Íslendingur


Íslendingur - 27.10.1933, Blaðsíða 6

Íslendingur - 27.10.1933, Blaðsíða 6
6 fSLENDINGUR Áskorun til Akureyringa frá Skíðastaðamönnum. í sumar liefir verið unnið kapp- samlega að því, að veita heitu vatni úr laugunum í Glerárgili niður í sundpollinn hér uppi í gilinu. Fjöldi manns hefir þar gefið vinnu eða lagt fé af mörkum og bæjar- sjóður hefir einnig lagt sinn skerf til fyrirtækisins. Nú er heita vatnið komið í þróna. Akureyringar hafa verið samtaka um að koma þessu verki í fram- kvæmd. En mikið er eftir ógert enn. Við hugsum ekki svo hútt, að byggja yfir laugina fyrst um sinn. En þar þurfa að koma vistlegir klefar, sem upphitaðir eru með laugavatni, svo menn geti klæðst þar og afklæðit. f*ar þarf einnig að koma heitt og kalt steypubað í klefa. Pá fyrst má hafa full not af lauginni allan ársins hring. Börn og unglingar í skólunum hérna eiga að læra sund í lauginni. Viljið þið vita til þess, að þau eigi að klæðast í köldum klefum, þegar þau koma upp úr lauginni? Akureyri á ekkert baðhús og fjöldi bæjarbúa á erfiðan aðgang að baði. Laugin er einnig fyrir þá. Laugin er fyrir alla Akureyr- inga, unga sem gamla, konur sem karla. Við verðum öll að vera samtaka um að hætta ekki við þetta verk hálfgert Skíðastaðafélagið á Akureyri hefir ákveðið að gangast fyrir samskotum til frekari framkvæmda á verki þessu og þannig er Krónuvelta Skíðastaðafé- lagsins á Akureyri til orðin. Hver meðlimur Skíðastaða- félagsins skorar á þrjá menn að leggja eina krónu af mörkum til ofangreindra framkvæmda. — Hr. kaupm. Björn Björnsson frá Múla hefir lofað aö veita samskotunum móttöku í Verzl. Norðurland. Allir sem borga, skora samtímis á þrjá kunningja sína hér í. bænum, sem ekki hafa fengið áskorun áður, að leggja einnig eina krónu af mörkum. Við væntum þess, að allir þeir, jafnt konur sem karlar, sem ráð hafa á og eru máli þessu hlynntir, verði við áskorun þessari. Fé þessu verður vel varið. Þetta er menningarmál fyrir Ak- ureyrarkaupstað. Stjórn Skíðastaðafélagsins. Vann fyrir kaupinu sínu. Listmálari nokkur, sem fenginn var til þess að gera við og endur- mála föinaða og máða bletti, á liin- um miklu olíu málverkum í gamalli kirkju í Belgíu; lagði fram reilcning yíir kostnaðinn, sem var að upphæð 67 dollarar og 30 cent. Kirkjuvörðurinn kraföist að fá sundurliðaðan reikning, svo hann gæti séð hvað hvert um sig kostaði. Lagði þá málarinn fram eftirfar- andi reikning: Fyrir að laga tíu boðorðin #5,22 Fyrir að gera bjartari logana í vfti, setja nýja rófu á kölska, og aðrar smáviðgerð- ir á þeim gamla........... 7,17 Fyrir að endurglæða hreins unareldinn, og lappa upp á glataðar sálir.......... 3,06 Fyrir að setja nyjan stein í slönguna hans Ðavíðs og stækka höfuðið á Goliat . . . 6,13 Fyrir að gera við skyrtu týnda sonarins, og hreinsa á honum eyrun............... 3,39 Fyrir að setja nýtt stél, og kamb á hanan hans Sanktí Péturs.................... 2 20 Fyrir að skreyta Pontius Píla- tus, og setja nýjan borða á húfuna hans................. 3,02 Fyrir að endurfiðra og gylla vinstri vænginn á varðengl- inum......................... 5,18 Fyrir að þvo þjón æösta prestsins, og setja roða í kinnarnar á honum .... 5,02 Fyrir að taka blettina af syni Tobíasar................. 1,30 Fyrir að setja nýja hringi í eyrun á Söru................ 5,25 Fyrir að skreyta örkina hans Nóa, og setja nýtt höfuð á Sem.......................... 4,31 Samtals................ #67,30 Hkr. Þýzku, ensku og fleiri tungumál — kenni ég í vetur /ón Sigurgeirssoti. Sími 274, Kaupi sjóvetlinga og sokka fyrst um sinn gegn vöruúttekt. Bened. Benediktsson. Cf|íl|fo óskar eftir árdegisvist nú OllIIlVll þegar. Uppl. í síma 288. ar. P. W. Jacobsen & Son Timburverzlun Símnefni Granfuru New Zebra Code Stofnsett 1824 Carl Lundsgade Köbenhavn S. Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaup- mannahöfn. Eik til skipasmíða. Einnig heila skipsfarma frá Svíþjóð. Biðjið um tilboð. — Aðeins heildsala. Hefir verzlað við /s/and í 90 ár. undursa gerir línið sinni áður Aðeins tuttugu mínútna suða mlegt þvottaefni hvítara en nokkru Þjer þurfið aldrei oftar að hafa erfiðan þvottadag. Þjer þurfið aldrei að óttast það að ljereftið verði ekki blæfa I gt og hvitt. Radion-hið nýja undursamlega, súrefnis þvottaduft er hjerii 1 staó Þess, að þjer hafið tímum saman, þurtt að bleyta og nudda þvottinn, tekur það aðeins tuttugu mínútna suðu~^7ð Kadiom® Engin sápa eöa blæefni eru nauðsynleg. Radion liefir inni að halda alt sem þjer þarfnist í þvott, fyrir lægra vero en sápa kostar. Auk þess að Radion gerir ljereft skjall- nvitt, er það einnig örugt til þvotta & ullarfötum og öllu við- kvæmu efni, ef það er notað í köldu vatni. Þjer notið aldrei aftur gömlu aðferðirnar við þvott, eftir að hafa reynt Radion. BLtlDA, - SJÓflfi, - SXOUI, -þaðer alt M-RAD 1-047A 10 allt af nýtt af strokkn- um í öllum matvöru- verzlunum bæjarins. Sjövátryöpgarfélafl fslands h.f. Al-íslenzkt mgar. Brunaíryggingar. Hvergi Iægri iðgjöld. Umboð á Akureyri: Axel Kristjánsson.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.