Íslendingur

Tölublað

Íslendingur - 20.04.1934, Blaðsíða 2

Íslendingur - 20.04.1934, Blaðsíða 2
2 fSLENDINGUR halda héraðsfundinn, sem Framsókn hélt að Laugum í vetur, þá fengu forsprakkarnir hér ákveðnar fyrir- skipanir, sem voru fyrst og fremst þær að kjósa Jónas, og binda fyrir- fram svo mörg atkvæði sem mögu- legt væri. P& var farið að laumast um sveit- irnar og safna undirskriftum undir loforð um kosningafylgi. — Geri ég ráð fyrir að þeir, sem smöluðu hér hafi ekki vitað að slíkt varðaði við lög, samkv, hinum nýju kosninga- lögum. — Svo var farið að vinna að því að stofna félagið, til þess að binda allt sem fastast. — Stofnfund- urinn var boðaður þeim aðeins, er tryggt var talið að gengju í félagið. Höfðust þannig saman á fundinum eitthvað yfir 20 manns af um 300, sem á kjörskj-á eru hér í sveitinni. Þegar á fundinn kom, sögðu þegar nokkrir menn til sín að þeir myndu alls ekki ganga í félagið, Var þá gengið til atkvæða um það, hvort þeir fengju að vera á fundi, og var það samþykkt með meiri hluta at- kvæða. — Nú vai lagt fram frumvaip til reglugerðar fyrir félagið, og það rætt grein fyrir grein, Var þá á- kveðið tveggja króna árstillag, og skyldi helmingur gjaldsins greiðast suður tll miðstjórnar Framsóknar. — Þegar kom að því ákvæði að allir félagsmenn yrðu að skuldbinda sig til þess að kjósa aldrei nokkurn mann til nokkurs trúnaðarstarfs, nema hann væri ákveðinn og yfir- lýstur Framsóknarflokksmaður og samþykktur af meiri hluta félags- manna, fór að heyrast hljóð úr horni. — Kom frám ákveðin tillaga um að fella þetta ákvæði niður, en hún var feld með eins eða tveggja atkvseða mun. — Mun hafa legið nærri að félagsstofnunin strandaði á þessu, því að ýms'r voru tregir til að afsala sér þannig atkvæði sinu og sannfæringu sinni í hendur þess meiri hluta, sem mögulegt reyndizt að knýja fram í hvert sinn. f*eir, sem létu á sér heyra að þeir væru tregir til að ganga undir okið, fengu þung orð að heyra og jafn vel brigðslyrði frá hinum allra æstustu. Og þegar þeim var bent á, að einmitt á svipuðu atriði og þessu hefði Framsóknarílokkurinn klofnað, þá ætlaði allt í bál og brand; og síðan hefi ég heyrt einn af stofn- endum félagsins fullyrða það, að fé- lagið muni fljótlega klofna, einmitt vegna þessa ákvæðis. Árni litli frá Pálsgerði, sá er skrif- aði greinina um Fi amsóknarfélags- stofnunina, hefir þá fullyrðingu eftir bónda úr Höfðahverfi, að enginn Framsóknarmaður þar inuni ganga í Bændaflokkinn. Væri fróðlegt að vita hver sá er sem treystir sér til að fullyrða slíkt. — En það er meira sem Árni þykist hafa eftir öðrum bónda úr Höfðahverfi, sem sé það að Bændaflokkurinn sé »aðeins út- leggjari frá íhaldsflokknum, settur til höfuðs Framsókn og þar með ís- lenzkri sveitamenningu*. — Vill nú ekki Árni litli nefna bóndann, sem sagði þetta, með nafni. Raunar ættu bændur hér í Hverfinu kröfu til þess að hann gerði það, því hér eru margir bændur, sem ekki vilja láta kenna sig við svo stór orð og heimsku- leg. Ef Árni verður ekki krafinn frekari sagna um þetta, kemur það einungis til af því, að Höfðhverfing- ar þekkja hann og vita að hann er vel fær um að búa til svona sögu frá rótum, En hinu er heldur ekki að neita, að vel geta veriö til hér unglingar, sem búið er að æsa svo upp, að þeir láti svona vitleysu út úr sér. — En hitt er víst, að meiri hluti Höfðhverfinga er ekki svo skyni skroppinn, að hann láti sér koma til hugar að þeir Tryggvi Þórhalls- son, Þorsteinn Briem, Jón í Stóra- dal, Lárus á Klaustri, Sigurður bún- aöarmálastjóri og ýmsir fleiri séu þannig gerðir, að þeir láti hafa sig að flugumönnum til þess að vega að íslenzkri sveitamenningu. Nei, að Árna litla líðst að fleipra þetta og þykjast hafa ábyrgð Höfðhverfinga fyrir, kemur eingöngu til af því að þeir þekkja hann, og vita hvað hann er óendanlega smár samanborið við hvern einn af forgöngumönnum Bændaflokksins. Eitt er það enn. Árni litli er að gorta af því að í Frzmsóknarfélagi Höfðhverfinga séu ekki aöeins bænd- ur, heldur og daglaunamenn og út- gerðarmenn. Ég held að útgerðar- menn hér kæri sig ekkert um að láta kenna sig við Framsóknarfé- lagið En sannleikurinn er sá, að f því er einn, segi og skrifa einn út- gerðarmaður, og hann það stór, að hann keypti í haust yg (hálfan) »trillubát«, sem hann er ekki farinn að gera út enn. Einn bóndi, sem er í félaginu, á árabát. Éá eru taldir útgerðarmennirnir í Framsóknarfé- lagi Höfðhverfinga. Ég hefi sagt svo nákvæmlega frá þessu af því, að ég hygg að eitthvað svipað þessu hafi gerzí og gerizt í í öðrum sveitum, og svo er altaf hægt að fá einhvern gortara til að setja saman fréttirnar. 8. apríl 1934. Höföhverfingur. Heilsuverndarstgð í Revkjavík. Stórmerkileg framtíðarstofnun. Heilbrigðisskýrslur heitir ársrit það, sem landlæknir sernur upp úr skýrslum héraðslækna, og er nýlega komið út ársritið fyrir 1932. — Éessar skýrslur um heilsufarið f landinu eru lítið þekktar og enn minna lesnar af alþýðu manna. En við læknar, sem allir höfum eitthvað lagt til efnisins 1 þessum skýrslum, við gleypum þær í okkur eins og reyfara, enda eru þær að mörgu leyti skemmtilegar og girnilegar til fróðleiks. Vilmundur landlæknir á skilið að honum sé þakkað, hve fljótt og myndarlega honum hefir farizt við útgáfu fjögra árganga af skýrslum síðari ára (1929—1932). Jafnframt verður þó ekki síður að þakka próf. Guðmundi Ilannessyni, sem gaf hon- um ágætt fordæmi og fyrirmynd meö þeim fádæma dugnaði og vand- virkni, er hann sýndi við útgáfu á 18 skýrslu-árgöngum þar á undan. Guðm. kom nýju og hentugu sniði á alla skýrslugerðina og skýrslur hans vöktu fljótt athygli meðal vís- indamanna víðsvegar erlendis. Vilmundur hefir haldið skýrslun- um í þessu sama horfi og tekst honum engu síður en Guðmundi, að gjöra þær um leið fróðlegar og skemmtilegar. Ég kann seinna að taka efni skýrslanna. nánar til at- hugunar hér í blaðinu, því þar er um margt að ræða, sem alþýðu varö- ar miklu að þekkja. — í þetta skifti vil ég aðeins minnast á það, sem mér þótti athyglisverðast í seinast útkomnum skýrslum, en það var opið bréf eöa erindi, samiö af land- lækni og sent nýlega bæjarráði Reykjavíkur. Fyrirsögn þess er: Heilsuvernd í Reykjavík. Hér er rösklega vakið máls á afarmerkilegri og nýstárlegri aöferð, sem landlæknir vill að höfuðstaður vor taki upp til að koma í veg fyrir og draga úr margskonar sjúkdóms- böli og slysum íbúanna. Og hugs- ar hann sér áð smám saman megi sama aðferðin verða tekin upp víös- vegar um land. Aðferðin er í stuttu máli sú, að bærinn starfræki Heilsuverndunar- stöð eftir erlendum fyrirmyndum, en þó að tiltölu fullkomnari og marg- þættari en slíkar stöðvar hafa áður tíökast. Við þessa stöð eiga nokkr- ir valdir, sérfróðir læknar og hjúkr- unarkonur að starfa. Og starfið verður í því fólgið, að vaka yfir heilsufari bæjarbúa, leita uppi sjúk- dómsorsakir og finna ráð við þeim og leiðbeina fólki eftir beztu föng- um í því að koma í veg fyrir veik- indi og slys. í Reykjavík starfa um 40 læknar og liafa flestir allan tíma sinn upp- tekinn í því einu, að sinna þeim, sem sjúkir eru. Nú finnst landlækni, að ekki sé farið fram á neina fjar- stæðu, að Reyiqavíkurbær réði yfir svo sem svaraði helming þessara lærðu manna til að sinna þeim, sem enn eru heilbrigðir og hjálpa þeim til að halda heilsunni slyndrulítið. f*etta er fyrst og fremst fjárhags- spursmál. Nógir læknar, og þeir vel til starfsins fallnir, mundu fást til þessa heiisuverndunarstarfs, ef þeim væri sæmilega launað fyrir þaö. — En, eins og kunnugt er, hefir læknum ekki fram að þessu staðið annar aúðnuvegur opinn en sá, að fást við lækningar eingöngu. — Vísir til heilsuverndarstöðvar er þegar til í lar.dinu, þar sem eru Hjálparstöð »Líknar« í Reykjavík og Hjálparstöð Rauða Krossins hér á Akureyri. Báðar þessar stöðvar eru fyrst og fremst ætlaðar til leiðbein- ingar fyrir berklaveika á byrjunar- stigi, og þá, sem fengið bafa bata á hælunum og þurfa að læra að fara rétt með sig til að veikjast ekki á ný. Ennfremur eru þær ætl- aðar til þess að kenna mæðrum að fara með börn sín. — fessar litlu hjálparstöðvar hafa þegar náð mikl- um vinsælduin vegna þess, að fólk hefir fundið, hve gagnlegar þær eru. — En læknarnir, sem við þær hafa starfað, hafa gjört það af fórnfýsi svo að segja endurgjaldslaust, í hjá- verkum sínum, en í góðri trú á vissan árangur. í líkingu viö þessar litlu stöðvar en í margfalt stærri stll, vill land- læknir að Reykjavíkurbær reisi veg- lega byggingu — heilsuverndarstöð ineð mörgum viðfangsefnum, þar sem margir læknar og hjúkrunar- konur vinni saman að þ\í, að fræða almenning um heilsuvernd og þar sem skrifstofur og rannsóknarstofur greiði úr ýmsum vandamálum. Þar yrðu t.d. þessar deildir: mæðra- vernd, ungbarnavernd og barna- vernd (sem meðal annars sæi um allt skólaeftirlitið í bænum); þá væru deildir, sem sæu um berklavarnir, alm. sóttvarnir, kynsjúkdómavarnir, slysavarnir, varnir gegn krabba- meinum, gegn blindu o. s. frv. Hér - má að auki sérstakléga benda á, hve þýðingarmikið það væri, að hver sem vildi, gæti feng- ið þarna sérfróða lækna til að at- huga vandlega heilsufar sitt, líkt og þegar menn sækja um líftryggingu (en þó miklu ítarlegar). í Bandarlkjunum hafa nú um all- langt skeið sum vátryggingarfélög starfrækt rannsóknarstöðvar, þar sem öllum vátryggðum meðlimum er heimil skoöun með vissum millibil- um, til þess aö þeir gætu fengiö ráð f tæka tíð, ef hjá þeim fyndust ein- hverjir sjúkdómar í byijun. — Vátryggingarfélögin hafa grætt á þessari tilhögun — Éví þó að þess- ar rannsóknarstöðvar hafi kojtað all- rnikið fé, hefir það marg endurgold- izt í iðgjöldum margra manna, sem fyrir skoðunina fengu aövörun í tæka tíö og lækningu þeirra meina, sem annars hefðu orðið þeim að bana fyrir örlög fram, (Um þetta mál hefi ég undirritaöur skrifað ítar- legar í Læknablaðinu, árg. 1928). En vissulega mun Heilsuverndar- stöð af því tagi, sem hér hefir verið bent á, kosta allmikið fé. Landlæknir minnir bæjarráð Reykjavíkur á, að um langt skeið hafi bærinn ekki lagv fram nema sáralítið fé til sjúkrahúsa og heil- brigðismála. Bærinn heiir notið og nýtur framvegis góðs af stofnunum ríkisins. Kleppi, Vífilstöðum og Land- spítala og ekki að gleyma Katólska spítalanum f Landakoti. Aðrir bæir landsins hafa lagt á sig þungar byrgðar til bygginga og reksturs vandaðra sjúkrahúsa eins og t. d. ísafjörður, Vestmannaeyjar og Siglufjörður; og Akureyri ætlar nú að gera slíkt hiö sama. »Þetta svarar til þess« — segir landlæknir — »aö Reykjavíkurbær reisti sjúkra- hús fyrir miljónir króna og ræki það með rausn«. Og honum finnst Reykjayík standa vel að vígi til þess, að sýna nú rögg á sér og verða öllum heimi til fyrirmyndar með því að reisa vandaða Heilsu- verndarstöð fyrir bæinn, sem einnig kæmi öllu landinu aö gagni. Um þörfina þarf ekki að þrátta, og gagnið mun brátt sýna sig, Það má fara hægt á stað og auka við stöðina eftir þvf sem tíminn krefur og hve gagnið reynist mikið. — Hér er sannarlega gott mál á ferð- inni — og mættu allir óska þess einhuga, aö bæjarráð Reykjavíkur brygðist nú vel við, og bæri giftu til að taka þetta mál föstum tökum án alls flokkarígs og bera það fram til sigurs undir forustu landlæknis (sem er einkar sýnt um allt skipu- lagsstarf) bænum og öllu landinu til gagns og sóma. Steingrtmur Matthíasson. íbúðatjölgun í Þýzkalandi. Samkvæmt skýrslum þýzku hag- stotunnar hafa á árinu 1933 verið byggðar alls 200.000 nýjar íbúöir í fyzkalandi, og er það fjórðungi meira en árið á undan, Hérumbil helmingur þessara íbúða hefir verið úyggður með ríkisstyrk að meira eða minna leyti. 4

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.