Íslendingur - 25.08.1954, Qupperneq 1
XL. árgangur
34. tbl.
Myndastytta af »Föður Reykja
víkuru afhjúpuð á afmælis-
degi borgarinnar
^ Verzlunarznenn gefa Reykjavikurbæ styttuna
Á afmælisdegi Reykjavíkur-
bæjar, þann 18. ógúsl s. 1. var af-
hjúpuð við hátíðlega athöfn stór
myndastytta af Skúla Magnússyni
landfógeta í svonefndum bæjar-
fógetagarði við Aðalstræti í
Reykjavík. Hafði Guðmundur
Einarsson frá Miðdal gert stytt-
una, og var það ærið vandaverk,
þar sem engar ljósmyndir eru til
af fógetanum.
Það voru samtök verzlunar-
manna í Reykjavík, sem hug-
myndina áttu að því að gera
styttu af Skúla, sem oft hefir ver-
ið nefndur „Faðir Reykjavíkur“,
og færðu verzlunarmenn Reykja-
víkurbæ styttuna að gjöf. Verzl-
unarmannasamtök utan Reykja-
víkur áttu eixmig hlut að gjöf
þessari.
„Innréttingar“ Skúla fógeta eru
taldar fyrsti vísir að íslenzkri
verzlun og iðnaði, og þessi ötuli
og framsýni maður fyrsti baráttu-
maðurinn fyrir innlendri verzlun.
Átti hann tíðum í höggi við sel-
stöðukaupmennina dönsku og
reyndi eftir getu að rétta hlut
landa sinna í viðskiptum við þá,
enda átti hann flesta kaupmenn
að óvildarmönnum. Það er því
vel við eigandi og maklegt, að ís-
lenzk verzlunarstétt hefir heiðrað
minningu Skúla á þann hátt, sem
hún hefir nú gert.
Við athöfnina s. 1. miðvikudag
fluttu Vilhjálmur Þ. Gíslason út-
varpsstjóri og Guðjón Einarsson
formaður Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur ræður, tvöfaldur
kvartett söng minningarljóð eftir
Tómas Guðmundsson skáld, Er-
lendur Ó. Pétursson forstjóri af-
hjúpaði styttuna og Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri veitti
gjöfinni viðtöku með stuttri
ræðu. Lúðrasveit lék, og formað-
ur Skúlanefndar V. R., Egiil Gutt-
ormsson stórkaupmaðm: flutti
lokaorð, þar sem hann þakkaði
öllum þeim, er að þessu máli
höfðu unnið. Verzlunum og skrif-
stofum var lokað frá kl. 1—4 um
daginn.
Mikið brunatjón að Grund
í Eyjafirði
Hlaða, fjós og mikið af töðu brennur
Snemma á föstudagsmorguninn
í síðustu viku varð þess vart, að
eldur var uppi í fjóshlöðu Snæ-
bjarnar Sigurðssonar bónda á
Grund í Eyjafirði. Var slökkvi-
liðið á Akuieyri beðið aðstoðar
um kl. 6 um morguninn og fór
það þegar fram eftir með slökkvi-
áhöld. Var þá eldurinn orðinn all-
magnaður í hlöðunni og kominn
í þak fjóssins, sem er sambyggt.
Voru dælur settar í bæjarlækinn,
en hann var vatnslítill, svo að
önnur leiðsla var lögð í læk um
400 metra þar frá, og fékkst
þannig nóg vatn. Sunnanstormur
var á, er æsti eldinn og tarveldaði
slökkvistarfið. Brann þarna þak
hlöðunnar og fjóssins, sem að
öðru leyti er byggt úr steini.
Kýr voru ekki hýstar, en nokkur
svín voru í fjósinu. Fórust2þeirra
í eldinum. í hlöðunni voru um
500 hestar af töðu. Brann tals-
verður hluti hennar, auk þess
sem miklar skemmdir urðu af
reyk og vatni. Var heyið grafið
upp fram eftir öllum degi og bor-
ið úr hlöðunni. Talið er víst, að
um sjálfíkveikju hafi verið að
ræða, enda hafði hitnað talsvert
í heyinu fyrr í sumar eins og víða
hefir reynzt, þar sem súgþurrkun
er enn ekki fyrir hendi.
Bóndinn, Snæbjörn Sigurðs-
son, hefir beðið mikið eignatjón
við bruna þenna, en hann var
staddur í Reykjavík þenna dag.
___
Fegrunarfélag
Akureyrar
efnir til hlutaveltu og merkja-
sölu n. k. sunnudag (höfúðdag-
inn) eins og að undanförnu, en
þá er afmælisdagur bæjarins. Er
þess vænzt, að bæjarbúar styðji
starfsemi félagsins með því að
kaupa merki þess þann dag og
gefa muni til hlutaveltunnar.
Miðvikudagur 25. ágúst 1954
Myndin hér að ofan er af dálítið einkennilegu hó kasýnishorni. Er hér um bœkur að rœða, sem
fundust í bókaskáp Jakobs Arbenz, forseta Guatemala, er honum var stökkt frá völdum. Eru bœk
ur þessar allar eftir helztu foringja kommúnista, svo sem Marx, Lenin, Stalin, Mao og Malenkov.
En vitanlega sagðist Arbenz ekki vera kommúnisti.
Séro FriðriH j. Rojnor
vígslubiskup hefir fengið lausn
frá prests- og prófastsembætti á
komanda hausti. Hefir embættið
verið auglýst laust til umsóknar
með umsóknarfresti til 1. okt.
n. k. Þá hefir Bjarnanespresta-
kall verið auglýst laust til um-
sóknar, en sr. Sváfnir Sveinbjarn
arson verið skipaður prófastur í
í stað sr. Eiríks heitins Helgason-
ar í Bjarnanesi.
Málverkasýningu
opnar Þorgeir Pálsson að Ráð-
hústorgi 7 (áður húsakynni
Landsbankans) n. k. laugardag,
28. ágúst. Sýnir hann þar milli
60 og 70 olíumálverk og vatns-
Iitamyndir. Þetta er fyrsta sjálf-
stæða sýningin, sem Þorgeir efnir
til, en áður hefir hann verið þátt-
takandi í samsýningu Félags frí-
stundamálara hér í bæ.
___»
Skemmtiferð
til Grímseyjar
N.k. sunnudag gefst almenn-
ingi kostur á að fara skemmtiferð
til Grímseyjar með Esju. Farið
verður kl. 8 á sunnudagsmorgun
og komið til baka að kveldi sama
dags. Séð verður fyrir ýmsum
skemmtiatriðum um borð. Hljóm
sveit verður með, sem lcikur fyrir
dansi.
Farseðlar verða seldir á skrif-
stofu Eimskips á föstudag og
laugardag kl. 3—7. Nánari upp-
lýsingar geta menn fengið hjá
fararstjóranum, Hermanni Stef-
ánssyni.
í íyrrasumar voru farnar tvær
skemmtiferðir með Esju til Gríms
eyjar. Var þátttaka þá mikil og
almenn ánægja yfir förinni.
Fjársöfnunin til ikáksveitar-
innar gengur vel
Eins og kunnugt er hefir verið
ráðgert að senda 5 manna skák-
sveit á Olympíumót skákmanna,
er háð verður í Hollandi fyrri
hluta október í haust, og hefir
stjórn skáksambandsins leitað til
almennings um fjárframlög í því
skyni, þar eð fé það, sem hið op-
inbera leggur sambandinu sem
styrk árlega, fór til að kosta dvöl
2ja manna á mótinu í Prag.
Vel hefir verið brugðizt við
málaleitan sambandsins, því að
áhugi fólks fyrir þátttöku íslands
í skákmótum hefir mjög vaxið
við hina glæsilegu frammistöðu
Friðriks Ólafssonar, sem hefir
sannað okkur, að í engum íþrótt-
um stöndum við jafn framarlega
á alþjóðamælikvarða og í skák-
íþróttinni. Það hefði þ ví verið
raunalegt. ef fjárskortur hindraði
þátttöku okkar í skákmótinu í
Hollandi á sama tíma og við
sendum 7 manna sveit til þátttöku
í frjálsum íþróttum á erlendum
vettvangi, án þess að eiga þar
nema mjög takmarkaða mögu-
leika til sómasamlegrar frammi-
stöðu.
Söfnun skáksambandsins var
miðuð við 40 þús. krónur, og
nam hún fullum 30 þús. kr. um
síðustu helgi. En um það leyti til-
kynnti stjórn norrænu sund-
keppninnar, að hún legði fram
5000 krónur til söfnunarinnar,
og að auki 50 aura af hverju
seldu sundmerki fram til 15. sept-
ember. Er þarna höfðinglega við
brugðizt og maklega.
Friðrik hlýtur
heiðursgjöf.
Bæjarstjórr. Reykjavíkur hefir
einróma samþykkt tillögu um að
veita Friðrik Ólafssyni skák-
meistara 10 þús. kr. heiðursgjöf.
Er það vel ráðið. því að þáttaka
hins unga skáksnillings á mótum
erlendis hefir valdið honum ýms-
um óþægindum, rneðal annars
tafið hann frá námi.
F.U.S. Vörður
fer skemmtiferð tii ólafsfjarðar
Næstkomandi laugardag gengst Vörður, félag ungra Sjálf-
stæðismanna á Akureyri, fyrir skemmtiferð til Ólafsfjarðar.
Gert er ráð fyrir, að ungt Sjálfstæðisfólk frá fleiri stöðum
r.orðanlands komi þar saman um helgina. Verður bærinn
skoðaður og sitthvað haft til skemmtunar.
Varðarfélagar, sem taka vilja þátt í förinni, gefi sig fram
við Sigurð Jónasson sími 1592, Ragnar Steinbergsson sími
1578 eða Vigni Guðmimdsson sími 1976 fyrir fimmtudags-
kvöld.