Íslendingur - 01.08.1951, Qupperneq 8
Kirkjan. Messað á Akureyri n. k.
sunnudag kl. 11. P. S.
MöSruvallaprestakall. — Messað í
Glæsibæ sunnudaginn 12. ágúst kl. 2
og að Bægisá sunnudaginn 19. ágúst
kl. 1 e.h. — Messan, sem ráðgerð vár
á Möðruvöllum sunnudaginn 5. ágúsl,
fellur niður.
ÞÓRS-FÉLAGAR! Mætið í kvöld
kl. 8 á nýja íþróttasvæðinu til vinnu
í tvær klukkustundir.
Systrabrúðkaup. Sunnudaginn 29.
júlí voru gefin saman f hjónaband í
Bakkakirkju í Oxnadal ungfrú Jó-
hanna Aðalsteinsdóttir, Bakkaseli, og
Hans Petersen, starfsmaður á bifreiða-
verkstæði Jóns Loftssonar í Reykja-
vík. Ennfremur ftngfrú Jónheiður Eva
Aðalsteinsdóttir, Bakkaseli, og Sigur-
geir Sigurpálsson, starfsmaður á bif-
reiðaverkstæðinu „Þórshamri“, Akur-
eyri. Sama dag átti móðir brúðanna,
frú Steinunn Guðmundsdóttir, kona
Aðalsteins Tómassonar, gestgjafa í
Bakkaseli, fimmtugsafmæli.
Sextugur varð 23. júlí Sigtryggur
Jónsson verkamaður Lækjargötu 2.
___
Norrænar konur
á ferð um ísland
Nýlega komu hingað til lands
170 konur frá Norðurlöndum:
Danmörku, Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi og Faíreyjum, til þátt-
töku í norrænu kvennamóti hér.
Komu þær með skipinu Brand V,
er þær leigðu til fararinnar. Eftir
að hafa setið kvennamótið í
Reykjavík og ferðast um ná-
grenni höfuðstaðarins, kom hóp-
urinn hingað norður. Komu um
70 konur og 16 karlmenn í fylgd
með þeim hingað til bæjarins í
bílum í fyrrakvöld, og fengu
náttstað í Heimavistarhúsi M.A.,
en kvenfélög bæjarins sáu um
móitökur. Um hádegi í gær kom
skipið Brand V hingað með þann
hóp, séiii eftir var, og var þá far-
ið austur í Mývatnssveit. Murt
þetta ferðafóik sitja miðdegisboð
hjá bæjarstjórn Akureyrar í dag.
Bandaríkjasfjórn veitir 4
íslendingum nómstyrki
Utanríkisráðuneytið í Was-
hington hefir nú úthlutað fjórum
námsstyrkjum til íslendinga, og
eru styrkirnir veittir af Banda-
ríkjastjórn. Fengu þessir styrk-
ina:
Tómas Árnason, Akureyri, til
náms í lögfræði við Harvardhá-
skóla í Cambridge, Masssachu-
setts.
Hólmfríður Jónsdóttir, ísa-
firði, til náms í uppeldisfræði og
ensku við Ohioháskóla, Colum-
bus, Ohio.
Stefán Jálíusson. Hafnarfirði,
til náms í enskum bókmenntuin
við Cornell háskóla í Ithaca, New
York.
Þórir Kr. Þórðarson, Reykja-
vík, til náms í semetiskum mál-
um við Chicagoháskóla, Chicago,
Illionis.
Miðvikudagur 1. ágúst 1951
lítil sílMi vegna uálejpingi.
Veðráttan hefir verið óhagstæð
að undanförnu fyrir síldveiðiflot-
ann. Um síðustu helgi var heild-
araflinn 200443 mál í bræðslu og
48 þús. tunnur í salt. í gær voru
skipin að veiðum út af Sléttu og
víðar á austurmiðum. Hefir blað-
ið heyrt, að Ólafur Bjarnason
hafi verið með 7-—800 mál,
Bjarki með 470 mál og Súlan
með nokkra veiði. Á Hjalteyri
hafði í gær verið landað rúmlega
27 þús. málum. Kom Svanur í
fvrradag með 220 mál og Vilborg
í gærkvöldi með 300 tunnur til
söltunar.
Á Dagverðareyri hefir verið
landað 14675 málum, og í nótt
var von þangað á íslendingi með
nokkra veiði.
í Krossanesi hafði í gær verið
landað 14585 málum. Um helg-
ina lönduðu þar: Auður 547 mál-
um, Jörundur 717 málum og
Snæfell 334 málum.
Afli Akureyrarskipa var sem
hér segir uin helgina:
Jörundur 6111 mál og tn
Súlan 3468 —
L Guðjónsson 2848 —
Snæfell 2642 —
Auður 2617
Kristján 1807 —
Sæfinnur 1599 —
Stjarnan 1584 —
Sædís 1385
Akraborg 1179 —
Njörður 1028
Bjarki 508
Framhald af 1. síðu.
Frú Anna dó árið 1921. Var
tengdadóttirin þá fyrir nokkuð
löngu tekin við garðinum. Frá
því má segja, að alll starf við
garðinn hafi hvílt á herðum frú
Margrethe. Að vísu naut hún
stuðnings ýmissa mætra kvenna
í bænum eins og til dæmis frú
Vilhelmínu Þór. Einnig sýndi
bæjarstjórnin þann velvilja að
leggja garðinum nokkurt fé ár-
lega.
Frú Margrethe Schiöth varði
tíma sínum og kröftum til þess
þykja vænt um blómin og um
gangast gróðurinn með um
hyggju og varúð. Þar eiga ungir
og gamlir að geta leitað sér un-
aðar og hvíldar, notið sólskins
og yndis í frístundum sínum, sem
lengst frá hávaða og skarkala
lífsins. Þetta er nauðsynlegt
hverjum sem lifir.“
Tilgangurinn var mannlegur
og fagur sein verkið sjálft.
Fyrir nokkrum árum gerði j
bæjarstjórn Akureyrar frú Mar-
grethe að heiðursborgara bæjar-
ins og vottaði henni þannig þakk-
læti sitt fyrir slörfin við Lysti-
garðinn. Einnig er hún nú ridd-
ari af hinni íslenzku Fálkaorðu.
Fyrir hönd Fegrunarfélags Ak-
að að því að gera „garðinn fræg-
U
Aage gat þess í ræðu sinni, að
nu færi um hinar fögru æsku-
stöðvar sínar, Eyjafjörð, gróður-
bylgja, þar sem lúnin breiddu sig
nú orðið út um byggðina meir
og meir, og trjágróðurinn flétt-
aði sína sveipa æ íneir og betur
móti komandi kynslóðum.
Að lokum söng Kantötukór Ak-
ureyrar þjóðsönginn.
Mikill mannfjöldi var þarnef
saman kominn og mátti svo heita,
að engin umferð væri um bæinn
rneðan á athöfninni stóð. Svo
mjög þyrptist fólkið upp í Lysti-
garðinn. Veðrið var hið bezla,
og varð hið unaðslega, kyrra
sumarkvöld einnig til þess, að
gera þessa athöfn hátíðlega og
ógleymanlega fyrir bæjarbúa.
Frú Margrethe Schiöth
áttræð
Framhald af 1. síðu.
um rétti segja að garðurinn sé
allur hennar verk og tengdamóð-
hennar. — Væri það eitt
nægilegt til þess að gera nafn
hennar ódauðlegt í sögu Akur-
eyrarbæjar. Það er annars glöggt
dæmi um stórhug og menningu,
að ráðast í það 1912 að koma
upp almenningsgarði hér á Akur-
eyri, löngu áður en nokkru öðru
bæjarfélagi þessa lands kemur
slíkt til hugar.
Og það er ánægjulegt að sjá,
hve frú Schiöth hefir tekizt giftu-
samlega að gera garðinn fallegan
og aðlaðandi, mun þó ekki alltaf
létt verk að hirða um opinbera
staði á landi hér, því að menn-
ingarumgengni almennings vill
oft verða nokkuð ábótavant. Þá
er þess og að geta. að lengst af
hefir frúin notið mjög lítils
styrks frá bæjarfélaginu til rekst-
urs garðsins, og sannar það ótví-
rætt stjórnsemi og hagsýni frúar-
innar, hve mikið hún hefir getað
gert fyrir það litla fé, sem hún
hefir haft úr að spila.
Að Iokum vil ég leyfa mér í
bæjarbúa að færa frú
I
Samkoma í Zíon n.k. sunnudag kl.; nafni
8.30 e.h. Allir velkoranir. j Schiöth og manni hennar, herra
Fíladeljía. Samkomur verða í Lund- bakarameistara Axel Schiöth, al-
argöiu 12 miðvikudag 1. ágúst. Biblíu- j úðar þakkir og árnaðaróskir fyr-
leslur fyrir trúaða. Fimmtudag almenn ' r hið mikla og fórnfúsa starf í
samkoma kl. 8.30 e.h. Sunnudag al-þágu skrúðræklar á Akureyri.
menn samkoma kl. 8.30 e.h. Erik Mar-
tinsson talar á samkomunum. Verið
velkomin.
4-
ÍSLENDINGUR
kemur ekki úf í næstu
Jón Rögnvaldsson.
—^ <—
Togararnir.
að gera Lystigarðinn á Akureyri | ureyrar leyfi ég mér svo að þakka
sem veglegastan. Það var mikil
fórn fyrir konu, sem hafði fyrir
■slórú heitn.ili og baröphóp að sjá.
En í starfinu hafði hún samhug
og stuðning eiginmanns síns.
Frú Margrethe vann sjálf í
garðinum öllum stundum, stjórn-
aði þar verkum annarra, lagði á
ráðin. skipulagði og var óþreyt-
andi við að útskýra hvernig hvað-
eina ætti að vera. Hún hafði
niikla kunnáttu á öllu, er að garð-
rækt laut. Á bernskuheimili henn-
ar í Vejen í Danmörku var stór
garður. Þar vandist hún. ásamt
systkinum sínum við að planta
og hugsa um blóm. Þar fékk hún
ást á öllum gróðri og lífi í nátt-
úrunni. Að þessu uppeldi höfum
við Akureyringar nú búið og not-
ið ávaxtanna í ríkuin mæli.
Tilgangurinn á bak við alla
þessa hugsun og vinnu kemur vel
fram í hinum látlausu orðum
frúarinnar, sem höfð eru eftir
henni i „Hlín“ riti kvenna:
„Við höfum ávallt verið sam-
mála um það að vinna beri að
því, að Lystigarðurinn geti orðið
sönn prýði fyrir Akureyrarbæ.
Þar eiga börnin að fá að leika
sér, og þar á þeim að lærast að
Harðbakur landaði 27. júlí 371
lest af karfa, Kaldbakur á mánu-
VÍku vegno sumarleyfa.' ^ag 404 Iestum. Svalbakur var
að landa í gærkveldi og nótt, og
var með 345 lestir.
___*____
Næsta blað kemur út
15. ógúst.
Qóðir sumnrgestir
Síðastliðinn mánudag um kl. 81 sonar, Vorljóð. í öðrum þætti
frú Margrethe Schiöth það braut-
ryðjanda- og menningarstarf, sem
hún hefir unnið fyrir bæjarbúa.
Hún hefir sjálf reist sér þann
minnisvarða, sem seint mun firn-
ast, lund friðar og fegurðar.
Við vonum öll og óskum, að
gleði og gæfa fylgi merkiskon-
unni á ókonmuin ævidögum.
Fyrir hönd félagsins afhendi ég
hér með Akureyrarbæ styttuna til
eignar og umráða.
*
Forseti bæjarstjórnar, Þorst.
M. Jónsson, þakkaði fyrir hönd
bæjarins með snjallri ræðu, Fegr-
unarfélaginu fyrir þessa veglegu
gjöf, og fyrir hið mikla og fórn-
fúsa starf, er þetta unga félag
hefir jjegar unnið við að fegra og
prýða bæinn.
Einnig fór forseti hlýjum þakk-
arorðum um frú Schiöth fyrir
hið mikla afrek, er hún hefir unn-
ið við að skipuleggja og græða
upp þennan fagra skrúðgarð.
Þar næst talaði Aage Schiöth á
Siglufirði þakkarorð frá móður
sinni, frú Margrethe Schiöth, þar
sem hún fór hlýjum orðum um
alla þá, er með henni hafa starf-
fyrir hádegi lagðist strandferða
skipið Esja hér að bryggju. Þótt
ekki væri áliðnara morguns, var
óvenjulega margt manna á ferli.
Kantötukór Akureyrar hafði tck-
ið sér stöðu andspænis skipshlið
og heilsaði með söngkveðju hin-
um góðu gestum, sem að garði
bar, Tónlistarfélagskórnum, sem
var að koma úr söngför um Aust-
ur- og Norðurland.
Tónlistarfélagskórinn er fyrir
löngu orðinn landskunnur bæði
af útvarpssöng og fyrri söngferð-
um sínum um landið. Hvar sem
kórinn hefir farið, hefir hann að
verðleikum fengið hinar bezty
viðtökur.
Klukkan 9 síðdegis hélt kórinn
söngskemmtun í Nýja Bíó við
svo að segja húsfylli og mikla
hrifningu áheyrenda. Á söng-
skránni voru lög eftir innlenda
og erlenda höfunda. í fyrsta þætti
söngskrárinnar söng kórinn ein-
göngu lög eftir innlenda höfunda.
Mesta hrifningu vakti hið undur-
fagra lag Sigursveins D. Kristins-
sonar: Amma raular í rökkrinu,
með hinum látlausa en smekklega
einsöng Svövu Þorbjarnardóttur,
svo og lag Björgvins Guðmunds-
komu fram 3 einsöngvarar, Jón
Hjörtur Finnbjarnarson, Inga
Markúsdóttir og Árni Jónsson.
Ollum var einsöngvurunum tekið
ineð miklum fögnuði, og urðu
þeir að syngja aukalög. Sérstaka
athygli vakti söngur Árna Jóns-
sonar, sem ekki mun hafa heyrst
hér áður. Ef ckkert óvænt kemur
fyrir hann, má mikils af honum
vænta í framtíðinni. Annars mun
söngur Jóns H. Finnbjarnarsonar
hafa vakið mesta hrifningu, enda
var túlkun hans viða með ágæt-
um.
1 þriðja og síðasta þætti flutti
kórinn kafla úr óperunni Carmen
eftir George Bizet. Einsöngvarar
voru Guðmunda Elíasdóttir
óperusöngkona og Gunnar Krist-
insson óperusöngvari.
Söngstjóri kórsins var Victor
von Urbancic, en undirleik ann-
aðist frú Katrín Dalhoff af mik-
illi smekkvísi. Meðan á söngnum
stóð, bárust söngstjóra og ein-
söngvurum blómvendir.
Að söngnum loknum þökkuðu
áheyrendur kórnum, einsöngvur-
um og söngstjóra ógleymanlega
ánægjustund með lófataki, sem
aldrei ætlaði að linna.