Íslendingur - 08.02.1950, Qupperneq 1
XXXVI. árg.
MiSvikudaginn 8. febrúar 1950
8. tbl.
Reisa þarf hið fyrsta 5 kw. endur
varpsstöð á Akureyri.
r~
A það hefir verið bent á opinber- loftneti útvarpsnotenda, og
um vettvangi, síðast í vikublaðinu
„Degi“ að reisa þyrfti endurvarps-
stöð í nágrenni Akureyrar til þess
að draga úr truflunum og bæta hlust
unarskilyrðin. MeðaL útvarpshlust-
enda á Akureyri hefir gætt vaxandi
óánægju, þar sem oft og tiðum hefir
verið næstum ógerlegt að heyra til
Reykjavíkurstöðvarinnar. Til við-
gerðarstofu Ríkisútvarpsins á Akur-
eyri munu hvað eftir annað hafa
borizt kvartanir, en forstöðumenn
hennar af eðlilegum ástæðum ekki
getað ráðið bót á ástandinu, þrátt
fyrir góðan vilja.
Til þess að fá frekari upplýsingar
um málið og vitneskju um það,
hvaða ráðstafanir Ríkisútvarpið
hefði á prjónunum til úrbóta hefi ég
leilað álits forstjóra og yfirverk-
fræðings Rikisútvarpsins.
Sem svar við málaleitan minni
hefir mér borizt eftirfarandi greinar-
gerð frá yfirverkfræðingnum:
„Samkvæmt beiðni yðar leyfi ég
mér að skýra yöur frá helztu ástæð-
unum fyrir því, að nauðsynlegt hef-
ir veriö talið að reisa 5 kilowatta
endurvarpsstöð í grennd við Akur-
eyri.
1. Styrkur útvarpsins á Akureyri
er langt fyrir neðan það lágmark, er
nýtur alþjóðarverndar gegn truflun-
urn frá erlendum stöðvum.
2. Styrkurinn er þar langt fyrir
neðan það gildi, sem erlendis er tal-
ið lágmark í iðnaðarbæjum vegna
óhjákvæmilegra truflana frá rafvél-
um, örðugleika á að korna fyrir góð-
um útiloftnetjum o. fl.
3. Styrkurinn fra útvarpsstöðinni
í Reykjavík er sérstaklega lágur á
Akureyri og yfirleitt í Eyjafirði
sunnanverðum vegna landslags, sem
bylgjurnar fara yfir á þeirri leið.
Þannig þyrfti útvarpsslöðin í
Reykjavík að vera hér um bil sex
sinnum afhneiri lil þesa að gefa
saiya styrk á Akureyri og hann er
nú á Siglufirði.
Þessi atriði skulu nú skýrð nokkru
nánar.
Á síðustu ráðstefnu um öldulengd-
ir fyrir útvarp, sem haldin var í
Kaupmannahöfn 1948 var svo ákveð-
ið, að eðlilegt langdrægi stöðvar
skyldi miðað við vissan lágmarks-
styrk útvarpsbylgnanna hjá viðtöku-
skyldu
þær fá viðunandi vernd gegn trufl-
unum frá öðrum s öðvum á sömu
eða nálægri öldulengd aðeins innan
þeirrar fjarlægðar frá stöðinni, sem
svarar til nefnds lágmarks. Útvarps-
stöðin í Reykjavík liefir (með 100
Kw. orku) slíkt lágmark í Skagafirði
vestanverðum og í Mýrdal vestan-
verðum. Eðlilegt langdrægi hennar
telst ekki lengra, í áöurnefndum
skilningi, og mega því erlendar
stöðvar valda truflunum þar fyrir
norðan og austan.
Samkvæmt sömu ályktun áður-
nefndrar ráðs'efnu ætti ekki að
reikna með, að núverandi Eiðastöð
dragi truflanalaust lengra en tæplega
til SiglufjarÖar.
Stór hluti landsins er þannig utan
fullrar verndar gegn erlendum stöðv-
um á lögmæltum öldulengdum og
með orku, sem þeim er leyfð, og
mætti því gera ráð fyrir að sum
svæði yrðu stundum alveg ofurseld
truflunum frá erle'ndum stöðvum,
þegar þær hafa aukið orku sína svo,
sem þær eru nú að undirbúa.
Til þess að vinna á móT þessari
þróun, hefir Ríkisútvarpið áformað
að auka styrkinn hjá hlustendum
með því: 1) að reisa mun aflmeiri
(5 kw.) endurvarpsstöð á Eiðum,
2) að flytja núverandi stöð (1 kw.)
frá Eiöum til Hornafjaröar, og 3)
að reisa nýja 5 kw. endurvarpsstöð
í grennd við Akureyri.
Á síðasta ári fékkst leyfi til kaupa
á nýrri stöð fyrir Eiöa og verður
hún sett upp á næsta sumri, en enn-
þá hefir ekki fengizt leyfi fyrir Ak-
ureyrarstöðinni. Afhendingarfrestur
svona stöðvar er 1Y2 ár.
Ríkisútvarpið gerir sér vonir um
að geta náð svipuðum samningum
við Marconifélagið í London um
kaup á þessari stöð og fengust um
Eiðastöðina, þ.e. 5 ára gjaldfrest á
% hlutum kaupverðsins með 3%
vöxtum. Gjaldeyrisþörfin fyrir Ak-
ureyrarstöðina hefir verið áætluð
kr. 460.000.00, með senditækjum,
mastri, lofmeti, jarðneli, viðtækj-
um, símastrengjum og rafstrengjum.
Virðingarfyllst,
G Briem
sign.
yfirverkfræðingur.“
Af þessari greinargerð yfirverk-
fræðingsins er Ijóst, að bót veröur
ekki ráðin á ástandinu nema með
byggingu endurvarpsstöðvar. Þar
sem afhendingarfrestur á tækjum til
slíkrar stöðvar er eitt og hálft ár er
nauðsyn að hraða framkvæmdum
sem mest. Þess ber og sérstaklega að
gæta, að hlustunarskilyrði munu
versna á Akureyri eftir því sem raf-
magns- og vélanotkun eykst í bæn-
FJARHAGSHLIÐIN.
Samkvæmt lögum og reglugerð
um útvarpsrekstur rikisins mun það
vera á valdi útvarpsstjóra og þess
ráöherra, sem með útvarpsmálefni
fer, hvort fé fæst til slíkra fram-
kvæmda, sem hér er um að ræða.
Samkvæmt 65. gr. reglugeröar um
úlvarpsrekstur ríkisins er útvarps-
stjóra heimilt, að fengnu samþykki
menntamálaráðherra að leggja í
sérstakan sjóð tekjuafgang, sem
verða kann á rekstri Ríkisútvarpsins
og starfsdeilda þess. Úr þeim sjóði,
sem nefnist Framkvæmdasjóður Rík-
isútvarpsins, skal veita fé til þess að
standa straum af verklegum fram-
kvæmdum stofnunarinnar. Að und-
anförnu hefir verið mikill tekjuaf-
gangur af rekstri Ríkisútvarpsins svo
ekki ætti að þurfa að standa á fé til
þeirra framkvæmda, sem forráða-
menn Ríkisútvarpsins telja nauðsyn-
legar til þess að stofnunin geti gegnt
því hlutverki, sem henni er ætlað.
LEITAÐ TIL FJÁRHAGSRÁÐS.
Jónas Þorbergsson, útvarpsstjóri,
hefir nú sótt um heimild Fjárhags-
ráðs til þess að mega festa kaup á
vélum til endurvarpsstöðvar á Akur-
eyri. Er gert ráð fyrir því í umsókn-
inni, að samkomulag náist við Mar-
conifélagið um að greiða við pönt-
un Yg kaupverðsins eða kr. 130.-
000.00 en eftirstöðvarnar verði
greiddar á næstu fimm árum. Þess
er að vænta að Fjárhagsráð bregð-
ist vel við svo unnt verði að hefja
framkvæmdir á næsta ári.
Það ber að þakka útvarpsstjóra
þann skilning, sem liann hefir sýnt
hagsmunum útvarpshlustenda á
Noröurlandi með framkomu sinni í
máli þessu.
Jónas G. Rafnar.
r
\
Kosnin
bæjarstjórn.
STEINN STEINSEN kjörinn bæjarstjóri.
Þorsteinn M. Xónsson forseti bæjarstjórnar.
Hin nýja bæjarstjórn hélt fyrsta
fund sinn í gær. Fór þar fram kosn-
ing bæjarstjórá, forseta og fastra
nefnda bæjarstjórnar. Allir aðalfull-
trúar bæjarstjórnar mættu, og áheyr-
endabekkir voru þéltskipaðir.
Steinn Steinsen bæjarstjóri setti
fundinn og kvaddi til fundarstjórnar
aldursforseta bæjarstjórnar, Þorst.
M. Jónsson, þar til forseti bæjar-
stjórnar hefði verið kjörinn, en sú
kosning var fyrsta mál fundarins.
Samkv. tillögu frá Helga Pálssyni
voru nú kjörnir tveir varaforsetar.
Forseti var kjörinn Þorsteinn M.
Jónsson með 9 alkvæðum, 1. vara-
forseti Sverrir Ragnars og 2. vara-
forseti Steindór Steindórsson, báðir
með 9 atkvæðum. 2 seðlar voru
auðir.
Ritarar voru þá kjörnir Guð-
mundur Jörundsson og Bragi Sigur-
jónsson.
Þá lá fyrir að kjósa bæjarstjóra,
og las forseli upp umsóknir þeirra 5
manna, er um Stöðuna höfðu sótt, og
sagt var frá í síðasta blaði. Helgi
Pálsson bar þá fram tillögu undir-
ritaða af fulltrúum Sjálfstæðis-
manna, um að bæjarstjórn fres'.aði
að ráða bæjarstjóra, ef enginn um-
sækjenda fengi stuðning meirihluta
bæjarstjórnar. Var sú tillaga sam-
þykkl með 7:3 atkvæðum.
Fór þá frant kosning bœjarstjóra.
Hlaut Steinn Steinsen 4 atkvæði,
Stórhríðarmótið
MAGNÚS BRYNJÓLFSSON
SIGRAÐI í SVIGI
Stórhriðarmótið hófst s.l. -sunnu-
dag í Vaðlaheiði. Átti að keppa í
svigi í öllum flokkum, en vegna þess
hve færi var óhagstætt, harða hjarn,
var frestaö keppni í kvennaflokki.
Þátttaka var allgóð og veður hið
bezta. Alltof fáir áhorfendur sóttu
þessa keppni, sem var hin ánægju-
legas’a þrátt fyrir óheppilegt færi.
Úrslit urðu þessi:
A-FLOKKUR: 1. Magnús Brynj-
ólfsson KA 106.5 sek. 2. Birgir Sig-
urðsson Þór 109.2 sek.
B-FLOKKUR: 1. Hermann Ingi-
marsson Þór 109.6 sek. 2. Bergur
Eiríksson KA 118.7 sek. 3. Flosi
Ólafsson MA 142.8 sek.
C-FLOKKUR: 1. Sigtryggur Sig-
tryggsson KA 64.2 sek. 2. Freyr
Gestsson KA 76.7 sek. 3. Guðm. Guð-
mundsson KA 79.8 sek. 4. Þráinn
Þórhallsson KA 82.3 sek. 5. Björn
Ólsen KA 82.6 sek.
Beztan brautartíma höfðu: A-fl.:
Magnús 47.0 sek. B-fl.: Hermann
53.6 sek. Þessir flokkar kepptu í
sömu braut. í C-fl. fékk Sigtryggur
beztan brautartímann 32.0 sek.
Vonandi sýna bæjarmenn meiri
■ áhuga fyrir skíðaíþrótlinni með því
að fjölmenna á næstu keppni Skíða-
ráðsins.
Guðm. Guðlaugsson 3, Stefán Ág.
Kristjánsson 1 og Jón Þorsteinsson
1, en 2 seðlar voru auðir.
, Var þá kosiö á ný, og fengu Stein-
sen og Guðmundur sömu atkvæÖa-
tölu og áður. Síðan var gefið fund-
arhlé og að því loknu kosið í þriðja
sinn. Hlaut þá Steinn Steinsen 7 at-
kvæði, en 4 seðlar voru auðir.
Þá fór fram kosning í bæjarráð.
Voru kjörnir í það 5 menn, samkv.
heimild í reglugerö um bæjarráð á
Akureyri. Kosningu hlutu: Helgi
Pálsson, Jón Sólnes, Jakob Frímanns-
son, Steindór Steindórsson, Tryggvi
Ilelgason. Til vara: Guðm. Jörunds-
son, Sverrir llagnars, Kristinn Guð-
mundsson, Bragi Sigurjónsson, Elísa-
bet Eiríksdóttir.
AÐRAR FASTAR NEFNDIR:
B-ygginganejnd: Karl Friðriksson,
Þors’.einn M. Jónsson, Bragi Sigur-
jónsson, Óskar Gíslason.
Hajnarnejnd: Magnús Bjarnason,
Kristinn Guðmundsson, Albert
Sölvason, Tryggvi Helgason.
Brunamálanefnd: Jón Sólnes,
Framh. á 2. síðu.