Íslendingur - 28.08.1942, Síða 2
2
ISLÉNDINGUR
var kommúnistar. En í honum voru
aðeins 3 menn. Nú hefir stærsti
þingflokkurinn tekið að sér hlut-
verk kommúnista. í honum eru 20
menn. Það er raunalegt til þess
að vita, að svo fjölmennur hópur
þingmanna skuli lifa og starfa á
löggjafarþinginu eftir þessari frægu
kennisetningu: »hvað varðar okk-
ur um málin, þegar við erum kornn-
ir í stjórnarandstöðu*.
En Framsóknarmenn munu vilja
vilja halda þvf fram, að ekki hafi
staðið á þeim að taka höndum sam-
an við hina flokkana, ef fullnægt
væri vissum skilyrðum. En skilyrði
þessi voru þau, að hinir flokkarnir
svikju kjósendur sína og hættu við
kjördæmamálið.
Það færi ekki iila á því, að kjós-
endur landsins hugleiddu og bæru
saman framkomu Sjálfstæðisflokks-
ins 1939, er þeir af þjóðarnauðsyn
tóku sæti í samstjórn þriggja flokka,
og framkomu Framsóknarflokksins
nú. þegar telja má, að samstarf allra
þingflokka að lausn vandamálanna
sé þjóðarnauðsyn. Skilyrði Fram-
sóknarflokksins fyrir því að vera
með f slíku samstarfi er hvorki
meira né minna en það, að hann
megi halda þeirri kjördæmaskipan,
er veitir honum miklu fleiri þing-
menn en samræmist fylgi hans
með þjóðinni, þrátt fyrir yfirlýstan
vilja mikiis meiri hluta þjóðarinnar
um leiðréttingu á því rangiæti.
Sjálfstæðismenn höfðu sfður en
svo flokkslegan hag af þátttöku í
ríkisstjórn 1939, en þeir sáu, að
hún var þjóðarnauðsyn, og það
reið baggamuninn.
Framsóknarmenn hafa sýnt það
nú, að hjá þeim ganga hagsmunir
flokksins fyrir nauðsyn þjóðarinnar.
Þjóðin á eftir að kveða upp dóm
sinn yfir þeirri framkomu. En hún
fær tækifæri til þess í haust.
Frú Gerd Grieg
og leikarar þeir, sem starfað h*fa
með frúnni að leiksýningum í Reykja-
vík undanfarið eru væutanleg til
Akureyrar í dag, og halda leik-
sýningu hér annað kvöld. Verð-
ur það kafli úr leikriti Ibsens »Hedda
Gabler*. Þá mun frúin einnig lesa
upp úr norskum bókmenntum og
syngja nokkur lög með aðstoð Páls
ísólfssonar,
Frú Grieg er meðal fremstu lista-
kvenna Noregs, og er koma hennar
til Akureyrar því óvenjulegur við-
burður, sem listvinir bæjarins ættu
ekki að láta fara fram hjá sér. Auk
frúarinnar eru í förinni nokkrir
meðal fremstu leikara Reykjavíkur,
svo som Lárus Pálsson, Brynjólfur
Tóhannesson o. fi.
Bókaútgáian Edda er að gefa
út ljósprentaða útgáfu af íslenzkum
æflntýrum Magnúsai Gíslasonar og
]óns Árnasonar. Upplagið verður
lítið og aðeins fyrir áskrifendur.
Hertoginn af Kent bróöir
Bretakonungs fórst nýlega í flugslysi
í Skotlandi. Var hann þá á leið til
Islands, þar sem honum höfðu verið
íalin sérstök skyldustörf.
Launabætur opinberra
starfsmanna.
Fjórir alþingismenn úi jafnmörg-
um stjórnmálaflokkum flylja á Al-
þingi svohljóðandi þingsályktunartil-
lögu.:
»Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að láta greiða embættis
mönnum og öðrum starfsmönnum
ríkisins og ríkisstofnana sérstaka
uppbót á laun þeirra frá ríkinu eða
ríkisstofnunum fyrir tímabiliö 1, júlí
1942 til 30< júní 1943, eins og hér
á eítir segir :
Á fvrstu 2400 kr. grunnlauna, á-
samt verðlagsuppbót af henni, eins
og hún verður á hverjum tíma,
greiðast 30%".
Á þann hluta grunnlauna, sem
er ofan viö kr. 2400.oo, og allt að
kr. 10000.oo, ásamt verðlagsuppbót,
eíns og hún verður á hverjum tlraa,
greiðast 25%, Uppbót þessi gretð-
ist mánaðarlega.
Uppbót greiðist úr ríkissjóði eftir
sömu reglum á tímakaup kennara,
eftirlaun í fjárlögum og lífeyri úr
lííeyrissjóðum embættismanna, barna-
kennara og Ijósmæðra, svo og út-
borgaö skrifstofufé og embættiskostn-
að, að undanskilinni húsaleigu og
húsaleigustyrk.
Ennfremur skorar Alþingi á ríkis-
stjórnina að hraða endurskoöun
launalaganna svo sem unnt erc.
Þýzk flugvél ræðst á
íslenzkan togara fyrir
Vestfjörðum.
Eiun skipverja særður bauasári
S. 1. mánudagsmorgun gerði þýzk
flugvél árás á togarann Vörð úti
fyrir Vestfjörðum. Lét hún vél-
byssuskothríð dynja á skipinu og
varpaði aö því sprengju. sem þó
hitti ekki. Svo vel hittist á, að
flestir skipverjar voru niðri við
kaffídrykkju, Voru aðeins þrír á
þilfari. Einn þeirra fékk vélbyssu-
kúlu í bakið, er gekk í gegnum
hann, en hina sakaði ekki. Hinn
særði skipverji dó af skotsárinu,
áður en komið væri til hafnar.
Hann hét Sigurjón Ingvarsson, ætt-
aður úr Patreksfirði og var aðeins
24 ára gamall. — Skipið varð
fyrir tiltölulega litlum skemmdum.
Flutningaskipi sökkt
á leið til islands.
Fyrir viku síðan tilkynnti ame-
ríska herstjórnin hér á landi, að
skipi, sem flutti nokkuð af efni til
Hitaveitu Reykjavfkur, hafi verið
sökkt á leið til landsins. Auk hita-
veituefnisins var allmíkið timbur f
skipinu, símastaurar, varahlutir til
bifreiða o. m. fl. Ekki er enn
vitað, hver áhrif þetta kann að hafa
á framkvæmd Hitaveitunnar í Rvfk,
Áheit á nýja sjúkrahúsið 25 kr.
frá M. J.
Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim er auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför kaupmanns Eggerts
Einarssonar, Akureyri.
Eiginkona og börn.
BÆKUR OG RIT
Jóhann / E. Kúld:
Á hættusvæð/nu
Útgefandi: Pálmi H.
Jónsson Akureyi.
Jóhann Kúld er þegar orðinn
kunnur rithöfundur. Bækur hans
»íshafsæfintýri« og »Svífðu seglum
þöndum* hlutu báöar góðar viötök-
ur, og sú, sem hér um ræðir, er að
heita má uppseld. Eins og ráða
má af heiti bókarinnar fjallar hún
um siglingar á hættusvæðinu 1 nú-
verandi styrjöld. Höfundurinn hefir
sjálfur lifað það sem hann segir frá,
— siglt til Bretlands og Ameríku
og komið vestan um haf í stórri
skipalest, er varð fyrir kafbátsárás-
um. Frásögnin er létt og fjörleg
og oft »spennandi«, eins og líf far-
mannsins á stundum. Gefur lestur
bókarinnar góða hugmynd um, hve
dauðinn og tortímingin eru oft ná-
lægt sjómanninum á ferðum hans
milli landa á þessum síðustu og
verstu tímura, og er þó langt frá,
að höfundurinn leggi áherzlu á að
draga það sérstaklega fram.
Frásagnir hans af æfintýrum *
landi minna stundum á ferðasögur
Sveinbjarnar Egilssonar, og mætti
því ætla, aö lífið í sumum erlendu
hafnarbæjuuum hefði litlum breyting-
um tekið síðan á hans dögum.
Þar sem þessi bók Jóhanns er
*önn frásögn er óhætt að telja hana
góðan feng í íslenzkum nútímabók-
menntum.
Islenzkar þ/óð-
sögur II.
Safnaó hefir Einar Guð .
mundsson, H. F. Leiftur
Reykjavík.
Fvrir nokkrum árum kom út lltið
þjóðsagnakver, er Einar Guðmunds-
son kennari hafði safaað til og búi.ð
undir prentun. Voru þær flestar
skráðar eftir sögnum manna ( Ár-
nesrýslu, Skaftártungu og Barða-
strönd. Nýlega er út komið II. hefti
þessara þjóðsagna. Eru sögurnar
sunnlenzkar, flestar teknar eltir Ey-
fellinguin. Efni þeirra er fjölbreytt:
Æhntýri, draugasögur og svipa,
huldufólkssögur, skrímslasögur og
kýmnisögur. Eru margar þeirra
eftirtektarverðar, svo sem Mýrar-
draugurinn, Frá Írafells-Móra og
æfintýrið um bóndadótturina í Blá-
túni, Allar eru sögur þessar prýði-
lega stllfxröar og framaettar, og
mætti Einar gjarna halda áfram
skráningu þjóðsagna og senda frá
sér fleiri slík hefti.
/örð 2. hefti III. árg.
er nýkomið út. Hefst það með
stuttum greinum eftir þrjá nýia stú-
denta um áhugaefni þeirra. Pá er
langt kvæði um styrjöldina eftir
Guðm. Eyjólfsson Geirdal, grein um
Verkmenningu eftir Ólaf Jónsson
framkv.stj,, Gönguferðir og jarö-
Brazllia segir ðxulrikp
unnm strfð á hendur.
Stjórn Braziliu samþykkti s. 1.
laugardag, 22. ágúst, að segja Þýzka-
landi og Ítalíu stríð á hendur.
Ástæðan til þessarar ákvöi ðunar
er sú, að undanfarið hafa kafbátar
ráðist á mörg brazilísk skip, úti
fyrir ströndum Braziliu og sökkt
þeim.
Þátttaka Braziliu í styrjöld lýð-
rlkjanna gegn öxulríkjunum mun
verða mjög þýðingarmikil. Her
hennar er að vfsu ekki mjög stór
en vel þjálfaður, og landið mjög
auðugt af gúmmíi og ýmsum málm-
um, er kemur aö góðu haldi við
hergagnaframjeiðsluna.
Prestvígslar.
s. 1. sunnudag vígði biskup lands-
ins 5 kandidata til prests. Einn
þeirra var sr. Sigurbjörn Ástraldur
Gíslason, en hann er nú 66 ára
gamall. Er hann skipaður prestur
að elliheimilinu Grund í Reykjavík.
Hinir kr.ndidatarnir voru: Erlendur
Sigmundsson, kjörinn prestur á
Seyðisfirði, Ingólfur Ástmarsson.
settur prestur að Stað f Steingríms-
firði, JeDs Benediktsson, settur að
Hvammi f Laxárdal í Skagaf. og
Tón Kr. ísfeld settur að Rafnseyri.
Noregssöfnun/n er nú komin
í n«l. 280 þús. krónur. Stærsta
gjöfin er frá Reykjavíkurbæ, 100
þúsund krónur..
Sig/uf/arðarbær hefir nu á-
kveðið að ráðast í virkjun Fljótaár
til að bæta úr raforkuþörf sinni.
Kostnaður er áætlaður um 6 milj,
krónur. Sótt hefir veriö um ríkis-
ábyrgð til Alþingis.
Verkfall í setuliðsvinnunni
Verkíall stendur nú yfir meðal
verkamanna, er unnið hafa hjá
ameríska setuliðinu. Astæðan er sú,
að setuliðið hefir ekki fallist á að
greiða þá hækkun á kauptaxtanum,
sem gekk í gildi um miðjan þenna
mánuð, og allir aðrir atvinnurekend-
ur hafa viðurkennt.
>Akranes« nefnist blaö, sem hóf
göngu sfna á Akranesi í vor. Ræðir
það einkum bæjarmál og á að koma
út i0 sinnum á ári. Ritnefnd skipa;
Arnljótur Guðmundsson bæjarstjóri,
Ól. B. Björnsson og Ragnar Ásgeirs-
son. Blaðið er prentað á mjög góð-
an pappfi og allur frágangur vand-
aður.
fræöi eftir Ólaf við Faxafen, Heima
og heiman eftir Ágúst Sigurðsson
o. m. fl. Myndaflokkur er f þessu
hefti frá íþróttamótinu í Reykjavík
17. júní s. 1.