Íslendingur


Íslendingur - 23.02.1955, Blaðsíða 8

Íslendingur - 23.02.1955, Blaðsíða 8
tOOOOOOOfrSOOOOfrOOOOOOOOOt Kirkjan. — Fyrsta föstumessan er í kvöld (mlðvikudag) kl. 8.30 í Akur- eyrarkirkju. Fólk er vinsamlega beð.ð um að hafa með sér Passíusálmana og verður sungið upp úr þeim sem hér segir: 1. sálm. vers 1—8. 2. sálm. ver 1—4. 4. sálm. vers 1—4 og 22—24. Seinast eiga allir að syngja saman versið: Son Guðs ertu með sanni. (25. sálm.) — P. S. Messað á sunnudaginn kemur í Ak- ureyrarkirkju kl. 2 e.h. Sálmarnir pá eru þessir: 390, 687, 357, 370 og 232. Verið þátltakendur í mersunni og syng- ið sálmana. — P. S. Stúlkur. Fundur á sunnu daginn kl. 5 e.h. í kap- ellunni. (Gleym-mér-ei- sveitin og Eyrarrósasveit- in). I.O.O.F. 2 — 1362258% — II. — I. O. O. F. Rb. 2 — 1042238% — □ Rún 59552237 — Frl:. I.O.G.T. ■— Brynjufundur n.k. mánu- dag í Skjaldborg. Vígsla nýliða. Hag- nefnd yngra fólksins skemmtir. Æskulýðsheimilið í Varðborg verður opið fimmtudaginn 24. febrúar kl. 5—7 fyrir 11—15 ára og 8—10 fyrir 16 ára ungllnga og eldri. Verkakvennajélagið Eining hér í bæ á 40 ára afmæli í þessum mánuði, stofnað 15. febrúar 1915 af 138 konura. Fyrsti formaður þess var Guðlaug Benjamínsdóttir. Núverandi formaður er Elísabet Eiríksdóttir og hefir hún gegnt formennsku í félaginu hartnær 30 ár 8amíleytt. Aðrir í stjórn eru: frúrnar Margrét Magnúsdóttir, Vilborg Guðjónsdóltir, Lísbet Tryggvadóttir og Guðrún Guðvarðardóttir. Sextugur varð 19. þ. m. Aðalgeir Krirtjápsson verkamaður Hafnarstræti 17. Þórs-jélagar, sem hafa a huga á skíðaíþróttinni og útilegum um helgar mæti í íþróttahúsinu fimmtud. 24. þ.m. kl. 8 e.h. Stjórnin. Brúðkaup: Þann 18. febr. voru gefin saman í hjónaband brúðhjónin Erna Árnadóttir og Haukur Leifsson bifrelð- arstjóri. Heimilið er að Möðruvalla- stræti 7, Akureyri. Giftingin fór fram í Akureyrarkirkju. Kvenjélag Akureyrarkirkju heldur aðalfund í kapellu kirkjunnar laugar- daginn 26. febr. n. k. kl. 4 e. h. Venju- leg aðalfundarstörf. Kvenfélagskonur! Fjölmennið á fundinn. — Stjórnin. Til Æ.F.A.K. Áheit frá félaga 50.00 kr. Kærar þakkir. Gjaldkerinn. Togarinn Jörundur landaði í fyrra- dag rúml. 170 tonnum fiskjar í Ólafs- firði. Séra Kristján Róbertsson er nú flutt- ur að Eyrarlandsveg 16 og mun fram- vegis hafa viðtabtíma þar heima (en ekki í kirkjunni). hvern virkan dag kl. 6—7 e. h. Sími hans er 2210. Skemtiklúbbur Templara heldur skemmtikvöld fÖ6tud. 25. þ. m. kl. 8,30 6Íðd. Til skemmtunar: Félagsvist, gam- anþáttur og dans. Ný félagskort, cr gilda að 3 skemmtikvöldum, verða seld í V arðborg frá kl. 8 e. h. sama dag. — SKT. Dánardœgur. Nýlcga er látinn < í Sjúkrahúsi Akureyrar Steindór Ás- grímsson á Fiúðum við Akureyri. Hjónaejni. Ungfrú Fr.'ður Jóhannes- dóttir frá Haga í Aðaldal og Gunnar Miðvikudaginn 23. febrúar 1955 Góðar liorfur í hraðfr|§tihús§iuálinu Fzaznkvæmdabankinn lofar 3,5 millj. kr. láni til endurgreiðslu á vestur-þýzku láni Eins og öllum bæjarbúum er kunnugt hefir verið unnið kapp- samlega að því að undanförnu að útvega lán til byggingar hrað- irys'.ihúss hér í bæ. Hefir vertð .eitað til Framkvæmdabankans og ileiri aðila, án þess að loforð hafi iengizt. Hraðfrystlhússmálið hef- ii þó mætt fyllsta skilningi ríkis- stjórnarinnar og yfirleitt þeirra aðila, er leitað hefir verið til. Seint á síðastllðnu ári gerðist það í málinu, að bankastofnun í Vestur-Þýzkalandi tjáði sig mundu geta lánað allt að 6 millj. króna til frystihúss hér, með þeim skilyrðum, að keyp'ar yrðu vélar til hússins af fvrirtækjum, sem bankinn er eigandi að. Var Gísli Sigurbjörnsson forstjóri milli- göngumaður um tilboð þetta. í vikunni sem leið fóru formaður og framkvæmdastjóri Utgerðar- félags Akureyringa h.f. til Reykja- víkur og áttu þar viðræður ásamt Brynjar Jóhannsson (Ógmundssonar), Akureyri. Aheit á Strandarkirkju kr. 10.00 frá Á. Ausljirðingar á Akureyri og í ná- grenni! Tíu ára afmæjisfagnaður Aust- lirðingafélagsins verðu rhaidinn laug- ardaginn 26. þ. m. að Varðborg og hefst kl. 8 e. h. Mörg skemmliat.ið.. Aðgöngumiðar seld.r í Varðborg á miðvikudags- og finuntudagskvöid frá ki. 8—10. llmdœmisstúka Norðurlands hafði kynnikvöld í féiagshelmilinu Varðborg síðastliðið mánudagskvöld. Sýnd var stutt frleðslukvikmynd um áfengismál. Þá flutti sr. Jakob Jónsson snjallt og fróðlegt erindi um bindindismáf. Að því loknu söng kirkjukór Lögmanns- hlfðar.óknar nokkur lög. Einsöngvari kórsins var frú Helga Sigvaldadóttir, en söngstjóri Áskell Jónsson. Að lok- um þakkaði umdæmlstemplar, Ilannes J. Magnússon ræðumanni og söngfólki góða frammistöðu og geslum komuna. Húsfyllir var og almenn ánægja með það sem flutt var. Ájengisvarnarnejnd kvenna á Akur- eyri heldur fræðslu- og skemmtikvöld fyrir konur í Varðborg þriðjudaginn 1. marz kl. 8,30 e. h. — Dagskrá: 1. Ávarp. 2. Erindi, sr. Kristján Ró- bertsson. 3. Kvikmynd. 4. Tvísöngur, Heiða og Anna María Jóhannsdætur. þingmanni bæjarins við ýmsa að- ila um mál þessi, svo sem ríkis- stjórnina, sljórn og bankastjóra Ftamkvæmdabankans og Gisla Sigurbjörnsson. Hafði þá stjórn hins þýzka banka látið í ljósi ósk um. að maður yrði sendur á fund hennar til frekari viðræðna um lánstilboðið, en það hljóðaði upp á 6 millj. kr. til 4 eða 5 ára. Síð- astliðinn fös'udag barst svo bréf frá stjórn Framkvæmdabankans, þar sem hún kvað sig reiðubúna að lána t.l frys.ihússbyggingar á Akureyri 3.5 millj. kr. til 13 ára, er greiddist út á árunum 1957— 59 og gengi til greiðslu upp í þýzka lánið, ef fengist, og stjórn Framkvæmdabankans gæti fellt sig við lánskjörin. Að þessu lof orði fengnu var þegar ákveð.ð, að Gísli Sigutbjörnsson færi til Vestur-Þýzkalands til að semja um lánlökuna þar. í viðtali við blaðamenn í gær töldu þeir Helgi Pálsson og Guð mundur Guðmundsson góðar horfur á, að samningar mundu akast um lánið, og væri þá hrað frystihússmálið komið í örugga höfn. Teikningar að húsinu mundu verða tilbúnar innan fárra daga, en þær faka sífelldum breytingum til samræmis við nýj- ungar í úlbúnaði frystihúsa, sem éru all tíðar. Eru því horfur á, að hafizt verði handa um byggingu hússins með vorinu. Húsið og afköst þess. Gísli Hermannsson verkfræð- ingur Sölumiðstöðvar hraðfrysti húsanna hefir með höndum teikn- ingar hússins. Hefir því þegar verið ákveðinn staður framan við fiskverkunarstöð Ú. A. á Oddeyri. Byggingin verður 20x70 m. að fla'armáli, og öll tv lyft. Afköst hússins eru áæ.Iuð 24 tonn af flökum á 12 tímum, og mundi þá unnt að vinna úr einum togara' farmi á 2 sólarhringum, ef unnið er í vöktum. Geymsla verður í húsinu fyrir 1200 tonn af flökum og 260 tonn af ís, en möguleikar verða fyrir stækkun ísgeymslunn- ar síðar, ef á þarf að halda. Fjórfestingarleyfi fengið. 5. Upplestur. 6. Kaffi veitt ókeypis. — Ungum stúlkum sérstaklega boð.ð. — Æskilegt er að konur hafi með sér handavlnnu. — Skemmtinefndin. Togarinn Kaldbakur landaði hér s.l. laugardag 154 lestum af saltfiski og 5 ler.tum af nýjum íiski. í sömu veiði- ferð landaði hann 43 lestum af nýjum fiski á Flateyri. Innflutningsnefnd hefir þegrr veitt fjárfestingarleyfi fyrir bygg ingu hússins og heitið nauðsyn- legum innílutnings og gjaldeyris- leyfum, ef stjórn Framkvæmda- bankans samþykkir lántökuna í Þýzkalandi. Við allar þessar lána- umleitanir og leyfisumsóknir hef ir þingmaður bæjarins, Jónas G. Rafnar, unnið með stjórnendum Útgerðarfélagsins og sótt við- ræðufundi við ríkisstjórn og bankas'jórn Framkvæmdabank ans. Undirtektir ráðherra þeirra í ríkisstjórn, sem leita hefir þurft til, fjármálaráðherra og við- skiptamálaráðherra. kváðu þeir Helgi og Guðmundur hafa verið hinar beztu. Fréltir þessar glæða mjög von ir um íarsæla lausn hraðfiysti- hússmálsins, því að ef þýzka lánið fæs', sem mjög góðar voniú standa til, er fleslum ljónum rutt af vegi þess. Syigheppai Stórbríöarmátsins fór frarn við Ásgarð síðastlið inn sunnudag. Laust nýsnævi var þá yfir öilu og þyngslafæri. Úr- slit í A flokki voru þessi: 1. Hjálmar Stefánsson Sigluf. 2. Magnús Guðmundsson KA. 3. S.gtryggur Sig'ryggsson KA í B-ilokKi varð lyrsiur Skjöld ur Tómasson KA og í G ftokki Jón Bjarnason Þór. 1 ráði hefir verið, að Siglfirð- ingar tækju að sér Skíöainót iNorðurlands, en á því munu vera einhver vandkvæði vegna mann eklu. Er því ekki víst enn um inót- s. að. Skíðasamband íslands vinnur nú að því að fá norska skíða- kappann Bjarne Arentz til íslands í velur, en hann er þraulreyndur Olympíukeppandi í svigi. Ef þelta heppnast, mun Arentz slarfa hér á vegum Olympíunefndarinnar og koma til Akureyrar um 20. maiz og verða hér fram yfir landsmót- .ð við leiðbeiningar í svigi og e. t. v. fleiri skíðaiþróttum. Skíða- ráð Akureyrar leggur mikla á- herzlu á að fá hann hingað norð- ur á þeim tíma, ef samningar tak- ast um komu hans til landsins. Sr. Friöríh J. Rgjnor fsrð helðursgjöf Þann 14. þ. m. fór Sóknarnefnd Akureyrar og sóknarprestar í heimsókn til sr. Friðriks J. Rafn- ar vígslúbiskups að Úlskálum við Glerá, en þann dag átti sr. Frið'- rik 64 ára afmæli. Færði nefndin honum skrautritað ávarp inn- bundið í skinn, þar 6em sóknar- börnin þakka honum dygga og heillaríka þjónustu í löngu s’arfi hjá Akureyrarsöfnuði. Fylgdi á- varplnu peningaupphæð frá safn- aðarmönnum. Jón Júl. Þorstelns- son formaður nefndarinnar á- varpaði vígslubiskupshjónin um leið og hann afhenti gjöfina, en sr. Friðrik þakkaði auðsýndan heiður og heilhuga vináttu. f Annáll Islendings Tveir trilluhálar vcrða að nauðlenda í Brúnavík eyslra vegna sjógangs og roks. Bátarnir cyðilögðust að mestu, en mennirnir náðu hcilir á húfi t.l Borgar fjarðar. Bátarnir og mennirnir voru þaðan. Páll V. G. Kolka héraðslæknir á B.önduósi sæmdur riddarakrossi Fálka- orðunnar. íslenzk tveggja hreyfla flugvél á leið frá Kaupmannahöfn um Prestwick til Islands, nauðlendir í Skotlandi vegna ísingar. Flugmaðurinn, S.gurður Ólafs- son, sta.fsmaður hjá Loftleiðum h.f., kom t af óskaddaður, og flugvélin skemmclist minna en ætla mátti. Fimm ára gömul telpa í Keflavík, Margrét Þorgeirsdóttir, fellur undlr hjól á stórum flutningabíl á íerð, og bíður liún þegar hana. Friðjóni Þórðarsyni fulltrúa lögreglu stjórans í Reykjavík veitt Dalasýsla f.á 1. marz n. k. Eldur kemur upp í lögreglustöð Keflavíkur, og veldur þar talsverðum skemmdum. Fanga, sem þar var lokað- ur inni í klefa, bjargað út, áður cn hann sakaði. Verkamannafélaglð Dagsbrún í Reykjavlk krefst hækkunar á verka- mannakaupi um 30°/o. Tveir bcitingaskúrar á Sandi á Snæ- feilsnesi brenna til ö ku ásamt veiðar- færum tveggja bála. er voru óvátryggð. Vísltala framfærslukostnaðar fyrir fcbrúarmánuð reyndist 161 stig. Gunnar E. Benediktssqn hæstaréttar- lögmaður verður bráðkvaddur að heim ili sínu í Reykjavík, 63 ára gamall. EMur kemur upp í m.b. Síldlnni við bryggju í Ilafnarí.rði. Tveir menn, er sváfu um borð, hugðust reyna að slökkva með sjódælu. Fór annar niður í vélarrúm í þeim tilgangi, en þar missrti hann meðvitund. Slökkvlliðs- menn brutu sig inn til lians og náðu honum lifandi, en einn bjö.gunar- manna skarst við það illa á hendi. íbúðarhús á Ilvammstanga brennur. en í því bjuggu tvær fjölskyldur. — Misstu þær megnið af innbúi sínu lágt tryggðu. Yefrarhörkur í Evrópu. Fyrri hluti febrúarmánaðar hefir verið með kaldasta móti hér á landi, og meðalhitinn í janúar var lægri en um mörg undanfarin ár. Sömu sögu er að segja úr mörgum öðrum Evrópulöndum, Mikil fannkoma hefir verið í Skotlandi og hörð frost. Hafa heilir bæir í Norður-Skollandi einangrast, og eru vistir flu!tar þangað loftleið's og varpað niður úr flugvélum. Dönsku sundln eru ísi lögð, og má heita, að siglingar um þau hafi stöðvazt af þeim sökum. Mik- il fannkoma hefir verið um Norð- urlönd, einkum Svíþjóð. Þá hefir og mikið snjóað í Þýzkalandi, og yfirleitt er mikið vetrarríki suður um alla Evrópu.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.