Íslendingur - 05.10.1934, Blaðsíða 2
2
ÍSLENDlNGUR
B
C. Tliorarensen
B r ó ð u r k v e ð j a
frá
J. S. Thorarensen.
Við lékum ungir við Eyjafjörð
og árin í hafið runnu.
Eg ferðaðist langt í skrúð og skóg
í skærri og heitri sunnu.
En bréfin þín voru mér vitar þeir,
sem Vestrinu skærast brunnu.
Frá útlöndum kom ég aftur heim
í ástríkan faðm þinn, bróðir.
í minningum lifðum við marga stund
frá morgni æfinnar hljóðir,
er allt varð að gleði ungum bæ
og allir vegirnar góðir.
En nú ert þú horfinn til hinzta lands,
sem hylur oss alla sýnum.
Nú myrkvast augum minn æskubær,
þá ei næ ég fundi þínum.
Ég kveð þig blessaði bróðir minn
í bænum og vonum mínum.
Eg einmana stari á Eyjafjörð
sem ókunnur gestur á ströndum.
Mig grípur saknaðar sorgin þung
og sál mína reyrir böndum,
þótt enn skíni, bróðir — blysið þitt
á blikandi minningarlöndum.
Ég geymi þér það, sem eftir er
í ást minni, að hinzta degi,
sem vordrauminn unga, sem æfilangt traust,
sem aftansól hausts á vegi,
sem bróðurást þó, sem bezt er reynd
og brugðist mér getur eigi.
P. I3. P.
Þá vill stjórnin fá einkarétt til að
framleiða hér á landi ilmvötn, hár-
vötn, andlitsvötn, bökunaidropa,
kjarna (essensa) til iðnaðar og
einkainnflutning á pressugeri.
Loks mun stjórnin retla sér að
koma með frv. um heimild til að
taka einkasölu á bílum og aPskon-
ar mótorum, Stefnan er sýnilega
sú, að einoka á smámsaman allar
vörur.
Strangari gjaldeyrishöft.
Fjármálaráðherra leggur fyrir þing-
ið nýtt frumvarp um gjaldeyris-
verzlun og innflutningshöft. Er
þar stórlega hert á gildandi ákvæð-
um.
Samkv. frv. á að skipa fimrn
rnanna innflutnings- og gjaldeyris-
nefnd. Landsbankinn og Útvegs-
bankinn tilnefna sinn manninn hvor.
Hina þrjá velur fjármláaráðherra-
Heimilt skal vera að ákveða með
reglugerð, að engar vörur megi
flytja til landsins og engan erlend-
an gjaldeyri láta af hendi nema
með leyfi nefndarinnar.
Atvinnumálaráðherra flytur m. a.
þessi frumvörp: Um niðurfellingu
sveitarflutnings, um vinnumiðlun í
kaupstöðum. rfkisútgáfu skólabóka,
Ieibeininga fyrir konur um varnir
gegn því að verða barnshafandi og
og um fóstureyðingu, heimild handa
skipulagsnefnd til að taka skýrslur
af stofnunum og einstaklingum,
breytingu á lögum um Iverkamanna-
bústaði, útflutningsskýrsluraf sjávar-
afurðum og heimild handa rann-
sóknarstofum ríkisins til að selja
lyf, sem þær framleíða.
Auk þessara frumvarpa munu
einstakir þingmenn flytja nokkur
frumvörp að tilhlutun stjórnarinnar.
Kafflsopinn s
golt kaffi sé notað, Reynið ÓBRENT
JA V A-kaffi frá G u ð m an n.
þykja beztar, fást hjá Guðmann.
EPLI
— á g æ t — nýkomin.
fón Guðtnann.
M.b. „Gylfi”, E.Á.460,
er til sölu.
Báturinn er um 12 tons að stærð og hefir 40 ha. Super-Skandiavél, Er
byggður 1929 af Gunnari Jónssyni skipasmið, Byrðingur er úr eik og
hefir verið vel við haldið. — í kaupinu geta fylgt fiskilína, reknet og fisk-
verkunaráhöld. — Ennfremur er til sölu í Ólafsfirði fiskhús úr steini
11X22 ál., beitingaskúr úr timbri og þurkreitir. — í húsinu er geymslu-
loft fyrir ca. 500 skpd. af þurfiski.
Leitið upplýsinga hjá öðrum hvorum undirritaðra.
Tómas Björnsson. Gunnar Thorarensen,
Ólafur Thors
kosinn formaður Sjálf-
stæðistlokksins.
Á nýafstöðnum sameiginlegum
miðstjórnar- og flokksfundi hjá Sjálf-
stæðisflokknum, tilkynnti Jón Þor-
láksson að hann, sökum anna, segði
af sér forystu flokksins. Var varafor-
maður flokksins Óiafur Thors alþm.
kosinn í hans stað, — Ólafur hefir
setið á þingi i 10 ár og verið ein-
hver allra mesti afburðamaðurinn
þar og hið glæsilegasta foringja-
efni. — /
Tón Þorláksson hefir glæsilegri
stjórnmálaferil að baki en nokkur
annar síðari tima stjórnmálamaður,
og er það með djúpri eftirsjá að
flokksmenn hans sjá á bak honum
sem foringja sínum — en þó er
bótin, að maður kemur í manns
stáö. —
Umhyggjan fyrir
bændunum.
Hriflungar eyðileggja
kjötmarkaðinn.
Dagur í gær segir aö »íhaldið« í
landinu — en svo mun það kalla
Sjálfstæðisflokkinn — sé að eyði-
leggja kjötmarkaðinn í landinu, með
því að líða blöðum sínum að taka
til orða móti hinu háa verðlagi
kjötsölunefndarinnar.
Þetta er með öllu öfugt. Það eru
stjórnarflokkarnir — Hriflungar og
samfellingar þeirra — sem eru að
eyðileggja markaðinn með »skipu-
lagningu* sinni á kjötsölunni.
Það var þegar f upphafi séð, að
bændur þurftu á þessu hausti að
lóga óvenjulega miklu af fé sínu,
sakir slæmrar heyjunar 1 sumar. —
Kjötsalan til útlanda er takmörkuð,
eins og kunnugt er, Von bænda,
um að koma öllu kjöti sínu í verð,
varð því að byggjast að mestu á
innlenda markaðinum — að hann
rýmkaðist til muna frá þvf sem verið
haíði.
Nú var öllum það jafn vitanlegt,
að afkoma alls þorra fólks í kaup-
stöðum og kauptúnum landsins, var
eítir sumarið meö langversta móti.
Var þar með sýnt, að geta þess til
dýrra matvælakaupa myndi verða
með minnsta móti og það væri því
auðsýnt, að það hlyti að diaga við
sig kjötkaup til muna, væri verðið
hækkað mikið frá því, sem var s.l. ár.
Á þetta allt benntu blöð Sjálf-
stæðisflokksins.
En rauða sveitin, sem nú fer meö
völdin í landinu, var annaðhvort
blind fyrir hvaða ástand ríkti í
landinu, eða þá hún vitandi vits, og
að yfirlögðu ráöi, ásetti sér að þjaka
kosti bænda sem mest svo þeim
yrði ókleift, flestum þeirra, að losa
sig af skuldaklafa hinna pólitísku
kaupfélaga, er þeir neyðast til að
skifta við.
Og þetta er það sennilegasta. —
Þess vegna eru þvingunarlögin sett,
sem taka sláturafurðasöluna úr hönd-
um bænda. Viðskipti við kaupmanna-
verzlanir er þeim bannað að miklu
leyti, og á það bann að ágerast enn
mcir, er fram f sækir, fái lögin að
standa — og svo kemur verðlagið
25—30% kjötverðshækkun frá
gildandi verðlagi í fyrra haust.
Hver gat afleiöingin af þessum
ráðstöfunum orðið, önnur en nú er
komin á daginn?
Frystihús kaupfélaganna eru yfir-
full af kjöti, sem ekki gengur út,
svo ríkisstjórnin hefir orðið að taka
Brúarfoss út úr áætlunarferð til þess
aö fara í skyndi milli sláturhafnanna
og taka þar kjöt til útflutnings og
grynna þar meö á kjötbirgðum
fiystihúsanna.
En útflutningurinn er takm irkaður
og hvað tekur þá við?
Kjötsalan innanlands er, að kunn-
ugra sögn, mikið undir helmingi við
það sem hún var á sama tíma í
fyrra, Fólkið getur ekki keypt, og
það, sem getur það, skyrrist margt
við það vegna þeirra þvingunarlaga,
sem verzlunin er háð. Það eru ein-
mitt óvinsældirnar, sem fylgja svona
lögum, sem ekki hvað sízt spilla
markaðinum. Tegart.d. mönnum.sem
rekiö hafa slátrun árum saman, og
haft sína föstu viðskiptamenn, er
bönnuð slátrun og sala, þá segir þaö
sig sjálft, að þaö skaðar og það til
rauna.
En jafnvel þó nú að salan hefði
gengið sæmilega, meö þessu háa
verðlagi, þá hefðu bændurnir notið
tiltölulega lítils góðs af því. Svo var
fyrir séð af Hriflungum. Hinn rang-
láti skattur, sem lagður er á allt
kjöt, sem selt er í landinn og hinn
mikli kostnaður sem »framkvæmdar-
bákn skipulagningarinnar* hefir 1
för með sér, hefði skert svo hlut
bændanna — þó ríkissjóður fái þar
einnig að blæða — að hann hefði
naumast orðið betri en i fyrra. —
Nú hefir »skipulagið« oghin heimsku-
lega framkoma Hriflunga í þessu
máli gert hlut þeirra enn verri.
Og slíkir náungar dirfast aö kalla
sig »bær.davini«.
mín er flutt I
Sauinastofa
Hafnarstræti 79
Agústa Bjarman.
mmniiMiiaiia......i.....