Íslendingur

Issue

Íslendingur - 28.08.1942, Page 3

Íslendingur - 28.08.1942, Page 3
ÍSLÉNDtN&m 31 Þankabrot /óns í Grófinni. SÚ hræðilega málvilla virðist breið- ast út eins og skæð farsótt, að vera »ofan í« einhverju í stað: »niðri í«. Og þaö er ekki nóg með það, að unglingarnir á götunni beri sér þetta í munn, heldur rekst maður á það 1 dálkum blaðanna. Nýlega var ég að lesa í einu höfuð- staöarblaði þyðingu á smásögu eftir hinn fræga franska höfund Guy de Maupassant og rakst þar á þessa smekklegu(!) setningu: »Ég gekk hægt inn í dagstofuna og faldi mig í dimmasta horninu ofan í djúpum, gömlum hægindastól og hágrétc. Um leið og svo hörmulegt mál vekur gremju og hryggð þess, er les, hlýtur það aö vekja furðu, að það skuli sleppa í gegnum greipar prófarkalesarans. Menn, sem ekki kunna sitt móðurmál, ættu ekki að leggja fyrir sig þýðingar úr erlendu máli. Undanfarna daga hef ég margoft horft á aðkomubíla, bæði inn- lenda og erlenda, aka suöur nyrzta hluta Hafnarstrætis, og er þó ein- stefnuakstur fyrirskipaður á þessu svæði, þ. e. má aðeins aka norður þessa götu. Ástæðan til hins öfuga aksturs er þó ekki óhlýðni viö lög og reglur, heldur stafar hann af þvf^ að leiðarmerkin eru algerlega ófull- nœgjandi. og hafa aðkomumenn sér- staklega orð á þvf. Það er eftir- tektarvert, að maður, sem kemur akandi f bíl neöan af Oddeyri, getur ekið upp með Nýja Bíó suður á móts við Landsbankann, upp með Ráðhústorgi að sunnan og suður Hafnarstræti að Kaupvangstorgi, án þess að eitt einasta leiðarmerki verði á leið hans. Slíkt er óverjandi, ef‘ einsteínuaksturinn á að gilda jafn' fyrir aðkomumenn og heimamenn og verður tafarlaust að bæta úr nú- verandi ástandi með því að fjölga glöggum leiðarmerkjum við þær götur, sem aðeins má aka í eina átt. Stúkan Brynja fer berjaferð næstkomandi sunnudag 30. þ. m. Félagar eru beðnir að tilkynna þit töku sína til Braga Guðjónssonar (hjá Stefáni klæðskera), fyrir hádegi á laugardag, ásamt nánati uppl. Fpá happ- drættinu: Munið að endurnýja í tíma. 4. september á endurnýjun að vera lokið. Þér, sem endurnýjuðuð ekki í síðasta flokki, get- ið endurnýjað miða yð- ar í þessum flokki. Miðar seldir daglega. I--------------- Bókbands- skinn Svört, brún og blá. Kr. 2,75-3,25 fetið Bókaverzlun Þorsteins Thorlacius. Listsýningu halda þau hjónin Magnús Á. Árna- son og frú Bárbara M. Williams í kirkjukapellunni þessa daga. Sýnir Magnús olíumálverk, en frúin vatns- litamyndir og eina tréskurðarmynd. Málvevkin og myndirnar eru einkum úr Skaftafellssýalu, nokkur af Snæ- fellsnesi og úr nágrenni Rvíkur. Eru möig málverkin undur falleg, svo sem: Frá Dyrhólaey, Ströndin, Eyjafjallajökull o, ti. Virðast þessi málverk öllu svipmeiri en þau, er Magnús sýndi hér síðast, og er þó mýkt og mildi enn þeirra aðalein- kenni. Myndir frúarinnar eru einnig flestar prýðilega gerðar. Hafa nokk- ur málverk og myndir þegar selst. Sýningin er opjn til mánaðamóta. Gjafir til Húsmæðraskólafélags Akureyrar íyrir innanhússmuni í skólann. Ingvar Guðjónsson, bóndi Kaupangi 100,oo Þórhallur Tónasson, bílstj, BSO 25,oo Þorvaldur Stefánss,, forstj. BSO 25,oo Margrét Antonsdóttir, verzlun- arstýra 25, oo Binna Baldvins símamær 10,oo S. J. 10,oo N. N. Strandgötu 5,oo N. N. Oddeyri 5,oo Daníel Kristinsson, Hólabraut 10,oo Hrólfur Sturlaugsson, rafvirki 10,oo Guörún Jóharinesdóttir, Gránu- félagsgötu 5. 5,oo N. N. 5,oo Gfsli Magnússon, aðalbókari 15,oo Árni Stefánsson, trésm. 10,oo Nanna Hallgrímsd. Glerárgötu 10,oo Arma Áruad., Munkaþv.st. 24 lO.oo Anna Sigr. Ingólfsdóttir Munkaþverárstræti 22 5,oo Kristjana Krisjánsd,,Gránufélg. 10,oo Guðrún Halldórsd. verzl.mær. 10,oo Sigurður Helgason rafvirki 10,oo Jóhann Snorrason, Brekkug. 29 5,oo Snoiri Jóhannsson, — — 5,oo Finnbogi Bjariiason, — — 5,oo Steinþór Helgason, — 31 5,oo Sigursteinn [úlíusson, — 29 5,oo H. S. - 33 5,oo J Arnesen, frú Brekkug. 20,oo Laufey Benediktsdótir, Brekkugötu 10 lO.oo Framh, Gluggagler. Næsta sendiug, í 200 ferfeta kist- um, væntanleg snemma í sept. Eggert Stefansson. Sökum stórfelldrar hækkunar á öllu, snertandi starfa okkar, höfum við ákveðið að selja vinnu frá og með 1. sept. n. k„ sem hér segir; Permanent . . . Kr. 25,00 Hárlagningu . . — 3,50 Hárkrullun ... — 3,50 Hárþvott ... — 1,50 Augnaháralitun . — 5.00 Handsnyrting . . — 3,50 Akureyri, 27. ágúst 1942 Hárgreiðslustofan Femina. - Fjóla. — Bylgja. TILKYNNIKG, Hér með tilkynnist, að kaup mótorvélstjóra verður frá l.sept. n.k. — þar til öðru vísi verður ákveðið — sem héf segir: 1. Tímavinnukaup kr. 2,25 grunnkaup 2. Mánaðarkaup á flutningum: I. vélstjóri kr. 700,oo II. — — 500,oo 3. Ahættuþóknun í utanlandssiglingum: I vélstjóri 250.% af grunnkaupi og l,/í%' af brúttósölu- verði fiskjarins. II, vélstjóri 250°/o af grunnkaupi og l°/o af brúttósöluverði flskjarins. Á tímavinnukaupið og mánaðarkaupið greiðist full dýrtíðaruppbót mánaðarlega. Að öðru leyti vísast til samniDgs Vélstjórafélags Akureyrar við Útgerðarmannafélag Akureyrar. Akureyii 26. ágúst 1942. Stidrn Vélstidrafélags Akureyrar. Ylsnabðlkur. Margir Reykvíkingar hafa heim- sótt Akureyri í sUmar, og láta þeir misjafnlega af viðtökunum (s. b. stúdentaþrefið í Mgbl) Einn Reyk- víkingur hefir látið ísl. í té eftir- farandi vísur, er hann kvað einn kunningja sinn hér í bæ hafa lesið yfir hausamótunum á sér, er hann kom út úr hraðferðarbil hér uppi á torginu eitt kvöld i sumar. Bera vísurnar þaö með sér, að Akureyr- ingar geta tekið vinsamlega á móti Reykvíkingum, þótt móttökurnar verði stundum »þurrari« en þeir hefðu óskað, og er full skyring gefin á því í vísunum. Og hérna koma þær: Velkominn norður, vinur kær, með veraldarauð þinn í tösku, sjá, hversu veðráttan við þér hlær sem vín í tilluktri flösku, Að gætirðu fundiö hér angan- e im af áfengi, kysi ég gjarna, svo kæmir þú dálítið kenndur heim til konu þinnar og barna. En hér er nú allt saman orðið þurrt, enginn fæst til að brugga, Það hraöa sér flestir héðan burt með hélaöa sálarglugga. Auglýsið í Isl. KÁPUEFJNI Gott og fallegt úrval — BRAUNS - VERZLUN PÁLL SIGURGEIRSSON, Notuð kolaeldavél og fótstigin saumavél óskast. Uppl. hjá Stefáni klæðskera. AOa/tundur félagsins »Berkla- vörnc, Akureyri, var haldinn s. 1. mánudagskvöld. í stjórn voru kosin: Hólmgeir Pálmason, form. Jakob Arnason, ritari, og Kristófer Vilhjálmsson gjaldkeri, og meðstjórn- endur Sigríður Baldvinsdóttir og Guðrún Jóhannesdóttir. . Qoltkeppn/ með forgjöf veröur sunnudaginn 30. ágúst kl. 8,45. Tvenn verðlaun, Mætiö öll. Ferðdfélag Akureyrar. Munið ferð- ina í Glerárdal um næstu helgi. Kynn- ið yður grein Dr. Trausta Einarssonar um Glerárdal í blaði félagsins 1942. GuSsþjónustur t Grundarþinéa- prestakalli: Hólum, sunnudaginn 6. sept., kl. 1 e. h. — Saurbæ, sunnudag- mn 13 .sept., kl. 1 e. h. — Möðruvöll- um, sama dag, kl. 3 e. h. — Grund, sunnudaginn 20. sept, kl. 1 e. h.

x

Íslendingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.