Íslendingur

Útgáva

Íslendingur - 16.04.1937, Síða 1

Íslendingur - 16.04.1937, Síða 1
ÍSLENDINGUR Ritstjóri: Sig. Ein. Hlíðar, — Sími 67. XXIII. árgangur.J Afgreiðslum.: Akureyri, 16. Apríl 1937. Lárus Thorarensen, Strandg. 39. ■ 15. tölubl. FRÁ ALÞINGl. REYKJA VÍK i GÆR. Santbandsmálið. Pingsályktunartillaga um sam- bandsmálið var samþykkt í sam- einuðu Alþingi í dag. Gengið var inn á kröfur Sjálfstæðisflokksins að efni til, n. I. þ., að íslendingar takí öll sín mál í sínar hendur. Kveldúlfsfrumvarpið hefir ekki enn komið fram, en hitt þykjast menn vita bezt, að því eigi að vísa frá með rökstuddri dagskrá, þó þannig, að Haraldur Guðmundsson.atvinnumálaráðherra, fái að lafa áfram í landssljórn- inni. — Hefir Haraldur neitað að gefa leyfi til byggingar síldarbræðslu- verksmiðjunnar á Hjalteyri, en ]afn- aðarmenn ganga nú á milli manna til þess að fá leyfið knýtt aftan í rökstuddu dagskrána. Með því móti verður ráðherra að gefa leyfið eftir skipun þingsins og komast þannig hjá frekari óþægindum vegna fyrri afstöðu sinnar til máls- ins. — Bráðabirgðalögin. Flestir minnast þess, að milli þinga, hafa tvenn hráðabirgðalög verið gefin út. 2 dögum eftir síð- ustu þinglausnir gaf atvinnumála- ráðherra, Haraldur Guðmundsson, út bráðabirgðalög um skipun stjórn ar síldarverksmiðja ríkisins, er vöktu almenna undrun landsmanna og þótti með öllu óverjandi, að þau væri út gefin, þegar ekki voru meiri ástæður fyrir hendi, en raun var á. Ftin bráðabirgðalögin gaf landbúnaðarráðherra, Hermann Jón asson, út um að taka mjólkur- vinnslustöð Mjólkursambands Kjal- nessinga leigunámi. — Vöktu þessi bráðabirgðalög einnig undrun og megna óánægju. Því eins og efni stóðu t:\ þóttust bændur á Kjalar- nesi hart leiknir með lögum þess- um. —* Pegar ósamlyndi stjórnar flokk- anna kom upp, var búist við að þessi bráðabirgðalög yrðu einnig sundrungarefni ilokkanna. En þar var of mikið í húfi, því samþykkt þeirra á þessu þingi tryggði ráð herrunum stjórnarsessinn, en hefðu auðvitað orðið að vlkja, ef þau hefðu ekki náð samþykki þingsins. Nú urðu hrossakaupin opinber í dag, því lögin voru samþykkt í dag sitt í hvorri deild með atkvæð um stjórnarflokkanna. Stóðu stjórn arsinnar sem einn maður um lög- in. Að vísu voru þetta ekki endan- legar atkvæðagreiðslur um lög þessi, en eftir atkvæðagreiðslunni I dag, má ráða, hvernig fara muni um síðari atkvæðagreiðslur um málin. — Og þar með er frumvarp Eyfirðinganna um stjórn síldarverk- smiðjanna úr sögunni. Bendir nú flest til þess, að Framsóknarflokkurinn á þingi sé nú algerlega kominn aftur undir hæl- inn á Jafnaðarmönnum. Má í því sambandi á það benda, að í dag fór fram atkvæðagreiðsla um frurn- varp stjórnarliða til viðaukalaga við fiskimálanefnd. Höfðu Sjálfstæðismenn í sjávar- útvegsnefnd neðri-deildar borið fram svofellda breytingartillögu við frumvarpið: »Við úthlutun útflutn- ingsleyfa er fiskimálanefnd skylt að gæta hins fyllsta iéttlætis*. Pessa breytingartillögu felldu stjórnarliðar sameiginlega. Rafveitumál Akureyrar. Frumvarp ísbergs er hjá fjárhags- nefnd neðri deildar. Er nú víst, að nefndin öll muni ætla að leggja til, að frumvarpið nái fram að ganga. Sjálfstæðismennirnir í nefnd- inni leggja til, að frumvarpið verði samþykkt ó'oreytt, en hinir nefndar- menn áskilja sér rétt að koma fram með breytingarlillögur. — Hverjar þær muni verða, vita menn ekki, en það þykir þó líklegt, að þær hafi í sér úrfellingu ábyrgðarheim- ildarinnar á láni til virkjunarinnar og að þannig muni frumvarpið ná fram að ganga. Heíir nú þingmaður Akureyrar, Guðbr. ísberg, borið fram þings- ályktunartillögu í sameinuðu þíngi um ríkisábyrgð á láni til virkjunar- innar á Laxárfossum. Halda sumir þvf fram, að með þessu móti fengist þó það, að við atkvæðagreiðslu um tillöguna kærni greinilega í Ijós hverjir væiu með henni og hverjir móti. — En mestar líkur eru till þess, að ekkert verði af atkvæðagreiðslunni ráðið, þvf að, þegar ákveðið hefir verið, hvort ein eða tvær umræður eigi að fara fram um tillöguna verður henni vitanlega vísað til fjárhags- nefndar, og geta sennilega allir verið með því, en hvenær kemur svo tillagan frá neftidinni aftur? — Ringrof verður sennilegast á miðvikudag — síðasta vetrardag. Húsbruni. í tyrri nótt kviknaði i húsi Einars Einarssonar við Hjalteyrargötu. Varð barn f húsinu eldsins vart og vakti foreldra sina. Komst allt fólk út úr hús- inu. Húsið brann að innan eða stór skemdist af vatni. Sumir leigjendanna gátu litlu eða engu bjargað af búshlut- urn slnutn, sem voru óvátryggðir, og eru pvl mjög nauðuglega staddir. Borpraíundur. Að tilhlutun rafmagnsnefndar var almennur borgarafundur haldinn hér í Samkomuhúsi bæjarins á sunnudaginn var kl. 4 síðd. Tilefni íundarins var það, að upp- lýst var, að einhver tregöa mundi á því að ábyrgöarheimild ríkissjóðs á láni til væntanlegrar rafveitu Akur- eyrar næði fram að ganga á Al- þingi. Bæjarstjóri setti fundinn og stakk upp á Steingr. Jónssyni, fyrv. bæjar- fógeta, sem iundarstjóra, og var hann samþykktur, en hann tilnefndi sem fundarskrifara þá: Sig. Ein. Hlíðar, dýralæknir og Þorst. Þor- steinsson, bæjarfulltrúa. Bæjarstjóri, Steinn Steinsen,. tók fyrstur til múls. Rakti hann máliö og útskýrði áætlun Árna Pálssonar, verkfræðings, yíir rafvirkjun viö Laxá f Suður-Þingeyjarsýslu og gerði samanburð á virkjun þar og við Goöafoss, Lagði hann fram og las upp tillögu rafmagsneíndar svo- hljóöandi: »Með því að telja rná víst, að hagstætt lán til virkjunar Laxúrfoss* fáist ekki án ríkisábyrgðar, og með því að undirbúningi málsins er svo langt komið, að hægt er nú þess vegna aö byrja á virkjuninni, ef fé væri fyrir hendi, þá skorar al- mennur borgarafundur á Akureyri á Alþingi, að veita ríkisábyrgð fyrir 1,500,000 króna láni til virkjunar- innar nú þegar, áður en þingi verð- ur slitiö*. Pá tóku til máls: Sig Eggerz, bæjarfógeti, Þorst, Þorsteinssou, bæjarfulltrúi og Sig. Ein. Hlíðar, dýralæknir, Voru þeir allir tillög- unni samþykkir og mjög hvetjandi að ntál þetta næöi fram að ganga á Alþingi. Sig. Eggerz lagði fram síinskeyti á fundinum frá formanni Sjálfstæðisfiokksins, þar sem hann lýsir yíir óskiptu fylgi flokksins með málinu á Alþingi. \rar tillaga rafmagnsnefndar sam* þykkt af öllum fundarmönuum, er töldust vera 384. Jsland strandað. E. S. »ísland«, eign Sameinaða gufuskipafélagsins strandaði á þriðju- dagsmorguninn á skeri í Forthfirði á Skotlandi. Er sagt, að þoka og sterkur straumur hafi valdir strand- inu. Farþegum og bréf- og bögla- pósti varð bjargað. Talið er óltklegt, að skipið náist út aftur, enda orðið stór skemmt. Farþegar munu taka sér far frá Leith 21. þ. m. meö »Brúarfoss«, Kristín Sæmunds trúboði hefir samkomur í Verzlunarmannahúsinu sunnudaginn 18. þ. m. kl. 5 e. h, og þriðjudaginn 20. þ. m. kl. 8 e.h Allir velkomnir. Um ,,Stefi“ og „StrengjaXök“. Ljóðabækur F. H. Berg og Konráðs Vilhjálmssonar. Frið og unað fundið hef hjd fögrum óðar lindum. Frumleg eru Friðgeirs Stef fjölauðug af myndum. Bragasvans frd bldrri vök berzt oss kyngi-rómur. Stór eru Konrdðs Strengjatök, sterkur kvœðahl/ómur. O. S H. Hitt og þetta. Kirkjan. Messað n. k. sunnudag í Glerárþorpi kl. 12 á hádegi og á Akur- eyri kl. 2 e. h. I. O. O. F. 1184168Ya Mannslút. Ekkjan Maria Jóhannsdóttir, Aðalstræti 76, lézt að heiiníli sínu 9. p. m. 79 ára gömul. Hún var ættuð úr Hörgárdal, en hafði dvalið hér i bæ síðustu 50 árin. Var seinni kona Sölva Ólafssonar, skipstjóra, og varð þeim 4 sona auðið. Tveir þeirra eru enn á ltfi: Sigurður, snikkari og Ólafur, verkamaður, báðir til heimilis i Aðalstræti 76. Maria sál. var vel gefin og einkar vel kynnt kona. — jónas, sonur Stefáns Jónassonar út- gerðarmanns, andaðist að Vífilstöðuin þann 8. þ. m. — Hafa foreldrar hans dvalið um tlma fyrir sunnan, en komu með „Goðafossi“ með llk hans hingað til greftrunar. Jónas sál. var 18 ára gamall, mjög vel gefinn, prúður og reglusamur í hvivetna, hvers manns hugljúfi, og mjög til fyrirmyndar öðrum ungum mönn- uin. Er þungur harinur kveðinn að for- eldrum og systkinum við fráfall hans, Einnig er hans sárt saknað af öðrum, sem kynntust honum. Skátafélagið .Fálkar. efnir til sumar- fagnaðar, eins og venja er til, fyrsta sumardag. Seinnipart dags verður fjöi- breytt skemmtiskrá og merkjasala til ágóða fyrir starfsemi félagsins. Um kvöldið verður dansleikur. Er oft hress- andi og skemintilegt á sumarfagnaði skátanna, og félagið á það skiiið, að þvi sé gaumur gefinnog stuðningur veittur meðþvi, að þessi fagnaður þeirra sé vel sóttur. „Bændablaðiö* heitir nýtt vikublað, sem hóf göngu sfna hér á miðvikudag- inn. Eru það Bændaflokksmenn f Eyja- fjarðarsýslu, sem að því standa. For- maður flokksins i sýslunni, Stefán, hrepp- stjóri, Stefánsson á Varðgjá, skrifar for- spjallið, en Stefán Stefánsson, hrepp-. stjóri i Fagraskógi er ábyrgðarmaður blaðsins. Hinn eiginiegi ritstjóri blaðsins mun vera Gísli Brynjólfsson, cand. theol, pótt hans sé hvergi getið. Árshátíð slna heldur Félag verzlunar- og skrifstofufólks á Hótel Akureyri ann- að kvöld. Aðgöngumiðar í bókaverzlun Gunnl. Tr. Jónssonar. Basar heidur kvenfélagið Hlif eins og venja er til fyrsta sumardag í Skjald- borg til ágóða fyrir barnahælissjóðinn.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.