Íslendingur


Íslendingur - 31.03.1954, Blaðsíða 8

Íslendingur - 31.03.1954, Blaðsíða 8
1 Messað í Akureyrarkirkju á sunnu- daginn keraur. Séra Birgir Snæbjörns- son prestur á Æsustöðum messar. Föstumessa í kvöld. Fólk er vinsam- legast beðið um að liafa með sér pass- íusálmana. — P. S. Sunnudagaskóli Akureyrarkirkju er á sunnudaginn kemur kl. 10.30 f. h. 5—6 ára börn í kapellunni. 7—13 ára í kirkjunni. Lokaverðlaun veitt. Drengjadeildin. Fund- pr í kapellunni kl. 5 á sunnudaginn kemur. Til ÆFAK að loknum æskulýðsfund- inum í Varðborg 100 krónur frá N. N. •— Kærar þakkir. I. 0. 0. F. = 135428V& — II □ Rún 59543217 — 1:. Frá barnasnúlanum. Skólabörnin halda hlutaveltu í Va.ðborg næstkom- andi sunnudag kl. 4 síðdegis. — Allur ágóðinn rennur í utanfararsjóð Barna- kórs Akureyrar. Þeir, sem kynnu að vilja gefa muni, eru beðnir að koma þeim til einhvers skólabarns, cða beint í barnaskólann. Verða stærri og smærri gjafir þegnar með þökkum. Bazar og kajjisala í sal Hjálpræðis- hersins föstudaginn 2. apríl kl. 3. — Margt ágætra muna fyrir lílið verð. Kaffið selt frá kl. 3 til 10 e.h. Komið, kaupið og fáið ykkur góðan kaffisopu. — Iljálpræðisherinn. Kvenjclagið Tramtíðin lieldur fund mánudaginn 5. upríl í Túngötu 2 kl, 8.30 síðd. Hafið með ykkur kaffi. — Stjórnin. Dánardœgur. Nýlátin er hér í bæ Valgcrður Eir.arsdóttir, ekkja V'il- hjálms Þorsteinssonar bónda í Nesi, á 3. ári yfir nírælt. Dvaldi hún elliárin hjá dóttur sinni og tengdasyni, Sigur- laugu og Sveini Þórðarsyni fyrrv. hót- eleiganda. Jarðarför hennar fer fram á íöstudaginn. Dánardœgur. Þriðjudaginn 23. þ. m. varð Aðalsteinn J. Stefánsson, verk- stjóri lijá Akureyrarbæ, bráðkvaddur í miðbænum. Var hann þar á gangi, ei hann hné skyndilega niður. Aðalsteinn var 63 ára að aldri og hafði um langt skeið stjórnað vinnuflokkum við gatna- gerð og annað á vegum bæjarins. Stúkan Ísaj.dd-Fjallkonan heldui fund n.k. mánudag kl. 8.30 í Skjald- borg. Kosning embætticmanna. Sögð saga moð skuggamyndum. Leikir o. fl. Minningargjöf um Þorst. Þorsteins■ son. Kvenskáta: á Akureyri liafa gefið Skógræktarfélagi Akureyrar peninga- upphæð til minningar um Þorstein heitinn Þorsteinsson sjúkrasamlags- gjaldkera, og er félaginu í sjálfsvald sett, hvernig það ráðstafar íénu. Hjónaejni. Ungfrú Borghildur Ein- arsdóttir hjúkrunarkona (frá Osi) og Jónas Jónsson kennari frá Brekkna- koti. Almennur bœndafundur verður hald- inn annað kvöld kl. 9 í Varðborg. Um- ræðuefni: Framleiðsluhorfur og verð- lag landbúnaðarafurða. Slysavarnajclagskonur Akureyri. Af- mælisfundur verður í Alþýðuhúsinu fimmtudaginn 8. apr.'l kl. 8.30 c.h. Til skemmtunar: Einsöngur, kórsöngur, upplestur og dans. Sameiginleg kaffi- drykkja. Gjörið svo vel að taka með ykkur bollapör. — Stjórnin. Gjajir í kirkjuorgelsjóð Akurcyrar- Annall Islendings Brezkur togari Brunham strandar við Akurey. Næst út skömmu síðar lítt skemmdur. □ Talsverðar skemmdir verða af eldi í húsinu Laugavegi 20 í Reykjavík. Ratsjd d Akureyrarflogveltí Flugvöllurinn væntanlega tekinn til notkunar i haust Flugvallars’jóri ríkisins, Agnar Kofoed-Hansen. ræddi nýlega við blaðamenn í Reykjavík um flug- vallagerðir og aðrar framkvæmd- '.x í flugmálunum á síðastliðnu ári. Kvað hann byggingu Akur- eyrarflugvallar hafa verið haldið áfram af fullum krafti, og hefði fjárfesting vegna hans á árinu numið um 1 milljón króna. Þá hefði verið varið um 100 þús. kr. til flugvallargerðar í Grímsey, og stæðu vonir til, að báða þessa flugvelli yrði unnt að taka í notk- un með haustinu. Þá kvað hann flugmálastjórn- ina hafa ákveðið að koma upp radartækjum á nýja flugvellinum við Akureyri, til þess að gera að- flugið að vellinum öruggara. Verður ra’sjánni beint út Eyja- fjörð, og tekur hún á móti flug- vélunum við Hjalievri. Með flug- vitakerfinu í Eyjafirði, sem kom- ið var upp í fyrra, og ratsjánni fyrirhuguðu, er aðflugið að Ak- ureyrarflugvelli gert svo öruggt, sem frekast er unnt. Auk flugvitakerfisins í Evja- firði hefir flugmálastjórnin kom- ið upp svipuðu kerfi við Sauðár- krók og Egilsstaði. kirkju: Kvenfélagið Illíf 500.00 kr. Kvcnfélagið Framtíðin 2000.00 kr. Karlakór Akureyrar 1000.00 kr. Sigur- gelr Jónsson 1000 00 kr. Iljalti Sigurðs- son 1000.00 kr. Kr. Árnason 30.00 kr. Jón Antonsson 20.00 kr. Sigríður Dav- íðsson 25.00 kr. Bára Sigurjónsdótlir 25.00 kr. Sigr. Daníelsdóttir 25.00 kr. Ólafur Ilelga:on 25.00 kr. Svava Jó- hannesdóttir 25.00 kr. Sigrún og Ár- mann 20.00 kr. Kristján Halldórsson, Stóru-Tjörnum 100.00 kr. Guðný Björnsdóttir 10000. Björn Halldórs- son 500.00 kr. Óskar Ósberg 100.00 kr. — Kærar þakku. Fjáröflunarnefndin. Frá Goljklúbbnum. Keppni í kvöld í Verkalýðshúsinu við Strandgötu kl. 8 stundvíslega. Frá Bridgejílaginu. Úrslit para- keppninnar urðu þessi: 1) Bergþóra Eggertsdóttir og Sigurbjörn Bjarnason 257Vi stig. 2) Jóna Steinbergsdóttir og Karl Friðrlksson 253 8tig. 3) Ingunn Hallgrímsdóttir og Friðfinnur Gíslason 251 stig. 4) Margrét Jónsdóttir og Ragnar Skjóldal 24714 stig. 5) Anna Hauktdóttir og Jóhann Sigurðsson 243 stig. 6) Birna Guðmundsdóttir og Þór- ir Leifsson 242 stig. 7) Gerda Stefáns- son og Björn Einarsson 237 stig. Höjnin. 24. marz Þyrill með benzín. 25. marz Lltlafell með olíu. 26. marz Súlan af veiðum. 27. marz Drangajök- ull með áburð og Brúarfoss hringferð að austan. Bazar ÆFAK á laugardaginn kl. 4. Á laugardaginn kl. 4 verður bazar Æskulýðsfélaganna í kapellunni. Þá um leið verður iiægt að fá fagrar helgi- myndir til innrómmunar. Eru þær til- valdar fermingargjafir. Félagar, 6em eiga eftir að skiia munum, geri það í kapelluna kl. 5—6 á morgun (fimmtu- dag). Frá Leikjélai,i Akureyrar. Sýningar á Skugga-Sveini hefjast nú á ný. Sýnt verður í kvöld og laugardags- og sunnu- dagskvöld. Uppselt er á sýninguna í kvöld og laugardagskvöldið. Þá verður Ieikurinn sýndui í næstu viku og um aðra helgi að forfallalausu. Athygli skal vakin á því að aðgöngumiðarnir verða afgreiddir í Eddu daginn fyrir leikdagana milli kl. 2 og 4. Ef eitthvað kann að verða óselt af miðum, verða þeir seldir í leikhúsinu kl. 7—8 leik- daginn. Á öðrutn tímum er aðgöngu- mlðasíminn 1906. Fyrirlestur um Fjallrœðu Krists. Síð- asti fyrirlesturinn verður fluttur á Sjónarhæð á sunnudaginn kl. 5. Allir velkomnir. Aðrar ramkomur sem venju- lega. Sextugur varð í gær Stefán Guðjóns- son verkamaður Eiðsvallagötu 20 hér í bæ. Blaðsalinn, ncfnist dönsk kvikmynd, sem Nýja B.'ó hefur sýningar á annað kvöld. Er myndin byggð á 6amnefndri sögu eftir Aage Falk-Hansen og fer hin vinsæla leikkona, Ib Schönberg með aðalhlutverkið. Shólaborn iheinmta Hinar árlegu skemmtanir nem- enda Barnaskólans voru haldnar í Samkomuhúsinu fyrir og um síð- ustu helgi. Var hin síðasta í fyrra- kvöld. Onnuðust börnin að venju öll skemmtiatriði, sem voru leik- þættir, upplestur, dansar og skrautsýning. Þá söng skólakór- inn undir sfjórn Björgvins Jörg- enssonar og flokkur 9 ára drengja -sýndi stökk og aðrar íþróttir und- ir stjórn Einars Helgasonar fim- leikakennara. Er sá liður nýjung í skemmtunum barnanna hér og vakti furðu, hve drengirnir voru fimir og vel æfðir. Yfirleitt tókst börnunum 'vel við skemmtiatrið- in, en bak við þau liggur mikil vinna barnanna og kennara þeirra. Ágóðanum af skemmtunum þessum er varið íil að efla ferða- sjóð barnanna, nema s!ðasta kvöldsins til utanfararsjóðsbarna- kórsin’s. * STYRKUR TIL FRÆÐI- MANNA Menntamálaráð hefir nýlega út- hlutað 86600 krónum sem ríkis- slyrk til vísinda- og fræð.manna, Meðal þeirra, er njóta styrks þessa eru: Ólafur Jónsson ráðu- nautur, kr. 3000.00, Konráð Vil- hjálmsson rithöf., kr. 2000.00 og Jóhannes Örr. Jónsson fræðimað- ur að Steðja Þelamörk 1000.00 krónur. Handritamálið Framhald aj 1. síðu. íslenzkra fræða og Háskóla ís- lands hefði batnað til svo stórra muna ef tillögurnar hefðu náð fram að ganga, að á það hefði borið að líta. Fundurinn fær ekki betur séð, en að þessi afstaða stjórnarvald- anna hafi komið málinu í það öngþveiti sem óvíst er hvernig ráðið verður fram úr. Jafnframt telur fundurinn mikla nauðsyn að Alþingi og rík- isstjórn undirbúi næsta stig máls- ins með því að veita nú þegar fé lil að koma upp stofnun til rannsókna og ú'gáfu á íslenzkum handritum og tryggi henni nægi- leg fjárráð þegar fram líða stund- ir.“ Margir hafa orðið að láta segja sér þá fregn tvisvar, að 29 ís- lenzkir stúdentar hafi samþykkl þessa ályktun, þar sem þeir lýsa undrun sinni vfir því, að Alþingi og ríkisstjórn íslands skyldu ekki rannsaka betur það „kostaboð“, að íslenzku handritunum í Kaup- mannahöfn skvldi skipt milli ís- lendinga og Dana, þannig að hvort ríkjanna hefði sinn hálfa hlut undir höndum, en háðir hlut- irnir vera sameigiftleg eign, m. ö. o., að íslendingar einir ættu ekhert af handritunum. Telja þeir, að „hlutskipti íslenzkra fræða“ mundi balna svo mikið við slíka skiptingu, að á það hefði fyrst og fremst borið að líta. Meðan sjálfstæðisbarátta ís- lendinga við Dani stóð sem hæst á 19. öldinni og í árdaga hinnar tu!tugustu, stóðu íslenzkir Hafn- arstúdentar í brjóstfylkingu fyrir íslendingum ti! að krefjast réltar þeirra. Nöfn margra þeirra verða óafmáanleg af spjöldum sögunn- ar. Enginn, sem lesið hefir sögu íslands, mundi geta gleymt nöfn- um Jóns Eiríkssonar, Baldvins Einarssonar og Fjölnismanna. Þótt þeir dveldu langdvölum d Danmörku, eleymdu þeir aldrei málslað fslands. Og alls er óvíst um, að íslendingar hefðu fengið þær réttarbætur, er þeim þó hlotnuðust á þeim árum, ef ekki hefði notið við skeleggrar baráttu fyrir þeim og óhvikullar liðveizlu □ Aftakaveður j.erir á Suðurlandi að- faranótt 24. marz, er olli tjóni á mann- virkjum. M. a. brotnuðu 12 símastaur- ar fyrir neðan Selfoss. □ SÍBS afhentar rúmlega 40 þús. kr. sem er ágóði af fjórum hljómleikum, er hljómsveit Bandaríkjaflugliersins hélt í Þjóðleikhúsinu í febrúar. □ Brezkur togari tekinn að landhelgis- veiðum í Jökuldjúpi. Skipstjórinn hlaut 75 þús. kr. sekt, en áfrýjaði dóm- inum. □ Ungur bifreiðastjóri, Meyvant Mey- vantsson í Reykjavík höfuðkúpubrotn- ar við það að bfll, er hann var að gera við, fellur út af lyftum og niður á höf- uð hans. Maður, sem nærstaddur var, gat lyft bílnum. svo að Meyvant komst undan. Var hann fluttur í sjúkrahús. við þær af hálfu íslenzkra stúd- enta í Kaupmannahöfn. Það er lofsvert og æ!ti að vera okkur gleðietni, að íslenzkir stúd- entar sem dvelja við nám erlend- is, fylgist með íslenzkum málum, þeim er hæst ber á hverjum tíma, og taki afs'.öðu til þeirra. Félag íslenzkra stúdenta í Kaupmanna- höfn hefir nú látið tvö mál til sín taka: Varnarmálið, þar sem stúd- entarnir hafa lýst því yfir, að þeir vilji hafa landið varnarlaust, — og handritamálið, þar sem þeir telja, að við eigum að gefa Dön- uin íslenzku handritin með okkur. Þetta tvennt virðist áhugamál þeirra, eftir samþykktum þeirra að dæma: ísland sé opið fyrir innrás hernaðarþjóðar, ef ófriði’r brytist út, og við eigum að gefa upp á bátinn að reyna að fá dýr- asta bókmenntaarfi okkar skilað úr geymslu. Hvorki er þessi af- s'aða stórmannleg né líkleg til fylgis meðal íslenzkrar alþýðu. En hvað sem því líður, — við megum ekki gleyma því, að við eigum þó enn 2 — tvo stúdenta — á Hafnarslóð, sem við þurfum ekki að bera kinnroða fyrir. Samþykkt Stúdentaráðs. Stúdentaráð Háskóla íslands samþykkti á fundi sinum 26. þ.m. eflirfarandi álvktun í handrita- málinu: „Stúdentaráð Háskóla íslands fagnar þeirri einingu, sem ríkir í handritamálinu og lýsir yfir fylls'a samþykki sínu við ákvörð- un hæstvirtrar ríkisstjórnar og Alþingis, vegna hins furðulega tilboðs Dana í handritamálinu. Jafnframt leggur ráðið á- herzlu á, að íslenzka þjóðin standi einhuga að haki kröfunni um endurheimt handritanna. Þá ítrekar stúdentaráð þá skoðun, að réttur íslendinga íil handritanna sé ótvíræður og ekki skuli frá honum hvikað.“

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.