Íslendingur - 30.08.1946, Síða 4
4
Kirkjan. Messað ú Akureyri næstkom-
andi sunnudag /kl. 2 e. h.
Sjötugur varð sl. |niðjudag Jón Aust-
fjörS, trésmiður, Eyrariandsveg 12 hér í
bænum.
Aheil á Strandarkirkju kr. 50.00 frá G.
G. Mótt. á agfr. lslendings.
Dansleikur verSur í Naustaborgum ri.k.
laugardagskvöld og hefst kl. 10. Kaffi og
aSrar veilingar á staðnum. GóS músik.
Hjónaejni. 17. ágúsl 'sl. opinberuSu trú-
lofun sína ungfrú Cerda Versteegn og
Sigvaldi E. S. Sigvaldason, slarfsmaSur
við sendiráS íslands í Stokkhólmi.
Ij.júnaej_ni. Nýlega opinberuSu trúlofun
sína ungfrú Krislín Aspar, Akureyrj, dg
Ingólfur II. Filipusson, bílaviSgerSar-
maSur, Reykjavík.
Hjúskapur. Föstudaginn 23. þ. m. voru
ggfin saman .í hjónaband í Olafsfirði af
síra Ingólfi Þorvaldssyni língfrú Sigrún
Júlíusdóttir úr Rvík og Magnús Árnason,
stud. jur., OlafsfirSi.
Nýkomnar eru tvær bækur frá bóka-
forlagi Pálma H. Jónssonar. Er iinnur eft-
ir hinn/kunna rithöfund John Steinbeck
og heitir „Litli rauóur" í þýSingu Jópasar
Kristjánssonar. Ilin bókin heitir „Pólsk
bylting“ eftir skáldkonúna Mariku Stiern-
stedl. Sú bók er þýdd af Gunnari Bene-
diktssyni.
RottuherjerS. Bæjarstjórn mun hafa í
undirbúningi aS segja rottunum í bænum
stríð á hendur, og er )iað vel fariS.
Glerárjjorp. í ráði er að sameina Gler-
árþorp Akureyrarbæ, enda er þaS eSlilegt,
vegna legu þorpsins. Ekki hefir þó enn
verið endanlega gengiS frá þessu máli.
Skjaldborgarhíó sýnir á næstunni kvik-
myndina „Þess bera menn sár“. Fjallar
hún um ævi vændiskonunnar Maju og er
álakanleg en skýr mynd af ævi liinna ó-
gæfusömu gleðikvenna. Efni myndarinnar
er því mjög rftirtrklarvrrl. en þar sem
vér höfum ekki enn séS myndina, verður
ekki dæmt urn meSferð hlutverkanna og
tæknina í myndinni. Myndin er dönsk.
Gjajir og áheit til Hríseyjarkirkju áriS
1946: Margrét Gísladóttir kr. 50.00, Sigtr.
Brynjólfsson og Sigrún Pálsdóttur kr.
50.00, Ónefndur kr. 5.00, SjómaSur kr.
20.00, Hjón kr. 200.00, gjöf frá N. N. kr.
100.00. Samtals kr. 425.00. — Kærar þakk-
ir. — Sóknarnefndin.
Þ'ann 20. þ. m. andaðist aS heimili sínu
í llrísey Jóhannes Jörundsson, fyrrv. hafn-
sögumaSur. Valinkunnur sæmdarmaSur.
1 grein um Vestur-íslendingana í síðasta
blaði misprentaðist- nafn frú Ragnhildar
Ásgeirsdóttur. StóS í greininni Ragnheið-
ur í staðinn fyrir Ragnhilddr.
Verkakvennajél. Eining, Ak., hefir ný-
Jega skipað eftirtaldar konur, sem trúnað-
armenn á sláturhúsi KEA í hausl, þær
HeiSrúnu Steingrxmsdóttur, Ránargötu 1,
og Sigríði Ingólfsdóttur, Hríseyjárgötu 8,
til vara.
Firmakeppni Golfklúbbs Aktireyrar hefst
eftir næstu helgi. Þátttiikugjald fyrir firina
er 200 kr. Undirbúningur að keppni þess-
ari er nú hafinn og hafa mörg firmu þeg-
ar lofað þátttöku sinni. — Ef liins vegar
væru einhver* fyrirtæki, sem styðja vildu
klúbbinn meS þátttöku, en ekki hefir náðst
til, eru forstjórar þeirra góðfúslega beSnir
aS hafa tal af ÞórSi Sveinssyni, verzl.
Liverpool, eða Finnboga Jónssyni, póst-
stofunni, fyrir laugardagskvöld.
„Katdbakur” hleypur at stokkunum
Eins og skýrt hefir verið frá hér í hlaðinu, var togara Akureyrarbæjar lileypt af
stokkunum í Selby í Englandi |>ann 30. jtiií Fór atliöfn þessi hátíðlega fram og tókst fram-
setning skipsins ágætlega. Skipasmíðastöðin Cochrane & Sons smíðar skipið, og efndu eig-
endur hennar til veglegrar skírnarveizlu við. þetta tækifæri. Mr. Cochrane hélt aðalræðuna
og aflienti frú Ingibjörgu Magnússon, sem skírði skipið, fagran áletraðan silfurhakka til
minningar um atliöfnina. Sigursteinn Magnússon svaraði ræðu Mr. Cochrane og óskaði, að
skipið gæti orðið til þess að hæta hag Akureyr inga. — Myndin hér að ofan er af hinum nýja
togara, er hann hljóp af stokkunum.
Hátíðleg sainkoma að Hólum
#
Hin árlega kirkjuhátíð að Hólum
var haldin sl. sunnudag. Hófst há-
tíðin með guðsþjónustu kl. 2 og pré-
dikaði séra Helgi Konráðsson, en
séra Friðrib Rafnar og séra Gunnar
Gíslason, þjónuðu fyrir allari. Sam-
einaSir kirkjukórar ReynistaSar- og
Glaumbæjarsóknar undir stjórn Jóns
Björnssonar sungu við messuna.
Pétur Sigurgeirsson, cand. theol.,
flutti síðan erindi um kirkjulíf í
Bandaríkj unum. Vestur- íslendingarn
ir voru heiðursgestir á samkomunni,
og ávarpaði Sigurður Sigurðsson,
sýslumaður, Jiá sérstaklega, en séra
Guðbrandur Björnsson afhenti þeim
að gjöf mynd af HólastaS. Grettir
Jófiannsson, Einar Páll Jónsson, Stef
án Einarsson og frú Laila Jóhanns-
son flutlu stult ávörp. Fjölmenni var
og veður ágætt.
Fyrsti langferðarbíllinn yfir
Siglufjarðarskarð
UM síðustu helgi fór Baldvin Krist-
insson á SauSárkróki í langferðabif-
reið yfir SiglufjarðarskarS. Er þetta
í fyrsta sinn, sem slór bifreið fer alla
leið yfir skarðið. Ekki komst Jió bif-
reiðin bjálparlaust alla leiðina, ett
var dregin af jarSýtu þá 600 metra,
sem enn eru ólagðir af veginum. —
Baldvin*var einnig fyrsti maðurinn,
sem fór yfir skarðið í bifreið. Var
JiaS áriS 1938.
Skátamótið
Framhald af 1. síu.
5.000 hótel í borginni. Þar er
einnig stærsti danssalur í Eng-
landi. Rúmar hann um 3.000
manns.
íslenzku skátarnir ferðuðust
báðar leiðir með togaranum
Tryggva gamla, og sýndi út-
gerðarfélagið þeim mikla vel-
vild.
ÍSLENDINRUR
Enginn mælir gegn
uppiðku Islands í U.N.O
NEFND sú, sem hefir haft til með-
ferðar upptökubeiðnir 9 þjóða í
bandalag sameinuðu þjóðanna, hef-
ir nú skilað áliti. Leggur rtefndin ein
róma til, að inntö'iubeiðni Islands
verði samjxykkt. Mæltu fulltrúar
Bandaríkjamanna og Breta fast með
inntökubeiðni íslands og fóru viður-
kenningarorðum um lýðræðisást ís-
lenzku JxjóSarinnar og þann mikla
skerf, sem ísland hefði lagt fram í
baráttunni um AtlantshafiS. Orygg-
isráðið fær nú inntökubeiðnirnar til
meSferðar.
/s/andsförin
Framhald af 3. síðu.
reynt að balda uppi vestra og nauð-
synlegt væri að fá kvikmyndir frá
íslandi til þess að kynna yngstu kyn-
slóðinni land og þjóð.
Söng'iir og balletdans
„Eggert Stefánsson, söngvari,
sagði einhverju sinni við mig, að
lífið ætti ekki að vera annað en sÖng
ur dg balletdans,“ sagði Stefán Ein-
arsson að lokum. „Og þannig hefir
það verið hjá okkur, síðan við kom-
um hingað til lands. Allir
bafa borið okkur á höndum sér, og
förin til ættjarðarinnar mun verða
okkur ógleymanleg og um leið ómet-
anleg bvatning i starfi okkar.“
Islenzku blöðin í Vesturheimi
vinna ómetanlegt gagn við að vérnda
íslenzka tungu og menningu meðal
Islendinga vestra. Núverandi ritstjór
ar þessara blaða eru logandi af á-
huga á þessu mikilvæga hlutverki,
og Jxeir eiga það visulega skilið, að
JjjóSin leggi sig fram um að gera
þeim dvölina hér heima sem ánægju-
legasta.
AÐVÖKUN
Allir þeír búsettir á íslandi, sem
öðlast hafa amerísk ríkisborgararétt-
indi eru beðnir að setja sig í sam-
band við RæSismannsdeild Ameríska
SendiráSsins, þar sem gengið verður
úr skugga um ÞjóðréttarstöSu þeirra
samkvæmt „Lögum um Þjóðerni“
frá 1940. Þar eð Þjóðþingi Banda-
ríkjanna var nýlega slitið án þess, aS
frestaS væri lengur framkvæmd 404.
greirtar þessara laga geta sumir
þeirra, sem öðlast hafa Amerísk rík-
isborgararéttindi, misst þau nema
þeir komi aftur til Bandaríkjanna
fyrir 13. október þessa árs.
Það er mjög áríðandi að allir, sem
öðlast hafa Amerísk ríkisborgara-
réttindi setji sig strax í samband við
RæSismannsdeild SendiráSsins.
(Frá sendiráði Bandaríkjanna).
NÝKOMIÐ:
Flónel
margar gerðir og litir
Taff, 5 litir
Leistar,
margir litir
Léreft
Silkisokkar
Baðmullarsokkar
og margt fleira.
Verzi. Londott
Eyþór H. Tómasson.
Föstudaginn 30. ágúst 1946
Dantr alltal sjálfum
sér Ifklr.
ÞEGAR fimleikaflokkur Vign
is Andréssonar sýndi leikfimi í
Kaupmannahöfn í júnímánuði í
sumar, birti Aftenblaðet eftir-
farandi dóm um fimleikasýning
una:
„Inngangurinn að sýningu ís-
lenzka fimleikaflokksins í „Her-
mes“ í gær. — Salurinn var há-
tíðlegur — þjóðsöngvar og vel
valin ávappsorð hins nýja for-
manns danska leikfimisam-
bandsins. En þá var líka búið
með allan hátíðabrag, því að
Islendingarnir höfðu ekki lokk-
að sérlega marga áhorfendur
inn í húsið, og leikfimi þeirra
var alls ekki eins og menn
höfðu búizt við.
Þeir skulu ekki verða gagn-
rýndir hér -— enda þótt manni
hefði verið gefið í skyn, að þeir
væru snillingar í þeirri leikfimi,
sem þeir ætluðu að sýna. Leik-
fimin — jafnvel undirstöðuat-
riðin — eru alveg ný fyrir þeim,
og hinar röngu fimleikaaðferðir
benda naumast til þess, að kenn
arinn, Vignir Andrésson, hafi
fengið menntun sína í leikfimi-
háskólanum í Ollerup.
Gætu Danir hins vegar hjálp-
að Islendingum til þess að ná
einhverjum árangri, þá hefði
sýningin í gærkvöldi ekki verið
. gagnslaus.“
Það er út af fyrir sig auðvit-
að ekkert við því að segja að fá
gagnrýni, en ummæli þessa
danska blaðs eru full af furðu-
legri illkvittni. Þau gera íþrótta
mönnunum, sem í hlut eiga, ekk
ert til, og eru birt aðeins til
gamans, en ekki til þess að ala
á neinum Danafjandskap. Is-
lendingar munu ekki láta það
raska sálarró sinni, þótt dönsk
blöð óskapist og reyni að sverta
Islendinga í augum dönsku þjóð
arinnar. Sú afstaða er þeim
sjálfum til mestrar háðungar.
*jfi» •
/ tl
Umferðanefnd skilar áliti
í VOR skipaði bæjarstjórn Akur-
eyrar nefnd til þess aS gera tillögur
varSandi umferSamál bæjarins. Hef-
ir nefnd þessi nú skilaS áliti í all-
mörgum liSuru, og eru tillögur henn-
ar margvíslegar. Eru margar þessar
tillögur eftirtektarverSar, og mun
síSar verSa nánar frá þeim skýrt.
TILKYNNING
Hér með tilkynnist öllum hlutaðeigendum, að
slátrun alls sauðfjár og geitfjár á fyrirhuguðu fjár-
skiptasvæði í Eyjafjarðarsýslu og á Akureyri á sam-
kvæmt ákvörðun sauðfjársjúkdómanefndar að vera
lokið 20. september n. k. bæði í sláturhúsum og til
heimanotkunar.
Bæjarfógetinn á Akureyri og sýslumaður
Eyjafjarðarsýslu 26. ágúst 1946.