Íslendingur - 25.11.1938, Síða 2
ISLENDlNGUfc
2
Höfðatölureglan
Pegar fundið er að þeirri mis-
beitingu innflutningshaftanna að auka
innflutning kaupfélaganna á kostn-
að annarra verzlana, svara blöð
Framsóknarflokksins venjulega með
þvf, að slíkt sé gert vegna neytend-
anna, sem vilji ráða, hvar þeir
, verzla. - Og því hafi verið fundin
upp hin svo nefnda höfðatöluregla,
! þar sem kaupfélögunum sé veittur
; innflutningur meö hliðsjón af félaga-
fjölda þeirra og á þann hátt fáist
i hin eina réttmæta skipting innflutn-
. ingsins.
! Höfðatölureglan er þannig fram-
í kvæmd, að kaupfélögin gefa upp
félagajölu sína, Síðan er gengið út
frá, að þver.félagsmaður hafi 4—5'
í manna fj.ölskyldu fram að færa,
í'Með þessu móti fá kaupfélögin rétt
i til miklu meiri innflutnings en nægja
. mundi félagsmönnum, því meöal
þessara félaga er fjöldi einhleypra
mánna, sem aðeins hafa sjálfa sig á
framfæri og eru jafnvel margir úr
fjölskyldum, þar sem heimilisfaðirinn
er einnig skráður félagsmaður. f*á
munu allmargir vera meðlimirtveggja
eða jafnvel fleiri kaupfélaga, og
getur því þessi »höfðatöluregla« haft
þaú áhrif, að' tveim feðgum, sem
báðir eru í tveim kaupfélögum, sé
reiknað 16—20 manna heimili, þótt
eigi sé um nema þriggja til fjögurra
manna heimili að ræðu.
Af þessu er ljóst, að ekki þarf
nema annarhver fulltíða maður í
landinu aö vera skráður meðlimur L
samvinnufélagi til þess að regla
þessi geti komið allri verzluninni í
hendur kaupfélaga og pöntunar-
félaga, þó að hinn helmingurinn
kjósi að hafa frjálsar hendur um
þaö, hvar hann verzlar. Þessi
regla um úthlutun innfiutningsins er
það »verzlunarfrelsi neytendanna« í
landinu, sem Framsóknarflokkurinn
miklast af að hafa fundið úpp, En
eins og sú regla er og heíir verið
framkvæmd, veitir hún kaupfélögum
miklu meiri innflutning en þarfir
félaganna kreíjast, en að sama
skapi minnkar innflutningur kaup-
manna Neytendur, sem utan fé-
laganna standa, verða þyí oft að
gera innkaup sín hjá félögunum
alveg án tillits til þess, hvar þeir
helzt óska að verzla. Þetta kalla
Framsóknarmenn »rétt neytandans*.
Þannig er það verzlunarlrelsi, er
»höfðatöluregla« þeirra hefir skap-
aö. —
Þó að höfðatölareglan sé fram-
kvæmd á mjög ósanngjarnan hátt
við úthlutun innfiutningsins eins og
bent hefir verið á hér að framan,
getur hún ofi' átt fullan rétt á sér
og verið auðveld og réttlát í iram-
kvæmd. Það væri til dæmis mjög
sanngjarnt og eðlilegt, að hún réði
um skiþún löggjafarþings og ríkis-
stjórhar. Að hlutföllin milli þing-
márina hirina einstöku flokka væri
híð' sani'á og hlutföllin milli kjósenda-
fjölda þéirra: Að atkvæði eins kjós-
ahdá sé ékki fjórum eða sex sinn-
uWi þýngra á metunum en annars,
hélduf- að atkvæðisréttur allra kjós-
ehdá á landínú vaéri jafn, hvort
sem þeir búa í Reykjavfk eða
Re.ykjadal, Seyðisfirði eða Sauðár-
krók. Hvergi á höfðatölureglan
sjálfsagðari rétt á sér en í kosn-
ingalöggjöfinni, og hvergi er auð-
veldara aö framkvæma hana. Með
henni væri tryggt, að meirihluta-
ítjórn færi jafnan með völd, en
ekki stjórn með aðeins 30—35%
kjósenda að baki, eins og nú mun
vera ástatt. í*á mundi þjóð vor fá
lýðrœliislegt stjórnarfar í stað þess
níðrœðis, er vér höfum haft, meðan
hlutdræg og sfngjörn minnihluta-
stjórn situr á valdastólum og safn-
ar í kringum sig óseðjandi bitlingalýð
á kostnað alls almennings í landinu,
en daufheyrist við óskum aðþrengdra
framleiðenda.
Slík umbót á kosningalöggjöíinni,
sem höfðatölureglan mundi verið
hafa, hefir jafnan strandað á and-
stöðu Framsóknarmanna. Ef ein-
hver hreyfir slíku máli, verða blöð
þeirra æf og uppvæg. En hvað
veldur því, að Framsóknarmenn
hafa tvennskonar viðhorf til höfða-
tölureglunnar? Þaö er fljótlegt að
ganga úr skugga um það. Með
því að láta höfðaiöluregluna ráða á
þann hátt, sem gert er við úthlutun
innflutningsins geta þau verzlunar-
fyrirtæki, sem standa undir útgáfu
Framsóknarblaðanna og veita Fram-
sóknarmönnum öðrum fremur at-
vinnu, eflst og vaxið, og er það
flokknum mikill fjárhagslegur styrk-
ur, beint og óbeint. En um kosn-
ingalöggjöíina gegnir öðru máli.
Væri hún færð í réttlátt horf og
höfðatala kjósenda látin ráða skipun
Alþingis, mundi þingflokkur Fram-
sóknar eitthvað þynnast, þar sem sá
fiokkur hefir jafnan veríð allmiklu
stærri í hlutfalli við aðra flokka, en
kjósendafylgið í landinu benti til.
A.f þessum ástæðum vilja Fram-
sóknarmenn hvorki sjá né heyra
höfðatöluregluna þar sem hún á
mestan rétt á sér og auðveldast er
að framkvæma hana í réttu formi.
En fyrr eða síðar verður hún lögð
til gmndvallar í kosningalöggjöfinni,
hvaö sem andstöðu Framsóknar-
flokksins líður. Þeir, sem standa á
rétti annarra, verða jafnan að stíga
af honum aö lokum, því hinn rétti
málstaöur á sigur fólginn í sjálfum
sér. —
Nobelsverðlaun
Bókmenntaverðlaun Nobels hlaut
að þessu sinni skáldkonan ameríska
Pearl S, Buck, sern hér á landi er
kunnust fyrir í-öguna »Gott land«.
Meðal þeirra, sem áður höfðu verið
tilnefndir, sem líklegir Nobelsverð-
launahöfundar á þeSsu ári, voru
danska skáldið Jóh. V. Jensen og
finnska skáldið Sillilripaa.
Nobelsverðlaunin í eðlisfræði hlaut
Einrico Fermi prófessor í Rómaborg,
Thor Thors alþm. og Jónas
Jónsson alþm. komu heim frá Ame-
ríku með Gullfossi nú í vikunni.
Næsta blað verður ekki borið
til kaupenda ( bænum fyrr en á
laugardagsmorgun 3. des., vegna
lokunar á prentsmiðjunni 1, des.
Innilegt, hjartans þakklæti fyrir þá miklu
hluttekningu og vinsemd, sem okkur hefir verið
auðsýnd við andlát og jarðarför mannsins míns,
föður okkar og tengdaföður, Böðvars Bjarkan.
Kristín Bjarkan, Skúli Bjarkan
Sigrún Bjarkan. Ragnar Bjarkan
BÆKUR OG RIT
Th Bögeluná:
Foreldrar og upp-
e/d/. — Akureyri 1938.
Prentverk Odds Björns-
sonar.
Eins og heiti bókarinnar ber með
sér, fjallar hún um eitt mesta vanda-
mál okkar mannanna: Uppeldi barn-
anna, Höf. ér yfirkennari í Fredricia
og þekktur skólamaður í Danmörku,
Bókina hefir Jón N. Jónasson kenn-
ari í Reykjavík þýtt, og er hann
einnig útgefandi hennar. Pótt við
höfum fengið bækur um uppeldis-
mál áður, svo sem Uppeldið í þýð-
ingu Ármanns Halldórssonar og
Boðorðin sjö um barnauppeldi, er
ekki hægt annað að segja, en að
bók þessi eigi erindi til okkar.
Hún hefir þann kost að vera stutt
°g gagnorð, og því mjög handhaig
handbók fyrir foreldra. Hún gefur
í senn góðar leiðbeiningar um and-
legt og líkamlegt uppeldi barna,
þ. e. um heilsufræðileg efni engu
síður en sálfræðileg. Etiginn hefir
full not af bókinni við fljótan yftr-
lestur, en hún getur orðið þeim að
góðu gagni, sem haía hana við hend-
ina og leita úrlausnar í lienni á
ýmsum vandamálum er fyrir hvern
uppalanda koma.
Of mikið gerir þýðandi að því að
skjóta inn athugasemdum og skýr-
ingum frá sjálum sér, innan sviga
eða neðanmáls. Hefði hann víða
getað sparað sér það ómak, t. <1,
meö þvi að benda á þaö í eitt skipti
fyrir öll, að bókin væri rituð í Dan-
mörku og miðuö við danska stað-
hætti og slíkt yrði lesandinrt alltaf
að hafa í huga. Meö því hefði
hann getað sparað sér allmargar
athugasemdir.
En þrárt fyrir þenna galla, sem
mörgum kann aö finnast smávægi-
legur, er í bók þessari að finna svör
við mörgum spurningum, sem for-
eldrar barna óska að fá leyst úr.
Og hún hefir þann höfuðkost að
vera stutt, en ná þó yfir alla þætti
uppeldisins.
Eimretðin XLIV ár.
3. hefti,
er nýkomin út. Heíti þetta hefst
með greinaflokki utn hina marg um-
töluðu atburð' í Evrópu, er ófrið.ir-
blikan var svörtust í sumar. Eru
þeir skrifaðir af ritstjóranum.
Helgi Briem ritar um Ullarmálið
og Stefán Einarsson um skáldrit
Einars H, Kvaran. Smásögur eru
þar eftir Sigurð Helgason, Árna
Jónsson og Þórodd frá Sandi. Pá
eru þar þýddar greinar, smákvæði,
rilfregnir, raddir frá lesendum o. fl.
Jarðarför Guðrúnar Odds-
dóttur Norðurgötu 9 hér í
bænum fer fram trá Akureyrar-
kirkju laugard. 26. þ.tn. kl 1,30
síðdegis.
Þjóðin I árg. IV, hefti,
er nýlega komin út.
Efni hermar er fjölbrcytt og má
þar nefna: Stjórnmálaþælti. eftir
Gunnar Thoroddsen, grein um Pól-
land eftir Finnboga Kjartansson,
Heilsuvernd, útvarpsræða Sig. Sig-
urðssonar berklayíirlæknis, Horft
heim að íslenzkum sveitabæ, eftir
Hörð Bjarnason arkitekt, Þýzkaland
— stórveldi, eftir Pétur Ólafsson
blaðamann, Bókaþátt, þýddar sögur
og síðast en ekki sízt kvæðið »And-
vaka* eftir Jón Magnússon skáld,
Fjöldi góðra tnynda er í ritinu. All-
ir Sjálfstæðismenn ættu að kaupa
þetta tímarit.
Báifaratélag Is/ands
Áisskýrsla 1937.
hefir blaðinu borizt. Hefir ritið inni
aö halda skýrslu aðalfundar félags-
ins 1938 ásamt ársreikningi fyrra
árs, en auk þess er þar skýrt frá
Bálfarannálum erlendis. Árið sem
leið annaðist íélagið um bálför
tveggja íslendinga á bálstofu í Dan-
mörku. í árslok var meðlimatala
félagsins 550. Formaður þess er
Dr. Gunnl. Claessen,
I.O.O.F. = 12011259 =
Mótornámskeið hófst hér í
bænum um síðustu helgi og mun
standa fram 1 febrúar, Nemendur
eru 29. Aðalkennari er Jón Sigurðs-
son Hrísey.
EGILS (") I,
I. BRYNJÓLFSSON * KVABAN
Drekkið Egi/s-e/.