Íslendingur - 10.08.1945, Síða 3
Föstudaginn 10. ágúst 1945
ÍSLENDINGUR
Ritstjórar:
BárSur Jalcobsson og
Jakob O. Pétursson.
Útgefandi: Blaðaútgáfufél. Akureyrar.
Skrifstofa Ilafnarstr. 101. Sími 354.
Auglýsingar og afgreiðsla:
Jakob Ó. Pétursson, Fjólugata 1.
Sími 375. — Pósthólf 118.
Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f.
Kosningarnar í Bret-
landi
Að undanförnu hefir ríkt meira
en liálfgert reiðuleysi í íslenzkum
stjórnmálum, að því leyti, að flokka-
skipting hefir verið mjög óglögg, og
ennfremur að flokkar, sem ætla
mætti að hefðu andstæðar stefnur,
hafa tekið til að starfa saman. Þessi
ringulreið, sem komið hefir fram á
margan og mismunandi liátt, lrefir
aldrei sýnt sig greinilegar en í um-
mælum blaðanna uni kosningarnar
í Bretlandi, sem nú eru nýafstaðn-
ar. Svo að segja allir flokkar vilja
draga ályktanir af kosningunum sér
i hag, og sumar af þessurn ályktun-
um eru vægast talað broslegar. Sann
leikurinn er sá, að af kosningunum
í Bretlandi og þeim úrslitum, sem
þar urðu, og fáir bjuggust við, verð-
ur engin sú ályklun dregin, sem átt
getur við um íslenzk stjórnmál. Sú
fjárhagslega og stjórnmálalega þró-
un, sem átt hefir sér stað í Bretlandi,
er svo gjörólík því, sem gerzt hefir
á íslandi í þeim efnum, að ])að er
engan veginn sambærilegt, og það
her aðeins vott um fremur lítt þrosk-
aðan skilning á þjóðfélagsmálum,
að ætla sér að draga dæmi saman af
kosningum í Bretlandi og íslenzk-
um stjórnmálum eins og þau eru nú.
Þó er það ef til vill eitt, sem má
nefna hér, sem gæti verið eða orð-
ið hliðstætt hérlendis og í Bretlandi,
en það er afstaðan til kommúnista.
Eins og kunnugt er, lagði fyrrver-
andi forsætisráðherra Breta mikla
áherzlu á það, að hann berðist al-
gerlega gegn því einræði, sem komni
únisminn óhjákvæmilega hlyti að
hafa í för með sér. Sum af ummæl-
um forsætisráðherrans voru tekin
upp í íslenzk blöð, m. a. íslending,
tekin upp sem umsögn reynds og
merks stjórnmálamanns um stefnu,
sem nokkuð hefir rutt sér til rúms
hér á landi. Það var að vísu tekið
fram, að forsætisráðherra Brela
væri ekki óskeikull, og ummæli hans
um kommúnismann engan veginn
full sönnun fyrir skaðsemi þeirrar
stefnu. En samkvæmt úrslitum kosn-
inganna í Bretlandi, og þar er hlið-
stæðan við íslenzk stjórnmál, ef hún
er nokkursstaðar, virðist s’Pm for-
sætisráðherrann hafi haft allmikið
fyrir sér í dómum sínum um komm-
únismann, enda sýndu úrslit kosn-
inganna það. Það er algerlega þýð-
ingarlaust fyrir íslenzka kommún-
ista að vera að reyna að tileinka sér
á einhvern hátt þann sigur, sem
verkamannaflokkurinn brezki vann.
Þvert á móti. Sú stefna, sem sigraði
í brezku kosningunum, er ekki rót-
Nýkomnir eru heim frá Ameríku
Kristján Mikaelsson Eyrarlandsveg
20 og Olafur Benediktsson, áður
bókhaldari á B. S. A. Kristján stund
aði flugnám og er nú ráðinn flug-
maður hjá Flugfélagi Islands h.f.,
en Olafur stundaði nám í verzlunar-
skóla um eins árs skeið en vann síð-
an um líma hjá sambandi vefnaðar-
vöruinnflytjenda.
Brúðkáup. SI. sunnudag voru gef-
in saman í hjónaband í Grundar-
kirkju ungfrú Aðalsteina Helga
Magnúsdóttir á Grund og Gísli
Björnsson (Jónssonar kaupmanns)
í Reykjavík. Sóknarpresturinn, sr.
Benjamín Kristj ánsson, fram-
kvæmdi vígsluna. Að henni lokinni
var efnt til brúðkaupsveizlu á
Grund, og sat hana fjöldi manns úr
héraðinu og víðar að.
A Jónsmessuhátíðinni, 24. júní s.
1., sem kvenfél. „Framtíðin“ stóð
fyrir, var m. a.. efnt til happdrættis,
og seldust allir happdrættismiðarn-
ir. Það hefir fyrir nokkru verið
dregið í happdrættinu, en munanna
hefir ekki verið viljað. Númer þau,
sem dregin voru, eru: 144, 266 og
292. Þeir, sem kunna að hafa þessi
númer í fórum sínum, ættu að vitja
munanna sem fyrst til frú Jonnu
Schram.
Kappleik II. ílokks Vals og II. fl.
úr Þór og K. A. (blandað lið), sem
fram fór sl. föstudagskvöld, lauk'
með sigri Akureyringa, 4 mörkum
gegn 1. Daginn eftir fóru Valsmenn
í Vaglaskóg í boði Þórs og K. A.
Verzlunin Lotidon var opnuð í
dag í stækkuðum húsakynnum. Hef-
ir eigandi hennar, Eyþór H. Tómas-
son, látið innrétta hana mjög hag-
anlega og húið hana úr garði eftir
nýjustu tízku.
Fyrstu síldina, sem söltuð hefir
verið hér á Akureyri, koiu b.v. ís-
lendingur frá Reykjavík með til h.f.
Síldar sl. þriðjudagsnótt. Saltaðar
voru 200 tunnur.
Aheit á Strandarkirkju frá ey-
firzkri konu kr. 100.00 afhent blað-
inu.
Hjálprœðisherinn. Brigadcr To-
mas Dennis frá London og major
Svava Gísladötlir deildarstjóri heim
sækja Akureyrarflokk. Samkomur
sunnudag 12. ágúst kl. 11 f. h. helg-
unarsamkoma; kl. 4 e. h. útisam-
komg; kl. 5 c. h.-samkoma í Zíon;
kl. 8Mi e. h. samkoma í salnum. —
Allir velkomnir.
tækari en það, að líklegt er að þeir,
sem á íslandi eru nefndir afturhalds
menn, mundu vel geta sætt sig við
hana. Kommúnistar eiga hinsvegar
ekkert fylgi í Bretlandi, og ef ís-
lendingar vildu læra eitthvað af því,
sem kom í Ijós í kosningunum í Bret
landi, þá væri það helzt að rnuna
eftir því, að gera kommúnista á-
hrifalitla í íslenzkum stjórnmáluin,
])egar næst kemur til þeirra kasta
að tjá sig urn það, hvaða stjórnmála
stefnuú eigi að hafa völd hér á landi
0-
ÍSLENDINGUR - 3
— - - ' ■
Innilega þökkum við heimsóknir, skeyti, blóm
og gjafir ó gullbrúðkaupsdegi okkar.
Gerða og Ottó Túliníus.
Net-sokkar
— verð fró kr. 7,30 til 16,00. —
BRAUNS-V ERZLUN
Páll Sigurgeirsson.
Japantr
að geíasí upp.
Þegar blaðið var að fara
í pressuna barst sú fregn,
að Japanir hafi boðið fulla
uppgjöf með- því skilyrði,
að keisari þeirra héldi völd
um.
o—o
Z skrifar:
„Það hefir gengið erfiðlega í sum-
ar að fá lax á matborðið. Kvartað
er undan lélegri veiði, en laxveiði-
mennirnir leggja þó ekki árar í bát.
Þeir halda áfram að leggja á sig
langar ferðir, tíma og fyrirhöfn til
að reyna að ná í einri eða tvo þessa
gómtömu og glitfögru fiska.
Laxveiðimenn gefa út vandað
tímarit, er þeir nefna „Veiðimann-
inn“. Eg hef skoðað eitt heftið, og
hefir það inni að halda ýmsar frá-
sagnir af laxveiðum,skýrslur um lax
veiði og myndir af laxafossum oglax
veiðimönnum með bráð sína á bak
eða við fætur sér. Og þar segir einn
kunnasti laxveiðimaður landsins frá
því, er hann fékk „jötunn nokkurn
norðan úr landi, Zophonias Jónas-
son“, til að brjóta fiskveg um Gull-
bráarfóss í Flekkudalsá á Fells-
strönd. En þeir eru fleiri fossarnir,
sem „jötuninn“ Zophonias hefir
brotið með sprengingu til að greiða
för laxins um árnar. I vor mætli ég
honum suður í Borgarfirði, þar sem
hann var á ferð á vegum laxveiði-
manna lil að sprengja laxastiga í
fossa.^Og að því starfi hefir hann
unnið víða um land. Myndirnar í
„Veiðimanninum“ af Gullbráar-
fossi fyrir og eflir spreninguna sýna,
hvernig gera má lítt laxgenga fossa
að hinurn ákjósánlegustu laxfossum
og fá laxinn þannig til að ganga
lengra upp í árnar en hann hefir áð-
ur gert. Ég er enginn laxveiðimaður,
en ég þykist vita, 'að laxveiðar séu
spennandi íþrótt og sigurgleði veiði-
mannsins mikil, er hann fær vænan
lax. En mér þykir laxinn svo góður
réttur, að ég vil ekki láta villimink-
inn sitja einan að honum.“
NYKOMIÐ:
Almerískur barnafatnaður
Ullarsokkar kvenna
Leðurjakkar
Nærfatnaður kvenna
Treyjur og kápur
Verzl. Eyjafjörður lif.
Niðursuðuglös
Verzl. Eyjafjörður lif.
AÐALFUNDUR
Sambands íslenzkra
karlakóra.
var haldinn í Félagsheimili verzlun-
armanna Rvík, föstudaginn 29. júní
s. 1. Fundarstjóri var Björn E. Árna-
son, endurskoðandi.
Formaður samhandsins, Ágúst
Bjarnason, gaf skýrslu um störf
þess á liðnu starfsári. Höfðu 4 söng-
kennarar starfað meira og rninna á
veguin sambandsins, en þó hefir
hvergi nærri verið hægt að veita
eins mikla söngkennslu og æskilegt
hefði verið. Var það einróma ólit
fundarmanna, að þá fyrst yrði söng-
kennslumálinu komið í viðunandi
horf, er sambandið hefði 2 fastráðna
söngkennara, sem störfuðu allt árið.
Var framkvæmdaráði falið að reyna
ýmsar leiðir til úrhóta og einnig var
skorað á Tónlistarfélagið að ráða
söngkennara að Tónlistarskólanum
hið allra fyrsta.
Á fundinum var sámþykkt svo-
hljóðandi tillaga frá Söngmálaráði:
„Aðalfundur Sambands ís-
lenzkra karlakóra, haldinn 29.
júní 1945 samþykkir, að sam-
bandið gangist fyrir söngför
ca. 40 manna úrvalskarlakórs
til Norðurlanda á komandi
vori, cð’a síðar þegar óstæður
leyfa.
Skulu aðalmenn framkvæmda-
róðs og söngmálaráð annast
framkvæmdir sameiginlega á
þann hátt, sem ráðin koma sér
saman um. Heimilar fundur-
inn framkvæmdaráði sam-
handsins að verja til fararinn-
ar allt að kr. 10,000,00 úr
sjóði þess, auk þess sem ráð-
in fari þær aðrar fjáröflunar-
leiðir, sem færar þykja, til
þess að standasl straum af
kostnaði fararinnar.
Jón Halldórsson.
Ingirn. Arnason.
Garðar Þorsteinsson“.
Var mikill áhugi fyrir því, að úr
för þessari gæti orðið, og muu sam-
bandið leita fjórstuðnings ríkisins,
bæjarfélaga og einstaklinga, til þess
að það verði fært. Eiimig kom fram
á fundinum áskorun til allra sam-
bandskóra, að þeir héldu eina söng-
skemmtun lil ágóða fyrir utanfarar-
sjóð. Loks er svo ætlast til, að S. í.
K. verji fé til fararinnar úr sjóði
sínum og söngmenn þeir, sem för-
ina fara, borgi eitthvað úr eigin
vasa.
Áformað er að syngja a. m. k. í
höfuðborgum allra Norðurlanda og
er förin luigsuð sem vottur um bróð-
urþel íslendinga til frændþjóðanna.
Þegar Danmörk og Noregur urðu
aftur frjáls, sendi samhandið lands-
samböndum þeirra samfagnaðar-
skeyli, og haía borizt þakkir beggja
sambandanna.
í framkvæmdaráð sambandsins
voru kosnir:
Ágúst Bjarnason, formaður, end-
urkosinn, síra Garðar Þorsteinsson,
ritari og Árni Benediktsson, gjald-
keri. Meðstjórnendur: Guðmundur
Gissurarson, Hafnarfirði, sr. Páll
Sigurðsson, Bolungarvík, Þormóður
Eyjólfsson, Siglufirði og Jón Vig-
fússon, Seyðisfirði.
I söngmálaráð:
Jón Halldórsson, formaður, Ingi-
mundur Árnason og Sigurður Þórð-
arson.
KONA DRUKKNAR
I GÆRDAG fannst konulík
við innri hafnarbryggjuna, og
þar sem það var óstirðnað, voru
reyndar lífgunartilraunir; sem
báru þó ekki árangur. — Hin
drukknaða stúlka var gestur hér
í bænum, og vita rnenn ekki,
með hvaða hætti slysið hefir
orðið. Málið er í rannsókn.
PELSAR
nýkomnir.
Vandaðar tegundir
Verzl. B. LAXDAL.
Peysufatakápur
seldar á mánudag
Verzl. B. Laxdal.
HAGLASKOT
ennþó nokkuð óselt
Verzl. Eyjafjörður hf.
Tómatar
verða til sölu á morgun
(laugardag).
Verzl ESJA.
Húsnæði
2—4 herbergi og eldhús
óskast í haust fyrir barn-
laust fólk. — Upplýs-
ingar í síma 305.