Íslendingur - 21.10.1938, Page 2
rSLENDINGUR
margs ber þó að gæia f því sam-
bandi, ef ábyggilegur árangur á að
fást,
Eins og að framan er sagt, er
Paratuberkulose erlendis talinn alveg
sérstakur nautgripasjúkdómur, en á
öðrum skepnum svo sjaldgæfur.
að lítið tjón er að. Hér aftur á
móti er nú verið að reyna að færa
sönnur á, að þessi sami sjúkdómur
sé gosinn upp á nokkrum stöðum
í sauðfé með stórfeldum fjárfelli,
en sýking nautgripa er ekki nefnd
á nafn í sambandi við þessa >nýju
illkynjuðu pest í sauðfénu«, éins
og Morgunblaðið kemst að orði
um hana. Virðist hér óneitanlega
skjóta nokkuð skökku við reynsiu
anna: jó' : sem um 40 ára skeið
hafa átt að búa við þessa sýki.
Fyr en þessi stórkostlega breyting
á háttum sýkinnar hér og erlendis
verður með rökum skýrð, finnst
mér furðu óvarlega af stað farið í
þessu máli; heppilegra hefði verið
að rannsaka allar aðstæður betur
áður en gífurlegar fullyrðingar voru
fram settar.
Sig, Eitu Hlíðar.
Skólar
eru nú allir teknir til starfa
Menntaskólinn var settur 2. októ-
ber. Skólann sækja 280 nemendur,
þar af 105 í lærdómsdeild, Fleiri
sóttu um skólavist í gagnfræðadeild
en hægt var að veita viðtöku. Fast-
ur aukakennari við skólann hefir
verið ráðinn Halldór Halldórsson
magister. Guðm. Arnlaugsson, er
nú kennir við skólann fer utan um
áramót að ljúka námi, en við störf-
um hans tekur þá dr. Sveinn Þórð-
arson (Sveinssonar læknis).
Gagnfrœðaskólinn var settur 15.
okt. Sækja hann 90 — 100 nemend-
ur. Vegna rúmleysis hefir orðið að
leigja húsnæöi fyrir 3. bekk í funda-
sal Verzlunarmannahússins, Fyrsti
bekkur starfar i tveimur deildum.
Nýir kennarar við skólann eru Ár-
mann Helgason student, Bragi Sig-
urjónsson stúdent og Jóhann Por-
kelsson héraðslæknir, er kennir
heilsufræði.
Iðnskólinn var settur 15. okt.
Nemendur eru þar rúml, 80, þar af
um helmingur iðnnemar. Nýir
kennarar eru Ármann Helgason og
Bragi Sigurjónsson.
Barnaskólinn var settur 11. okt.
Sækja hann um 630 börn. Sú
breyting heíir orðið á kennaraliöi
skólans, að Ingimar Eydal lét af
störfum á þessu ári eftir 30 ára
starf, en nýr kennari hefir verið
ráðinn, Hans jörgensen frá Akra-
nesi.
Sú þýðingarmikla ráðstöfun hefir
verið gerð við skólann, að þar er
verið að koma fyrir ljósbaðastöð
fyrir börnin.
Hjónaetni. Ungfrú Karla Þor-
steinsdóttir og Jón Rögnvaldsson
garðyrkjumaður Fífilgerði.
15. ping Alþýöusambands íslands
og 5. þing Kommúnistafiokks íslands
hófust í Reykjavik í gær,
Brennisteinsvinnsla
í Náraafjalli.
Nýlega hefir veriö boðin út bygg-
ing verksmiðjuhúss við Námaskarð
í Mývatnssveit, þar sem á að fram-
leiöa brennistein til útflutnings.
Verður brennisteinninn fluttur til
Englands og notaður þar í brenni-
steinskolefni til upplausnar á trjá-
efni, er síðan er spunnið úr silki,
Einnig er brennisteinninn notaöur
til sótthreinsunar á vínviöi og
gúmmívinnslu.
Í’rír menn hafa stofnað til brenni-
steinsvinnslunnar, þeir Ragnar
Jónsson og Þorvaldur Thorodd-
sen forstjórar smjörlíkisgerðarinnar
»Smári«, og dr. Jón Vestdal.
Ætlun þeirra er, að verksmiðju-
húsið verði tilbúið fyrir næstu ára-
mót, og að hægt verði að framleiða
um 1500 kg. af brennisteini dag-
lega fyrsc í stað. Verðið á brenni-
steininum veröur um 7 sterl, pd.
hver smálest (145 kr.) og yrði þá
verðmæti ársframleiðslunnar til að
byrja með 75-80 þús. kr. En
gangi vinnslan vel, gera þeir ráð
fyrir að auka framleiðsluna til muna,
svo að unnt verði áður en langt llð-
ur að flytja út brennistein fyrir ca,
Va milj. króna á ári.
Áætlað hefir verið, að í Náma-
fjalli séu um 6 þús. smálestir af
hreinum brennisteini. En þar er
hann í smáhaugum kringum holur,
er lofttegund sú, er hann myndast
af, streymir upp um Brennisteinn-
inn, sem þannig hrúgast upp, er þó
blandaður öðrum efnum og verður
í verksmiðjuhúsinu komið fyrir vél-
um, er hreinsa brennisteininn frá,
en liann er um af hráefn-
inu. Nokkur atvinna skapast við að
koma brennisteininum í verksmiðj-
una og hreinsa hann.
Vinnuskóli.
Eins og sjá má af auglýsingu á
öðrum stað í blaðinu í dag, hefir
Sjálfstæðiskvennafélagið »Vörn« á-
kveðið að koma á fót verklegu
námskeiði eða vianuskóla fyrir
pilta og stúlkur á aldrinum 14—20
ára. Er öll kennsla ókeypis, og
ættu því margir unglingar að geta
sætt þessu góða tækifæri til að
afla sér nokkurrar kunnáttu í ýmis-
konar bandiðn. Á þeim atvinnu-
leysistímum, sem nú eru, hafa slík
námskeið mikla þýðingu. Margir
unglingar á þessum aldri hafa iítið
fyrir stafni á vetrum, og er þá
tímanum betur varið til að leggja
stund á hagnýtt, verkiegt nám,
þegar ekki er völ ájaunaðri vinnu,
en að leita sér dægradvalar á ann-
an hátt. —
Tómas Björnsson kaupmaður
kom heim úr utanför nú í víkunni.
Hérmeð íilkynnist að maður-
inn minn Jón jónsson, andað-
ist að heimili okkar Brekkugötu
19 Akureyri, 15. þ. m.
Jarðarförin fer frarn þriðju-
daginn 25. þ. m. frá Akureyr-
arkirkju kl. 1 e. h.
Helga Sigurðardóftir.
Guðrún Ólöf Bergman
ekkja séra Friðriks J. Bergman, and-
aðist í Winnipeg 10, sept. Hún
var fædd að Botni í Hrafnagilshreppi
29. sept. 1855 og var því nær 83
ára að aldri. Hún var dóttir séra
Magnúsar Thorlacius; prests aö
Reynistaðaklaustri. Hún flutti vest-
ur árið 1887 og ári síðar giftist htin
séra Friðriki, sem þá þjónaði einn
öllu prestakallinu í (slenzku byggð-
inni í Norður-Dakota. Var heimili
þeirra hjóna ( Garðarbyggð fram
yíir aldamótin er þau fluttust og
settust að í Winnipeg. Séra Frið-
rik andaðist 11. apríl 1918. Var hún
síðan hjá dætrum sínum þar í borg.
Þau séra Friðrik og frú Guðrún
voru bæði höfðingjar heim að sækja
og var ætíð eins og foreldrafaðmur
væri þar opinn með kærleika til þess
sem að garði bar, enda fengu íslend-
ingar þar þau beztu ráð og leið-
beiningar, sem nýkomnir voru að
heiman, er urðu til þess, að framtíð
þeirra varð þeim og þeirra til gæfu
og gleði, sem aðhyltust þeirra ráð,
þótt vegir skyldu víða um alla Ame-
ríku. Allir vinir hennar nær og
fjær, senda að legstað hennar þakk-
læti fyrir samveruna og ógleyman-
lega kærleiksþelið, sem hún sýndi
öllum. Vinahópurinn er því stór,
er syrgir hana, sem bæöi nær yiir
íslenzkar byggðir í Ameríku og eins
hér heima á íslandi, er hafa orðið
ltærleika hennar aðnjótandi.
/• S. Th.
Sektir.
Undanfarna daga hefir lögreglan
tekið 20 manns og sektað fyrir brot
á utnferðareglum, aðallega hjólreiða-
menn. Auk þess hafa margir ung-
lingar fengið aðvörun fyrir sams-
konar brot, sem einkum hefir verið
vöntun Ijóskers á reiðhjólum, eða
að tvímennt hefir verið á hjólunum.
poSyfotor.k,sr4
I
Kosfir SUPER-SKANDIA
fram yfir diesel og há-
þrýstimótora:
Enginn dýr og margbrotinn loft-
þjappari,
engir nálarlokar í innspýtings-
tækinu,
einföld gerð,
auðveld gæzla,
lítill viðhaldskostnaður,
lítill viðgerðarkostnaður,
lítillbrunaþrýstingur íbrunahylkinu
lítill þrýstingur á eldsneytisolíunni
ekki viðkvæmur á hitastig svala-
vatns,
ræsing jafn auðveld í köldu veðri.
Kostir SUPER-SKANDIA
fram yfir glóðarhauss-
og flatkveikju-
mótora:
Þægileg kaldræsing,
fullkomin brennsla eldsneytisins,
h'til eldsnejúiseyðsla,
lítil smurningsolíueyðsla,
reyklaust afgas.
léttur hljóðlaus gangur,
mikil aflsframleiðsla.
SUPER-SKANDlA getur gengið með ódýruslu hráol(u. SUPER-
SKANDIA er að öllu leyti búinn til úr allra bezta efni. Bullu-
hylkið er Mæypt úr sérstakri járnsamsetningu, sem er einstæð að
endingu. SUPER-SKANDIA er lítil! fyrirferðar, samanborið við
aíl það, sem hann framleiðir. SUPER SKANDIA er sérstaklega
endingargóður,
SVPER-SKANDIA er hlutfallslega mjö^ ódýr.
Greiðsluskilmálar mjög aðgengilegir.
Leitið upplýsinga, — þær kosta ekkert.
Tómas Björnsson, Akureyri.