Íslendingur - 01.10.1947, Blaðsíða 8
Framhaldsaðalfundur
Vélbátatr. Eyjafjarðar verður haldinn í
samkomuhúsinu Skjaldborg á Akureyri
föstudaginii 10. okt. n. k. og hefst kl. 2 e. li.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnarkosning.
Fastlega skorað á félagsmenn að mæta.
Miðvikudaginn 1. október 1947
TIL SÖLU:
Stór bókaskápur og bækur, útvarpstæki,
útvarpsgrammófónn (pic-up), bljómplötur,
lítið slitnar (sígild tónlist og danslög, ca.
100 plötur), armstóll, dívan, ný skíði og
eitthvað af fötum, þ. á. m. smoking, til sýnis
og sölu í BREKKUGÖTU 14 (uppi) kl. 5-7
I. 0. O. F. — 1291038Mi. '
Kirkján. Vegna óvæntrar fjarveru sókn-
arprestsins fellur messa niður á sunnu-
daginn kemur.
Sjötugur varð í fyrradag lijarni Bene-
diktsson, póstafgreiðslumaður a Húsavík.
KristniboSsjélag kvenna, Akureyri, hef-
ir bazar og kaffisölu í Zíon föstudaginn 3.
okt. kl. 3 e. h. Styðjið starfið! Drekkið
síðdegiskaffið í Zíon!
Bridgejélag Akureyrar hefir hafið starf-
semi sína og verða spilafundir framvegis
á þriðjudagskvöldum á Gildaskála KEA.
Frk. Sejdal kristniboði talar á sam-
komu í Zíon n. k. sunnudag kl. 8.30. Allir
velkomnir.
Kvenjélagið Hlíf biður blaðið að ílytja
bæjarbúum' beztu þakkir fyrir góðar und-
irtektir og gjafir á hlutaveltu félagsins,
sem haldin var til ágóða fyrir barnaheim-
ifissjóð þess.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Föstud. 3.
okt. kl. 8.30 opinber samkoma. Kapteinn
Driveklepp og Guðfinna Jóhannesdóttir
syngja og' spila. Sunnud. 5. okt. kl. 11
helgunarsa'mkoma. Kl. 2 sunnudagaskóli.
KI. 8.30 hjálpræðissamkoma. Kapteinn
Driveklepp og Guðfinna stjórna. Allir
hjaítanlega velkomnir.
Karlakór Akureyrar. Söngæfing í kvöld
á venjulégum stað og tíma. Mætið stund-
víslega.
Gagnfrœðaskólinn verður settur kl. 2 í
dag.
Kaldbokur. Framkvæmdastjóri Kald-
baks, Guðmundur Guðmundsson, skýrir
blaðinu svo frá, að sala togarans hafi í
síðasta blaði verið tilgreind 100 þúsund
kr. of lág. Samtals hefir því togarinn selt
fyrir kr. 1.472.381.00. Er blaðinu mjög
ijúft að leiðrétta þetta.
Kvennadeild Slysavarnarfélagsins lteld-
ur skemmtifund f Samkotnuhúsi bæjarins
föstud. 3. okt. kl. 9 síðd. Skemmtiatriði:
Kvikmynd, kórsöngur og dans. Deildarkon
ur mætið allar og takið utanfélagskonur
með. Stjórnin.
Til barna og unglinga. Sunnudagaskóli
Fíladelfíu-safnaðarins verður settur
sunnudaginn 5. okt. kl. 1.30 e. h. í Verzl-
unarmannahúsinu, Gránufélagsgötu 9
(á neðri hæð). Oll börn hjartanlega vel-
komin. Saumafundir fyrir ungar stúlkur
byrja miðvikudaginn 8. okt. kl. 8 e. h. á
sama stað. Allar, stúlkur 7 ára og eldri,
hjartanlega velkomnar. Fíladelfía.
Rottueyðing. Heilbrigðisfuilltrúi hefir
tjáð blaðinu, að sérstakur maður hafi
verið ráðinn til þggs að eitra fyrir rottur,
þar sem þeirra kunni að verða vart, því
að þrátt fyrir rottueyðinguna í sumar má
gera ráð fyrir, að eitthvað sé lifandi af
rottiim: Kveður heilbrigðisfulltrúi allt
kapp verða lagt á það, að gjöreyða rott-
unum og eru það því tilmæli hans til
allra þeirra bæjarbúa, sem varir verða við
rottur, að gera honum aðvart í síma 196.
Rannsóknir vísindamanna víða
um heim benda til rnikilvægra
loftsiagsbreytinga
Danska blaðið „Berlingske Tidinde“ birti fyrir skömmu við-
tal við skriðjöklafræðfcnginn Börge Fristrup, sem var einn í ranm-
sóknarleiðangri Knuth greifa í Norðurhöfum í sumar, er nefndur
var Pearyland leiðangurinn. Gerði hann mælingar á skriðjökíum
í Græalandi norðar en nokkru shmi áður hefir verið gert. Hann
segir augljóst, að loftslagið á norðurhvelinu hafi breytzt mikið' og
sjáist það því greinilegar sem lengra dragi norður. Margt bendi
til þsss, að loftlagsbreyting þessi nái yfir alla jörðina.
Fristrup segir, að jöklarnir
bráðni nú nokkrum vikum fyrr
en venjulega í Peary-landi, en
því miður sé ekki hægt að kom-
ast að raun um, hversu jökl-
arnir hafi minnkað, því að til
þess skorti samanburð frá fyrri
tímum. Til samanburðar megi
þó geta þess, að Kobnekaese-
skriðjökullinn í Svíþjóð hafi
stytzt um 175 km. Snjókoma er
nú lítil í Norður-Grænlandi, og
var hún naumast teljandi í
sumar.
Vötn þorna í Afríku.
Þá kveður Fristrup ýms dæmi
vera til þess i Afríku, að vötn
hafi þornað upp, og rannsóknir,
sem nú séu gerðar í Suður-
Ameríku, gefi svipaða niður-
stöðu.
Aðspurður um orsök þessarar
þróunar, segir Fristrup: „Ýms-
ar hugmyndir hafa komið fram
um þetta, en þótt maður telji t.
d., að það muni stafa af breytt-
um straumum í loftinu, vaknar
bara sú spurning, hvers vegna
þær straumbreytingar hafi orð-
ið, og því er ekki hægt að svara.
En hægt er að fullyrða, að Golf
straumurinn, sem fyrst og
fremst kemur til greina, þegar
um loftlagsbreytingar er að
ræða, á ekki nokkurn þátt í
þeirri breytingu, sem nú er að
verða.“
Breytingin hófst eftir 1920,
en ekki hefir verið hægt að full -
yrða neitt um hana fyrr en nú,
enda hefir reynslan sýnt, að allt
getur aftur fallið í sama farið.
Þýðíng loftlagsbreytingar.
Um þýðingu þessarar breyt-
ingar segir Fristrup:
— Á Grænlandi munu skap-
ast ný tækifæri til rannsókna,
og á sviði efnahagsmálanna má
þegar benda á þá staðreynd, ao
heimskautaþorskurinn gengur
nú. alveg upp að ströndinni. Þá
mun breytingin valda því, að
Rússar munu nú næsturn hvert
sumar geta siglt með norður-
í.trönd Asíu. Almennt munu svo
skógar og korn vaxa á norðlæg-
ari breiddargráðum en áður.
Dýrafræðingurinn Palle John
sen, sem einnig var með í leio-
angri Knuths, greifa, kornst svo
að orði:
— ÞaÖ, sem einkum vakti at-
hygli mína, var mergðin af
moskitoflugum í Pearylandi,
er minnti mann á hitabeltislönd
in, en til allrar hamingju velaur
þó stunga moskitoflugunnar
grænlenzku ekki sjúkdómum,
en það úði og grúði af þeim, svo
að maður var stundum svartur
í framan af þessum mývargi.
Þá get ég einnig getið þeirrar
undraverðu staðreyndar, að
bleikja lifir í ánum í Pearyland,
Eldgos.
Jarðfræðingurinn Johannes
Troelsen, segir um ’eldfjöli á
Grænlandi (sem ekki eru nafn-
greind), að enginn vafi sé á því,
að þau hafi gosið í vor. Telur
hann, að þar muni vera gos á
hverju vori, þegar vatnið frá
bráðnandi ísum tekur að renna
niður um sprungur f jallsins, og
virðist helzt sem gos þessi séu
aðallega brennisteinsgufur.
Leiðangur Knuth greifa kom
við hér á Akureyri á leið sinn'
til Grænlands í sumar.
Frumbækur
nýkomnar
Bókaverzl. E D D A
Skömmtunin
Framh. af 1. síðu.
að tilgreina vörutegund þá, sem beð-
ið er um, skv. flokkun og nr. í gild-
rtidi tollskrá.
Innflytjendur o§ fromleið-
endsí?.
Innflytjendur vara og innlendir
framleiðendur þurfa ekki að skila
sköinmtunarseðlum þeim, sem þeir
'íá hjá smásöluni til þess að fá leyfi
til innflutnings vara eða hráefna.
Hinsvegar fá þeir ekki neiriar vörur
tollafgreiddar nenia með leyfi J
skömmtunarskrifstofunnar. Þá verða j
þeir einnig að gera skrifstofunni ná- |
kvæm skil á mótteknum skömmtun- |
arseðlum frá smásölum og mega
enga vöru selja án þeirra.
Sérstakar reglur hafa verið s'ett-
ar um úthlutun iii veitingahúsa og
ber þeim að snúa sér til skömmtun-
arskrifstofu ríkisins.
Beitzsiriiskön'imfun.
Skömmlun á benzíni hefst cinnig
í dag. Hafa öll skrásett ökutæki rétt
lil að fá afhenía skömmtunarbók hjá
lögreglustj óra í því umdæmi, þar
sem þau eru skrásett.
Bifreiðarnar hafa verið flokkað-
ar nlður í /V- og B-ílokk, og eru fólks
flulningabifreiðar og mjólkurflutn-
ingabifreiðar í A-flokki. en vöru- j
|
flutningabifreiðar í B-flokki. Þess-
um tveint flokkum eru svo aflur
skipt þannig:
A-1 strætisvagnar
A-2 aðrir sérleyfisvagnar og
mj ólkurbifreiðar.
A-3 leigubifreiðar til mannflutn-
inga 4—6 manna
A-4 einkabifreiðar 4—6 manna
A-5 einkabifreiðar 2—4 manna
A-6 bifhjól
B-1 vörubifreiðar yfir 5 tonn
B-2 vörulrifreiðar 4—5 tonn
B-3 vörubifreiðar 3—4 tonn
B-4 vörubifreiðar 2—3 tonn
B-5 vörubifreiðar 1—2 tonn
B-6 vörubifreiðar %—1 tonn
B-7 vörubifreiðar (sendibifr.)
undir % tonn.
Mánaðarskanuntur íil þessara bif-
reiða er sem hér segir:
A-1 1800 Itr.
A-2 900 —
A-3 400 —
A-4 60 —
A-5 45 —
A-6 15 —
B-1 600 —
B-2 500 —
B-3 400 —
B-4 350 —
Ko::.núnistar veirja
iétrarmorð
Aðalleiðtogi búlgarska bœnda-
jlokksins, Petkov, var tekinn aj
líji fyrir nokkrum dögum, þrátt
jyrir eindregin mótmœli stjórna
Rretlands og Bandaríkjanna og
fjölmargra kunnra sljórnmálaleið
toga víðsvegar um heim. Með af-
löku þessa ötida barátlumanns
lýðrœðis og jrelsis, eru síð-
ustu leifar skoðanajrelsis og mann
réttinda ajnumdar í Búigaríu, og
haja Rússar lagt blessun sína yfir
þelta réltarmorð Dimitrovs, komm
úirstajoringja. Um allan hinn lýð-
rœðissinnaða heirn hefir jtessi al-
bu.rður vakið hrylling, en jajn-
jramt vakið jólk til meðvitundar
um jiað, hvcrskonar þjóðskipulag
kúgy.nar og einrœðis jtað er, sem
kcmmúnistar cru að berjasl jyr.
ir.
En íslenzku kommúnislarnir
haja ekki hneykslast yjir Jjessum
aðförum. Blöð þeirra tala ájram
um „framfarirnar“ í Austur-Ev-
rápu, og „Verkam.“ undrast jiað
enn, að „Isl.“ skuli ekki jalla jram
og dá þetta stjórnskipulag. Það
vœri jróðleg'. að vita, liversu marg.
:r Islcndingar verða til Jiess að
taka undir lojgjörð kommún.ista-
Iraðanna um jiau hermdarverk,
scm nú eru síjellt unnin í Austur-
Evrópulöndum.
B-5 200 —
B-6 100 —
B-7 45 —
A-fl. ökutæki fá skönmitunarbók
til þriggja mánaða, en B-fiokks hif-
reiðar lil eins mánaðar. Þá eru einn-
ig þau takmörk sett á afhendingu
skömmtunarbóka til vöi ubifreiða,
að þær fá ekki bók fyrir síðari mán-
uði, netna jafnframt séu lagðar fratn
vinnunótur um vínnu bifreiðarinnar
næsta mánuS á undan. Er öllurn
vinnuveiténdum og öðrúm, sem nota
vörubifreiðar, skyll að gefa slíkar
nótur.
Akstur bannoður.
Reglugerðin um notkun bifreiða
er allflókinn og ættu bifreiðastjórar
að kýnna sér hana. Allur mannflutn-
ingur með leigubifreiðum er bann-
aður á tímabilinu frá kl. 23 að kveldi
lil kl. 7 að morgni dag hvern, nema
um nauðsynlegan akstur sé að ræða,
bifreið sé t. d. að koma úr feröalagi
eða flytja sjúklinga eða í öðrum
nauðsynlegum akstri. Atvinnuinála-
ráðherra getur þó heimilaö tiltekinni
tölu bifreiða næturakstur á hverjum
stað. Allar þessar bifreiöar verða að
hafa sérstaka eiukennismiða, stimpl-
aða af lögreglustjóra.
Brot gegri fyrirmælunum um öku-
bann og einkenni varða 500 kr. sekl-
um í fyrsta sinn, en síðan stighækk-
andi sektum, ef brot er ítrekað.