Íslendingur - 17.04.1936, Page 2
3
ISLENDINGUR
Skráning gengisins.
Er ný hreyfing í vændum á því máli?
Menn munu hafa tekið eftir þvf
við nyafstaðnar eldhúsumræður á
Alþingi að all-mikið var þar talað
um gengismálið. Enn áheyrendur
munu einnig hafa veitt því athygli,
að þó það væru nokkrir menn, sem
vildu ákveðið sfetja þetta mál á
oddinn, þá voru aðrir, sem sneiddu
eins mikið fram hjá því og þeir
gátu, og vöruöust að fara inn á
þá braut að gera spurninguna um
skráningu gjaldeyrisins að nokkru
aðalatriöi. Hér mun þaö liggja til
grundvallar, að þetta mál mun vera
eitt hið erfiðasta og flóknasta, sem
fyrir löggjafarþingi getur legið. Það
er viðkvæmt mál og þarf þar mörg
tillit að taka. Núverandi stjórnar-
flokkar synast hafa tekið þá stefnu,
aö setja enga frekari löggjöf um
gengisskráningu og vílja komast
hjá því svo sem verða má, að rök-
ræða þetta vandamál. Ákveðnustu
raddir, sem komið hafa um stefnu-
breytingu í gengismálinu er frá
bændum. Sjávarútvegsmenn hafa
lítið látið á sór bæra í þær áttir,
en á hinn bóginn hafa heldur eng-
in ákveðin mótmæli komið fram, t d.
hvorki frá verzlunarmönnum né
verkamönnum. Hér veldur auðvitað,
að það er naumast hægt að segja,
að spurning um gengisskráningu
hafi enn verið tekin upp til full
komlega alvarlegrar íhugunar. Að
vísu hafa Bændaflokksmenn bc^rið
fram frv. f þinginu um gengisskrán-
ingu, en þetta frv. komst aðeins
í nefnd og hefir verið hljóit um
þaö í opinberum umræðum nema
hvað telja má þessar raddir í »eld-
húsinu* um daginn og svo einstöku
blaðaskrif. En stjórnarflokkarnir
hafa ekki viljað taka undir um-
ræður um gengið og er kaíli úr
ræðu, sem Jónas Jónsson form.
Framsóknarfl. hélt í eldhúsdeilunum
um daginn nokkuð Ijóst dæmi þess.
J. J. lét í ljósi andúð sína gegn því
að fara út í rökræður um gengis-
málið, en kvaðst þó vilja tilfæra
orð Jóns heitins forlákssonar í
þá átt að ekki væri hagkvæmt að
lækka gengi vegna erlenda skulda,
en þetta sagði J.J. að Jón Þorlákss.
hefði sagt við sig og fleiri, eitt sinn
er þeir voru staddir saman í Út-
varpshúsinu í Reykjavfk og biðu
eftir því að röðin kæmi að þeim til
aö tala. J. J. bætti því við, að hann
ætlaði ekki með þessari tilfærslu,
að gera orð J. Úorlákssonar að
sínum orðum, en hann hefði þau
nú bara eftir si svona!!! — Meira
var það ekki. Formaður annars
stjórnarflokksins gengur ekki lengra
en að tilfæra margra ára gömul
orð eftir látnum manni, sem hann
átti að hafa sagt einhverntíman þeg-
ar þeir J. J. og fleiri voru að labba
fram og aítur um gólf í húsi einu
suður í Reykjavík.
Aðalefni frumvarps þess um geng-
isskráningu, sem Bændaflokksmenn
flytja á þingi, er þess efnis, að
sérstaklega skipuð gengisnefnd, skal
skrá gengi hins erlenda gjaldeyris
með tilliti til þess að höfuðatvinnu
vegir þjóðarinnar, landbúnaður og
sjávarútvegur, fái endurgreitt til
kostnaðarverð fyrir útflutningsvörur
sínnr. í þe-;su sambandi er bent
á, að báðir þessir atvinnuvegir hafi
verið reknir árum saman með stór-
töpum, framleiðsluverð hafi hækkað
en erlent söluverð lækkað. Ennfrem-
ur að vaxtabyrði aukist sífellt, þar
sam standa þurfi straum af sífelld-
um rekstrarlánum. Hvað viðvíkur
afstöðunni til rfkisskuldanna, þá
benti flm, frv. á, að þau auknu út-
gjöld, sem væntanleg gengislækkun
hefði í för með sér, næðust inn aft-
ur með auknum verðtolli, og enn-
fremur er lögð áherzla á, að at-
vinnuleysi fylgi nákvæmlega breyti
legri gengisskráningu, þannig að
atvinnurekstur sé meiri, þegar at-
vinnuvegunum sé íþyngt með óeðli-
legri gengisskráningú, en minki
þegar gengi sé í samræmi við
kaupmátt krónunnar.
Úað er sérstaklega tilfært af þeim,
sem ennþá hafa aðallega beitt sér
fyrir því, að gengisskráningarmál,
okkar yrðu tekin til athugunar, að
sænskur hagfræðingur, sem er
socialisti og fenginn var hingað til
skrafs og ráðagerða fyrir nokkru,
lét það skýrt í ljósi að gengi ísl.
krónu væri nú um A-0% of hátt
Eftir síðari fregnum' að dæma af
afdrifum þessa frv., þá sVnist líkleg-
ast að það verði svæft, og við
fyrstu umræöu málsins fékkst fjár-
málaráðþerrann sjálfur ekki til að
segja eitt einasta orð, og er það í
samræmi við það, se.n að íraman' er
sagt um_ óvilja stjórnarflokkarina
gegn því að taka málið upp til um-
ræðu. — Það mun ekki vera fjarri
sanni, að mjög margir bændur
hneigist nú til ákveðins fylgis við
lækkun krónunnar. Ef til vill eru
sjávarútvegsmenn ekki eins ákveðnir
í þi átt og munu þeir þá líta til
þeirrar miklu skuldasöfnunar, sem
átt hefir sér stað hin seinni ár.
Verzlunarstéttin hefir ætíð verið
mjög einbeitt gegn gengislækkun,
en það munu nú vera ýmsir menn
innan þeirrar stéttar, sem ekki líta
þá stefnu eins óhýru auga og áður
og vona að hún geti ef til vill haft
það í för með sér, að viðskifti al-
mennt liðkist.
Úótt ekki muni verða neinar
umræður á þingi út af gengis-
málinu, ef að líkindum lætur, þá er
þó sennilegt, að talsvert verði rætt
um þaö meðal almennings og eins
á fundum Hitt er annað mál hvort
það kemur til þess, að nokkurrar
löggjafarúrlausnar þurfi um skrán-
ingu gengis okkar, það mætti eins
búast við, ef líkt árferði heldur
áfram í landsstjórn og atvinnu, að
þá taki rás viðburðanna ómakið af
stjórmálamönnunum og felli krón-
una. En þá er aftur athugandi,
hvort ekki gæti átt sér stað. að
skriðan yrði þvf meiri og óviði áð-
aniegri, sem lengur er dregið að
ganga að því með alvöru, að koma
fjármálum okkar í það horf, sem
hæfir atvinnuvegum landsins.
Tvær stárar stofur
og eldhús til leigu í Hafn-
arstræti 93 niðri.
Sigurjón Oddsson.
mmmmmmmmmmmmmmwm^mwammmmmammmmmmm
Jarðarför okkar hjartkæra eiginmanns og föður
Ingólfs Bjarnarsonar
fer fram frá Illugastaðakirkju, miðvikudaginn þann 22. þ.m.
og h;fst með húskveðju að heimili okkar kl. 1 e. hád.
Fjósatungu, 16. apríl 1936.
Guðbjörg Guðmundsdóttir og börn.
Þakkir öllum þeim tnörgu, sem á einn eða annan hátt,
sýndu samúð við audlát og jarðarför mannsins míns
Júlíusar Sigurðssonar,
fyrv. útbússtjóra.
Ragnheiður Benediktsdóttir.
Tvö þingmál,
sem ekki fáafgreiðslu.
Endurskoðun kjötsölu-
laganna.
Sigurður Kristjánsson ber nú
fram, eins og á síðasta þingi, frv.
um bieytingar á kjötsöluiögunum,
og vill hann að þau séu leiðrétt
í mörgum atriðum. Skv frv, S. K.
skyldi kjötverðlagsnefnd skipuð þann-
ig, að Búnaðarfélagið tilnefni mann
í stað Alþýðusambandsins og bæjar-
og sveitarstjórn í stað Landssam
bands iðnaðarmanna. Falla skyldi
niður bannið við frjálsri slátrun og
beinni sölu kjötsins. Ennfremur
skyldi bændum tryggð markaðs-
vernd innan síns verðjöfnunarsva ðis
og verðjöfnunaigjaldið takmarkað á
Vestur Norður og Austurlandi, —
Landbúnaðardeild n. d. er klofin í
málinu. Þeir P Zoph. fortnaður
kjötverðlagsnefndar, og Emil /óns-
son vilja að frumv. sé afgreitt með
rökstuddri dagskrá, þess efnis að
með því aö »ekkert nýtt hafi komiö
fram, sem gefi ástæðu til að breyta
lögunum, og þar sem þau hafi yfir-
leitt reynst vel í framkvæmdum*
þá sé ekki ástæða til að samþykkja
frv. Sig. Kr. Aðrir tveir nefndar-
menn þeir Bjarni Ásgeirsson og
Pétur Ottesen leggja til að breyt-
ing trnar á lögunum verði svo sem
hér greinir.
1. Heimilt að lækka allt að helm-
ingi, verðjöfnunargjald af 3 flokks
lambakjöti.
2. Endurgreiðsla verðjöfnunar-
gjalds af útfluttu kjöti má aldrei
vera svo mikil að verðið á útflutta
kjötinu verði hennar vegna hærra
en ha;sta verð á innlendum markaði.
3. Á tímabilinu frá 15. júlí til
1. okt. má aldrei flytja kindakjöt af
öðium verðlagsvæðum, inn á 1,
verðlagssvæði eins og það er nú
ákveöið.
Jón Pálmason hefir gefið út sér-
stakt álit og leggur til að frv. S.
Kr. verði samþykkt sem mest
óbreytt.
Afnám einkasölu á bíl-
um og ratfœkjum.
Sjö sjálfstæðismenn sem sæti eiga
í n. d , þeir Gísli Sveinsson. Ólafur
Thors, Jakob Möller, Pétur Hall
dórsson, Guðbrandur ísberg, Sig.
Kristjánsson og Garðar t'orsteins-
son flytja frumvarp um afnám laga
Steiifímur Matthíasson
kemur heim um nœstu
mánuðamót.
Steingrímur læknir varð sexiugur
þann 31. marz s 1. Hefði hann ver-
ið heima, hefðu Akureyringar ekki
látið þann dag líða hjá öðru vísi en
þakka honum á rausnarlegan hátt
langt og stórvel unnið starf hér í
bænum. En hann var þá enn þá
suður í Tönder — þar sem hann
hefir verið spítalalæknir í veiur í
forföllum annars læknis. En eftir
því, sem frétzt hetir, er hans nú von
heim bráðlega.
nr. 39 frá 1935 um ríkiseinkasölu
á bílum og raftækjum.
Flm. halda því fram. eins og al-
menningur veit, að einokun þessi
er raunverulega ekkert annað
en skattur á þjóðina, þar sem
verðlag hefir hækkað óhóflega á
öllum vörum einokunarinnar. .Enn-
fremur benda þeir á að framkvæmd
laganna hafi á ýmsa aðra grein
verið með þeim firnum, að það sé
ekki réttlætanlegt að þessi löggjöf
standi lengur og beri sem fyrst að
íella hana niður.