Íslendingur


Íslendingur - 25.08.1954, Side 8

Íslendingur - 25.08.1954, Side 8
Kirkjan. Messað n. k. sunnudag á Akureyri kl. 11 f. h. og í Glerárþorpi kL 2 e. h. Séra Jóhann Hlíðar messar á báðum stöðum. Hjónaefni. Ungfrú Svanfríður Jón- asdóttir Þingvallastræti 1 og Jóhann Sigurðsson rafvirkjanemi Bjarmastíg 3 Verkakvennajélagið Eining efnir til berjaferðar sunnudaginn 29. égúst, ef aæg þátttaka fæst. Félagskonur snúi sér til skrifstofu verkalýðsfélaganna í Verkalýðshúsinu, sem er opin alla virka daga kl. 16.30 til 19, og tilkynni þátttöku sína í síðasta lagi fyrir föstu- dagskvöld. Áttrœður varð f gær Jónas Jónasson (frá Kljáströnd) til heimilis að Brekkugötu 1 hér í bæ. 75 ára verður 29. þ. m. (á höfuðdag- inn) Eggert St. Melstað fyrrverandi slökkviliðsstjóri. Hjálprœðisherinn. Sunnudag 29. ág. Jd. 20.30 kveðjusamkoma fyrir Ruth Saltir. Kaptein Mangersnea stjórnar. Verið velkomin! Ranghermi var það f skýringu á mynd á 7. síðu síðasta blaðs, að minnisvarðinn á myndinni sé reistur yfir verkamennina, er féUu í Austur- Berlin í 17. júní-kröfugöngunum 1953, heldur er hann reÍ6tur til minningar um þá liðsforingja og hermenn Rauða hersins, er neituðu að skjóta á verka- mennina og týndu lífinu fyrir. Minnis- varðinn stendur í Vestur-Berlín. Mtistarakeppni Golfklúbbs Akureyr- ar hófst laugardaginn 21. ágúst og voru þátttakendur 22. Keppnin er 72 holu keppni og voru leiknar 18 holur á laug- ardaginn. Hafliði Guðmundsson náði beztum árangri á þessum 18 holum, lék þær í 76 höggum. Nr. 2 Hermann Ingimarsson og Jóhann Þorkelsson í 83 höggum og nr. 3. Sigurbjöm Bjarna- son 84. Áframhald keppninnar verður n.k. laugardag og sunnudag. Til Skáksambands íslands vegna Hol- landsmótsins kr. 100.00 frá Ólafi Jóns- syni Oddagötu 3. Aðalfundur Stéttarsambands bœnda hefir verið ákveðinn að Laugum í Reykjadal 3. og 4. september. Búnað- arsamband Eyjafjarðar auglýsir hér í blaðinu kjörmannafund að Hótel KEA þriðjudaginn 31. þ. m. og hefst hann kl. 1 e. h. Á kjörmannafundinum verða til umræðu nokkur þeirra mála, sem Stéttarsambandsfundurinn mun hafa tU meðferðar. Tveir fulltrúar frá hverju búnaðarfélagi innan Búnaðar- sambands Eyjafjarðar eiga sæti á kjör- mannafundinum og eru það sömu full- trúar og kjörnir voru é kjörmanna- fundinn síðastliðið ér. Færeyskur knattspyrnuflokkur kom hingað til lands í boði knattspyrnuíélaganna á ísafirði. Lék hann þar tvo leiki og vann báða. Hingað til Akureyrar kom flokkurinn síðastliðinn föstudag og lék hér á móti úrvali úr Þór og KA. Unnu Akureyringar leikinn með 2 mörkum gegn 0. Annar leikur fór fram á laugardag milli sömu liða, og unnu Færeyingar þann leik með 4 mörkum gegn 2. Miðvikudagur 25. ágúst 1954 Hkíl hrifning d söngshemmtin Kristins k Hollssoaor S. 1. fimmtudagskvöid hélt hinn glæsilegi BÖngvari Kristinn Hails- son úr Reykjavík söngskemmtun í Nýja Bíó með aðstoð Fritz Weishappel, en söngvarinn er ný- kominn heim frá söngnámi í London, og heyrðu Akureyringar nú til hans í fyrsta sinn. Aður hafði hann sungið í Reykjavík við dæmafáa hriíni og óvenjulega lofsamlega blaðadóma. Á söngskránni voru verk eftir Beethoven, Brahms, Schumann og Hugo Woif, lög eftir Björgvin Guðmundsson, Árna Thorsteins- son, Jón Þórarinsson og Þórarin Jónsson og loks þrjár aríur úr óperunum: Simon Boccanegra eftir Verdi, Don Juan eftir Moz- art og Prince Igor eftir Borodin. Söngvarinn bar engin merki þess að vera nýkominn frá námi, heldur líktist hann þjálfuðum og sviðvönum söngvara. Að vísu hafði hann, áður en bann fór ut- an til framhaldsnáms, notið radd- þjálfunar í Karlakórnum Fóst- bræður, þar sem hann var ein- söngvari, og sungið hlutverk í óperunni Rigoletto. Haim hefir mikla bass-baryton rödd og góð- an textaframburð og túlkunar- gáfu. Hetjurödd hans kom fyrst greinilega í Ijós í þriðja laginu „Die beiden Grenadiere41 eftir Schumann og aftur í lagi Þórar- ins Jónssonar „Norður við heim- skaut“. En hrifning áheyrenda' náði hámarki, er hann söng arí- una eftir Mozart, og hefir slíkur Víða um heim eru menn búnir að skipta um skoðun hvað snert- ir vinnuhæfni manna, sem áður voru taldir öryrkjar með öllu. Þannig er það t. d. með blint fólk og mállaust og heyrnarlaust. Frá byrjun hafa Sameinuðu þjóðirnar látið sig málefni ör- yrkja miklu máli skipta og stutt að velfarnaðarmálum þeirra. Fyr- ir utan mannúðar sjónarmiðið, sem kemur fram í aðstoð við ör- yrkja hefir það verið skoðun for- ystumanna alþjóðasamtakanna, að um leið og óhamingjusömu fólki sé veitt aðstoð við að fá trú á lífið og sjálft sig, sé verið að vekja arðbært vinnuafl úr dvala, vinnuafl, sem annars hefði farið til ónýtis. Efnahags- og Félagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC) fól fyrir nokkru sérfræðingum að gera tillögur um aðstoð við og söngur tæplega heyrst hér á Ak- ureyri. Þar söng hann eins og þrautþjálfaður óperumeistari, — eins og sá sem valdið hefir. Ilúsið mátti heita fullskipað á- heyrendum, sem nutu þessarar stundar af hjarta og sál, en því miður söng Kristinn hér aðeins þetta eina kvöld. Var hann hvað eftir annað klappaður fram á sviðið og varð að endurtaka lög og syngja aukalög. Er 6Öngskráin var tæmd, söng hann hvorki meira né minna en þrjú aukalög. Meðal þeirra var aría úr óper- unni La Bohéme. Söngvaranum bárust nokkrir blómvendir. Fritz Weishappel annaðist sitt hlutverk af sinni al- kunnu, hógværu smekkvísi. y. ___*____ Ahurnesiogar íslands- meístorar í þriöjo sinn Nýlega er lokið meistaramóti íslands í knattspyrnu. íslands- meistarar urðu Akurnesingar, eftir að hafa unnið öll þáttöku- félögin, nema KR, en leiknum við það félag lauk með jafntefli 2:2. Akurnesingar urðu fyrst íslands- meistarar í knattspyrnu 1951, en síðan 1953 og 54. Er knattspyrnu- mennirnir komu upp á Akranes nótlina eftir úrslitaleikinn, var þar hátíðleg móttökuathöfn. endurreisn öryrkja. Liggur nú fyrir skýrsla frá sérfræðinga- nefndinni í prentuðu kveri. Nefndin gerir meðal annars eftir- íarandi tillögur: 1) Komið verði á fót námskeið- um til þess að aðstoða ör- yrkja og þar sem þeir geta lært iðngrein eða eitthvað verk við sitt hæfi. 2) Fjárstyrkir vérði veittir til að stuðla að því að kennarar ör- yrkja geti ferðast til annarra landa og kynnt sér endurreisn öryrkja og síðar kennt frá sér í sínu eigin heimalandi. 3) Sérfræðingar í vinnubrögð- um öryrkja verði sendir milli þjóða til að kenna sínar að- ferðir. Sérfræðingar benda á nauðsyn þess, að náin samvinna sé um »JörondDr«jj) síldveíð- om í Norðorsjó A morgun heldur „Jörundui“, togari Guðmundar Jörundssonar, til síldveiða á nýjum slóðum, þ.e. í Norðursjó, og er það í íyrsta sinn, sem íslenzkt skxp gerir til- raim til síldveiða þar. Verður togarinn búinn síldarvörpu, sem þar er notuð til veiðanna, en afi- mn verður lagður upp í Þýzka- landi. Síld sú, er veiðist í Norðursjó með þessu veiðitæki, er ísuð og stráð salti, og getur hver veiði- ferð staðið yfir allt að 10 daga. Hraðfrystitæki togarans mimu jafnframt verða notuð, en með þeim má frysta allt að 50 timnur á sólarhring, og geymslurúm er þar fyrir um 350 tunnur. Síld- veiðarnar í Norðursjó, sem nú' eru að hefjast, standa venjulega yfir fram í desember. Skipstjóri á Jörundi í þessari útgerð verður Sigurjón Einars- son frá Hafnarfirði. Eigandi skipsins fer utan með togaranum til að koma þessari nýju síldar- útgerð af stað. Mim marga fýsa að fylgjast með því, hversu þesai tilraun tekst. ___*_____ Áðffit þorrkoi d Morðor- og Aostorloodi Eftir langvarandi óþurrka og kuldatíð norðan lands og austan brá til þurrviðra um 12. ágúst með hægri sunnanátt. Náðust þá hey bænda upp og undir þak, en þau voru víða orðin meira og minna hrakin. Má segja, að þá fysrt kæmi verulegur skriður á heyskapinn í óþurrkahéruðimxnn. Vikuna sem leið voru hlýir sxrnn- anvindar hér norðanlands, og mun vikan hafa verið hin hlýj- asta á sumrinu. Hér á Akureyri komst hitinn í 20.2 stig s. 1. mið- vikudag og í 21 stig á fimmtudag. Heitasta nóttin á 6umrinu var að- faranótt 20. ágúst. Fór hitinn þá aldrei niður úr 16 stigum. í gær tók aftur að rigna. þessi mál milli lækna og félags- málayfirvalda í hverju landi. Loks er það tekið fram í skýrsl- unni, að fyrsta skilyrðið til að gera nýta borgara úr öryrkjum sé, að almenningur líti öryrkjana öðrum augum en víða hefir tíðk- azt til þessa. Slegið er föstu, að sannað sé með ótal dæmum, að flestir öryrkjar geti orðið nýtir og þarfir þjóðfélagsborgarar. -----*----- Sameinuðu þjóðirnar vilja aðstoða öryrkja til vinnu Annáll Mendingt Þýzkur læknir, dr. Kroner, er dvald- ist á lslandi á styrjaldarárunum, deyr í Bandarikjunum. en mælir svo íyrir, að aska sin verði látin hljóta leg á ía- landú * Vísitala framíærslukostnaðar fyrir ágúst reynist 158 stig, oiuu stigi lægri en í júlí. * Bændurn í Múlasýslum leyfð veiði 600 hreindýra, er 6kiptist í ákveðnum hlutföilum milli einstakra hreppa. * Norskt flutningaskip, Jan írá Berg- en, strandar við Gróttu. Horfði lengi vel iila með björgun þess, en tókst loks að draga það á grunn inni á Eið- isvík. Skipið var með sementsfarm, og munu á 2. þúsund lestir af honum haía eyðilagzt af sjó, er komst i lestar skipsins. * Þjóðleikhúsið efnir til leikfarar til Austurlands með franska sjónleikinn Topaz, er það hafði áður sýnt á Norð- urlandi og víðar. * Maður feUur niður af 8 metra vinnu- palli við húsbyggingu á Keflavíkur- velli. Kom hann niður á steingólf og slasaðist svo, að hann beið bana af skömmu síðar. Maðurinn hét Hilmar Jónsson og var frá Siglufirði. * Verkamaður varð fyrir kassa- „slengju" við uppskipun úr Fjallfossi í Reykjavíkurhöfn. Kjálkabrotnaði hann illa og hlaut fieiri meiðsL Annar maður féll niður af sementssekkja- stæðu í húsi í Reykjavík og slasaðist. p Eldur kemur upp í viðbyggingu við Kaupfélag Hafnfirðinga í Hafnarfirði að næturþeli. Barnafjölskylda á efri hæð byggingarinnar bjargast út um glugga. Slökkviliðið vann hug á eld- inum, áður en mikið tjón yrði. Sama dag brann kaffiskúr einnig í Hafnar- firði. 1 laro ó ívrópu- meistaramótið Síðastliðinn laugardag íóru 7 íslenzkir frj álsíþróttamenn áleið- is til Sviss, þar sem þeir keppa þessa dagana á meistaramóti Ev- rópu í frjálsum íþróttum. í- þróttamennirnir eru: Ásmundur Bjarnason KR (100 og 200 m. hlaup), Guðmundur Vilhjálms- son ÍR (100 m. hlaup), Hallgrím- ur Jónsson Á (kringlukast), Skúli Thorarensen ÍR (kúlu- varp), Torfi Bryngeirsson KR (stangarstökk), Vilhjálmur Ein- ai'sson ÚÍA (þrístökk) og Þórð- ur B. Sigurðsson KR (sleggju- kast). ___ Munið samnorrænu sundkeppnina.

x

Íslendingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.