Íslendingur - 03.06.1953, Side 3
Miðvikudagur 3. júní 1953
ÍSLENDINGUR
Danskar dömnpeysnr
fallegt úrval, nýtt munstur.
Itarnastakkar
í nýjum litum, mjög fallegir og ódýrir.
Nýjasta nýtt!
Filmprentuð pilsefni
tihniðin. Saumið ajálf.
AHARO-búðin
Silkibönd
Mikið litaúrval.
Tvinni
Yfir 80 litir af saumatvinna, rúllan aðeins 1 króna.
SS^OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOCíOOOOOOOOOOOK >$©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©>©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©4
wwmím
ER TÓMAS ÁRNASON
REYKVÍKINGUR?
Tímiiin telur nýlega upp fram-
boð Sjálfstæðismanna í sex kjör-
dæmum landsins, og gefur í skyn,
að þarna sé um nýja menn að
ræða, sem engum tengslum séu
bundnir við framleiðsluna. Nefn-
ir hann þar á meðal framboð í
Suður-Múlasýslu.
Þar er Árni G. Eylands fulltrúi
í landbúnaðarráðuneytinu í kjöri.
Hann var við síðustu kosningar
efstur á lista Sjálfstæðismanna í
Norður-Múlasýslu, og getur því
ekki tallst „nýr“ í framboði. Og
að liann hafi aldrei staðið í
tengslum við framleiðsluna, hlýt-
ur að koma bænduni landsins
„spánskt“ fyrir sjónir. Svo mikið
starf er Árni búinn að inna af
hendi fyrir landbúnaðinn með
ritum sínum og persónulegum
leiðbeiningum um framræslu og
ræktun, enda eingöngu unnið að
málejnum landbúnaðarins slðan
á ungum aldri.
Þá telur Tíminn Magnús Jóns-
son lögfræðing „nýjan“ fram-
bjóðanda, enda þótt hann væri
varaþingmaður Eyfirðinga á síð-
asta kjörtímabili og sæti mánuð
um saman á Alþingi í forfölluin
aðalþingmanns og hafi því sem
hver annar þingmaður unnið eið
að stjórnarskránni.
Og loks segir Tíminn: „í Vest-
ur-Húnavatnssýslu er nýr fram-
bjóðandi. Hann er lögfræðingur
úr Reykjavík eða svo til'‘.{!!)
Hér er átt við Jón ísberg á
Blönduósi, ungan mann, sem er
upþalinn og heimilisfastur í
ntiðju Húnaþingi, og hefir að-
eins dvalið í Reykjavik við nám.
Eftir kenningu Tímans ætti þá
Tómas Ámason að hafa verið
Reykvíkingur, meðan hann stund-
aði nám við Háskólann. Þannig
er allt á eina bókina lært í mál-
flutningi Tímans.
ALÞÝÐUFLOKKURINN OG
OLÍUMÁLIÐ.
Það er eflirtektarvert, hvernig
blöð Alþýðuflokksins hafa tekið
í hið svokallaða „olíumál“ SÍS,
sem mest hefir verið um rætt að
undanförnu. í Alþýðumanninum
26. f. m. er tekin upp sami mál-
flutningurinn og í Tíiuanum, að
hér sé eingöngu rætt um milliliða-
gróða. Segir þar: „Morgunblaðið
er alveg að rifna af vandlætingu
yfir því, að SÍS skuli hafa ætlað
að hirða milliliðagróða, og senni-
lega er blaðið þó enn reiðara yfir
því, að gróðanum skyldi vera skil-
að til neytendanna“.(!)
Það hlýtur að vera merkilegt
gáfnalj ós, sem þarna heldur á
penna. Morgunblað.ð hefir að
oss minnir haldið því fram og
deilt á það, að SÍS muni ekki
hafa ætlað að skila þessum tekju-
afgangi til Olíufélagsins, en gert
það, þegar uppvíst var orðið utn
hið rétta farmgjald. En þetta er
ekki meg'.natrlði málsins, þótt
Tíminn og Alþýðumaðurinn
reyni að villa lesendum sýn með
þrástögun á því, heldur hitt, að
Fjárhagsráði, verðgæzlustjóra og
Landsbankanum eru gefnar rang-
ar upplýsingar um farmgjalda-
upphæðina til að fá yfirfærðan
erlendan gjaldeyri fram yfir þá
upphæð er þurfti. Og af því þetta
er aðalatriði málsins, forðast
Tíminn a. m. k. að koma inn á
það.
OG SVO ER ÞAÐ BRAGI.
í Alþýðumanninum 26. f. m.
segir svo: „Samkvæmt vitnisburði
stjóinarblaðsins Dags hefir Ak-
ureyri verið málsvaralaus á Al-
þingi í rúm tuttugu ár, eða síðan
Alþýðuflokksmaður var þingmað-
ur bæjarins. Allir Akureyringar
vita, að þetta er satt. En þeir
skulu einnig gera sér það ljóst, að
málsvara fyrir bæinn er heldur
ekki að vænta úr öðrum flokkum
en Alþýðuflokknum“.(!) Fyrir
hvaða tegund kjósenda þykist
Bragi vera að skrifa?
Gagnlrœðapról 1953
Bóknámsdeild:
Agnes G. Haraldsd. Ak.
Eink.
1. Agnes G. Haraldsd. Ak. 6.45
2. Anna Kr. Hallgrímsd. Ef. 7.72
3. Blrna Björnsd. Ak. 7.16
4. Edda S. Indriðad. Ak. 6.77
5. Erla Böðvarsd. Ak. 7.22
6. Eygló S. Hallgrimsd. Ak. 5.66
7. Friðrlk Á. Sveinsson Ef. 5.78
8. Guð.ún Guðmundsd. Ak. 7.25
9. Guðrún Ólafsd. Ak. 6.30
10. Gunnar Berg Gunnarsson Ak. 6.86
11. Gunnar L. Hjartarson Ef. 7.34
12. Halldóra Á. Guðmundsd. Ak. 7.25
13. Helga M. Magnúsd. Ak. 6.54
14. Iljalti Iljaltason Ak. 5.59
15. Hrönn Sveinsd. Ak. 5.50
16. Hörður Steinþórs:on Ak. 6.00
17. Jón Bjarnason Ak. 7.72
18. Jón Stefán Árnason Ef. 6.17
19. Knútur Karlsson Ef. 7.01
20. Kolbrún Magnúsd..Ak. 6.85
21. Magnús Gíslason Ak. 6.98
22. María Guðmundsd. Snæf. 6.74
23. Ólafur Snorri Hauksson Ak. 6.32
24. Ragnhildur Gunnarsd. Ak. 6.98
25. Sigrún Helgad. Ef. 7.67
26. Sigurjóna Jakobsd. Ak. 6.84
27. Valborg Svavarsd. Ak. 7.45
28. Valgerður Bergþórsd. Ak. 7.33
29. Viktoría Br. Viktorsd. Ak. 7.23
30. Þóra Björk Sveinsd. Ak. 7.97
31. Þórdís Tryggvad. Ak. 6.87
V erknámsdeild:
Eink.
1. Agnar Þorsteinsson Ak. ■ 6.20
2. Ágúst K. Sigurlaugsson Ak. 5.51
3. Árni Kr. Aðalsteinsson Ak. 5.72
4. Ástdís L. Óskarsd. Ef. 8.19
5. Erna Alfreðsd. Ak. 6.58
6. Erna T. Karlsd. Ak. 6.65
7. Guðinundur Björnsson Ak. 5.62
8. Guðrún S.gurðard. Ak. 8.28
9. Gunnar Jóhannsson Ef. 7.58
10. Hildur Jónsdóttir Ak. 6.48
11. Hilmar H. Gíslason Ak. 5.71
12. Hrefna Ingólf.d. Ak. 6.96
13. Hörður Tulinius Ak.
14. Ingólfur H. Þorsteinsson Ak.
15. Jakobína M. Valmundsd. Ak.
16. Jón M. Guðmundsson Ak.
17. Jóna Hlíf Vestmann Ak.
18. Karitas S. E. Melstað Ak.
19. Karl Jörundsson Ef.
20. Lára S. Svansd. Ak.
21. Rób. Ingimar Eydal Ak.
22. Rósa Sv. Oddsd. Ak.
23. Sigurður Árnason Ak.
24. S.'gurfljóð Káradóttir Ak.
25. Stefanía Jóhannsd. Ak.
26. Stella Stefánsd. Ak.
27. Sveinn Eiríkszon Ak.
28. Sverrir Ragnarsson Ak.
29. Unnur M. Axelsd. Ak.
30. Valgerður G. Frímann Ak.
31. Þóra Þorvaldsd. Ak.
32. Þórlaug H. Sigfúsd. Ak.
6.82
6.65
7.23
5.56
8.16
6.91
8.14
5.26
5.60
5.71
6.36
6.69
6.68
6.67
6.51
7.35
5.45
6.22
6.09
5.27
UniboðsnuiSur á Akureyri:
Þórður V. Sveinsson
Sími 1955.
LITILL
SUMARBÚSTAÐUR
til sölu. Stórt land getur
fylgt. Ef til vill veiðirétt-
indi.
A. v. á.
Framboðsfundir
í Eyjafjarðarsýslu eru ókveðnir sem hér segir:
Ólafsfirði, þriðjudaginn 9. júní kl. 8.30 síðdegis.
Hrísey, miðvikudaginn 10. júní kl. 4.30 síðdegis.
Grund í Svarfaðardal, fimmtudaginn 11. júní kl, 2 BÍðdegis.
Dalvík, fimmtudaginn 11. júní kl. 8.30 síðdegis.
Árskógsskóla, föstudaginn 12. júní kl. 2 síðdegis.
Reistará, laugardaginn 13. júní kl. 2 síðdegis.
Þinghúsi Skriðuhrepps (fyrir Öxnadals- og Skriðuhrepp),
sunnudaginn 14. júní kl. 2 siðdegis.
Þinghúsi Glæsibæjarhrepps, mánudaginn 15. júní kl. 2 eíð-
degis.
Glerárþorpi, mánudaginn 15. júní kl. 8.30 síðdegis.
Hrafnagili, þriðjudaginn 16. júní kl. 2 síðdegis.
Saurbæ, fimmtudaginn 18. júní kl. 2 síðdegis.
Þverá, fösludaginn 19. júní kl. 2 síðdegis.
Frambjóðendur Alþýðuflokksins, Framsóknar-
flokksins, Sjólfsfæðisflokksins og Sameiningar-
flokks alþýðu — Sósíalisfoflokksins.
Verkamenn og múrarar,
sem óska að komast í vinnu á Keflavíkurflugvelli,
gefi sig strax fram til þess á bæjarskrifstofunni.
V innumið lunarnefndin.
V©0©©©O©OOQ©©©©©©»©©©©©O©O©©O©©O©©©OO©©©OOO©OOOO<
— Auglýsið í íslendingi! —
Aðalfnndur
Rækfunarfélags Norðurlands
verður haldinn að Hótel KEA, Akureyri, laugardaginn 20.
júní n. k. og hefst klukkan 10 f. h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Sama dag verður minnst 50 ára afmælis félagsins og hefst
sú alhöfn klukkan 16 og fer þannig fram:
1. Lagður blómsveigur á s'.yttu Stefáns Stefánssonar skóla-
meistara hjá Menntaskólanum.
2. Lagðir blómsveigir á styttur þeirra Páls Briem amt-
manns og Sigurðar Sigurðssonar búnaðarmálastjóra ív
Gróðrarstöðinni. — Þar minnist Steindór Steindórsson
kennari forvígismanna félagsins. — Lúðrasveit leikur.
3. Kaffisamsæti að Hó'.el KEA ásamt ræðuhöldum og
fleiri skemmtiatriðum klukkan 21. Aðgangur að sam-
sætinu kr. 20.00 fyrir manninn. —- Þátttaka tilkynnist
stjórninni daginn áður.
STJÓRNIN.