Íslendingur - 26.07.1946, Side 3
Föstudaginn 26. júlí 1946
ÍSLENDINCUR
3
ÍSLENDINGUR
Ritstjóri og abyrgðarmaður:
MAGNÚS JÓNSSON.
Útgefandi: BlaSaútgáfufél. Akureyrar.
Skrifstofa Hafnaratr. 101. Sími 364.
Auglýsingar og afgreiðsla:
Svanberg Einarsson.
Pósthólf 118.
Landhelgin.
Engri þjóð er jafn mikilvægt
og Islendingum að hafa sem
stærsta landhelgi og geta varið
hana gegn ágengni erlendra íiski
manna. Fiskveiðarnár eru und-
irstaða efnahagslegrar velnteg-
unai' og sjálfstæðis íslerizku þjóð
arinriar, og verði fiskimiðin
kringunj landið eyðilögð, mun
verða æði þröngt fyrir dyrum
hjá oss.
Engin alþjóðasamþykkt er til
um stærð landhelginnar, og er
hún mjög mismunandi hjá hin-
unr ýmsu þjóðum. Hefir reyndin
orðið sú, að stórveldin hafa a-
kveðið landlielgi sína nokkuð
eftir eigin geðþólta, en smáþjóð-
irnar hafa á þessu sviði sem flest
um öðrum orðið að beygja sig
fyrir hinum stei'ka.
íslenzk landhelgi var áður
fjórar mílur, en í samningi þeim,
sem Danir gerðu við Englend-
inga árið 1901, var lanndhelgin
við ísland ákveðin 3 mílur.
Sýndu Danir þar litla um-
kyggju fyrir liag íslendinga
eins og á svo mörgum öðr-
um sviðum. Hafa Englendingar
ekki viljað falla frá þessari sam-
þykkt, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir Islendinga til þess að íá
fyrri rétt sinn viðurkenndan og
ónýtt hið svívjrðilega réttinda-
afsal Dana.
Vér höfum að sjálfsögðu ekki
þolmagn til að knýja fram rétt
vornAneð valdi eins og stórveld-
in, en vér verðum þá að leggja
því meira kapp á að verja hina
viðurkenndu landhelgi vora. Því
miður verður að segja það, að
landhelgisgæzlan hefir oftast ver
ið langi frá því að vera viðun-
andi, og íslenzk stjórnarvöld virð
ast naumast hafa gert sér það
ljóst, liversu mikið hagsmuna-
riiál þetta er fyrir íslenzka sjó-
ínenn og þjóðina í heild. Leikur
jafnvel grunur á því, að einum
varðskipsfoi ingja hafi verið vik
ið frá störfum, af því að hann
þótti of harðhentur við landhelg-
ishrjóta.
Undanfarin ár hefir það ekki
K°mið verulega að sök, þótt land
lielgiSgæzian væri slök, því að
engin erlend veiðiskip hafa ver-
ið þói' á íslandsmiðum. Nii eru
erlend fiskiskip aftur á rnóti tek-
hi 'að streyrna í stórþópum hing-
til lands, og fjöldi þeirra
stundar nú síldveiðar norð-
anlands. Vitað er, að land-
helgisgæzlan hér nyðra var
með fádæmum léleg í fyrra, og
á Siglufirði var löggæzlan svo
léleg, að erlend veiðiskip óðu
inn um allau fjörð og verkuðu
jafnvel veiði sína innan land-
helgi, rétt fyrir framan nefið á
yfirvöldunum. Vakli þessi slóða
háttur eðlilega feikna gremju
meðal íslenzkra sjómanna, og er
það réttfnæt krafa þeirra, að er-
lendum fiskimönnum leyfist ekki
að traðka þannig á réttindum
þeirra og sýna íslenzkum lög-
urn lítilsvirðingu.
Nú er unnið af kappi að stór-
felldri eflingu sjávarútvegsins.
Ræktun fiskistofnsiris hlýtur að
verða mikilvægasti þátturinn í
þeim framkvæmdum. Vér verð-
um að verja landhelgi vora með
oddi og egg og friða þannig
þann hluta klakst.öðvanna, sem
liggja innan landhelgiy Ríkis-
stjórnin verður þegar að hefjast
handa um víðtækar ráðstafanir
til þess að koma á fót öruggri
landhelgisgæzluy því að eins og
sakir standa, er gæzlan raunveru
lega engin. Það fé, sem lagl verð
ur í landhelgisgæzluna, mun
margfaldlega borga sig.
Heyrzt liafa raddir um það í
Bandaríkjunum, að rétt myndi
vera að miða landhelgi við land-
grunnið. Yrði sú regla viður-
kennd, myndi það verða oss ís-
lendingum til stórra hagsbóta.
Verðum vér að leggja allt kapp
á það að reyna að íá stórveldin
til þess að viðurkenna stærri land
helgi við Island en vér nú höf-
um. Með hlutdeild vorri í al-
þjóðlegri samvinnu, ætti oss að
reynast auðveldara en ella að fá
aðrar þjóðir til þess að viður-
kenna þessa rniklu hagsmuni
vora.
M.J.
Kappreiðar
Léttis.
Hestamannafólagið Léttir' efndi
til kappreiða sunnudaginn 14.
þ. m. á skeiðvelli félagsins við
Eyjafjarðará. Reyndir voru 18
hestar.
1 250 m. folahlaupi hlaut fyrstu
verðlaun Mósi, eigandi Stefán
Helgason, á 20,4 sek. Um önnur
og þriðju verðlaun var keppt til
úhslita, en hestarnir urðu jafnir
á 20,6 sek. — Þetta voru Sóði,
eigandi Bjarni' Kristinsson og
Kollur, eigandi Kristján Ólafs-
son.
í 300 m. stökki urðu jöfn
Fálki, eigandi Árni Magnússon
og Blesa, eigandi Ari Árnason,
á 24 sek. Fyrstu og öðrum verð-
launum var skipt á milli þeirra.
Þriðju verðlaun hlaut Stígandi,
eigandi Þórir Jónsson, á 24 sek.
Á 350 m. stökkspretti hlaut
fyrstu verðlaun Stjarna, eigandi
Bjarni Kristinsson, á 27,2 sek.
önnur verðlaun hlaut Gráni,
eigandi Magnús Aðalsteinsson,
Grund, á 27,4 sek., og þriðju
Grænmeti
þurrkað frá Dánmörku:
B e a u v a i s :
Rauðkál
Hvítkál
Gulrætur
Julieime
fyrirliggjandi í heildsölu
hjá
I. Brynjólfsson & Kvaran
Akureyri.
Gluggagler
ÞEIR, sem eiga ótekið glugga-
gler, pantaS lijá mér, eru beSn-
ir aS taka þaS sem íyrst.
Eggerf Sfefánsson.
kl. 2 e. b.
MessaS verSur ú Myrkd í Hörgárdal,
sujnnudaginn 4. ágúst kl. 1 e. b.
Sóknarprestur.
Horace L'eaf, brezkur sálarrannsóknar-
maSur og miSill, hélt fyriríestra í kapellu
Akureyrarkirkju sl. mánudags- og þriðju-
t
dagskvöld. Síra Friðrik J. Rafnar kynnti
fyrirlesarann, en frú Halldóra' Sigurjóns-
dóttir frá Reykjavík túlkaði. Kapellan var
þéttskipuð áheyrendúm bæði kvöldin.
Hjónavígslur. IJinn 5. júlí sl. voru gef-
in saman í hjónaband af vígslubiskup
FriSrik .1. Rafnar Pálína Magnúsdóttir og
Olafm- CuSmuftdsson, verkamaður. hér í
bæ.
Laugardaginn 6. þ. m. voru gefin saman
í hjónaband aS Möðruvöllum í Hörgárdal
ungfrú Hulda Stefánsdóttil' frá Spónsgerði
og Arnaldur GuSlaugsson bakari, Akur-
eyri. Einnig ungfrú María Jónsdóllir og
Gifnnar Kristjánsson, bæði á Gefjun, ‘Ak-
ureyri.
Hinn 13. þ. m. voru gefin saman í hjóna
band i Háskólakapellunni í Reykjavík ung
frú Eiuara Þyri Einarsdóttir, Rvík, og
Lárus Eggertssön eflirlitsmaSur (Stefáns-
sonar kaupinanns hér í bæ). BróSir brúð-
gumans, síra Stefán Eggerlsson á StaSar-
hrauni, framkvæmdi vígsluna.
Attatíu og jimm ára afmæli átti hinn 16.
þ. m. frú Valgerður Einarsdóttir frá Nesi
í HöfSahverfi, ekkja Vilhjálms Þorsteins-
sonar. IlöfSu þau hjónin um mörg ár bú
að Nesi við mesta myndarskap. ValgerSur
byr nú í Munkaþverárstræti 34 hér í bæn-
um, bjá dóttur sinni frú Sigurlaiigu og
tengdasyni, Sveini ÞórSarsyni.
Zíon. Samkoma næstkomandi sunnudag
kl. 8.30 e.h. -— Jóhannes SigurSsson, prent-
ari, lalar.
---------------------——-------,--------
verðlaun Stjarni, eigandi Þor-
valdur Pétursson. ,
Veðbanki var starfræktur J
sambaridi við keppnina.
Frá aðalfundi S. í S.
Aðalfundur SÍS var haldinn
að Blönduósi 4. til 6. júlí.
Kaupfélag Ilúnvelninga er á
þessu ári 50 ára, og var Blöndu-
ós valinn fundarstaður af þessu
tilefni.
. Á fundinum voru mættir alls
79 fulltrúar frá 47 sambandsfé-
lögum auk núverandi forstjóra
SIS og framkvæmdarstjórum á-
santl stjórn SÍS og fyrrverandi
forstjóra og framkvæmdarstjór-
um.
Stjórn Kaupfélags Húnvetn-
inga bauð öllum fundarmönnum
til kaffidrykkju að kvöldi föstu-
dags, og etmfremur var fundar-
mönnum boðið á afmælishátíða-
höld Kaupfélags Húnvetninga
laugardaginn 6. júlí.
Fyrrverandi forstjóri Sigurð-
ur Kristinsson, og þeir fram-
kvæmastjórarnir Jón Árnason og
Aðalsteinri Kristinsson, er allir
lélu af störfum um síðastliðin
áramót, lögðu fram skýrslur um
störf Sambandsins á árinu er
leið og jafnframt reikninga síð-
astliðins árs. Sýndu reikningar
Sambandsins rekstursafgang
1.409.363 krónpr. Samkvæmt
tillögu stjórnarinnar var sam-
þykkt, að þeirri upphæð allri
yrði varið til uppbótargreiðslu
lil félaganna í hlutfalli við við-
skiptamagn þeirra við Samhand-
ið, og gengi uppbótin öll inn ^
stofnsjóðsreikninga félaganna
við SÍS.
011 sala Sambandsins á síðast
liðnu ári nam 94 miljónum 647
þúsund krónum.
Sala Sambandsins var samtals
158 miljónir króna, og er það
144/2 miljón meira en árið áð-
ur.
Félagsmenn í Sambandsfélög-
unum voru í árslok 25.297, og
hafði þeim fjölgað um 2290 á
árinu.
Að loknum skýrslum og af-
greiðslu reikninga liðins árs var
íráfarandi forstjói'a og fram-
kvæmdarstjórum þakkað fyrir
öll þeirra miklu störf í þágu
samvinnufélaganna undanfarin
ár, og voru þeir Sig. Kristinsson,
Jón Árna-son og Aðalsteinn Krist
insson einróma kjörnir heiðurs-
félagar.
Vilhjálmur Þór flutti ýtarlega
og eftirtektarverða ræðu um
framlíðarstörf og fyrirætlanir
Samljandsins.
Ymsar ályktanir voru gerðar,
gem hér er ekki rúm til að rekja.
Þremur félögum var veitt inn-
ganga í Sambandið. Voru það:
Kaupfélag Hafnarfjarðar, Hafn-
arfirði, Kaupfélag Suðurnesja,
Keflavík, Kaupfélag Verka-
manna, Veslmannaeyjum, að upp
fylltu skilyrði.
Einar Árnason á Eyrarlandi
var endurkjörinri formaður Sam
bandsstjórnar. Varaformaður var
kosinn Eysteinn Jónsson.
Ur stjórn Sambandsins áttu
að þessu sinni að ganga Vil-
hjálmur Þór, forstj. og Þorsteinn
STifflugfélag Akureyrar
fær tveggja sæta
sTifflugu.
Með e. s. Empire Gallop þann
1. júní s. 1. kom hingað ný svif-
fluga, sem Svifflugfélag Akur-
eyrar hefir keypt frá Bandaríkj-
nnum. — Sviffluga þessi er af
Sweitcher-gerð, og hefir sæti fyr-
ir tvo menn, og eru stjórntæki
við bæði sæti ásamt fullkomnum
mælitækjum. Þá er í vélinni stutt
bylgju-sendi- og móttökutæki,
þannig að ílugmennirnir geta
haft samband við flugvöllinn,
meðan á fluginu stendur. Ilægt
er að taka vængina af á 10—15
mínútum, og fylgir vélinni vagn,
svo að auðvelt er að flytja hana,
þó hún lendi úti á landi að loknu
langflugi. Vél þessi mun félag-
ið nota til framhaldsnáms í svif-
flugi. Það hefir hingað til aðeins
átt eina renniflugu fyrir byrj-
endur, og hafa all-margir félag-
ar lokið náfni á hana og sumir
fyrir all-löngu síðan.
Félagið hefir nú í smíðum
vindu til að draga upp svifflug-
ur, og verður vindan drifin með
300 ha. flugvélahreyfli, og mun
með vindu þessari vera hægt að
skjóta svifflugunum upp í 600
til 700 metra hæð, en í þeirri
hæð er tiltölulega auðvelt að
notfæra sér uppstreymi til frek-
ara flugs.
Svifflugfélag Akureyrar, sem
var stofnað 1937, telur nú 32
virka meðlimi, muk all-margra
styrktarfélaga. í félaginu hafa
verið tekin þessi próf í svifflugi:
16 A-próf, 11 B-próf og 3 C-
próf.
Á síðastliðnu ári keypti félag
ið tvo hermannaskála, og er ann-
ar við Akureyri og innréttaður
fyrir smíðaverkstæði og fundar-
stofu. Hinn skálinn er á Mel-
gerðismelum, þar sem æfingar
félagsins fara fram, og er hann
notaðul' til íbúðar nemenda og
geymslu flugtækja.
Á síðastliðnu ári fékk félagið
eina vörubifreið auk annarrar,
sem það hafði eignazt áður. Bif-
reiðar þessar eru notaðar við
flugæfingarnar.
Stjórn félagsins skipa:
Gísli Ólafsson,
Karl Magnússon,
Guðrún Þórhallsdúttir,
Ágúst Ólafsson,
Sigurður Þórðarson.
Jónsson, kaupfélagsstj. á Reyð-
arfirði. Kosnir voru Þorsteinn
Jónsson og Jakob Frímannsson,
kaupfélagsstj. Akureyri. í fund-
arlok flutti formaður Sambands-
ins Kaupfélagi Húnvetninga
þakkir fyrir ágætan aðbún-
að við fundinn. Jafn-
framt árnaði hann Kaupfél.
Húnvetninga allra heilla í til-
efni hálfrar aldar afmælis þess.
Risu fundarmenn úr sætum og
hylltu félagið.