Íslendingur - 27.09.1940, Blaðsíða 1
Ritstjóri og afgreiðslum.: Jakob O. Pétursson, Fjólugötu 1. Sími 375. Pósthólf 118.
XXVI. árgangur.l Akureyri, 27. september 1940 I 40. tölubl.
KRISTJÁN X.
konungur fslands og Danmerkur átti 70 ára afmæli í gær.
Minntist Ríkisútvarpið afmælis konungs í dagskrá sinni, og
guðsþjónusta var lialdin í dómkirkjunni i Reykjavík, þar
sem biskupinn yfir Islandi, Sigurgeir Sigurðsson flutti predik-
un í tilelni af afmælinu.
Kristján konungur X og drottning hans hafa látið sér
mjög annt um ísland og velferð íslenzku þjóðarinnar, og
minnast allir íslendingar þeirra ineð óskiptri virðingu og
hlýjum hug. Á þessum tímamótum í lífi konungs munu
honum berast héðan margar hljóðar árnaðaróskir yfir
hin breiðu höf.
Sémi biezk skiifslofa
vegna kvartana, skaða-
bótakrafa o. s. frv.
Brezka herstjórnin hefir látið
opna skrifstofu á Ráðhústorgi 7
(hús Axels Kristjánssonar). Skrif-
stofan heitir Hirings and Com-
plaints Office — Northern Iceland.
Er tekið þar á móti öllum kvört-
unum í sambandi við brezka setu-
liðið hér, svo sem vegna skemmda
eða notkunar á landi, lóðum, hús-
um o. s. frv. Ennfremur er samið
þar um leigu, ef samkomulag næst
ekki á milli hlutaðeigenda. Kvart-
anir og kröfur þurfa að vera skrif-
legar og mega vera á íslenzku.
Þriggja manna nefnd fjallar um
málin. í nefndinni eiga sæti: Dr.
Kristinn Guðmundsson, formaður,
Major Stókes og Captain Clive
Morris. Náist ekki samkomulag
við nefndina, er hægt að skjóta
Hjúskapur. Nýlega hafa verið
gefin saman í hjónaband í Kaup
mannahöfn ungfrú Elsa Brems óperu-
söngkona og Stefán Guðmundssori
óperusöngvari.
málunum til aðalnefndarinnar í
Reykjavík og er Lárus Fjeldsted,
hrm., formaður hennar.
Er æskilegt að allir þeir, sem
kvartanir eða kröfur hafa á hend-
ur brezka setuliðinu, snúi sér
skriflega til skrifstofunnar og það
heldur fyrr en síðar.
Tíðartar hefir verið mjög kalt
lengst af þenna mánuð og stöðugir
óþurrkar. Um helgina sföustu hlýn-
aöi þó í veðri og brá til sunnanált-
ar. Var mjög mikið uti af heyjum,
en þau náðust um og eftir helgina.
V'oru þau nokkuð tekin að skemm-
ast, en þó minna en orðið hefði í
hlýrra tíöarfari.
Vfðast er búið að taka upp kart-
öflur úr görðum, og er uppskeran
all-misjöfn. Yfirleitt mun hún þó
vera undir meðallagi.
Piano
l
óskast til leigu, kaup
geta komið til mála.
Borð og istólar óskast til
kaups. — Upplýsingar í
Prentverkl Odds Björnssonar
Kjötverðið
hækkar nm 75°|0
Algengasta umræðuefni manna á
meðal síðustu dagana er hin gífur-
lega verðhækkun á kindakjöti, sem
meiri hluti kjötveiðlagsnefndar hef-
ir samþykkt. Hefir heildsöluverð
á I. tlokks kjöti verið ákveðið kr.
2,10 pr. kg., og gildir það verð
alls staðar, en áður hefir landinu
verið skipt í verðlagssvæði. í II.
verðflokki er kjötið selt á 2,00
krónur en í III. flokki á 1,85 krón-
ur. —
í fyrra haust var heildsöluverð á
I. flokks kjöti hér á Akureyri kr.
1,20 pr. kg., og er hækkun kjöt-
verðsins hér þvf hvorki meiri ré
minni en 90 aurar á hvert kg. eða
75 af hundraði.
Kaupgjaldshækkun nemur á sama
tíma frá 19,3 —27%^ hjá þeim stéit-
um, sem hafa fengið lögboðna
launahækkun, en ýmsar aðrar stéttir
ha a enga hækkun fengið eða mjöí
litla. Hið háa kjötverð er því
sjáanlega ekki rniðað við kaupgetu
almennings í bæjunum.
Ríkisstjórnin hefir hlutast til um,
að síldatmjöl yrði selt ódýrara inn-
anlands nú í haust en í fyrra. Sú
íhlutun hennar hefir mælzt vel fyrir
og vakið vonir um, að með henni
hafi verið reynt að stuðla að hóf-
stilltu verðlagi á innlendum fram-
leiðsluvörum. Pað hefði verið í
fullu samrærni við afskipti ríkis-
stjórnarinnar af síldarmjölsverðinu,
ef hún hefði haft hönd í bagga
með gjörðum kjötveiðlagsnefndar
og séð um, að verðlag á kjöti til
neyzlu innanlands hefði verið í
einhverju samræmi við kaupgetu
fólksins og verðlag arnara nauð-
synja.
KIRKJAN: Messað í Lögmannshlíð n.
k. sunnudag kl. 12 á hádegi.
Nýr frílisti
Viöskiptamálaráðherra hefir gefið
út nýjan frílista, sem birtur hefur
veriö í Lögbirtingablaðinu. Á listan-
um eru allmargar vörutegundir, sem
frjálst er að flytja inn frá Bretlandi.
Eru þar m. a. fóðurmjöl, kaffi, te,
cacaó og sykur, smávörur til fatn-
aðar (tvinni, tölur, nálar o. s. frv ),
skófatnaður úr gúmmíi og striga,
byggingavörur, útgerðarvörur, land-
búnaðarverkfæri, girðingaeíni, mótor-
vélar, varahlutir í mótorvélar op
bifreiðar o. fl., olíulampar og olíu-
vélar, sauma- og prjónavélar, suðu-
pottar, katlar og pönnur, brúsar,
fötur og þvottabalar, efnivörur til
smjörlíkisgerðar, sápugerðar og kaffi-
bætisgerðar, raflagningaefni, raf-
magnsperur og raíhlöður, prent-
pappír, umbúðapappír, sáraumbúðir
°g lyfjavörur ýmsar, þvottasódi,
baðlyf, litarefni, kolsýra, ammoniak
o m. m. fleira.
Vilhjálmur Pór er nýlega
kominn heim til Islands ásamt fjöl-
skyldu sinni eftir tveggja ára dvöl
í Nev York. Er hann nú staddur
bér í bænum, og halda vinir hans
og kunningjar honum samsæti í
kvöld. Fei hann síðan til Reykja-
víkur og tekur við starfi sínu sem
bankastjóri Landsbankans.
Bústaðaskipti. Þeir kaupend
ur blaðsins hér í bæ, sem flytjast
búferlum um næstu mánaöamót,
tilkynni afgreiðslu blaðsins það, svo
unnt sé að koma f veg fyrir vanskil.
Póstmannatélag Akureyrar
var stofnað hér á Akureyri 15, þ m.
Stofnendur voru 19. Nær félags-
svæðið frá Horni að Langanesi.
Formaður félagsins var kjörinn Óli
P, Kristjánsson póstmeistari en með-
stjórnendur Karl Helgason póstaf-
gr.m. Blönduósi og Valgarð Blöndal
póstafgr m. Sauðárkróki.
Tilkyimtng
frá h.f. Nýja-Bíó.
Til hægðarauka fyrir bíógesti
hefir verið ákveðið að að-
göngumiðasala fari fram á
kvöldin í Bíó frá kl. 8—9 í
stað 8.30 — 9. Lengist því sölu-
tíminn um hálfa klukkustund. —
Sala aðgöngumiða fer eftir sem
áður fram á hverjum degi frá
kl. 1-3.
Pantaða aðgöngumiða verður
að sækja inilli kl. 5-6 e. h.