Íslendingur


Íslendingur - 01.06.1945, Blaðsíða 2

Íslendingur - 01.06.1945, Blaðsíða 2
2 Föstudaginn 1. júní 1945 Norðurlandasöfnunin yfir 200 þúsund krónur á Akureyri og í Eyjaf jarðarsýslu. Milt innilegasta hjartans þakklœti votta ég öllum, sem veittu mér hjálp og samúð við andlát og jarðarjör sonar míns, NJÁLS JÓHANN- ESSONAR, er lézt 19. f. m. — Sérslakar þakkir fœri ég stúkufélögum af Akureyri og Kvenjélaginu „Baldursbrá.“ — Eg bið góðan guð að launa ykkur öllum ykkar miklu hjálp og slyrk. Sigríður Erlendsdóttir. lnnilegasta þakklœti fœri ég öllum þeim, sem sýndu okkur hlut- tekningu við andlát og jarðarför litlu dóttur minnar, OTTU LOVÍSU. Eyþór Thoraretisen. ATVINNA Stúlka með gagnfræðaprófi, eða liliðstæðri menntun, getur fengið atvinnu við landssímastöðina hér í byrjun næsta mánaðar. Eiginhandarumsóknir sendist undirrituðum fyrir 4. júní næstkomandi. Akureyri, 28. maí 1945. SÍMASTJÓRINN. TILK YNNING frá vörubílastöðvunum á Akureyri Frá og með 1. júní n. k. her að staðgreiða állan akstur. Þeir, sem kynnu að óska eftir mánaðarviðskiptum, greiði á stöðvarnar fyrir 10. hvers mánaðar. Akureyri, 30. maí 1945. Virðingarfyllst. Bifreiðastöðin Bifröst. Nýja-Bílastöðin ÁSKORUN UM KOLASPARNAÐ Með því að enn má búast við miklum örðugleikum á því að fá kol til landsins, og útlit er fyrir að eigi verði hægt að afla nægilegra kolabirgða til næsta vetrar, er hér með brýnt fyrir öllum að gæta hins ýtrasta sparnaðar um kolanotkun, og jafn- framt skorað á menn að afla og nota innlent eldsneyti að svo miklu leyti sem unnt er. — Er sérstaklega skorað á héraðs- og sveitastjórnir að hafa forgöngu í því að aflað verði innlends eldsneytis. V iðskiptamálaráðuney tið 15. maí 1945. Á ferð og flugi - aðallega flugi. Það var hérna á dögunum að „Kata“ kom til Akuseyrar í fyrsta skipfci f Itir að hún fékk nýja búning- inn. „Kaca“ er stytting úr Katalína, en svo nefnist hinn nýi flugbátur Flugfélags íslands, sem áður hefir verið lítilsháttar sagt frá hér í blað- inu. Kata kom til Akureyrar laust eftir kl. 8 að kvildlagi og settist á Pollinn Með boðaföllum og bægslagangi í þlæjalogni og lílíðviðri. Flugbátur- inn kom frá Reyðarfirði og hafði flutt þangað farþega, en með bátn- um til Akureyrar kom auk flug- manna, framkvæmdarstj óri Flugfé- lagsins og menn úr stjórn þess. Gengu þeir á land og skunduðu til snæðings, svo og til skrafs og ráða- gerða. En áður en það varð, hafði blaðamönnum verið gefinn kostur á að fljúga suður þá um kvöldið og til baka um morguninn. Var því boði tekið með hinu mesta þakk- og lítillæti af heiluin tveimur ritstjór- um, sem viðstaddir voru (síðar varð tríó úr parinu). Hlupu þeir heim til sín allt hvað af tók og tíndu í sig mat og á sig föt, og skelltu á skeið niður á bryggju, til þess að verða ekki strandaglópar. En hér fór eins og oftar, að stjórnum verður skrafdrjúgt og mikið þarf að skrafa og var ekki siglt af stað fyrr en skömmu fyrir ellefu um kvöldið. Kata dólaði rólega fram á Pollinn, en svo herti hún skriðið, vélagnýr- inn hækkaði, gusur gepgu í allar áttir og allir um borð höfðu nóg að gera, skipverjar við sín störf og farþegar við að horfa hver á annan, á ekki neitt eða við að signa sig í hljóði, sem sumir gera enn í dag, þótt fáir kunni það lengur eftir kúnstarinnar reglum. En eftir augna- blik var Kata komin á loft, og sveigði í mjúkum boga suður yfir bæinn. Mátti greinilegh sjá fólk standa á götunum, og voru munnar manna þar all-áberandi, en flestum hættir til þess að gapa hressi lega þegar svona atburðir gerast, og er þetta hrífandi sjón, einkum þó þegar menn eru niður á jörðinni í nánd við upp-í-loft-horfandann. 'Nú var haldið í kvöldblíðunni suður Eyjafjörð, flugið hækkað og brátt var komið suður yfir óbyggðirnar. Nokkuð var þá tekið að skyggja og fátt að sjá nema skýhnoðra á næturgöltri hingað og þangað. Upp- haflega var víst ætlað að fara syðri leiðina, yfir Hvítárvatn og Þingvelli, en þar syðra var nokkuð skýjað og hryssingslegt og var því sveigt vest- ur á bóginn. Flugmenn Flugfélags- ins eru sérlega varfærnir og hugsa fyrst og fremst um tímanlega — og eilífa — velferð farþega þeirra, sem þeir bera ábyrgð á. Er þetta fallega hugsað, að minnsta kosti finnst far- þegunum það. Þegar komið var að Hafnarfjalli syðra, tók Kata að hrista sig lítilsháttar, hefir sjálfsagt verið orðin úrill og syfjuð og þreytt, ænda klukkan langt gengin tólf og dagsverkið mikið. Draugarnir í gamla daga, sem þóttu fljótir í ferð- um og mesta þing til sendiferða, þeg- ar hægt var að nota þá til þeirra hluta, hefðu verið farnir að mæðast þegar þeir voru búnir að fara nærri hringinn í kring um landið, frá Reykjavík til Reykjavíkur, með við- komu á Reyðarfirði og Akureyri. Annars sögðu flugmennirnir að það væri þá sjaldan ókyrrð á hærri stöð- um ef hana væri ekki að finna yfir Hafnarfjalli (eða í Alþingishúsinu). Hvað um það, vér flugum yfir fló- Framli. á 4. síðu. Fjársöfnuninni til Dana og Norð- manna er nú lokið, og mun nema nál. 3 milj. króna í peningum og fatnaði. A Akureyri og í Eyjafjarð- arsýslu hafa safnast um 160 þús. kr. í peningum, ca. 35 þús. kr. í vörugjöfum frá nokkrum verzlun- um, og auk þess miklar fatagjafir frá einstaklingum, svo að söfnun- in öll mun nema á 3. hundrað þús. krónur. Stærsta gjtifin er frá Akureyrar- bæ kr. 25000. Eyjafjarðarsýsla gaf 10000 kr. Safnað í Akureyrarbæ (af skátum) 20954,75 kl\, safnað í Dal- vík og Svarfaðardal 14300, Hrafna- gilshr. 7575, Saurbæjarhr. 5635, Arnarneshr. 5407, Árskógshr. 3500, Hríseyjarhr. 3320, Ongulsstaðahr. 2805, Skriðuhr. 2025, Öxnadalshr. 940, starfsfólk KEA gaf 8500 kr. Gefjunar 3320, Iðunnar 2400, Atli h. f. og starfsmenn 2500, Kr. Krist- í UPPNÁMI. — Næst síðasti Dagur er allur í uppnámi út af grein, er „Norðlendingur“ nokkur hefir fyrir skömmu ritað í Morgun- blaðið og nefnist „Kengálumarkið“. Virðist blaðið einna mest svíða und- an þeim ummælum höf., „að það að vigta út kaffi og sykur í kaupfé- lagsbúð eða mæla út reiðbuxnaefni ......eigi að gera menn friðhelga og hátt hafna yfir alla gagnrýni," eftir því sem skilja megi af skrifum Framsóknarblaðanna. Það var áður vitað, að Dagur er mjög „nervös“ við gagnrýni á fram- kvæmdastjórn KEA. Henni er sjaldn- ast svarað með öðru en upphrópun- um og ópum um „árásir“ á „sam- vinnufélagsskap bænda“ eða öðru því um líku. Og Dagur sannar þenna veikleika sinn áþreifanlega, er hann þykist vera að svara hinni skörpu gagnrýni Norðlendingsins. Þar er engin tilraun gerð til að hnekkja stafkrók í gagnrýni lians, heldur er rekið upp óp um „herferð braskara- liðsins gegn samvinnufélögun- um“(!) Ef einhver maður hreyfir gagnrýni á stjórn hins ginnhelga fé- lags, sem fóðrar málgagn Frarn- sóknarflokksins á Akureyri með auglýsingum, þá er það ekki aðeins hin hroðalegasta „árás“ á félagið, heldur standa að baki þessari gagn- rýni „féndur samvinnufélaganna“(!) Með þessu háttalagi er ekki að furða, þó að óbreyttir félagsmenn segi „já og amen“ við öllu, sem starfslið félagsins og stjórn þess hefir samþykkt, að félagið gerði, því að ógjarna vilja samvinnumenn- irnir sjálfir láta stimpla sig sem „féndur“ samvinnusamtakanna. Þegar gagnrýni er svarað með óp- um og hljóðum í stað raka, þá bend- ir það sjaldnast á góða samvizku. Og vel mætti Dagur minnast skrifa sinna um Eimskipafélag íslands og h. f. Kveldúlf, er hann æmtir hæst vegna skrifa „Norðlendings.“ Einkennileg bókfærsls I „Degi“ 17. maí, er gefin skýring á því, hvers vegna útgjaldaliðurinn „Auglýsingar, kynningar og fræðslu starfsemi“ í reikningum K. E. A. hefir nær þrefaldast á árinu 1944. Hin mikla hækkun er m.a. talin stafa af því, að undir þenna lið hafi verið færðar á árinu 1944 gjafir og styrk- ir til ýmissa stofnana og fleira að jánsson 5000, Útgerðarfélag KEA 5000, Hótel Norðurland 2000, vega- menn í Öxnadal 1275, skólastj. og kennarar barnaskólans 1020 kr. — Axel Kristjánsson h. f. 1500 kr. — 1000 kr. gáfu: Verzl. Eyjafjörður h. f„ starfsfólk P. O. B„ Njörður h. f., Sverrir Ragnars, Gunnar Hall- grímsson, Leó Sigurðsson, starfs- fólk og sjúklingar sjúkrahússins, Vélabókbandið, Prentverk Odds Björnssonar og Bifreiðastöðin Bif- röst. — Vörugjafir frá verzl- unum: KEA 20000 kr., B. Laxdal 3500, Páll Sigurgeirsson 3000, Tóm- as Björnsson 2600, Ryel-verzlun 2300, Anna Laxdal 2000, Skemman 1500 og Vöruhúsið h. f. 500 kr. Askell Snorrason gaf söfnuninni tón- verk eftir sjálfan sig. Eru þá taldar allar hinar stærstu gjafir. upphæð 25.6 þús. krónur, en slík út- gjöld hafi áður verið færð undir annan lið. Það virðist mjög ein- kennileg bókfærsla, að flytja gjafir undir „auglýsingar, kynningar- og fræðslustarfsemi“, því að sjaldnast munu gjafir vera gefnar í auglýs- inga- eða kynningarskyni. Auk þess verður eigi séð, að af þessum nýja lið hafi verið skattfrjálsar nema 10 þús. kr. (gjöfin til SÍBS), og því mjög vafasamt, að nokkur heimild sé til að færa alla gjafa- og styrkja- upphæðina undir Jjenna Iið, nema Jjví aðeins að K. E. A. búi við allt önnur skattalög en önnur fyrirtæki og einstaklingai*. Bæridur vilja ekki einokun Eins og kunnugt er, hefir Kaupfé- lag Árnesinga haft á hendi alla mjólkurflutninga bænda á Suður- landsundirlendinu til og frá Mjólk- urbúi Flóamanna. Á aðalfundi Mjólkurbúsins í vetur lá fyrir tilboð um flutningana frá Kaupfélaginu „Þór“ á Rangárvöllum, sem var um 20 aurum lægra á hvern ekinn kíló- metra en Kaupfélag Árnesinga hef- ir. Tilboði „Þórs“ var hafnað, enda þótt það hefði, ef að því hefði verið gengið, orðið til að hækka útborg- unarverð til bænda um 2—2V2 eyri á mjólkurlítra. Á aðalfundi Kaupfél. „Þórs“, sem haldinn var nokkru eftir aðalfund mjólkurbúsins, var samþykkt í einu hljóði eflirfarándi tillaga: „Aðalfundur Kaupfélagsins Þór, haldinn að Strönd 13. maí 1945, skorar á stjórn Mjólkurbús Flóa- manna, að bjóða út mjólkurflutn- ingana og tryggja hagsmuni mjólk- urframleiðenda eins og henni ber skylda til. Þá telur fundurinn óþol- andi, að stjórn mjólkurbúsins skuli með aðferð, sem minnir á einvalds- tíma, gefa Kaupfélagi Árnesinga tækifæri til að útiloka stærsta sam- vinnufélag í Rangárþingi frá því að annast mjólkurflutningana fyrir fé- lagsmenn úr héraðinu. Fundurinn felur stjórn og fram- kvæmdastjóra að taka þann hlut aí mjólkurflutningunum í sínar hend- ur, sem félaginu ber að hafa. Telur fundurinn sjálfsagt að reyna að fá leiðréttingu á þessum málum með friðsamlegu móti, en fáist það ekki, verði leitað aðstoðar löggjafar og ríkisvalds eigi síðar en á næstd þingi.“ /. O—O „Berklavörn“. Fundur í Verzlun- armannahúsinu nk. föstud.l. júní kl. 8V2 eh. Fundarefni: Kosn. fulltrúa á landsfund S. í. B. S. o. fl. — Áríð- andi að félagar fjölmenni. Sjómannadagurinn Hátíðahöld Sjómannadagsins, sem er n. k. sunnudag, hefjast annað kvöld með kappróðri á Pollinum. — 6 skipshafnir keppa, og verður veð- banki starfandi í sambandi við róð- urinn. Kl. 10 á sunnudagsmorgun- inn hefst hópganga sjómanna frá Torfunefsbryggjunni. Verður geng- ið um bæinn og síðan í kirkju, þar sem hlýtt verður á sjómannamessu kl. 11. Kl. 1.30 fer fram sýning á björg- un úr skipi (í björgunarstól) hér á Pollinum, en kl. 2.30 sundsýning í sundlauginni. Verður þó sýnt björg- unarsund og stakkasund. Kl. 5 verða íþróttir á Þórsvellinum, knattspyrna og reiptog og um kvöldið dansleik- ir. Sjómannadagsblaðið og merki dagsins verða seld á götunum, og skátastúlkur selja happdrættismiða fyrir Bj örgunarskútU Norðurlands. Vinningurinn er glæsilegur bóka- skápur með 300 úrvalsbókum skraut bundnum. Áheit á Strandarkirkju afhent blað- inu kr. 80.00 fró ónefndum og kr. 10.00 fró N. N. Heildsala á tréskip, (Kopar- mólning) rauður og grænn, fyrirliggjandi hjó I. Brynjólfsson & Kvaran Akureyri

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.