Íslendingur - 03.06.1953, Side 1
XXXIX. árgangur Miðvikudagur 3. júni 1953 23. tbl.
Togarar fclag:sin§ forn 37
reiðifcrðir á árinu
S.'ðastliðinn föstudag hélt Útgerðarfélag Akureyringa h.f. aðal-
fund sinn. Formáður félagsstjórnar setti fundinn og nefndi til fund-
arstjóra Erl.ng Friðjónsson. Flutti forrnaður síðan greinargerð um
starfsemi félagsins og afkomu þess á árinu 1952.
Aílamagn togaranna á árinu
nam 8156 smálestum og varð
brúttó-afurðasalan 21.310.728.93
krónur. Fóru togararnir samtals
37 veiðiferðir á árinu, þar af 11
söluíerðir til Bretlands, 2 til
Þýzkalands og 3 til Esbjærg. Með-
alsala í Bretlandi varð rúmlega
10570 pund. 7 velðiferðir voru
farnar á Grænlandsmið. Af þeim
var landað hér á Akureyri úr 5
ferðum. Fiskvinnslustöðin var
starfandi mestan hluta ársins og
tók á móti urn 4 þús. tonnum til
vinnslu. Launagreiðslur íélagsins
höfðu hækkað frá fyrra ári um
fullar 2 millj. króna, og er það
fyrst og fremst vegna þess, hve
miklu meira var unnið úr fiskin-
um hér en áður. í vinnulauna-
reikningi íélagsins er engin vinna
innifahn, sem lýtur að viðhaldi
skipanna, en þar er um allmikil
vinnulaun að ræða, er renna til
verkstæða hér í bænum.
Að lokinni skýrslu formanns
las Guðmundur Guðmundsson,
framkvæmdastjóri félagsins, upp
feikninga þess og skýrði þá all-
ítarlega. Hæsti útgjaldaliðurinn
var að sjálfsögðu vinnulaun, en
þau námu 8.840 millj. krónum
(akstur inni'falinn). Afskriftir
skipanna námu 1.420.010.82 kr.,
og varð þá íekjuafgangur kr.
118.441.16. Samþykkti fundurinn
að greiða hlulhöfum 5% arð af
hlutafjáreign sinni.
Ilelztu e'gnir félags'ns eru tog-
ararnir, en bókfært verð þeirra er
nú 12.753.291.15 kr., og hafa þeir
þá verið afskrifaðir um tæplega 4
milljónir króna. Birgðir námu
rúmlega 6.5 millj. kr., fasteignir
2.245.014.40 kr., hlutabréf og
sjóðseignir 234.340.07 kr. Illuta-
bréfaeign hluthafa í félaginu
nema nú 2.358.500 krónum.
Afkoma togaranna varð þessi á
árinu:
Tap á Harðbak 274 þús. kr.
Tap á Svalbak 24 þús. kr.
Gróði á Kaldbak 524 þús. kr.
Úthaldsdagar:
Harðbakur 319.
Kaldbakur 316.
Svalbakur 303 (lafðist í höfn
14 daga vegna bilunar).
Srjórnorkjör.
Þá var gengið til sljórnarkosn-
inga. Kom fram einn lisli, og voru
á honurn nöfn fráfarandi stjórn-
armeðlima. Var því stjórnin end-
urkosin (sjálfkjörin), en hana
skipa: Helgi Pálsson, Steinn
Steinsen, Jakob Frímannsson, Al-
þert Sölvason og Óskar Gíslason.
Endurskoðendur, þeir Jón S. Sig-
urðsson og Þorsteinn Stefánsson
voru og endurkjörnir.
Góð ofkoma.
Ekki verður annað sagt, en að
afkoma togaraútgerðar félagsins
hafi verið hin bezta á árinu sem
leið. Tekizt hefir að afskrifa tog-
arana verulega og þó orðið nokk-
ur tekjuafgangur, en félagið jafn-
framt bætt mjög hag og afkomu
fjölda bæjarbúa með þeirri at-
vinnu, er það veitti á árinu. Og
sú vinna fer enn vaxandi, því að
síðan um áramót hef r vinna í
fiskvinnslustöð félagsins s'.órum
aukizt. Félagið hefir líka borið
gæfu til að ná í þjónus'u sína
harðduglegum og heppnum
stjórnendum, jafnt á togurunum
sem í landi.
Félagið hefir nú nýlega tekið
®5i*Si!
upp nýja verkunaraðferð, þ. e.
skreiðarframleiðslu, og hefir þeg-
ar hengt upp 1100 tonn af blaut-
fiski og ráðgerir að herða annað
eins eða meira með haustinu. Þá
hefir félagið hug á að auka þurr-
fiskgeymslu sína, ef lánsfé fæst
fyrir viðbótarbyggingu, enda er
húsakostur þess ónógur orðinn.
FRAMBOÐSFUNDIR
Stjórnmálaflokkarnir hafa boð-
að til framboðsfunda í Eyjafjarð-
arsýslu frá 9.—19. júní n. k. —
Hefjast þeir í ólafsfirði, og verð-
ur s’ðan haldið inn eftir kjör-
dæminu og endað að Þverá i Öng-
ulssíaðahreppi 19. júní.
„Ka!dbakur“, elzti togari Útgerðarfélags Akureyringa h.f., er skil-
aði meira en hálfrar milljón króna hagnaði á síðaslliðnu ári.
s
£feemmtilegnY
kvöldstundir
Húsfyllir á árshátíð Sjálfstæðismanna
bæði kvöldin
GOTT VOR
Að undanföinu hefir verið góð
sprettulíð, og er víða búið að slá
grasble ti hér í bænum. Ef ekki
kólnar í veðri, eru líkur til, að
sláttur hefjist með Iangfyrsta móti
hér í grenndinni. Þó getur verið,
að þurrkar dragi úr sprettu fyrst
um sinn. Það, sem til vantar, eru
góðar gróðrarskúrir.
___
Áðalfundur „Varnar"
Sjálfstæðisfélags kvenna Akur-
eyri, vorður haldinn í kvöld kl.
8.30 í skrifs'ofu Sjálfstæðisfélag-
anna. Dagskrá: Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Um síðus’.u helgi héldu Sjálf-
stæðisfélögin í bænum árshátíð
sína að Hótel Norðurlandi, en
henni varð að f esta í vetur vegna
illviðra. Svo mikil aðsókn var að
hátíð nni, að miðarn'r seldust
upp á hálfri klukkustund fyrir
laugardagskvöldið, og á sunnu-
dagskvöldið seldust þeir lika upp.
Á laugardagskvöldið setti Vign-
ir Guðmundsson, formaður Varð-
ar, hátíðina og bauð ges'.i vel-
komna. Að því loknu kom fram á
sviðið hinn þjóðkunni gaman-
leikari, Haialdur Á. Sigurðsson
og ávarpaði samkomugesti. Var
hann kynnir kvöldsins og óspar á
brandarana, enda dunaði húsið af
hlátri og fagnaðarlátum, er hann
sýndi sig á sviðinu. Þá lék Carl
Tll S|álfstæði§uianiia
í E^jafjarðar§ý§lu
Vinsamlegast lótið kosningaskrifstofu Sjólf-
stæðisflokksins á Akureyrs, Hafnarstræti 101,
vita um þá kjósendur, scm verða fjarverandi á
kjördegi. Þar liggja einnig frammi kjörskrór
sýslunnar. Kærufrestur rennur út 6. júní, 03 er
öllum Sjólfstæðismönnum bent á að athuga
sem fyrst, hvort þeir eru ó kjörskró.
Billich nokkur lög á slaghörpu, en
því næsl flulti þingmaður bæjar-
ins, Jónas G. Rafnar, ræðu um
stjórnmálaviðhoifið og kosninga-
baráttu þá, sem yfir stendur. Har-
aldur Á. Sigurðsson og Alfreð
Andrésson flultu s'uttan samtals-
þált, Alfreð söng gamanv!sur
með undirleik Carls Billich, og
Haraldur Á. flutti sérstakan gam-
anþátt. Var þeim öllum ákaflega
fagnað. En nýstárlegasta skemmti-
atriðið mun þó flestum hafa fund-
izt söngur norsku söngkonunnar,
Jeanite Melin. Auk dægurlaga
söng hún syrpu af norskum þjóð-
lögum og „Rósina“ eftir Árna
Thorsteinsson. Carl Billlch lék
undir af sinni alkunnu list. Söng-
konan var óþreytandi að syngja
og var oft og mörgum sinnum
kölluð fram til að syngja aukalög.
Vöktu söngur hennar og leikur
óskipla hrifningu. Að lokum var
dansað.
Á sunnudagskvöldið flutti
Magnús Jónsson lögfræðingur
ræðu, en að öðru leyti voru
skemmtiatriði hin sömu. Töldu
flestir þessar kvöldstundir ein-
hverjar þær skemmtilegustu, er
þeir myndu eftir.
„Vörður“ F. U. S. hélt kvöld-
skemmtun í fyrrakvöld að Hó.el
Norðurlandi með hinum að-
fengnu skemmtiki öf um, og var
þar nær fullt hús. Eru Sjálfstæðis-
menn í bænum þakklátir hinum
góðu gestum fyrir komu þeirra
hingað.