Íslendingur - 26.06.1936, Page 1
Ritstjóri. Einar Ásmundsson. — Sími 359.
XXII. árgangur. I Akureyri, 26. júní 1936.
Afgreiðslumaður: Hallgr. Valdimarsson.
| 25. tölubl.
Fyrst3 mál, sem tekið var fyrir,
ar skipulag flokksins, og haíði
íísli Sveinsson fram'sögu- Sk pu-
gsmálið var mjög vel undirbúið
: þíngnefnd frá í vetur og svo
;tur nú af sérstakii landsfundar-
efnd. — Uppkast nefndanna var
rmþykkt síðar á fundinum eftir
lmiklar umræður.
Frá
Lands-
fundinum.
V elkomin til Norðurlands!
Hans hdtign konungur Islands og Danmerkur og drottning hans.
Konungshjónin komu hingað kl. 11,30 í gæikvöldí
með konungsskipinu >Dannebrog«, sjóleiðis frá Sauðár-
króki. — Urðu að hætta við landferðina í Skagafirði
vegna vatnavaxta, er gerði bifreiðum ófært að komast
bingað- — í fylgd með konungsskipinu var eftirlits-
skipið »Hvidbjörnen«. — Höfðust konungshjónin og
föruneyti þeirra við í skipunum yfir nóttina en stigu
á land kl. 8,30 í morgun.
Hafnarbryggjan hafði verið smekklega prýdd og
beið þar mannfjöldi mikill til að fagna hinum tignu
gestum. — Við lendingarstaðinn beið móttökunefndin
og flestir hinir æðri embættismenn bæjarins til þess
að bjóða konungshjónin velkomin. — Er komið var
upp á bryggjuna, gekk Steinsen bæjarstjóri fyrir kon
ungshjónin og bauð þau velkomin og föruneyti þeirra
og var síðan hrópað nííallt húrra. — Talaði konungur
síðan nokkur orð á íslenzku og þakkaði viðtökurnar.
Er konungshjónin og fylgdarlið þeirra höfðu
heilsað móttökunefndinni og hinum konunglegu em-
bættismönnum o.fl., var stigið upp í bifreiðar og
haldið áleiðis til Goðafoss og Mývatns. — Dögurður
snæddur við Goðafoss og síðan haldið áfram til Mý-
vatns. — Ráðgert að halda þaðan til baka undir
kvöldið og gista að Laugaskóla í nótt. — í fyrramálið
verður svo haldið þaðan aftur til Akureyrar og annað
kvöld haldið með skipunum til Austfjarða og þaðan
til Danmerkur. —
Þetta er í fjórða sinnið, sem konungshjónin heim-
sækja ísland — og í annað skiptið, sem þau heim-
sækja Akureyri og Norðurland.
Frá Landsfundi Sjáltstæðismanna
Landsfundur Sjálfstæðismanna var
settur í Reykjavík miðvikudaginn
17. júní, af formanni flokksins,
Ólafi Thors. Nokkur erindi voru
flutt þann dag, en meginhluti fund-
arins var þó haldinn á Þingvöllum
tvo næstu daga. — Lengst af voru
á fundinum um 300 manns og þar
af 200 fulitrúar utan Reykj rvíkur.
í blöðum Siálfstæðismanna í
Reykjavík, þ.á.m. ísafold, hafa birzt
mjög ýtarlegar frá^agnir af fundin-
um, og verður eigi skýrt nánar frá
honum hér, þareð allfle.tir hafa
aðgang að einhveiju af þeim biöð-
um. —
Magnús Guðmundsson flutti er-
indi um fjármál ríkisins og rakti
fjármálaferil undanfarandi ára- —
Þeir Pétur Magnússon og Jón
Pálmason fluttu erindi um lanbún-
aðarmál, Hallgrímur Benediktsson
talaði um verzlunina, Ólafur Thors
um utanríkismál og H. J. Hólmjárn
um iðnaðarmál. — Að erindunum
loknum voru frjálsar umræður og
tóku margir til máls. Að erindum
og umræðum loknum voru bornar
fram margar ályktanir í hófuðstefnu-
Miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins
Á landsfundinum voru kosnir 4
menn í miðstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins og voru jjað þeir ÓlafurThorsog
Magnús Guðmundsson, sem báðir
voru endurkosnir, og Árni Jónsson
frá Múla og Bjarni Benediktsson.
Af hálfu ungra Sjálfstæðismanna-
var kosinn Kristján Guðlaugsson
Fyrir voru í stjórninni þeir Magn-
ús Jónsson, Jón Ólafsson, Jakob
Möller, Sigurður Kristjánsson og
Valtýr Stefánsson.
I__________________________
málum flokksins og voru þær sam-
þykktar, —
í fundarlok ávarpaði formaður
flokksins samkomuna. — Þakkaði
hann öllum fyrir komuna á fundinn
og þá einum þeim mörgu, sem
lagt höfðu á sig kostnað og fyrir-
höfn til að komast hingað úr fjar-
lægum héruðum. Fór hann þeim
orðum um fundinn, að hann hefði
borið þess vott að þar voru saman-
komnir menn með þekkingu og
áhuga á þjóðmálefnum og þessir
menn gengu að því með alvöru
að greina sundur hina ýmsu þætti
hins opinbera lífs og sýna hvert
stefndi og hvert ætti að stefna. —
Við berjumst fyrir sjálfstæði þjóðar
vorrar, en tapi Sjálfstæðisflokkurinn
í þeirri baráttu, er það tap þjóðar-
innar, sagði Ólafur Thors.
Að síðustu var sezt að sameigin-
legu borðhaldi og voru þar margar
snjallar og skemmtilegar ræður
haldnar. — Bar öllum saman um
að fundurinn hefði verið með af-
brigðum fróðlegur og skemmtilegur
og munu menn eiga frá honum
margar góðar endurminningar. —
Það eina sem á skyggði var að
báða dagana var dumbungsveður
og rigningarsúld.