Íslendingur - 05.07.1940, Blaðsíða 3
ISLENDINGUR
3
Sjálfstæðismenn
Héraðsmót Sjálfstæðismanna í Vaglaskógi
sunnudaginn 7. júlí, kl. 2 e. h.
THh ögun !
1. Samkoman sett (Sig. E. Hlíðar)
2. Ræða (Jakob MöHer tjármálaráðh.)
3. Söngur
4. Ræða (Sig. Eggerz bæ/arfógeti).
5. Boðhlaup
6. Ræða (Jóh. Hafstein erindreki).
7. Reiptog milli Eytirðinga og Ping-
eyinga.
8. Dans.
Allskonar veitingar seldar. Veitingatjald
og afarstórt samkvæmistjald á staðnum.
Hamingjan hjálpi Q I/ V P
þér! ef ekkert w l\ Y l\ er á borðinu. —
Héraösmót
Sjálfstæöismanna fyrir Eyjafjaröar-
og Éingeyjarsýslur verður haldiö í
Vaglaskógi á sunnudaginn. Koma
til mótsins aí hálíu miðstjórnar
ílokksins þeir Jakob Möller ijármála-
ráöherra og Jóhann Hafstein erind-
reki. Veröur fjármálaráöherrann
þá jafnframt á feröalagi heim til
æskustöðvanna, því hann er eyfirzk-
ur aö ætt, fæddur á Hjalteyri. Hefir
hann ekki áður mætt á flokksfund-
um eöa héraðsmótum hér nyröra
og þarf ekki aö draga í efa, að sú
ráðstöfun, aö láta einmitt hann mæta
á þessu héraðsmóti muni vekja á-
nægju allra Sjálfstæðismanna hér
um slóðir og veröa þeim hvöt til
að sækja mótið. Og þá er þaö einn-
ig ánægjuefni aö fá að hiyöa á
Jóhann Hafstein viö þetta tækifæri,
því hann er einn glæsilegasti ræöu-
maöur landsins í hópi ungra Sjálf-
stæðismar.na.
Priðji ræöumaöur verður Sig.
Eggerz bæjarfógeti, einn snjallasti
ræöumaður flokksins hér á Norður-
landi, og má því telja vel til alls
vandaö.
Pá munu íþróttir, söngur og ann-
ar gleðskapur veröa haiður um
hönd. — Þarf ekki að efa,
að mikið fjölmenni verði saman
komið í Vaglaskógi á sunnudaginn,
ef veðriö diegur ekki úr aðsókn,
en á slíkum útimótum ræður það
ætíð miklu þar um.
Utan úr heimi.
í síðustu viku óð Rauði heiinn
inn í Rúmeníu og tók á vald sitt
Bessarabíu og Noröur Bukovina. —
Ungverjar og Búlgarar drógu saman
herlið á rúmönsku landamærunum
og kröfðust endurskoðunar á landa-
mærum á Balkanskaganum, en til
átaka hefir ekki komiö. Talið er
að Þjóðverjar og ítalir hafi nú hönd
í bagga með málefnum Balkanríkj-
anua.
Rússar hafa nú ákveöið að verja
stórfé til aukins vígbúnaðar.
Balbo ílugmarskálkur ítala fórst
nyiega í flugferð í Libyu. Ekki er
fyllilega ljóst, með hverjum hætti
fráfall hans bar að höndum.
Þjóðverjar halda uppi loftárásum
á England, en engir stóiviðburðir
gerast í því sambandi.
Brezka farþegaskipinu »Arandora
Star* var sökkt fyrirvarálaust und-
an Skotlandsströndum á þriðjudag
inn. Var það á leiö til Canada
með 1500 þýzka og ítalska stríðs-
fanga. Tekist hefir að bjarga á
annaö þúsund maniis af skipinu.
»Arandora Star* hefir oft komið
hingað til lands með skemmtiferða-
fólk, Þaö var 15.5 þús, smálestir.
fakob MÖJ/er fjármálaráðherra
verður sextuguf 12. þ. m.
Happdrættið.
Kaupið nýja miða, miðarseld-
ir til kl. 12 kvöldið fyrir drátt.
Loftvarnaráðstafaiiir.
í loftvatnanefnd Akureyrar eiga
sæti: Sig, Eggerz bæjarfógeli for-
maður, Steinn Steinsen bæjarstjóri
og Gunnar Schraro sfmastjóri. —
Hefir blaðið spurst fyrir um störf
nefndarinnar og fengið þar um
þessar uppiýsingar;
Nefndin hefir látið bera út um
bæinn loftvarnabækling meö bend-
ingum um, hvernig fólki ber að
haga sér í loftárásum.
f*á hefir hún einnig ákveöið nokk-
ur loftvarnabyrgi, sem auglýst
verða næstu daga. Telur nefndin
nauðsynlegt að fá 3 hjólflautur til
að gefa merki með, ef loftárás bæri
að höndum, og hefir hún gert ráð
stafanir til aö fá þær, en þær kosta
3000 krónur, og er ekkert fé enn
fyrir hendi.
Ýtarlegri ráðstafanir verða gerð-
ar jafn skjótt og fé fæst til þeirra.
Þankabrot
/óns í Grófinni.
VIÐ komu brezka hersins á dög-
unum jókst umferðin í bænum
mjög mikið, Hefir herinn mikinn
fjölda bifhjóla í notkun, sem sífelt
eru á feið og flugi um aöalgöturn-
ar. Hefir því umferðarhættan sjáan-
lega aukist, þótt vissulega bæti
mikiö úr skák, aö Bretar hafa sömu
umEeröareglur og við — (vinstri
akstur, sem Alþingi sfðasta varpaði
fyrir borð án knýjandi ástæðu, og
ganga nýjar reglur í gildi um næstu
áiamót),
Þessi aukna umferðahætta gerir
lögregluþörfina meiri en áður, og
end* þótt 1—2 lögregluþjónar á
dagvakt sé á venjulegum tfmum allt
of lítið löggæzlulið fyrir svo stóran
b« sem Akureyii, þó hefir það
aldrei verið jafn tilfinnanlegt og nú.
?aö mun hvergi eiga sér stað ann-
ars staðar en hér, að lögregluþjónn
þurfi að standa á sama veröi allan
daginn, enda er það hverjum manni
ofætlun. Hér mundi hæfilegt aö
hafa 2 — 3 lögregluþjóna á dagvakt
í miðbænum og a m. k. einn, sem
færi um bæinn að staðaldri. En
eins og nú er ástatt f þessu efni,
er þaö talið til viðburða, ef lög-
regluþjónn sézt á feili í afskekktari
götum bæjarins. Ég veit, að það
mun ekki talið ára vel nú, til þess
að auka lögreglulið bæjarins og
bæta þeim kostnaði á bök borgar
anna. En bogararnir vilja hafa
lögregluna, og þeir munu því ekki
teljast undan að taka á sig kostnað
inn af henni,
Samskot handa norska flótta-
fólkinu: Frá Pétri Jónassyni Hjalt
eyri kr. 266,00 og frá Jóni Hinriks-
syni, ágóði af Sjómannadeginum
kr. 403,72.
Mannalát. Nýlega eru látnir í
Reykjavík Lúðvík I.árusson kaup-
maður og Sigurður Sigurðsson tyrr-
um búnaöarmálastjóri.
Ungfrú Hallbförg Bjarna-
dóttir jazz söngkona er nú stödd
hér í bænum og heldur næturhljóm-
leika f Nýja-Bfó í kvöld.
Vegagerð urn Yatnabjalla.
í fyrrasumar hóf Ferðafélag Ak-
ureyrar og ýmsir áhugamenn að
ryöja veg fram úr Eyjafirði í því
skyni að koma á bílvegasambandi
við Suðurland um Sprengisand —
í sumar verður unnin sjálíboðavinna
um aðra hvora helgi og sér Ferða-
félagið uin verkið og flutning sjálí-
boðaliðanna þeim að kostnaðarlausu.
Er öll sjálfboðavinna til þessa verks
kærkomin, og ættu sem flestir. þeir
er tök hafa á, að ljá þessu máli
lið sitt.
Tjón af illviðri.
Fyrir síðustu helgi gerði aftaka-
veður með úrhellisrigningu og vatna-
vöxtum á Austfjörðum og í Skafta-
fellssýslum — Á Eskifiiði urðu
skemmdir af veðri og vatni einna
mestar. Brúin á Eskifjarðará eyði-
lagðist og vatn rann inn í kjallara
á húsum, 1 Skaptafellssýslum krókn-
aði fé í tugatali, það sem nýbúiö
var að rýja.
Suðurför K A Meistaraílokk-
ur Knattspyrnufélags Akureyiar er
nylega lieim kominn úr knattspyrnu-
för til Reykjavíkur. Keppti hann
þar þrjá leiki, við Víking, Val og
Knattspyrnufélag Reykjavíkur. Leik-
ar fóru þanning:
Víkingur 5 K A 2 •
Valur 4 K A 0
K R 3 K A 3
S/ps. S 1. fimmtudag varð það
slys við síldarverksmiöjuna á Iljalt
ej'ri, að Stefán Jakobsson (frá Fá-
skrúðsfiröi) féll niöur af vinnupalti á
steinsteypt þak, og brotnaöi á hand-
legg, læri og mjöðm. Var hann
fluttur -á sjúkrahúsið hér, en andað-
ist þar af meiöslunum skömmu síð-
ar. Stefán heitirn var sextugur aö
aldrt.
Happdrættið.
Endurnýið í tíma.
Dregið 10. júlí.
Reyniö viðskiptin
við skóvinnustofuna Lundarg. 5
P ál m i ÓIa t s s o n. —
Stúlku
vantar nú þegar.
H óte I Aku r ey r i.
Húsnæði
til leigu, 4 herbergi og eldhús
frá 1. okt. í Strandgötu 25 B.
Einnig 1 herbergi nú þegar til 1. okt.
Steingr. O. Guðmundsson
Sími 123.
Kven-armbandsúr
tapaðist milli kl. 12 og 1 í gær
á leið frá Ryeis verzlun upp í
Hrafnagilsstræti. Finnandi vin-
saml. beðinn að skila því til
lögreglunnar gegn fundarlaunum
Hjálpræðisherinn. — Sunnud.
helgunarsamkoma kl. 11 útisamkoma
kl. 4 og 8. Stór samkoma f salnum
kl 8,30 mikill söngur hljómleikar.
Menntamál. Janúar-júní 1940
heíir blaðinu borist. Hefst þetta
hefti með grein um Einat Benedikts
son skAld eftir Gunnar Magnússon.
Að öðru leyti ílytur það þýddar og
frumsamdar greinnr um uppeldis
og skólamál og rannsóknir i þágu
þeirra mála.
Prentsmiðja Björns Jónssonar