Íslendingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - 05.09.1941, Qupperneq 3

Íslendingur - 05.09.1941, Qupperneq 3
ISLeNDINGUM 3 AttiygEisvert erindium Galdra-Lott. KNATTSPYRNUMÓT BÆKDR OG RIT fyrir Norðlendingafjórðung í meistaraflokki hefst - á Akureyri 14. sept. n. k. Ollum félögum norðanlands innan 1. S.l. heimil þátttaka. Umsóknir skulu vera kornnar til undir- ritaðs eigi síðar en fimmtudaginn 11. september, F. h. Mótanefndar. Kjartan Ólafsson, (formaður) Fyrirlestrafélag Ákureyrar mun væntanlega hefja starfsemi sína á ny eftir sumarhvíldina á fimmtudag- inn í nsestu viku meö því, að Stein- grímur J. Forsteinsson mag. art. flytur í Samkomuhúsinu erindi um Galdra-Loft, leikrit Jóhanns Sigur- jónssonar. Fyrirlesarinn er ungur Akureyríngur, sem lauk s, 1. vor meistaraprófi i íslenzkum fræöum við Háskóla íslands með ágætiseink- unn. Erindi það, sem Fyrirlestra- félagið hefir nú fengið hann til að flytja, var einmitt síðasti þáttur þess prófs, og ílutti höf. það í stærstu kennslustofu háskólans fullskipaöri áheyrendum og hlaut fyrir það hin lofsamlegustu ummæli, bæði hjá prófdómnefnd háskólans, blöðum og útvarpi. Fyrirlestrafélaginu er á því bráð nauðsyn, að félagatalan aukist, ef starfsemi þess á ekki að falla niður, og geta menn fengið ársskírteini hjá Snorra Sigfússyni skólastjóra og Jónasi Fór framkvæmdarstjóra. Ó- félagsbundnum möunum verður þó einnig heimill aðgangur að þessu erindi Steingríms Forsteinssonar, gegn vægu gjaldi. Skipsfiofn »Esjy<' heiuð. S. 1. þriðjudag heiðraði ríkisstjórn- in skipshöfnina á »Esju« í viður- kenningarskyni fyrir skyldurækni hennar og framkomu, er skipið var sent eftir íslendingunnm til Petsamo í fyrrahaust. Móttakan fór fram í húsakynnum rikisstjóra í Albingishúsinu. Var Stefán Jóh. Stefánsson félagsmála- ráðherra mættur þar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, Ávarpaði hann skipshöfnina og skyröi henni frá þeirri ákvörðun stjórnarinnar, að sæma hvern skipverja heiðurspeningi meö ágröfnu nafni hans. Síðan ávarpaöi ríkisstjóri skipshöfnina og afhenti hverjum skipverja heiðurs- pening hans og heiðursskjal. En forstjóri Skipaútgerðar Ríkisins Pálmi Loftsson ávarpaði ríkisstjórann að lokum. og þakkaði viðurkenninguna, er skipshöfninni liafði verið sýnd. Kaffi og sfknrskammtur- Inn verður aukinn. Við næstu úthlutun matvælaseðla, sem gilda munu frá 1. okt — 31. desember, verður kaffi- og sykur- skammturinn hafður ríflegri en nú er. Sérstök jólaglaðning mun líka fylgja, en það er 300 grömm af kaffi og 500 grömm af sykri. En margir munu ætla, að þegar við höfum ráð á að auka matar- skammtinn svo, að hann verður eins og á venjulegum tlmrnn, þá höíum viö enga ástæðu til að halda skömmtun áfram. Hfónaband: Ungfrú Friðrika Einarsdóttir og Jóhann Böðvarsson, biireiðarstjóri. Ungfrú Fréyja Eiríks- dóttir simamær og Garðar Guðjónsson bifreiðarstjóri. Utao fir heimi Fyrir rúmri viku síðan var Pierre Laval fyrrverandi forsætisráðherra Frakka sýnt banatilræði. Var hann viðstaddur hersýningu sjálfboðaliðs- sveita. er senda átti til austurvíg- stöðvanna, þegar einn sjálfboðalið- inn gekk fram og skaut að honum 5 skotum. Játaði pilturinn síðar að hafa gerst sjálfboðaliði til þess að fá vopn í hendur. Laval særð- ist allmikið og var fluttur í sjúkra- hús. Auk þess særðist annar nazista vinur, Marcel Deat að nafni. Þúsnnáir Rejkvfkinga hnsnæðislausir. Nýlega hefir farið fram skrásetn- ing húsnæðislauss fólks í Reykja- vík. Til skráningar komu 646 fjölskyldumenn og rúml. 200 ein- hleypir. Alls er hér um að ræða rúml. 2500 manns, þar af 927 börn, Sumar fjölskyldurnar hafast við í tjöldum í surnar. Er auðsætt, að miklir erfiðleikar verða á að fá húsnæði fyrir þenna fjölda. Ferðafél. Akureyrar fer vinnu ferð nú um helgina fram á Hatrár- dal. Á þá að ryðja veginn upp á fjallsbrún hjá Sankti Pétri, ef nógu margir fást til aö leggja fram þá vinnu, er til þess þarf. Hvalavaða / Ólafstirði. Á þriðjudaginn kom stór hvalatorfa í ljós við mynni Ólafsfjarðar. Tókst bátum frá Ólafsfirði að reka hana inn íiörðinn og á land. Munu á þriðja hundrað hvalir hafa náðst. 95 ára vatð í gær ekkjan Hólmfríöur Einarsdóttir hér í bæ. Býr hún á heimili sonar síns, Jóhannesar Jónassonar, yfirfiskimats- manns. Hólmfríður er ennþá furðu ern og heíir íótavist daglega. Verölækkun á kartöt/um. Kartöfluverðlagsnefndin hefir ákveð iö verö á kartöflum í heildsölu frá 1. sept. til 31 okt. 55 krónur tunn- una en 75 krónur í smásölu. Sama verð verður á gulrófunum. Messur í Möðruvallaklausturs- prestalcalli. Sunliud. 7. sept. í Glæsibæ, sunnud. 14. sept. á Bæg- isá, sunnud. 28. sept. á Bakka. Messa fellur niður á Möðruvöllum sunnud. 21. sept. Messurnar hefj- ast kl. 1 e. h. stundvíslega. VerzlunarhUsiö Skipagata 3 við Ráðhústorg er til sölu Upplýsingar hjá Guðfóni Bernharðssyni gullsmið. Akureyri. — Sími 94. - Stúlka óskast í vetrarvist frá 1. okt. Hátt kaup. GUNNLAUG THORARENSEN. Skófatnaður Nýjar tegundir teknar upp í dag. Hvannbergsbræður. Húseign á bezta stað í bænum er til sölu. Upplýsingar gefur ðr. Kr. Gnðmundsson. Tek að mér smábðrn til kennslu í vetur. Hanna Rafnar. Vöruhitreið til sölu. Uppl. í Krabbastíg 1 Stúlku vantar mig frá 1. október. Gunnar Hallgrímsson, tannlæknir- , Húsaleiguskuldir leigjenda minna frá undan- fötnum árum, sem ekki verða greiddar eða samið um greiðslu á við mig inn- an 15. þ. m. verða afhentar lögmanni til innheimtu. Jón Stefánsson, Strandgötu 35. Dansskevnntun heldur U. M. F. Ársól að Munkaþverá 6. sept. n. k. og hefst kl. 9 Vz síðdegis. /Örð, 2. hefti II, ár- gangs er nýkomin út. Er hún að miklu leyti helguð 17. júni s.l. og skýrir greinilega frá at- burðum þeim, sem þann dag gerð- ust í höfuðstaðnum, svo sem þing- slitum, ríkisstjórakosningunni og há- tíðahöldum íþróttamanna. Birtist þar útvarps ávarp ríkisstjórans og ýmsar ræður dagsins, haldnar við leiði Jóns Sigurðssonar og á íþróttavell- inum, Fjöldi mynda fylgir þessum greinum. Af öðru efni ritsins vekur grein Fontenay sendiherra um skáldskap Jónasar Hallgrímssonar mikla at- hygli. Ber hún vott um óvenju skarpa rannsóknargáfu samfara að- dáun á þjóðskáldinu. Mjög er og eftirtektarverð grein Siguröar Magnússonar um ástandið f siðferðismálunum. Loks eru þar greinar eftir Sig. Einarsson, Forst. Jósefsson, Theodór Arnbjörnsson, Ragnar Ásgeirsson, ritstjórann og frú X um ýms efni auk þýðinga úr erlendu máli, Enn eru þar sjálf- stæðar myndir, eitt kvæði, ritdómar og fleira. Ytri frágangur ritsins er eins og áður hinn smekklegasti, aö því und- anteknu, aö nokkuð verður vart við prentvillur og jafnvel málvillur (svo sem fluttningur, erviöur, skifli), og setuing greinarmerkja sumstaðar röng. En því meira finnur maður til þess, er út af ber um þessa hluti, ef vandvirkni hefir verið beitt við efnisval og útlitsgerð. Hér eftir mun Jörð koma út mán- aðarlega, eins og ætlaö hefir veriö frá fyrstu. Samav. ársskýrslu í. S. í. 1940 — 1941 eru þessi sambandsfélög fjöl- mennust: Knattsp.fél, Reykjavíkur 1800 félagar Glímufél. Ármann 1250 — Knattspyrnufél. Valur 1070 — Skíðafél. Reykjavíkur 720 — íþróttafél. Reykjavíkur 675 — Knattsp.fél. Fram 648 — — Víkingur 553 — Skátafél. Reykjavíkur 530 — Knattsp f, Vestm eyja 530 — Akureyrarfélögin höfðu þá þessa meðlimatölu: íþróttafélagið Fór 264 félaga Knattsp.fél. Akureyrar 93 — Sundfélagið Grettir 44 — Skautafél. Akureyrar 40 — Golfklúbbur Akureyrar 38 — LAUKUR fæst í Baldurshaga. Ungling vantar til að bera út blöð og reikninga. R.v.á.

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.