Íslendingur - 06.01.1954, Page 5
Miðvikudagur 6. janúar 1954
ÍSLENDINGUR
5
HorSt um öxl
Nú líður senn að því, að „hátt-
virtir kjósendur“ fái enn kveðið
upp dómsorð yfir verkamönnum
sínum, í víngarði bæjar- og
sveitarstj órnarmála.
Þessi réttur hins almenna borg-
ara, til þess að velja og hafna,
eftir að málin hafa verið frjálst
fram borin, frá öllum hliðum, er
það bjarg, sem frjálst og fullvalda
þjóðfélag byggir á. Öll ré'.tindi
eiga sér tilsvarandi skyldur, og
öllum, sem geiið er dómsvald, ber
að íhuga vel sitt mál og dæma út
frá réttum lögum og eigin sam-
vizku.
En hvað eru „rétt lög“ fyrir al-
mennan kjósanda í þessu sam-
bandi. Þau finnast ekki í lagabók-
um, og til þeirra verður ekki vís-
að með númeri og ártali, en þeir,
sem kjósendur hafa valið til um-
boðsstarfa kunna að hafa skráð
þar ýmsa paragraffa á liðnum
kjörtímabilum.
Þetla blað — málssvari Sjálf-
stæðisflokksins, — telur ómaksins
vert að minnast málefnayfirlýs-
ingar flokksins, fyrir síðustu bæj-
arstjórnarkosningar, en hún var
birt í blaðinu 11. janúar 1950,
og athuga í því ljósi, hvað áunn-
izt hefir, á síðasta kjörtímabili,
og hvernig tekist liafi að fylgja
fram þeim málurn, sem þar grein-
ir.
Yfirlýsingin hefst á mikilvægi
þeirra sanninda, að á traustri
fjárhagsafkomu bæjarfélagsins
velti framtíðin og þær fram-
kvæmdir og lífskjör, sem hún ber
í skauti sér. í því sambandi er á-
herzla lögð á,„að sköpuð séu skil-
yrði fyrir sem fjölbreyttastan at-
vinnurekstur í bænum, og að gætl
sé hófs og eanngirni í ú'svars-
álögum á einstaklinga og fyrir-
tæki,“ að „verklegum framkvæmd
uin sé þannig hagað, að komið cé
í veg fyrir atvinnuleysi, eftir því
sem frekast er unnt og aðstæður
leyfa,“ og loks: „flokkurinn er
andv'gnr, að bærinn reki sjálfur
alvinnu, sem einstaklingar og fé
lög íá ráðið við, nema sérstakar
ástæður séu fyrir hendi.“
Þelta er einskonar inngangur,
sem að vísu skip'ir megin máli,
áður en viðhorf flokksins til ein-
stakra mála eru tekin til alhugun-
ar.
Hvernig lítur nú þessi
kafli út í ljósi fjögurra ára
reynslulíma? Fara verður fljótt
yfir sögu, en vér hvggjum, að enn
verði fjárhagsafkoma Akureyrar-
bæjar talin góð, og að henni hafi
ekki hrakað á síðasta kjörtíma-
bili. Skuldir bæjarfélagsins (sjálf
stæð fyrirtæki, svo sem Rafveita,
flokk sönglaga Hallgríms í danska
útvarpið.
Dr. Friedrich Brand í Brauns-
chweig leikur píanósónötu Hall-
gríms nr. 2 í svissneska útvarpið
í Ziirich, en Hallgrímur flytur í
sömu útvarpsslöð erindi um eðli
og þróun íslenzkra söngstefja.
Vatnsveita og Höfnin, ekki talin
nreð) í árslok 1949 námu ca.
kr. 570.000.00, en nú ca. kr.
1700.000.00, en þar í eru inni-
faldar ca. kr. 800 þús. lán, sem
tekið hefir verið, til útrýmingar
heilsuspillandi íbúðum.
Verklegum framkvæmdum álit-
um vér að hagað hafi verið, svo
sem með sanngirni verður frek-
ast krafist, með hliðsjón af at-
vinnubótamálum, og hefir það
óneitanlega skert nokkuð fullnýt-
ing þess fjár, sem til framkvæmd-
anna hefir verið varið. Hinn
snögga blett í þessum inngangs-
kafla mun, að flestra dómi, að
finna í ummælunum um hóflegar
útsvarsálögur, sem flestum mun
nú þykja illbærilegar. Ber þar
sjálfsagt ýmislegt til, svo sem
eins og það, að það lánsfé, sem
ruiínið hefir til sveitar- og bæjar-
félaga, virðist hafa haft snöggt
um greiðari íarveg til aðþrengdra
vanskilaaðila, heldur en til þeirra,
sem af einhverju hafa enn að má.
1. liður yfirlýsingarinnar, mn
viðhorf til einstakra mála, fjallar
um raforkumál, og teljum vér
ekki þörf að hafa um hann mörg
orð. Viðbótarvirkjunin við Laxá
er fullgerð og vinna við bæjar-
kerfið er komin vel áleiðis. —
Hafnarmálin virðast ekki að öllu
leyti standasi prófið. Þó eru nú
komnar upp tvær dráttarbrautir,
og er unnið að undirbúningi, í
sambandi við hina þriðju og
stærstu, til upptöku á nýsköpun-
artogurum og jafnvel stærri skip-
um. Hins vegar hafa orðið tafir
á að bryggja sú, sem byggja átti,
kæmist upp, og hefir sennilega
mestu valdið þar um, að menn
hafa ekki verið á eitt sáltir, hvar
hún skyldi reist. Verður nú vænt-
anlega hafizt handa um það verk
innan skamms.
Við útgerðarliðinn teljum vér
að ekki þurfi um að sakast. Bær-
inn hefir þegar stuðlað að því að
fest hafa verið kaup á tveim tog-
uruin, til viðbótar hinum tveim,
sem fyrir voru.
Iðnaðarmálaliðurinn tekur upp
allmikið rúm, svo sem vera ber,
og eru tveir fvrri liðirnir veiga-
mestir. Hinn fyrri um staðsetn-
ingu áburðarverksmiðju ríkisins,
en þeim leik töpuðum við sem
vænta mátti, þrátt fyrir harða
barátlu þingmanna okkar og nær-
liggjandi kjördæma. Síðari liður-
inn fjallar um rekstur tunnuverk-
smiðju þeirrar, sem Síldarútflutn-
ingsnefnd rekur nú hér. Rekstur
þessi hafði legið niðri um nokkur
ár, og ekki verið hirt um endur-
nýjun eða viðhald véla, en húsið
lá undir skemmdum vegna van
rækslu. Var allt útlit fyrir að
rekstur þessi vrði lagður niður
með öllu hér á Akurejrri. Hefir
nú skipast betur en á horfðist í
fyrstu. Verksmiðjan hefir starfað
síðustu vetur, að vísu mjög tak-
inarkað. Verulegar aðgerðir fóru
fram á húsinu fyrir nokkru cíðan
og á þessu ári verður vélakostur
mjög mikið bættur, og eru nú lík-
ur á að reksturinn verði aukinn
til muna, þegar á þessu ári. Mun
alþingismaður bæjarins, hr. Jón-
as Rafnar haía átt mjög farsælan
þátt í þessu stórfellda hagsmuna-
máli okkar. Næsti áfangi á þeim
vettvangi verður bygging tunnu-
geymsluhúss.
Liðurinn um íþróttamál mun
ekki þurfa skýringar við, að öðru
leyti en því, að mjög hefir skort
á um framkvæindir við sundlaug
bæjarins. Valdur þar einvörð-
ungu fjárskortur, en nú mun ráð-
gert að leita eftir láni til fram-
kvæmdanna.
Um heilbrigðismálin er þess
helzt að geta, að á mun þykja
skorta um byggingu gamalmenna
hælis, með „stuðningi og í sam-
ráði við Kvenfélagið Framtíðin.“
Nú horfir málið reyndar þannig
við, að segja má að Kvenfélagið
Fram'íðin hyggist reisa hælið
með stuðningi og í samráði við
Akureyrarbæ. Mættu það þykja
góð málalok, og væri bænum
sæmd í að láta ekki sinn hlut eftir
liggja.
Fyrir húsnæðismálum bæjarins
álítum vér að sómasamlega hafi
verið séð, í samræmi við 8. lið
yfjrlýsingarinnar, með lánasjóði
bæjarins sjálfs. sein efldur liefir
verið með árlegum framlögum,
og útvegun lána til útrýmingar
heilsuspillandi íbúðum og smá-
íbúðalánum.
Að lokum er svo all-langur lið-
ur um skipulagsmál, sem ekki er
rúm til að rekja hér. Hefir þar
margt verið vel gert og annað
miður, eins og við mátti búast.
Hér hafa nú verið rakin, í stór-
um dráttum, megin sjónarmið
flokksins og viðhorf til helztu
mála þeirra, sem ofarlega eru á
baugi hér í bæ, í ársbyrjun 1950,
og leitast við að sýna fram á, að
hann hefir haít á því fullan vilja
að láta ekki sitja við orðin tóm,
og um flesta hluti orðið vel á-
gengt. Ekki hefir þótt fært að
endurprenta málefnayfirlýsing-
una í heilu lagi, en væntanlega
hafa þeir, sem álruga hafa fyrir
nánari kynnum af henni, tækifæri
á að fletta upp í blaðinu.
Hitt má svo véra öllum ljóst,
að fjórum fulltrúum Sjálfstæðis-
manna í bæjarstjórn hefði að
sjálfsögðu reynst ókleyft að fram-
kvæma stefnuskrá flokksins í and
! slöðu við hina sjö bæjarfulltrú-
ana, og er það mála sannast, að
þeir hafa lagt góðunr inálunr lið,
enda verður þeim engan veginn
ætlað annað, en það lraggar ekki
þeirri staðreynd, að málefnayfir-
lýsing Sj álfstæðisflokksins, eins
og hún var sett fram í upphafi
kjörtánabilsins, hefir staðist sína
prófraun.
I fáum orðum
Jólarabb írá Bretlandi
Árið 1953 er að leka í „ald-
anna skaut“ hér í Bretlandi eins
og annars staðar. Það var merki-
legt ár. Drottning krýnd, Elísabct,
með viðhöfn. Það var annan dag
júní og var rigning. Drottning og
maður hennar eru nú í hnattreisu,
og stendur af því mikið til hjá
eyjarskeggjum í Kyrrahafi, svo
og „andfætlingum“, þ. e. Ný-Sjá-
lendingum, Ástralíumönnum og
fleirum. Margt tíðinda í pólitík,
en verður ekki rakið. Sumir segja
að heimurinn sé eða muni rétt
kominn að þvi að fara norður og
niður, sumir mótmæla þessu,
flestir kæra sig kollótta, og víst er
að ölteiti og jólaskreytingar hafa
ekki minnkað í ár. Dúfum og
spörfuglum fjölgar á Trafalgar-
torgi, London. Danskur bóndi lét
syngja jólavers yfir kúm sínum,
taldi þær mundu þá dropsamari.
Skýrslur ókomnar um útkomu
þessarar nýbreylni.
Skömmtun f lestra nauðsynj a
afnumin í Bretlandi utan helzt
„rökkvi“ (þ. e. þoka og reykur)
og verkföllum. Mikil jólaverzlun
og umferð með verra móti. Talið
að dýrustu jólakaup hafi verið
þau, að eitt knattspyrnufélag
„seldi“ öðru félagi, sem er alveg
í merinni, garp nokkurn og var
verðið nálægt 1 milljón íslenzkar
krónur, miðað við lægsta „báta-
gjaldeyri“.
Um jóladagana var sálgað í
| umferðaslysum í Bandaríkjunum
250 persónum. í London dóu af
sömu orsök sex manns aðfanga-
dag jóla. Samkvæmt skýrslum
deyja um það bil 16 manns í um-
ferðaslysum á mánuði hverjum í
Bretlandi, en þúsundir slasast.
í Surrey, ensku héraði sunnan
Lundúna, skeði það á þjóðvegi,
að framrúða í bifreið brotnaði í
mél. Bifreiðin var á ferð, en eng-
in orsök fannst til rúðubrotsins.
Er þetla 71. — sjötugasta og
fyrsla — bílrúðan, sem fer í
mask á þessum sama vegi, öllu
heldur sama kafla þjóðvegar, og
hefir aldrei fundizt ástæðan til
þessara atvika. Margs getið og
mikið rannsakað og margt talað
og hpilmikið skrifað. Sumir halda
draugur valdi, en allt er það ó-
sannað.
Barney Worth frá Bristol í Eng-
landi ánægður að liðnum jólurn,
hafði þyngst r.ær 11 kíló, en var
áður rúmlega 255 kg., og er því
nú rösklega 530 pund, íslenzk.
Kona hans er aftur á móti bara
liðlega 230 punð. (Af tilviljun sá
ég þýzkt blað, þar sem sagt var
frá hjóna„kornum“ þessurn, en
þau halda á sér sýningar víða um
lönd, og mun þetta vera rétt um
þyngdina, enda eru hjúin hreint
ferleg eftir myndurn að dæma.)
Framan af ári 1953 var tíðar-
far í Bretlandi ekki verra en við
mátti búast. Hins vegar var sum-
arið sluddsamt og kalt, það svo,
I að á enskum baðs'.öðum gátu
stúlkur ekki notað baðföt, ef „föt“
má kalla, nema helzt í húsum inni.
Og er til lítils barist ef hvergi er
hægt að sjá hve lítið hefir verið
keypt fyrir mikið fé, því það lög-
mál gildir um baðklæðnað (og
jafnvel annan fatnað) kvenna, að
verðið er í öfugu hlutfalli við
fla'armál. Konur geta keypt eund-
föt, sem hylja þær næsturn alveg,
fyrir svo til engan pening. Hins
vegar kostar ærið fé að kaupa tvo
smábleðla, hvorn á stærð við
meðal tóbaksklút eða minni.
Haust- og vetrarveðrátta í Bret-
landi var góð og nýttust hey vel
að sögn. Einkum var vetur blíður,
svo að sumarveður mátti kalla
með köflum. Er þetta í samræmi
við spár þeirra, sem halda að
„heimurinn sé að farast“, því ein-
hvers staðar stendur víst skrifað,
að fyrirboði heimsendis muni
verða sá, að menn muni ekki
kunna skil árstíða. Samkvæmt
þessu er búizt við versnandi tíð
1954, fyrs'u mánuði ársins með
grasserandi kvefpest eða flensu,
og komizt menn rétt á kreik við
og við til þess eins að kvefast aft-
ur. í maí er spáð hörkum og
gaukar allir svo kvefaðir og hás-
ir, að enginn veit hvort sumarið
er að koma eða ekki. í júní verð-
ur knatt- eða kylfuleikskeppni á
ís á Thamesfljóti, gaukar með
lungnabólgu, Derby-veðreiðar
háðar í snjó og gæðingum beitt
fyrir sleða. Talið að jólasveinn
muni líklegur til sigurs. Þegar hér
verður komið, verða allir svo
aumir og vesalir, að þeim er hjart-
anlega sama hvort heimurinn ferst
eða ekki.
Dawson í Sviss
Meistari Dawson, kunnur mað-
ur á íslandi og víðar, enda skrif-
uð bók um manninn, kvað nú
vera í Sviss. Hefir flogið fyrir að
hann ætli að selja Svissurunum
snjó, en í Svisá hefir verið svo
snjólétt, að til vandræða hefir
horft, þar sem túristar hafa enga
skafla til þess að velta sér í fyrÍT
borgun. Mun meistari Dawson
telja að þarna sé um ábatavæn-
legri hluti að ræða, heldur en að
braska með þorsk, jafnvel þótt
liann þurfi að sækja snjóinn á
Grænlandsjökla.
Sagt var að mr. Dawson hefði
látið orð falla um fiskveiðimál
og alla, sem við þau eru riðnir,
áður en hann hvarf til Svissara-
lands. Hins vegar mun fæst eða
ekkert af ummælum hans prent-
hæft, og heyrst hefir að frá húsi
nr. 35 við Berkley-torg í London,
en þar hafði mr. Dawson bæki-
stöðvar, hafi lagt brennisteinslykt
um þær mundir, sein mr. Dawson
„kvaddi“. Ekki veit ég um þetta,
kom ekki á það torg, en „ólýginn
sagði mér, en ber mig sarnt ekki
fyrir því, heillin."
Ekki er vitað hvort allir lúxus-
bílarnir, sem mr. Dawson keypti
til bess að komast frá London til
Grimsby og til baka aftur, eru
hérlendis eða erlendis, en hitt er
í almæli, að heilmikið af fiski-
kössum liggi upp í Grimsby ásamt
með fleira dóti mr. Dawsons.
Flogið hefir fyrir að kempan