Íslendingur - 14.06.1950, Qupperneq 1
XXXVI, árg.
Miðvikudagur 14. júní 1950
26 tbi.
Dagheimili tyrir bðrn teknr til starta
Kvenfélagið Hlíf hefir
tak og dtignaö við
sýnt lofsvert fram-
aö koma því upp.
Nú í vikunni tekur til starfa hér í
bæ dagheimili fyrir börn, hið fyrsta,
er hér starfar. Hefir kvenfélagið Hlíf
reist þetta heimlli ofan við bæinn,
norður af búgarðinum Lundi, á
fögrum og skjólsælum stað. Hefir
heimili þessu verið gefið nafnið
Pálmholt.
Síðastliðinn föstudag bauð stjórn
kvenfélagsins Hlífar forráðamönnum
bæjarins, blaðamönnum og ýmsum
borgurum, er greitt hafa fyrir stofn-
un þessa heimilis til kaffidrykkju að
Pálmholti. Formaður Hl far, frú El-
inborg Jónsdóttir, bauð gesti vel-
komna og flutti stut'.a ræðu, þar sem
hún rakti sögu þessa máls frá því að
félagskonur fyrst tóku að vinna að
því. Kvað hún þau hjónin, Gunn-
hildi og Balduin Ryel, hafa gefið fé-
laginu 4 dagsláttur lands fyrir ofan
bæinn til að reisa dagheimili, en
vegna mikilla annmarka á að fá leitt
þangað vatn, hefði verið horfið að
því ráði að fá skipt á því landi og
öðru, er legið hefði rétt við vatns-
lögn bæjarins. Þakkaði hún öllum,
sem greitt hefðu götu dagheimills-
ins, fyrst og fremst frú Gunnhildi
Ryel, þá hyggingameisturunum Osk-
ari Gíslasyni og Sigurði Sölvasyni,
sem mjög hafa lagt sig fram við að
koma byggingunni upp, kvenfélags-
konunum, sem unnið hafa af mikl-
um ötulleik fyrir málið og nú síðast
við að koma öllu haganlega fyrir
innanhúss, og loks bæjarstjórn Ak-
ureyrar fyrir að hafa veitt heimilinu
40 þús. kr. framlag og ýmsum öðr-
um, er of langt væri hér upp að
telja. Kvað hún hér fyrst og fremst
vera um tilraun að ræða, sem hún
vænti þó að heppnaðist giftusamlega
Auk frú Elinborgar tóku til máls
Frú Gunnhildur Ryel, Steinn Stein
sen bæjarstjóri, frú Helga Jónsdótt
ir og Hannes J. Magnússon skóla
stjóri. Kvað hann það sína skoðun,
að enda þótt æskilegast væri, að
heimili og skóli önnuðust að öllu
uppeldi og umsjá barnanna, þá væri
svo kpmið, að slík heimili sem þessi
væru orðin óhjákvæmileg nauðsyn í
hinum stærri hæjum til að forða
börnunum frá óhollustu og hættum
gatnannp.
Byrjað' var að grafa fyrir dag-
heimilishyggingunni fyrir röskum 2
árum, eða í byrjun júní 1948. Hefir
því verkinu skilað tiltölulega fljótt
áleiðis. Bygging'n uppkomin kostar
um 160 þús. krónur og innhú a.m.k.
40 þús. kr. í húsinu er rúmgóður
salur fyrir börnin, íbúðarherbergi
fyrir forstöðukonuna, hvíldarher-
bergi fyrir börn, rúmgo'.t og hagan-
legt eldhús og herbergi fyrir mat-
reiðslukonur, snyrtiherbergi með
innbyggðum 4 salernaklefum og 4
handlaugum. Auk þess 2 anddyri.
Heim'.lið leggur börnunum til öll
snyrtingaráhöld. Á Pálmholt að
rúma 50 börn, og hefir þegar verið
sótl um dvalarlevfi fyrir fleiri, en
unnt er að taka, en dvalarl'minn
verður frá 15. júní til 15. sept. —
Börnin verða tekin í bifreiðar á
ákveðnum stöðum í bænum kl. 9 að
morgni og flu.t aftur á sömu stöðv-
ar kl. 6 að kveldi. Aldursbllið er 3ja
til 7 ára og mánaðargjald 200 kr.
Forstöðukona heimilisins verður frk.
Ingibjörg Jónsdóttir Ægisgötu 2, en
auk hennar starfa við heimilið 2
barnfóstrur og 2 matreiðslukonur.
Forstöðukona matreiðslu verður frú
Ingibjörg Austfjörð.
Kvenfélagið Hlíf hefir undanfarin
ár efnt til skemmtana, merkjasölu og
kaffisölu til fjáröflunar fyrir heimil-
ið, en auk þess hafa bæj^rbúar s yrkt
það með gjöfum, m.a. gaf Klæða-
gerðin Amaro því stórhöfðinglega
gjöf, kr. 10 þúsund.
Heimilið var vígt s.l. sunnudag að
viðstöddum fjölda bæjarbúa.
Árnar blaðið félaginu og þessari
mannúðar- og menningarstarfsemi
þess góðs gengis í framtíðinni.
*
r—
RITSTJÓRASKIPTI
verða við íslending með þessu
iölublaði. Jakob Ó. Pétursson
hættir ritstjórn, en við henni hef-
ir tekið Tómas Tómasson lög-
fræðingur.
i
17. júnl hátíðahðldin.
Hátíðarnefnd bæjarins hefir til-
kynnt blaðinu tilhögun hátiðar-
haldanna, sem verða hér 17. júní
n. k. Hefjast þau kl. 1,15 e. h. með
leik Lúðrasveitarinnar á Ráðhús-
torgi. Þaðan verður svo farið í skrúð
göngu til hátíðarsvæðisins, sem
verður á iúninu sunnan við sund-
laugina. Er ætlast til að hátíðarhöld-
in þar hefjist um kl. 2 e. h. Þar fer
fram fánahylling, guðsþjónusta (sr.
Pétur Sigurgeirsson). Lýðveldisræðu
flytur Brynleifur Tobíasson. Halldór
Þ. Jónsson, stúdent flytur og ræðu,
Karlakórarnir syngja. — Þá hefjast
íþróttir og fer fram íslenzk glihia,
fimleikasýning og handbolti,
Dansað verður í Samkomuhúsi
bæjarins og i Hó'el KEA.
Kvikmyndasýningar verða á veg-
um hátíðarnefndarinnar í Nýja Bíó
kl. 3 og í Skjaldborgarbíó kl. 9. —
Verði veður mjög óhagstætt fara há-
tíðarhöldin fram í kirkjunni og í
Samkomuhúsi bæjarins. Aðgangur
er ókeypis og veitingar verða seldar
á hátíðarsvæðinu.
Hátíðarnefndin væntir þess að
sem flest félög leggi til fána og fána-
bera í skrúðgönguna og að bæjar-
búar dragi almennt fána að hún kl.
8 árdegis þjóðhátíðardaginn
Umdæmisþing Rótaryklúbb-
anna ó íslandi haldið á
Akureyri
Um s. 1. helgi var haldlð hér á
Akureyri Umdæmisþing Rótary-
klúbbanna á íslandi. Voru þar mætt-
ir margir fulltrúar frá þeim 10 klúbb-
um, sem starfa hér á landi.
Rótaryhreyfingin er alþjóðafélags-
skapur, er starfar í 80 þjóðlöndum.
A'lls eru klúbbarnir um 7000 að lölu
með 340 þúsund félögum. Markmið
Rótary er að vinna að umbótum á
sviði félagsmála innan hvers þjóð-
félags og vinsamlegri kynningu milli
stétta.
Yfirmaður (umdæmisstjóri) Rót-
aryklúbbanna á íslandi hefir undan-
farin tvö ár verið séra Óskar J. Þor-
láksson á Siglufirði, en nú tekur við
því starfi séra Friðrik J. Rafnar,
vígslubiskup á Akureyri.
Einar Gunnarsson
kaupmadur
I N MEMORIAM —
Hann Iézt að heimili sínu hér í bæ,
laugardaginn 5. þ. m., eftir stutta
sj úkdómslegu.
Fer nú óðum að þynnast fylking
þeirra manna, sem í söxum s'.óðu á
bæjarskútunni fyrsta þriðjung ald-
arinnar, en sú kynslóð, sem þá var á
léttasta skeiði kann að segja frá
miklum breytingum á atvinnuháttum
og athafnalífi bæjarins.
Einar hneigðlst strax í æsku til
verlunarstarfa, og verzlunarmaður ,
var hann af lífi og sál, öll sín mann- j
dómsár, þar til heilsa og kraftar tóku
að þrjóta.
Sýndi hann þegar lofsverðan á-
huga, fram yfir það, sem þá var títt,
um verzlunarmenn, fyrir því að búa
sig undir lífsstarf sitt, og mennta cig
í sinni grein, eftir því, sem frekast
voru föng tiL Rak hann síðan verzl-
un hér, framan af öldinni, ýmist
einn, eða í félagi við aðra, þar til
hann gerðist fors'.jóri fyrir „Hinar
sameinuðu ísl. verzlanir“, árið 1914,
og gengdi hann því starfi þar til fyr-
irtækið var lagt niður. Var það á
þeim árum, all-umsvifamikið, og rak
hér margháttaða starfsenri, verzlun
og fjölbreytta útgerð, og mun, um
árabil, hafa verið einn stærsti vinnu-
veitandi í bænum. Má t. d. telja til
merkisatburðar, í atvinnumálum, er
það, undir stjórn Einars Gunnars-
sonar reisti fyrsta — og eina — ný-
tízku frystihús bæjarins.
Auk aðalstarfs síns kom Einar all-
mikið við sögu félagsmála, var t. d
lengst af röskur liðsmaðUr Verzlunar
mannafélags Akureyrar, og átti
lengi sæti í stjórn þess. Þótti því
félagi ástæða til að viðurkenna 6törf
Einars í þágu stéttarbræðra sinna,
er það gerði hann að heiðursfélaga,
fyrir nokkrum árum, og var það vel
farið. Þá hafði Einar á höndum af-
greiðslu fyrir Bergenska gufuskipa-
félagið, um langt skeið, og var á
þeim árum jafnframt ræðismaður
Norðmanna hér.
Það er augljóst, af því, sem nú
hefur verið sagt, að Einar átti marg-
vísleg skipti við marghá.tað fólk, en
ég tel mér óhætt að fullyrða, að enga
átti hann óvildarmenn, að leiðarlok-
um, en vini marga, því að hann var
drengur góður, prúðmenni, með lipra
lund og fór ekki í manngreindarálit.
Einar Gunnarsson var þingeyskur
að ætt, fæddur að Völlum í Þistil-
firði, 16. júní 1873. Foreldrar hans
voru þau hjónin Guðlaug Jónsdóttir
og Gunnar Rafnsson bóndi. Einar
fluttist iil Akureyrar um aldamótin,
og var hér búsettur síðan. Árið 1906
kvæntist hann eftirlifandi konu sinni,
Marenu Vigfúsdóttur, Sigfússonar,
hóteleiganda, hinni ágætustu konu,
er bjó manni sínum og börnum
heimili, sem lengi verður minnst, af
fjölmörgum vinurn þeirra, vegna
heilbrigðra heimilishátla og fram-
úrskarandi gestrisni. Þeim hjónurn
varð níu barna auðið, og eru sex
þeirra á lífi.
Sv. R.
Ég kynntist Einari Gunnarssyni
fyrst síðustu árin, eftir að hann var
farinn að kröftum, en þrátt fyrir
þennan skamma kynningarlíma mun
hann ætíð verða mér hugstæður.
Helztu einkenni Einars, sem komu
fram í daglegri umgengni voru:
prúðmennskan, hlýjan og glaðværð-
in. •—
Ég man aldrei eftir að hafa hitt
Einar öðruvisi en að hann hefði
spaugsyrði á takteinunum. Mun
hann þó engu síður en samferða-
menn.rnir liafa kynnzt alvörunni á
langri og erilsamri ævi. Hann var
jafnan boðinn og búinn til þess að
hlaupa undir bagga, þegar á þurfti
að halda, og hver sem hlut átti að
Framhald á 4. síðu.