Íslendingur - 21.10.1938, Side 3
tSLENDÍNGLft
3
Vinnustofa
Pann 1. nóv. n.k. opnar S/'álfstæðískvennafélagið
> Vörn« á Akureyri VINNUSTOFU fyrir
unglinga á aldrinum 14—20 ára, bæði pilta og
stúlkur, í Hafnarstræti 20 (Höepfners-verzlun). Kennt
verður: Fatasaumur, viðgerðir, tóvinna, prjón,
hekl, útsaumur, skinnavinna, smíðar og út-
skurður. ÖLL KENNSLA ÓKEYPIS. —
Nemendur leggi sér til áhöld og efni. Kennslutímar
á dag frá kl. 3—7 og 8—10. Umsóknum um þátt-
töku sé skilað fyrir 30. okt. til Gunnhildar Ryel, Mariu
Guðmundsdóttur Hafnarstræti 45 eða til formanns fé-
Iagsins Arnfinnu Björnsdóttur.
Akureyrarbær.
Dráttarvextir
falla á síðari hluta útsvara í Akureyrarkaupstað, ef eigi
er greitt fyrir 1. nóvember næstkomandi.
Dráttarvextirnir eru \% á mánuði og reiknast frá 1.
september s. 1.
Akureyri, 21. oktober 1938.
Bæjargjaldkerinn.
Fýtufðr stjórnarblaðanna
Fyrir skömmu síðan hóf blaðið
»Tíminn« árás á kaupmenn í Reykja-
vík fyrir háa álagningu á ýmsar
vörutegundir- Birti það töflu eina,
þar sem sýna skyldi innkaupsverð
vörunnar, upphæð þá sem greidd
var í tollum og útsöluverð. Síðan
var álagningin leiknuð út frá inn-
kaupsverði og lókst blaðinu með
því móti að fá út háar prósenttöl-
ur, er áttu að tala skýru máli um
okur kaupmanna. Álagning þeirra
var hvorki meira né minna en 254%"
á einni tegund vefnaðarvöru!
Blaðinu var þá bent á það, að
slíkur útreikningur á vöruálagningu
væri ærið villandi, og birti það þá
töfluna aftur, þar sem álagningin var
reiknuð út fiá kostnaðarverði. Um
sama leyti birtist í blaðinu leiðrétt-
ing frá skóverzlun í Reykjavík, þar
sem talið var að í fyrri töflu »Tím-
ans« hefði tollur á strigaskóm ver-
ið vanreiknaður, og viðurkenndi
blaðið, að svo hefði verið.
LMorgunblaðið og Vísir öfluðu
sér nú upplýsinga um verðlag hjá
KRON á 3 vörulegundum, er Tím-
inn hafði reiknað út að kaupmenn
legðu á fiá 164-218%", og reikn-
uðu álagningu kaupfélagsins með
sömu aðferð og Tíminn. Og hvað
skeður? Með sama útreikningi varð
álagning KRON á þessutn þremur
vörutegundum frá 185 — 238%!
Pað er eftirtektaverðast við þessa
árás »Tímans«, sem aðallega er
stefnt að vefnaðarvörukaupmönn-
um, að húii virðist hafa verið fyrir-
fram skipulögð. Hin stjórnarblöð-
in, Alþýðublaðið og Pjóð viljinn
taka þegar undir viö Tímann, og
Pjóðviljinn tekur það fram, að »eina
le.iðin til þess að skapa heilbrigt
verðlag á vefnaðarvöru sé að veita
sem mestu af leyfum fyrir hana
til KRON«. Þetta verzlunarfyrir-
tæki, sem kommúnistar ráða mestu
b hefir dafnað mjög upp á síðkast-
ið, síðan fjármálaráðherrann gekk
því svo að segja í föður stað og
lét »hjálpa því um innflutning,
sem vel hefði mátt ráðstafa öðru-
vísi«. Og þólt félag þetta hafi
fengið rneiri vefnaðarvöruleyfi á
yfirstandandi ári en nokkur önnur
verzlun í Reykjavík, heimta komm-
únistar enn meira. Og þá er her-
ferðin haíin.
En uppskeran fer jafnan eftir
sáningunni. Herferð þessi hefir
orðið til þess, að samanburður hef-
ir verið gerður á vefnaðarvöruálagn-
ingu hjá kaupmönnum og kaupfé-
lagi kommúnisfa í Reykjavík. Sá
samanburður hefir leitf í Ijós, að
lítilla úrbóta má vænta á dýrtíðinni,
þó orðið sé við kröfum Þjóðvilj-
ans um að veita sem mestu af leyf-
um fyrir vefnaðarvöru til KRON.
Með árásum sínum á veizlunar-
sléltina í blöðum stjórnarflokkanna
undanfaiið hafa forsprakkarnir löðr-
ungað sjálfa sig eftinninnilega. Og
tiigangurinn með þeim, sem nú er
orðinn auðsær, vekur viðurstyggð
aimennings-
Félagar Ferðatélags Akur-
eyrar eru beðnir aö vitja Árbókar
Ferðafét. íslands fyrir árið 1938 til
Björns Björnssonar frá Múla.
I.O.O.F. = 12010219 =
Ff?ÉTTIR
Sjúkrahúsbygging. Nýlega
var boðin úf bygging á hluta af
hinu fyrirhugaöa sjúkrahúsi. í þeim
’liluta á að koma fyrir skurðarstofu,
ljóslækningastofu og Röntgendeild.
Alls bárust spítalanefnd 4 tilboð í
bygginguna. Lægsta tilboðinu var
tekið, Var það frá Óskari Gíslasyni,
að upphæö 24200 krónur. Búið er
að grafa fyrir hinni nýju byggingu
og veiður byrjað að vinna viö hana
næstu daga.
BoIIi K Eggertsson (Einars-
sonar kaupmanns) fór með *Dr. Al-
exandrine* í morgun áleiðis til Dan-
merkur. Ætlar hann að dvelja um
6 mánaða skeið á ölgerðarhúsi í
Slagelse og kynna sér nýjustu að-
ferðir við öl- og gosdrykkjagerö,
Frumsýning verðar á sjónleikn-
um Fróðá eftir jóhann Frímann,
annað kvöld — laugardag. — Næsta
sýning á sunnudaginn. Börnum
verður ekki leyíður aðgangur að
frumsýningunni. og ekki innan 12
ára aldurs að seinni sýningunum.
Hjónaband Ungfrú Jónína jó-
hannesdóttir frá Miðhúsum og Krist-
inn Jakobsson Espigrund Hrafnagils-
hreppi.
Sigurjón P. Árnason sem
verið hefir prestur í Vestmannaeyj-
um, er nýlega tekinn við aukaprests-
embætti við dómkirkjusöfnuðinn í
Reykjavík.
Frægur leikari dáinn. Jó-
hannes Paulsen, hinn frægi danski
leikari, er nýlega látinn af afleið-
ingum uppskurðar við fgerð f heila.
Dánarfregn. 17. þ. m. lézt úr
bléðeitrun hér á sjúkrahúsinu Svein-
björn Sigtryggsson bóndi í Saurbæ
í Eyjaíirði, 56 ára að aldri. Svein-
björn heitinn var hinn mesti dugn-
aðarmaður, mjög vinsæll meðal sveit-
unga sinna, hjálpsamur og greiö-
vikinn svo að orð fór af.
15. þ. m. lézt að htimili slnu
Brekkugötu 19 hér í bænurn Jón
Jónsson verkamaður.
Barnastúkan Sakleysið heldur
fund kl. 1,30 n. k. sunnudag. Rætt
um vetrarstarlið, hlutaveltu o. fl.
Félagar beðnir að fjölmenna.
Meðal tarþega á »Dronning
Alexandrine« til útlanda fóru héðan
í morgun: Jón Kristjánsson útgerð-
armaður og frú, ungfrúrnar Ragnh.
Bjarnadóttir, Lára Halldórsdóttir,
Jónína Jónsdóttir, Guðrún Jónsdóttir
og Marzelía Aðólfsdóttir,
Húsnæði.
Barnlaus hjón óska eftir
1 eða 2 herbergjum og eld-
húsi frá 1. nóvember n. k.
Upplýsingar í síma 305.
Einhleypan
stúlku til að þvo þvott
og gera hreina litla fbúð.
R. v. á,
„V esta“
Saumavélar eru viður-
kenndar fyrir gæði,
fást í
Brauns Verzlu n
Páll Sigurgeirsson.
Bliíssur
úr stormtaui,
með rennilás
fást í
BRADNS-VERZLUN
Páll Sigurgeirsson.
Þankabrot
Jóns í Grófinni.
AlÞM. 18. þ. m, minnist á blaðá-
deilur syðra um verzlunarálagning-
una. Segir hann, að þar sé á ferð*
inni »grmall draugur*, sem sé
»ofsókn Irá hendi kaupmannavalds-
ins« (I)
Ekki fylgjast þeir nú illa með
hlutunum, bræðurnir!
Draugurinn, sem »Tíminn« vakti
upp og sendi kaupmönnum í Rvík,
en var sendur aftur til föðurhús-
anna, er óskilgetið afkvæmi Fram-
sóknar og kommúnista. Ef riturum
Alþ.m. er þetta ekki ljóst, ættu þeir
að kynna sér upphaf deilunnar, því
slík endaskipti á sannleikanum og gei ð
eru í klausu Alþ.m. um þetta mál,
hafa aldrei verið sýnd norölenzkum
lesendum áður.
Hinar langvinnu árásir stjórnar
blaðanna á verzlunarstéttina
undanfarið hafa komið mér á þá
skoðun, að hér sé um KRONfska
ofsóknasýki að ræða.
Dansleik
heldur Lestrarfél. Kaup-
angssóknar að uverá
annað kvöld kl. 9,30.
Laukur
kom með .Deftifossi’
Verzl. Esja.
Veggfóður
mikið úrval.
Hallgrímur Kristjánsson.
KIRKJAN: Messað á Akureyri n. k.
sunnudag kl. 2 e. h.