menn í flokknum hafi »truflað með afstöðu sinni samtaka baráttu flokksins og hafið byrjun að ger- samlega óleyfilegri »fraktions«-starf- semi«. — Svo er flokkurinn áminnt- ur um það í bréfinu, að »heyja öfl- uga baráttu gegn hinum tækifæris- sinnuðu skoðunum og tryggja ein- ingu flokksins á grundvelli sam- þykkta Alþjóðasambands kommún- ista.« — Það er einnig sagt, að tryggja þurfi »meirihluta af verka- lj5ð« í flokknum og öllum leiðandi stöðum«. \ Ymsir spá því, að pessi úrskurð- ur kommúnistahöfðingjanna íMoskva, muni valda sundrung innan flokks- ins hér, og er haft eftir íylgismönn- um Brynjólfs, að þeir Einar og Stefán verði reknir úr flokknum ef þeir í auðmýkt beygi sig ekki undir fyrirskipanir frá Moskva, — Hvaö sem um það verður, skiptir ekki miklu máli, en hitt varðar meiru, að nú þarf ekki lengur um það að deila, að yfirstjórn þessa ílokks er í Rússlandi, og þaðan á að taka á móti fyrirskipunum og hlýða þeim í *

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.