Íslendingur - 31.03.1954, Page 2
2
ÍSLENDINGUR
Miðvikudagur 31. marz 1954
Jaffa
appelsínur
Blóð
appelsínur
Jaffa
sítrónur
r
Avaxtasafi
Sveskjnr Niðurs, aprikósnr Urvals hveiti:
stórar kr. 20.00 kg. í 3 kg. dósum kr. 36.00 Gold Medal
Sveskjnr Perur Pillsbury’s Brst
meðalstærð kr. 18.20 kg. Döðlur Plómur Strásykur hvítur kr. 3.00 kg.
í Iausri vigt kr. 11.00 kg. Jarðarber Strásykur grófari kr. 2.65 kg.
Blandaðir ávextir kr. 25.00 kg. Kirsuber Molasykur grófur kr. 4.00 kg.
Þingeyskt
smjör
*
Harðfiskur
i lausri vigt
*
«st:
-
> »■« í. í;.-, v-.
Ilafnarbúðiii h.f. « Skipagötu 4
, / 8»>
Utibúið við Hamarstíg — óður Söluturninn. — Sími 1530.
Útibúið Eiðsvallagötu 18. — Sími 1918.
Egg
Nýjar eendingar daglega.
-- Sími 1094
TILKYNNING
Hér með tilkynnist, að við höfum keypt SÖLUTURNINN
VIÐ HAMARSSTÍG og rekum hann framvegis sem útibú frá
HAFNARBÚÐINNI H.F. Munum við kappkosta að hafa þar
til sölu gott og fjölbreytl úrval af sams konar vörum og jafn-
an eru á boðstólum í Hafnarbúðinni, Skipagölu 4 og útibú-
inu Eiðsvallagötu 18.
Er það von okkar, að við fáum að njóta eftirleiðis við-
skipta þeirra og vinsœlda, sem Söluturninn hefir notið hing-
að til.
Akureyri, 31. marz 1954.
Haf narbúðin h.f.
Þar sem við höfum selt HAFNARBÚÐINNI H.F. SÖLU-
TURNINN VIÐ HAMARSSTÍG, þökkum við viðskiptavin-
um okkar ágcet viðskipti undanjarin ár og vonum, að þeir láli
hina nýju eigendur njó'.a sömu velvildar og við höfum átt að
fagna.
Ásbyrgi h.f.
Grein með þessari fyrirsögn
birtist í síðasta lölublaði Verka-
mannsins. Er hún skrifuð í samu
tón og ritstjóri þess blaðs skrifar
jafnan, og inniheldur sömu fyrir-
greiðslu og velvilja til þess máls,
sem um ræðir, og vant er, þ. e.
ósannindi og lævíslega tilraun til
að læða inn vantrausti á þá, cem
vinna raunhæft að undiibúningi
framkvæmda á sviði atvinnulífs-
ins í bænum.
Mér er vel ljóst, að áðurnefnt
blað mun ald.ei leggja neitt þarft
eða gagnlegt til þeirra fram-
kvæmda, sem nú er unnið að að
koma í framkvæmd. Hins vegar
er mér jafnljóst, að þegar frysti-
húsið lekur til starfa, verður þar
alið á því bl.ið eftir blað, að
kommúnistar hafi hrundið því í
framkvæmd og það sé þeim að
þakka, sem gert hefir verið (sam-
anber togaraútgerðina).
Þau skrif, sem nú eru að hefj-
ast í Verkamanninum, eru byrj-
unarundirbúningur undir hin
síðari eignaheimildaskrif blaðs-
ins.
Það þarf varla að taka fram,
svo ljóst er það bæjarbúum, að
Sjálfstæðisflokkurinn hefir ekki
gefið nein loforð um að HANN
skyldi koma hraðfrystihúsinu,
bryggjunni og togarabrautinni
upp. Til þess hafði hann enga
vissa möguleika. Hinu höfum við
lofað, og það munum við efna,
að vinna að því af fullri einurð,
að þessi mál nái fram að ganga
sem allra fyrst. en efndirnar á því
loforði eru þegar hafnar og unnið
að framgangi þessara mála af
fullum krafti.
Vegna breyítrar staðsetningar á
hraðfrystihúsinu er nú unnið að
nýrri teikningu og útboðslýsingu,
sem væntanlega verða til á næst-
unni.
Hvað bryggjunni viðvíkur, þá
hefir hafnarnefnd þegar samþykkl
byrjunarframkvæmdir á henni,
og mun flutningur á grjóti til
framhalds grjótgarði þeim, sem
þegar er gjörður, hefjast mjög
bráðlega.
Leilað hefir verið eflir láni tll
framkvæmda á togarabrautinni
eins og til hinna framkvæmd-
anna, en afgerandi svör munu
ekki fást fyrr en síðar á vorinu.
Tel ég engar líkur til, að fé fáist
til allra þessara framkvæmda
samtímis.
Lánsfjáiþörfin í landinu er
geysimikil. Fjöldi dýrra fram-
kvæmda er aðkallandi, svo sem
sementsverksmiðjan, nýjar virkj-
inir fyrir þá landsfjórðunga, sem
Fjórir þingmenn: Magnús Jóns
3on, Einar Ingimundarson, Jónas
lafnar og Kjartan J. Jóhannsson
flytja svohljóðandi tillögu til
hingsálykíunar um athugun á
brunalryggingum húseigna utan
'leykjavíkur:
Alþingi ályktar að fela ríkis-
tjórninni að láta rannsaka í
;amráði við sýslunefndir og bæj-
arstjórnir utan Reykjavíkur,
hvernig brunatryggingum húsa í
bæjum og sveitum verði hag-
kvæmast fyrir komið. Skal rann-
sókn þessari Iokið það snemma,
að auðið verði að gera á næsta
þingi þær lagabreytingar, sem
nauðsynlegar kunna að verða.
Tillögunni fvlgir þessi greinar-
gerð:
Samkvæmt Iögum er skylt að
brunatryggja allar húseignir á
landinu, nema útihús í sveitum,
ef þau eru nægilega aðgrelnd frá
búðarhúsum. Húseignir utan
Reykjavíkur cru samkv. I. nr. 73/
1942 skyldutrvggðar hjá Bruna-
bótafélagi íslands, sem er gagn-
kvæmt ábyrgðarfélag, en um
brunatryggingar í Reykjavík gilda
sérlög, nr. 1/1924. Er bæjarstjórn
Reykjavíkur með þeim lögum
veittur réitur til þess að leita til-
boða tryggingafélaga um bruna-
tryggingar í bæjum og revna
þannig á Si.-mkeppnisgrundvelli
að ná sem hagkvæmus’.um trygg-
ingaskilmálum. Önnur sveitarfé-
lög á landinu eru hins vegar
bundin með lögum við ákveðið
trygg'ngafélag og verða að hlíta
skilmálum þess. Hefur orðið vart
enn hafa ekki fengið rafmagn,
raflagnir um sveitir landsins o. m.
fl. Fjöldi bæja og kauptúna sækja
um lán til ýmiss konar fram-
kvæmda, og erum við því ekki
einir á biðilsbuxunum um lán-
beiðnir til síórframkvæmda.
Þrátt fyrir þessa miklu örðug-
leika á að fá lánsfé, geri ég mér
vonir um, að okkur takist að fá fé
lil nokkurra framkvæmda, áður
en mjög langt líður.
allmikillar óánægju og gagnrýni
á þetta skipulsg, einkum í kaup-
stöðunum, sem ýmsir telja sig
mundu ná betri tryggingakjörum
með frjálsu úlboði.
Á þessu máli eru margar hlið-
ar, og verður að teljast varhuga-
vert að leggji niður Brunabóta-
félag íslands, nema ýtarleg athug-
un á skipulagi trygginganna leiði
í Ijós, að önnur skipun mála sé
hagkvæmari og ódýrari fyrir hús-
eigendur í bæjum og sveitum
landsins.
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir
nú í hyggju að breyta nokkuð
skipun brunatrygginga í bænum
á grundvelli fenginnar reynslu.
Ekki er fyrir bendi hliðstæð at-
hugun á tilhögun brunatrygginga
utan Reykjavíkur, þannig að
nægilega hafi verið gerður sam-
anburður á þeim ýmsu leiðum,
sem til greina koma. Flutnings-
menn þessarar tillögu telja ekki
tímabært að kveða upp úr um
það, að sama skipun henti sveit-
arfélögum úti um land og Reykja-
vlk. En þar sem hér er um mikil-
vægt hagsmunamál allra húseig-
enda í sveitum og bæjum landsins
að ræða og allmikillar gagnrýni
hefir orðið varl á núverandi skip-
un brunatrygginganna, teljum
við sjálfsagt, að heildarathugun
fari nú fram á brunatryggingun-
um. Er nauðsynlegt, að ríkis-
stjórnin hafi forustu um þessa
rannsókn, en að sjálfsögðu þarf
að hafa samráð við hinar ýmsu
bæjarstjórnir og sýslunefndir og
leita álits þeirra, áður en gengið
er frá endanlegum tillögum í mál-
inu.
Eins og kunnugt er náði Akur-
eyrarbær sérstökum samningum
við Brunabótafélag íslands um
brunatryggingar fasteigna í bæn-
um, og var þar um talsverða ið-
gjaldalækkun að ræða vegna
bættra og aukinna brunavarna.
Fleiri bæjarfélög hafa og náð
svipuðum samningum. Samning-
ar þessir gilda til nokkurra ára,
og mundi framgangur framan-
greindrar þingsál.till. því engu
breyta um tryggingar í þeim bæj-
arfélögum fyrri en samningstíma-
bilið væri á enda.
RAUÐI KROSSINN
Gjafir til sjúkraflugvélarinnar: G,
280.00 kr. Ónefndur 500.00 kr. Kvenfé
Irgið Framtíðin 2000.00 kr. Drengir
gáfu á Oskudaginn 70.00 kr. Drengir
gáfu á Oskudaginn 10.00 kr. Frá ýms-
um 190.00 kr. Rósa Ge:tsdóttir 60.00
kr. Sleindór Pálinason 1000.00 kr. Hall-
grímur Jónsson, Samkomugerði 1000.00
kr. Þorvaldur Guðjónsson 100.00. Jó-
hann Pálmason 50.00 kr. — Kærar
þakkir.
-SKAK-
Hvítt Svart
WADE MILIC
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. Rc3 Bb4
4. Bg5 h6
5. Bh4 d5
6. e3 c5
7. dxc5 Rc6'
8. cxd5 Dxd5
9. BxRfö DxDf
10. HxD gxBfó
11. Re2 Bxc5
12. g3 Bd7
13. Bg2 Ke7
14, 0—0 Hh-d8
15. Re4. Bb6
16. Re2-c3 Re5
17. Rd6 Bc6
18. BxB bxB
19. Rd6-e4 Í5
20. Rd2 HxRd2
Gefið.
— Mikið liefir skyrtan hlaup-
ið við þvottinn„ elskan. Ég kemst
ekki gegnum Ihálsmálið.
— Það er ekki það. Þú ert í
hnappagatinu.
H.P.
líliug'iifi á brunaÉryg’g’-
ingii iii luisa