Íslendingur


Íslendingur - 01.06.1945, Blaðsíða 3

Íslendingur - 01.06.1945, Blaðsíða 3
Föstudaginn 1. júní 1945 Í5LENDINGUR S ÍSLENDINGUR Útgefandi: BlaSaátgájujél. Akureyrar. Ritstjérar: BárÍur Jakobsson og Jakob Ó. Pétursson. Skrifstofa Hafnaratr. 101. Sími 354. Auglýaingar og afgreiSala: Jakob ó. Pétursson, Fjilugata 1. Sfmi 375. — Póathólf 118. PrenttmUja BjSnu Jinssonar h.f. Enginn veit hvað átt hefir, fyrr en misst hefir Áðut en Evrópustyrj öldin skall á, fór Framsóknarflokkurinn með völd um langt skeið, ýmist einn eða í fé- lagi við Alþýðuflokkinn. Stjórn þess rauðskjöldótta bræðralags var með þeim ódæmurn, að fátítt mun vera. Fjárhagur ríkisins var að hruni kom inn, atvinnuvegirnir í rústum og traust íslands erlendis tapað. Hvern- ig farið hefði, ef stríðið hefði ekki skollið á, er ekki gott að segja með vissu, en allar líkur benda til þess, að endirinn hefði orðið óglæsilegur. Framsóknarmenn og jafnaðarmenn voru í sameiningu búnir að undir- búa jarðveginn svo, sem bezt mátti verða fyrir starfsemi komhiúnista, og það er vitað, að kommúnistar höfðu fullan hug á því að nota sér út í æsar það öngþveiti, sem þegar var ríkjandi. Þetta fórst nú samt fyr- ir, Framsóknarmenn misstu völdin, fyrst að nokkru og síðan að fullu og öllu. Síðan hafa þeir borið sig illa, fyrst og fremst yfir valdamissinum, og svo yfir hinu, að þjóðin virðist ekki kunna að meta „stórvirki“ þau, sem þeir segjast hafa framkvæmt til gagns fyrir land og lýð í stjórnartíð sinni. Satt að segja er það lítil furða, þegar á allt er litið, en Framsóknar- menn spara þó ekki að hæla sjálf- um sér fyrir dugnað, framkvæmda- semi, framfarahug og hverskyns dyggðir. Sannast þar, að ef enginn hælir mér, verð ég að gera það sjálf- ur. Framsóknarflokkurinn hefir orð- ið fyrir fleiri skakkaföllum. Hann missti sérstöðu sína og hagsmuni þá, sem hann hafði lengi haft af órétt- látu kosningafyrirkomulagi, og þó ekki nema að nokkru leyti. Þá missti flokkurinn formann sinn, þann er lengst og mest hefir fyrir flokkinn starfað, og hafið hann til valda. — Loks hefir flokkurinn nýlega misst valdaaðstöðu sína í einu stærsta kaupfélagi landsins, en kaupfélögin hefir Framsóknarflokkurinn jafnan notað eftir mætti sér til pólitísks framdráttar. Það er því ekki að furða þótt líðanin sé ekki góð innan flokksins, enda kemur það berlega fram í málgögnum hans. Þau eru líka þegar farin að gera hosur sínar grænar fyrir háttvirtum kjósendum, og ætlast bersýnilega til þess, að þeg ar þar að kemur, verði þeim greidd nægilega mörg atkvæði til þess að geta á ný tyllt nokkrum pólitískum valdagæðingum flokksins í stjórnar- sess, lagt undir sig opinberar stofn- anir eftir geðþótta, beitt rangsleitni Kjdlaefni úr ull, tekin upp í dag BRAUNS-VERZLUN Páll Sigurgeirsson. 3 Kirkjan. Sjómannadagsmessa á Akureyri næstk. sunnudag kl. 11 f.h. 60 ára varð í gær Kristján Sig- urðsson kennari á Dagverðareyri. 70 ára varð í gær Stefán Jónsson bóndi í Kristnesi. Vinnustojusjóði Kristneshœlis hafa borizt þessar gjafir: Frá Rósu Svein bjarnardóttur og Halldóri Friðriks- syni, Hleiðargarði, til minningar um Sigrúnu Jónsdóttur, Saurbæ, kr. 200 Frá ónefndum, til minningar um Helga Sveinsson, Akureyri, kr. 100. Kr. H., áheit, kr. 50. Beztu þakkir. — Jónas Rafnar. Hjúskapur. Ungfrú Kristbjörg Ingvarsdóttir og Herbert Tryggva- son, Gefjun. Hjónaejni: Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Guðrún Odds- dóttir, Glerá og Ragpar Stefánsson, bóndi, Ásláksstöðum. Sœnski sendikennarinn í Reykja- vík, Peter Halberg, er nýkominn hingað til bæjarins.Hann mun flytja erindi um Svíþjóð n.k. mánudagskv. kl. 8.30 í Skjaldborg og sýna skugga myndir (litmyndir) frá Svíþjóð þ.á. m. af íslendingum, er þar hafa dval- ið. Sendikennarinn talar á íslenzku. Knattspyrnumóti Ak- ureyrar í II. fl. lokið Um síðustu helgi lauk knattspyrnu móti II. flokks. Þátttakendur voru 3 félög: K. A., Þór og íþróttafélag Menntaskólans. Leikar fóru svo, að 1. M. A. vann K. A. með 1 marki gegn 0, Þór vann I. M. A. með 4 : 3, en K. A. og Þór gerðu jafntefli 0 : 0. Þór vann því mótið með 3 stigum, í. M. A. hlaut 2 stig og K. A. 1 stig. í verzlunarmálum og notið þeirra þæginda, sem hinir bitlingasjúku framsóknarforkólfar nutu fyrir stríð, heimanvilltir á mölinni í Rvík. Pað benda þó allar líkur til þess, að Framsóknarmönnum verði ekki káp an úr því klæðinu. Það er ekki lík- legt að nokkur hugsandi maður vilji með atkvæði sínu leggja lið sitt til þess að það ófremdarástand, sem ríkti í málefnum hins opinbera fyrir stríð, komizt á aftur. Þvert á móti. Hátterni Framsóknarflokksins fyrr og síðar er með þeim hætti, að senni- legt er að menn hugsi sig um tvisv- ar áður en þeir greiða þeim atkvæði, og einkum og sérstaklega sú stétt, sem mest hefir goldið í ómagasjóð flokksins beint og óbeint, bænda- stéttin. /L • NYKOMIÐ: Blúnduefni í 3 litum Silkisokkar Mellco Kjólablóm Léreft Hárnet ÁSBYRGI h. f. Utibú: Söluturninn v. Hamarstíg FUNDUR verður haldinn í Iðnnema- félagi Akureyrar mánu- daginn 4. júní næstk. Stjórnin. ATVINNA Tveir röskir, ábyggilegir ungling- ar óskast. — Nánari upplýsingar í HÓLABRAUT 18, Ak. Tjöld 4 stærðir Tjaldbotnar 2 stærðir Svefnpokar 4 gerðir Bakpokar 4 gerðir Hliðartöskur Gudmanns-verzlon Otto Schiöth Hænsnafóður Fljótandi gólfbón nýkomið 80 STÚLKTJR óskast til síldarsöltunar í sumar á nýju bryggju Sverris Ragn- ars á Oddeyrartanga. Mörg skip eru þegar ráðin til að leggja þar upp afla sinn. Sum skipanna fiska nær eingöngu í salt. Þær stúlkur, sem vilja tryggja sér síldarvinnu hér á Akureyri, skrifi sig sem fyrst á lista sem liggja frammi á Vinnumiðlunar- skrifstofunni, Kaupfélagi Verkamanna, hjá Helga Pálssyni og hjá undirrituðum, sem gefur allar nánari upplýsingar. n Guðmundur Guðmundsson 1 Helgamagrastræti 42 1» 10 SILDARSTÚLKUR óskast til Siglufjarðar. Nánari uppl. hjá Páli A. Pálssyni Fjólug. 10.|z Friðrik Guðjónsson.; Síldarstfllknr VILJUM RÁÐA nokkrar stúlkur til síldarsöltunar á Siglufirði í sumar, hjá Gunnlaugi Guðjónssyni. Nánari upplýsingar hjá Jóni Baldvinssyni, Munkaþverárstræti 17, og Kristni Árnasyni, Hafnarstræti 86 A. VIL KAUPA HUS sem væri laust til íbúðar í síðasta lagi 1. okt. þ. á. Skipti á húsi Ií Reykjavík æskileg. Upplýsingar á Grundargötu 7 hér eftir kl. 8 í kvöld. KARL FRIÐRIKSSON verkstjóri. Kvenfél. Framtíðin heldur fund að Hótel Akureyri 6. júní (miðviku- dag), kl. 9 síðd. Áríðandi að allar nefndarkonur mæti. — Stjórnin F imleikasf ning Kvenflokkur úr Gagnfræðaskóla Isafjarðar sýndi hér tvisvar í vik- unni, undir stjórn ungfrú Maríu Gunnarsdóttur. — Hannibal Valdi- marsson skólastjóri ávarpaði sýn- ingargesti. Margt mætti segja mn sýninguna vegna þess, að fjöILreytni í æfinga- vali var mjög mikil, og ýms afbrigði gáfu sérstakt tilefni, vöktu hugann. Nokkrir kaflar sýningarinnar voru sér í lagi listrænir og fagrir, má þar nefna æfingaflokk við „Lette Bölge“ sem er mjög vel saminn og var prýði lega gerður. Fegurstur þótti mér þó æfingaflokkur við „Tataralag“. hæfilega „plastiskur“ og lifandi, markviss, hégómalaus en listrænn í bezta máta. Aftur var æfingafi. við „Menuett Beethovens“ dálítið höttótt ur, sundurleitur í stíl, ágætur á HÚSMÆDUR ATHUGIÐ! Sölubúðum verður nú lokað kl. 1 á laugardögum. — Gerið pantanir yðar í dag. Svörum ekki í síma á laugardögum, — KJÖTBÚÐ Kc E. A. köflum, en aðrir hlutar hans raska „stenmingunni“, eru annars eðlis, önnur sál. Það er mjög hæpið að raska hreyfingu lagsins til samræm- is við æfingarnar. Lagið verður að fá að halda sínum einkennum og æfingarnar að vera í sama anda. Einn kafli (liggjandi á gólfi) orka nokkuð tvímælis sem sýningarliður, þó að ekki sé að efast um þjálfunar- gildi þeirra æfinga. Frk. María fer mjög vel með kerfi Björns Jakobssonar. Lengd tímaseðikins stillt í hóf, regla ágæt, engir dauðir púnktar. Mann langar að sjá sýninguna aftur og aftur og ræða um stórt og smátt. Píanó-að- stoð Elísabetar Kristjánsdóttur var góð, vel mörkuð þar sem þess var þörf, „præcis“ og taktföst. Þökk fyrir komima. H. S.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.