Íslendingur


Íslendingur - 13.04.1945, Side 1

Íslendingur - 13.04.1945, Side 1
I 2* XXXI. árg. Föstudaginn 13. apríl 1945 ____________________________________16. tbl. Söínunin til útgerðarhlutaíe- íaysins ber gaðan árangur. Vantar aðelns berzlnmnninn. ÝMSAR FREGNIR Hinn 29. f. m. var rafmagns- straumi frá Skeiðsfossvirkjun- inni í Fljótum hleypt á bæjar- kerfið í Siglufirði fyrsta sinni. Framleiðir vélasamstæðá virkjunarinnar 1500—1800 ha. orku, en svo er ráð fyrir gert, að í sumar verði stíflan hækkuð um eina 6 metra, og verði þá fram- leiðslan 2350 hestöfl. Rafleiðslan frá orkuverinu til Siglufjarðarbæjar er tæpl. 28 km. löng. Yfirumsjón með öll- um tæknilegum framkvæmdum virkjunarinnar hefir Jakob Guðjohnsen rafmagnsverkfræð- ingur haft á hendi fyrir hönd firmans Höjgaard og Schultz. ★ Nýlega voru 18 prestaköll auglýst laus til umsóknar, en um sóknir bárust aðeins um 6 þeirra Horfir til mestu vandræða um að fá presta í mörg prestaköll á landinu. ★ Aðfaranótt páskadags fór fram símskák milli Taflfélags Akureyrar og Taflfélags Kefla- víkur. Vann hið fyrrnefnda með 5 vinningum gegn 3. ★ Fregnir hafa borizt um að Jón Sveinsson rithöfundur,- hinn vin- sæli höf. Nonna-bókanna, hafi látizt s.l. haust í sjúkrahúsi í Þýzkalandi, 88 ára gamall. ★ Skip ferst með 5 mönnum Það hörmulega slys varð ný- lega á hafinu milli íslands og Englands, að l.v. Fjölnir frá Þingeyri fórst í árekstri. Sökk skipið, og fórust 5 menn af 10 manna áhöfn. Þessir fórust: Magnús G. Jóhannsson matsv. Þingeyri, Guðm. F. Agústsson kyndari Sæbóli Aðalvík, Gísli A. Gíslason háseti ísaf. Pétur Sigurðsson kyndari Hvammi Dýrafirði og Pálmi Jóhannesson háseti, ættaður úr Hvolhreppi. Allt voru þetta ungir menn á aldrinum 20—-30 ára og ókvænt ir. — L.v. Fjölnir var í fiskflutning um til Englands. Hann var 128 smál. að stærð, eign h.f. Fjölnis á Þingeyri. Blaðið hefir snúið sér til Helga Pálssonar erindreka og spurt hann um árangurinn af hlutafjársöfnuninni vegna vænt- anlegs útgerðarfélags. Skýrði hann svo frá, að fengin væru lof- orð um 503 þús. kr. framlög, en lágmarkið hafði verið á- kveðið 540 þús. kr. Vantaði því aðeins 37 þús. kr. til að ná lág- markinu, en af þeirri upphæð greiðir Akureyrarbær 25% og KEA 20%. Það vantaði því að- eins rúmar 21 þúsund kr. frá bæjarbúum, en æskilegast væri, að félagið yrði stofnað með hærra hlutafé, en ákveðið var sem lágmark. Gert er ráð fyrir, að félagið verði stofnað í næstu viku. Skíöaiandsniótið Guðmundur Guðmunds- son varð skíðakóngur íslands. Landsmót skíðamanna fór fram á ísafirði um páskana og kepptu þar 46 skíðamenn frá þessum íþróttabandalögum: í. B. Reykjavíkur (18), í. B. ísafjarðar (13), í. B. Stranda- sýslu (lOý, í. B. Akureyrar (4ý og í. B. Siglufjarðar (1). — í samanlagðri göngu og stökki hlaút Guðm. Guðmundsson frá íþróttabandalagi Akureyrar hæsta stigatölu (456,4) og þar með titilinn „Skíðakóngur ís- lands“ en næstur honum varð Jónas Ásgeirsson frá Siglufirði með 440,1 stig. Göngu í A.-flokki vann Guðm. Guðmundsson (Jónas Ásg. 3. maður). Stökkið í A.-fl. vann Jónas Ásgeirsson, en Guðmundur varð næstur honum. í Svigkeppni í A-fl. varð Guðmundur 1. maður en Magn- ús Brynjólfsson, einnig úr í. B. A. 2. maður. Vann í. B. A. sveitarkeppni í svigi um Slalom- bikar Litla skíðafélagsins. Tími 8 mín. 59,5 sek. Onnur varð sveit frá í. B. R. Guðmundur Guðmundsson Margir bæjarbúar hafa verið fjarverandi, þegar svars hefir átt að vitja hjá þeim og sumir ekki fengið eyðublöð. Eru þeir, sem þannig er ástatt um, beðnir að snúa sér til Helga Pálssonar og tilkynna honum, ef þeir ætla að taka þátt í stofnun félagsins með fjárframlagi, og .gera það svo fljótt, að loforð þeirra liggi fyrir, þegar stofnfundur félags- ins verður haldinn, svo að unnt sé að boða þá á stofnfundinn. Akureyringar mega ekki láta það spyrjast, að undirstaða verði ekki lögð að blómlegra atvinnulífi en verið hefir hér í hænum, aðeins vegna vöntunar á nokkrum þúsundum króna til að hrinda því í framkvæmd. og Jónas Ásgeirssön munu nú vera mestu skíðagarpar lands- ins. Eyfirzkir bændur heiðra Sigurð E. Hlíð- ar dýrayfiríækni. Frá aðalfundi Mjólkursamlags K. E. A. Ársfundur Mjólkursamlags- ins var haldinn nýlega. Samþ. fundurinn að senda Sigurði E. Hlíðar dýrayfirlækni 10 þúsund kr. heiðursgjöf í tilefni af sex- tugsafmæli hans, ,og dragist það fé frá útborguðu mjólkurverði á þessu ári. ^ Samlaginu bárust s. 1. ár 4.181 milj. lítrar af mjólk (370 þús. 1. meira en 1943), og var meðalfita 3,536. Um 38% af mjólkinni var sell sem neyzlu- mjólk. Smjörframleiðslan varð 42124 kg. Reksturskostnaður varð rúmir 20 aurar á lítra. Ut- borgað verð til mjólkurfram- leiðenda var 98 aurar og upp- bót 24 aurar. Heildarverð því 1,22 kr. pr. lítra. r Aheit á Strandarkirkju frá ó- nefndri konu kr. 30,oo, afhent blaðinu. Lúðrasveitin hefir fengið nQ hlióðfæri. T ónlistarfélag A kureyrar gefur yfirlit yfir störf sín og skýrir frá fyrirhuguðum verkefnum. Á skírdag bauð Tónlistarfé- lag Akureyrar bæjarstjórn og blaðamönnum til kaffidrykkju að Hótel KEA í tilefni af því, að Lúðrasveit Akureyrar hefir nýlega fengið ný blásturshljóð- færi. Lék Lúðrasveitin nokkur lög fyrir gestina á nýju hljóð- færin og var þeim boðið að skoða þau, eftir að staðið var upp frá borðum. Formaður Tónlistarfélagsins, Stefán Ág. Kristjánsson ávarp- aði gestina, skýrði frá störfum Tónlistarfélagsins og áformum og þakkaði bæjarstjórn góða að- stoð við eflingu tónlistarinnar í bænum með því að samþykkja 10 þús. kr. framlag úr bæjar- sjóði til hljóðfærakaupanna og árlegan styrk til Lúðrasveitar- innar. Framkv.stj. Lúðrasveitar- innar, Ólafur Ólafsson, rifjaði upp ýmsar endurminningar úr lífi og starfi eldri lúðrasveita, er hann hefir á árum áður starf- að í, en bæjarstjóri þakkaði boð- ið fyrir hönd gestanna og stjórn- anda Lúðrasveitarinnar, Jakob Tryggvasyni, fyrir dugnað hans og áhuga fyrir eflingu tónlistar- lífs á Akureyri. Árnaði hann Tónlistarfélaginu og Lúðra- sveitinni allra lieilla. Tónlistarfélag Akureyrar er stofnað 4. maí 1943, og er því enn tæpl. 2ja ára gamalt. í því eru 12 menn, en auk þess um 130 styrktarfélagar, sem allir fá ókeypis aðgang að tónleikum, sem haldnir eru á vegum félags- ins. Núverandi stjórn félagsins skipa: Stefán Ág. Kristjánsson, formaður, Sveinn Bjarman, rit- ari og Finnbogi Jónsson með- stjórnandi. Fimnr sinnum hefir félagið gengist fyrir hljómleikum á liðnum 2 árum: 1. Píanótón- leikar (Árni Kristjánsson) 2. Fiðluleikur (Björn Ólafsson með aðstoð Árna Kristjánsson- arý 3. Píanótónleikar (Miss Kathryn Overstreet) 4. Trió Tónlislarskólans í Reykjavík. 5. Ein- og tvísöngur (frú Davina Sigurðsson og Einar Sturluson með aðstoð Páls Kr. Pálssonar). Formaður Tónlistarfélagsins Tveir kunnir bæjar- búar látnir. Nýlátnir eru hér í hæ tveir kunnir horgarar eftir þunga sjúkdómslegu: Jón Guðmundsson bygg- ingameistari Brekkugötu 27, (lézt í fyrrinótt, og Árni Jóhannsson aðalgjald keri KEA og forseti bæjar- stjórnar, Þingvallastræti 1, lézt í gærmorgun. Verður þeirra nánar minnst hér í blaðinu síðar. skýrði frá því, að í vændum væri að fá Guðmund Jónsson söngvara um mánaðamót apríl- maí til að halda hér söng- skemmtun með aðstoð Weis- happel, Pál Isólfsson til að halda kirkjuhljómleika í maí. og 12 manna strengjahljóm- sveit undir stjórn Urbantschitsch í byrjun júní og gætu nýir styrktarfélagar innritað sig í verzl. Ásbyrgi, Bókaverzl. Eddu og hjá aðalfélögum Tónlistar- félagsins. Hljjóðfærin nýju, sem Lúðra- sveit Akureyrar hefir fengið, eru 19 að tölu, keypt í Ameríku fyrir milligöngu KEA og kost- uðu kr. 17375,25. Einnig voru 4 blásturshljóðfæri keypt, með- an beðið var eftir hinum nýju, og kostuðu þau tæpl. 4 þúsund kr. Karl O. Runólfsson tónskáld dvaldi liér s. 1. sumar á vegum Tónlistarfélagsins og kenndi meðlimum Lúðrasveitarinnar lúðrablástur. Varð rnikill og góður árangur af starfi hans. Tónlistarfélagið hefir í hyggju að koma hér upp tónlistarskóla á hausti komanda og sameina tónlistar- og -söngfélög um bygg- ingu tónlistarhallar. Starfsemi félagsins er þýðing- armikil fyrir tónlistarlíf og menningu bæjarins. •___________________ J. 'mmmmmmmm^'mmm"mmmm'^immm^mm^^mammmmmmmmmmcmMmmmmm LÉREFTSTUSKUR Kaupum við hœsta verði. Prentsmiðja Björns Jónssonar li. f.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.