Íslendingur


Íslendingur - 03.08.1945, Qupperneq 1

Íslendingur - 03.08.1945, Qupperneq 1
XXXI. árg. Föstudaginn 3. ágúst 1945 31. tbl. Hringferð nm Oiiáða- hraun 1 bifreið. Viðtal við Pál Arason bifreiðastjóra. Miðvikudagskvölclið 18. júlí lagði Pall Arason bi£- reiðastjóri úr Reykjavík í leiðangur um Ódáða- hraun í bifreiðinni R 2940, sem er amerísk liðsfor- ingjabifreið. í för með honum voru 5 Akureyring- ar: Davíð Stefánsson skáld, dr. Trausti Einarsson prófessor, Kristján Rögnvaldsson garðyrkjumaður, Helgi Indriðason og Knut Otterstedt yngri. Átti íslendingur til við Pál, er hann kom úr leiðangri þessurn og spurði hann frétta af förinni. ÝMSAR FREGNIR Prófessor SigurSur Magnússon fyrrum yfirlæknir á Vífilsstöðum andaÖist 20. júlí s. 1., eftir stutta legu. Hann var 76 ára aö aldri. ★ Eimskipafélag íslands h. f. og Skipaútgerð ríkisins hafa sagt upp samningum um áhættuþóknun og stríðstryggingu skipverja frá 1. okt. n. k. Sjómannafélag Reykjavíkur hefir jafnframt sagt upp samningum um kaup og kjör farmanna á kaup- skipaflotanum frá sama tíma. ¥ Danska stjórnin hefir í samráði við sendifulltrúa lslands í Kaup- mannahöfn, ákveðið að bjóða ekkju Guömundar Kamban skálds 6 þús- und kr. árlegan lífeyri. ¥ Kjartan Jóhannsson hlaupari (í. R.) hefir nýlega sett nýtt met í 1000 m. hlaupi á 2 mín. 38,4 sek. Methafi var áður Geir Gígja, og setti hann metið fyrir 15 árum á 2 mín. 39,0 sek. Ennfremur bætti Kjartan met sitt í 300 metra hlaupi úr 37,1 í 36,9 sek. ¥ Forseti íslands, Sveinn Björnsson, tók við embætti sínu 1. þ. m. Ilófst athöfnin með bæn í Dómkirkjunni en síðan var gengið í Alþingishúsið, þar sem embættistakan fór fram. Athöfninni var útvarpaö. * Golfmót íslands hefir staðið yfir í Reykjavík undanfarna daga og lýkur í dag. 8 Akureyringar taka þátt í mótinu. ¥ S. 1. þriðjudagsnótt brunnu 12 hermannaskálar á Raufarhöfn, og er taliS fullvíst, aS kveikt hafi verið í þeim. Lágu milli 20 og 30 síldarskip þar um nóttina, og voru áhafnir margra þeirra í landi. Ennfremur var brotist inn í einn skála þar og stolio varastykkjum frá Diesel-vél, er vitamálastjórnin átti. SýslumaSur Þingeyinga var kvaddur til Raufar- hafnar til að rannsaka málið. ★ Magnús Kjartansson, einn hinna 5 manna, sem teknir voru fastir um borð í Esju úti fyrir Khöfn, hefir verið látinn laus. Tveir menn eru þá enn í haldi. ★ Síldveiðarnar ganga mjög erfiö- lega enn sem komið er. Söltun' er hafin fyrir nokkru. ★ Ríkisstjórnin hefir ákveðið að láta byggja 3 strandferöaskip til að ' annast flutninga á hafnir innan- lands. Eitt þeirra verður á stærS við Esju en hin tvö nokkru minni. LÉR EFTSTU SKUR Kaupum við hœsta verði. — Hreinar — Prentsmiðja Björns Jónssonar h. f. — ViS lögðum af stað héðan úr bænum miövikudagskvöldiö 18. júlí, segir Páll, — ókum um Mý- vatnssveit að Sellandafjalli og tjöld- uöum þar um nóttina. A fimmtudag ók ég í Suðurárbotna og kom þar á slóð mína frá í fyrra, en þá fór ég upp frá Svartárkoti í Bárðardal og ók inn Dyngjufjalladal og suöur fyrir Öskju. Eftir að ég komst á slóöina, fylgdi ég henni alla þá leið, er ég liafði fariS í fyrra, en síðan ók ég austur að Jökulsá, norður að Dyngjuvatni og áfram norður fyrir VaSÖldu að Jökulsá fyrir austan HerSubreið. Voru þá aöeins 4 km. eftir í HerSubreiöarlindar, og höfð- um við fariS allt að 130 km. leiö þenna dag. Gistum viS þarna föstu- dagsnóttina, en að morgni ókum við yfir hraunið að Herðubreiðarlind- um, og tók það um 2 klukkustundir. Þegar við komum að Lindá, var hún í ’vexti, og biðum við eftir að vatns- borðið lækkaði, en hitinn var þá 24 stig í forsælu og 43 móti sól. — UrðuS þið að bíða lengi? ViS komumst yfir kl. 5 að kvöldi, en þá var vatnsborð árinnar lægst. Var síðan ekið norSur meS Jökulsá, en þegar við þurftum að fara vestur yfir Lindá aftur, var hún í foráttu- vexti og ófær. Snerum við þá aftur upp að ármótunum, þar sem kvísl úr Jökulsá fellur í Lindá og tjölduð- um þar yfir nóttina. Snemma á laug- ardagsmorguninn söfnuðum við samau um 12 smálestum af grjóti á eyrunum meðfram kvíslinni og flutt- um það á bílnum aS henni. Síöan stífluðum við kvíslina með grjótinu og tókst með því að lækka vatns- borðið í Lindá um 30 sentímetra, og komumst við þá slysalaust yfir. En þegar komið var yfir ána varð fyrir okkur um 5 km. breiö hraunræma, og þurfti mikiö að ryðja þar til og laga, svo að bíllinn kæmist leiðar sinnar. Tók það okkur 4 klst. Kom- um við þá í Grafarlönd, en þar ók ég gamlar bílaslóðir, og gekk ferðin vel eftir það. TjölduSum við sunnu- dagsnóttina við Hrossaborgir á Mý- vatnsöræfum, en ókum á sunnudag um NámaskarS til Reykjahlíðar og síöan áfram lil Akureyrar, en hing- að komum við kh 8 um kvöldiö. — Hvernig var feröaveörið? — Við fcngum hiS fegursta veður alla leiðina, glampandi sólskin og hita. Skyggni var hið ágætasta yfir hin víðáttumiklu öræfi norðan jökla. — Hvernig reyndust ferðafélag- arnir og farartækiö? FerSafélagarnir reyndust áfburSa- góðir og unnu kappsamlega að því að sigrast á þeirn tálmunum, sem fyrir komu. Líkt má segja um bíl- inn. Hann er meS drifi á öllum hjólum og reyndist öruggur og traustur í ferSum, hvort sem fariö var yfir hraun, sanda eða vötn. Vega- lengdin, sem viS fórum í óbyggð- um, er alls 268 km. Þegar farið er að rabba viS Pál Arason um öræfaferðir, kemur það í Ijós, að hann hefir víða fariö um öræfi og óbyggöir landsins. Þessi för er hin fyrsta, er farin hefir ver- ið á fyrrnefndri lcið. Aður hefir hann að vísu ekiö suður fyrir Dyngjufjöll, upp frá Svartárkoti í BárSardal. Þá hefir hann og ekiS upp úr EyjafirSi, suður Vatnalijalla að Geldingsá. En auk þess hefir hann farið tvisvar gan'gandi yfir Odáða- hraun, -— annað skiptið úr Herðu- breiðarlindum um Öskju í Svartár- kot en hitt skipið frá Svartárkoti um Oskju og HerSubreiðarlindar að Grímsstööum á Fjöllum. Þá hefir hann farið ríSandi úr BórSardal inn í Suöurárbotna og yfir í Mý- vatnssveit. ÞaSan gangandi um Mý- vatnsöræfi að Dellifossi, Hólrna- tungum og Ásbyrgi.Hann hefir farið ríðandi og gangandi um Austfjaröa- hálendið, gengið á Snæfell, farið á hestum inn Laugarvalladal og fram að Kringilsá og víðar. Hann hefir farið ríðandi úr Þjórsárdal noröur Sprengisand til Eyjafjaröar og frá Varmahlið suður á Hveravelli, en gengið þaðan um Þjófadali og Hvít- árnes að Gullfossi og Geysi. Loks hefir hann gengið um allau skagann milli EyjafjarSar og SkagafjarSar, — um ReykjaheiSi, LágheiSi, Helj- ardalsheiöi og SiglufjarSarskarS. A þessum feröalögum hefir hann lent í misjöfnum veðrum, en telur feg- urð öræfanna í góðu veðri bæta upp alla erfiðleika, sem illviðrin liafa valdið honum. Þegar hann er spurður, hvaða stað hann hafi litið fegurstan, er hann fljótur til svars og nefnir Hólmatungur við Jökulsá. Páll Arason er aðeins 30 ára gam- all. Hann er af eyfirzkum ættum, w- Jóhann Frímann skólastjóri svar- ar athugasemd minni í ísl. 6. júlí í „Fokdreifum“ Dags 12. júlí, varð- andi ýmislegt, sem fram fór á stofn- fundi Sambands íslenzkra sveitarfé- laga. Skrifar hann nú undir-nafni, eins og flokksbræður hans hafa ný- lega samþykkt að gjört skyldi, ef um níS væri aS ræða, en skýtur sér ekki undir pilsfald ritstjórans. — Kannast hann viS að hafa átt efni greinarinnnar, sem ég gerði athuga- semdina við. Ekki tekst honum þó fremur en áður að fara með rétt mál og er mjög viökvæmur yfir því, aS ég sagSi hann fara með blekking- ar og ósannindi um ýms atriði varð- andi urnrætt þing og fleira, en gerir þó ekki minnstu tilraun til að hnekkja því, sem ég sagði um ó- sannsögli lians, enda getur hann það ekki, en- lætur sér aðeins nægja aS fara ærumeiðandi og lítilsvirðandi orðum um mig enn sem fyrr, eins og þessi klausa sýnir: „Ef einhver annar en Jón Sveinsson hefði orðið til þess að bera mér á brýn ósann- indi, blekkingar og slaðleysur o. s. frv., myndi ég sennilega hafa haft svo mikið við aö sanna mál mitt með því að afla mér vottorSa þingfulltrúa, • staðfestra úlskrifta úr gerSa- bókum stofnþingsins og bæjar stjórnar Akureyrar og annarra slíkra gagna, ér duga myndu til þess að hrinda áburðinum. En bæjarbúar þekkja J. Sv. og málfærslu hans, ætti þeim því að vera vorkunnarlaust að áltta sig á því, án allra slíkra sönnunargagna, hversu mikiS mark muni takandi á honum og orðum lians. Get ég því sparað mér frekari ómök að þessu sinni.“ Þetla er hreystilega sagt af manni, sem virðist vera svo viðkvæinur, að hann þoli ekki leiðréttingar á mis- sögnum hans sjálfs, og skal vikiö að þessu síðar í greininni. .1. Fr. reynir aS réttlæta það, að NorSlendingafjórðungur kaus ekki í fulltrúaráðiS eftir tillögum Jónasar Guðmundssonar, en hann með öðrum Framsóknarmönnum braut bæði þegjandi samkomulag um aS svo skyldi gert og hin ný- samþykktu lög sambandsins, sem fyrirskipa hlutfallskosningu, ef ekki sonur hjónanna Dýrleifar Pálsdótt- ur (Hallgrímssonar bónda í MöSru- felli) og Ara GuSmundssonar skrif- stofustjóra (GuSmundssonar hrepp- stjóra á Þúfnavöllum). Þessa dagana er Páll að kanna nýjar öræfaleiðir á bílnum sínum, og er ekki ósennilegt, að hann segi okkur eitthvað frá þeim leiðangri í næsta blaði. er samkomulag. ÞaS er í fyrsta lagi ósatt, að J. G. hafi útbýtt tillögum sínurn um full- trúavalið meSal fundarmanna- Hann las þær aSeins upp fyrir hádegi síð- asta daginn, rétt áður en ganga skyldi til kosninga. Það var því bæði naumur tími til að athuga til- Framh. á 4. síðu. Stjóroarskipti í Bretlandi. Nýlega fóru fram kosningar til brezka þingsins. Verkamanna- flokkurinn fékk mikinn meiri hluta þingsæta, og baðst Winston Churc- hill því lausnar fyrir sig og ráSu- neyti sitt. Margir af ráðherrum hans náðu ekki kosningu í sínum kjördæmum. Formaöur Verkamanna flokksins, ATTLEE, hefir myndaö nýja stjórn. Ekki hefir verið kosið í Englandi síðan 1935. Töiramaðorinn og risinn. MeSal þeirra farþega, er komu heim frá Danmörku með Esju, voru Valur Norðdahl sjónhverfingamað- ur og Jóhann Pétursson, svarfdælski risinn, sem fór utan að leita sér lækninga nokkru fyrir styrjöldina. Komu þeir báðir hingað til Akur- eyrar og héldu sameiginlegar kvöld- skemmtanir í vikunni sem leiS. Valur Norðdahl sagði gamansög- ur og skrítlur og sýndi ýmsar sjón- hverfingar og töfrabrögð. NotaSi hann mest spil, en auk þess breytti liann lit á vasaklút með því að smeygja honum gegnum krepptan lófann, skar sundur kaðal, hnýtti hann síðan saman og lét hnútinn lwerfa o. s. frv. Jóhann kom inn á sviöið í 3 búningum: Fyrst sem Gúlliver í Putalandi, síðan sem Kósakki og loks i venjulegum kjól- búningi. MeÖalmenn á vöxt ganga undir hönd honum, og verður þó bil á milli. Skemmtanir þesssar voru fjöl- sóttar og þeim vel tekið af áhorfend- um. Vaðail Jóhanns Frímanns hrakinn. % \ , \ 4

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.