Íslendingur - 13.07.1955, Qupperneq 5
Miðvikudagur 13. júlí 1955
ÍSLENDINGUR
s
Ávarp til
Almenna bókafélagið er til þess
stofnað að efla menningu þjóðar-
innar með útgáfu úrvalsrita í
fræðum og skáldskap og veita
mönnum kost á að eignast þau
með eins vægum kjörum og unnt
reynist. Verður af því tilefni haf-
in söfnun áskrifenda um land allt
og er til þess ætlazt, að fyrstu bæk
urnar ge'i borizt félagsmönnum í
hendur á öndverðum næsta vetri.
Hér verður því ekki við kornið
að ræða útgáfuáætlun félagsins í
einstökum atriðum, en stjórn þess
mun að sjálfsögðu gera nánari
grein fyrir henni annars staðar.
Að sinni skal aðeins sag', að fé-
lagið mun telja sér skylt að velja
til útgáfu þær bækur einar, sem
að beztu manna yfirsýn eru til
þess fallnar að veita lesendum sín-
um hlutlausa fræðslu eða l's'ræn-
an unað. Væntir félagið sér að
geta, er stundir líða, átt heilla-
vænlegt frumkvæði að ritun ým-
issa þeirra bóka, sem þjóðinni
megi verða varanlegur fengur að,
auk þess sem kos' að verður kapps
um að fá góð rit heimsbókmennt-
anna færð í íslenzkan búning.
Það er öllum mönnum vitan-
legt, að þjóð vorri er nú, að rof-
inni einangrun landsins og ný-
fengnu sjálfstæði, margur vandi
á höndum í menningarefnum, og
geta örlög hennar um langa fram-
tíð ollið á því, hversu til tekst um
stefnu hennar á næstu árum. Fyr-
ir því er henni fátt mikilvægara
en að gera sér sanna og rétta
grein fyrir kjörum s'num og öll-
um aðs'æðum. Auðsæ rök liggja
að sama skapi til þess, að félag
ísltðdilljl
vort mun í bókavali sínu hafa um-
fram allt það tvennt í huga að
kynna íslendingum andlegt líf og
háttu samtíðarinnar og glæða á-
huga þeirra og virðingu fyrir
menningarerfðum sínum, sögu,
þjóðerni og bókmenntum.
Vér, sem kjörnir höfum verið
fyrstir stjórnendur og bókmennta-
ráðsmenn félagsins, höfum skipt-
ar skoðanir á mörgum lilutum, og
er raunar þarflaust að láta slíks
getið um frjálsa menn. En um
það erum vér allir sammála, að
hamingja þjóðarinnar sé undir
því komin, að jafnan megi takast
að efla menningarþroska hennar
og sjálfsvirðingu, og væntir Al-
menna bókafélagið þess að geta
átt þar hlut að máli. Treys’um
vér því, að samhugur alls þorra
almennings með þessum megintil-
gangi endist félaginu til æskilegs
brautargengis og giftusamlegra á-
taka.
Heilsuvernd,
2. hefti þ. á. er nýkomið út. Skrif-
ar ritstjórinn, Jónas Kristjánsson
læknir greinina: Læknisfræðin á
viðsjárverðum tímamótum. Þá
skrifar hann ntinningargrein um
Sigurjón Pé'ursson verksmiðju-
eiganda og ferðaþátt frá Alassio
(úr Ítalíuferð). Aðrar helztu
greinar heftisins eru: Boðskapur
frá járnöld, Youga-hreinlæti,
Krókur á móti bragði og „Óleyfi-
leg lyfjasala“. Ennfremur eru þar
félagafrétíir, mataruppskriftir og
ýmislegt smávegis.
8kýr§la írá 4mt§boka
saí'iiinia á Aktircyri
Lesstofan frá 11. júní til 20.
mai. Gestir: Sumarmánuðina 216.
Okt. 109, nóv. 120, des. 76, jan.
95, febr. 175, marz 212, apríl
126, maí 49. Samtals gestir á les-
stofu 1294 (1031).
JJtlán frá miðjum júní til 30.
apríl. Notendur 911 (876), auk
þess lánað í 5 togara. Fjöldi
heimlánaðra bóka: Barnabækur
3514, skáldsögur þýddar á ísl.
8973, skáldsögur eftir ísl. höf.
2056, landlýsingar og ferðasögur
615, ævisögur og minningar 1266,
ísl. saga og ísl. fræði 652, aðrir
flokkar ísl. bóka 426. Erlendar
bækur alls 3867. Alls heimlánað
21369. Á lesstofu 1341. Samtals
22710 (20595). Notendur safns-
ins alls 911 -f 5 -f 1294 =
2210 (1912). Svigatölurnar frá
fyrra ári.
Ritauki: Auk skyldueintaka
bættust safninu frá 24. júní 1954
til 31. maí 1955 alls 879 bindi
(334). Gefendur: Eyjólfur Árna-
son 11 bindi, Jónas Rafnar, Krist-
nesi 1 bindi, ónefndur verkamað-
ur 3 bindi, ónefndur 10 bindi,
Steingr. J. Þors'einsson 5 bindi,
Utanríkisráðuneytið 2 bindi, Mír
Ak. 9 bindi, Nordisk Handelska-
lender 1 bindi, United States In-
formation Center, Rv. tímaritin
Life, Time, New York Times, Pro-
blems of Commuhism og 6 bindi,
Voks U. S. S. R. New Times og
U. S. S. R., M: Andersen, The Ro-
tarian, Norska utanríkisráðuneyt-
ið, Kunsten i Dag, Akureyrar-
blöðin, Vísir, Hagtíðindi, Hag-
skýrslur, Lögberg og Heims-
kringla, send safninu af útgefend-
um.
Safnið var opið til útlána tvisv-
ar í viku yfir sumarmánuðina og
þrisvar í viku frá október byrjun
fram um mánaðamótin apríl—
maí, þann tíma var lesstofan op-
in alla daga, nema sunnudaga.
Húsnæði safnsins rýmkaði
mikið við það að neðsta hæð
hússins Hafnarstr. 81, þar sem
safnið er til húsa, var keypt.
Nokkur hluti hæðarinnar hefir
þegar verið tekinn í notkun fyrir
safnið.
Microfilmusafnið var töluvert
notað af fræðimönnum.
Menningarsjóður Kaupfélags
Eyfirðinga gaf safninu tvö les-
tæki, sem er hin ágætasta gjöf.
I sumar verður safnið opið til
útlána miðvikudaga kl. 4—7,
opnað var 22. júní.
| *—
Frá B.Í.K.
Bindindisfélag íslenzkra kenn-
ara hélt aðalfund sinn 10. júní í
Reykjavík, að undangengnu
tveggja daga námskeiði um bind-
indismál.
Formaður B. í. K., Hannes J.
Magnússon skólastjóri, stjórnaði
námskeiðinu. í setningarræðu
sinni lagði hann aðaláherzlu á líf-
rænt samband félagsins við sem
flesta starfandi aðila í skólamál-
um þjóðarinnar og nauðsyn þess,
að bindindishugsjónin eignist
hvarvetna skelegga baráttumenn.
Á námskeiðinu voru flult þessi
erindi:
Sigurður Gunnarsson, skólastj.
í Húsavík: Bindindissamtökin á
Norðurlöndum.
Kristján Þorvarðarson, læknir
í Reykjavík: Áhrif áfengis á
mannslíkamann.
Sveinn Sæmundsson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík: Afengi
og afbrot.
Esra Pélursson, læknir í
Reykjavík: Tóbakið.
Þorsteinn Einarsson, íþrótta-
fulltrúi í Reykjavík: Afengi og í-
þróttir.
Oll voru erindin hin athyglis-
verðus'u. Umræður urðu um sum
þeirra. Þau voru öll tekin upp á
segulband.
Þátttakendur voru 40—50.
Að loknu námskeiðinu var svo
aðalfundur B. í. K.
Formaður félagsins gaf skýrslu
um störf þess á síðastliðnu ári, og
rædd voru af miklum og alrnenn-
um áhuga framtíðarstörf og fyrir-
æ'lanir félagsins, svo sem útgáfa
smárita urn bindindismál og
kennslubókar til fræðslu í barna-
og ungmennaskólum, árleg nám-
skeið o. fl. Hann skýrði frá því,
að Guðjón Krislinsson, gagn-
fræðaskólastjóri á ísafirði myndi
sækja norræna kennaraviku bind-
indismanna, er haldin verður í
Finnlandi í næsta mánuði. Nýlur
hann til þess styrks frá B. í. K.
og Áfengisvarnarráði.
Kris’inn Gíslason lagði fram
síðasta ársreikning félagsins og
var hann samþykktur. Félagið
nýtur nú styrks frá áfengisvarna-
ráði og er því allvel statt fjár-
hagslega.
Áfengismálaráðunautur ríkis-
ins, Brynleifur Tobiasson s'ór-
templar, mætti á fundlnum og
flutti snjalla hvatningarræðu til
félagsmanna. Hann skýrði frá
því, að ákveðið væri að stofna á
þessu ári landssamband allra
bindindissamtaka á íslandi. Fól
fundurinn stjórn félagsins að til-
nefna tvo fulltrúa til að mæta á
stofnfundi þess.
Stjórn og endurskoðendur voru
endurkjörnir, eri þar eiga sæti:
Hannes J. Magnússon, skólastj.,
Akureyri, formaður; Jóhannes
Óli Sæmundsson, námsstjóri, Ak-
ureyri, ritari; Helgi Tryggvason,
kennaraskólakennari, Reykjavík,
varaformaður; Kristinn Gíslason,
kennari, Reykjavík, gjaldkeri;
Eiríkur Sigurðsson, yfirkennari,
Akureyri, vararitari; Marinó L.
Stefánsson, kennari, Reykjavík,
og Sigurður Gunnarsson, skóla-
Flugferðír hufnar til Þónhufnar
Síðas'liðinn laugardag hófust
reglubundnar flugferðir hjá Flug-
félagi íslands milli Reykjavíkur
og Þórshafnar á Langanesi með
viðkomu á Akureyri í báðum
leiðum. Verður þessi leið farin í
sumar á hverjum laugardegi. Um-
boðsmaður F. í. á Þórshöfn verð-
ur Aðalbjörn Arngrímsson.
Fyrra sunnudag lenti Douglas-
flugvélin „Gljáfaxi1 11 frá Flugfé-
lagi íslands á hinum nýbyggða
flugvelli við Þórshöfn, og var
þetta reynsluferð. Er „Gljáfaxi“
fyrsta stóra flugvélin, sem lendir
á þessum flugvelli. Hin nýja flug-
braut er 1000 m. löng, og hefir
flugmálastjórnin séð um allar
framkvæmdir á staðnum. Með til-
komu þessa nýja flugvallar á
Þórshöfn verður s'órum bætt úr
þeim samgönguerfiðleikum, sem
löngum hafa verið við Langanes.
í reynsluflugferðinni til Þórs-
hafnar fyrra sunnudag voru þeir
Örn Ó. Johnson, framkvæmdastj.
Flugfélags íslands, Sigurður
Jónsson, skrifstofustjóri loft-
ferðaeftirlits ríkisins, og Hilmar
Sigurðsson, deildarstjóri innan-
landsflugs F. í. Þá voru einnig
með í förinni þeir Ólafur Páls-
son, verkfræðingur flugmála-
s'jórnarinnar, og Kristinn Jóns-
son, fulltrúi F. í. á Akureyri.
Fóru þessir menn til að kynna
sér nýja flugvöllinn. Flugstjóri í
reynsluferðinni var Snorri Snorra
son.
Fyrsta áætlunarferðin var svo
farin síðastliðinn laugardag.
Viðskiptatíðindi
fyrir Akureyri nefnist nýtt árs-
fjórðungsrit, sem hóf göngu sína
hér í bæ fyrir helgina, en útgef-
endur eru Kristján Jónsson full-
trúi og Arngrímur Bjarnason
skrifstofustjóri. Er rit þetta sama
efnis og Kaupsýslutíðindi, sem
út eru gefin í Reykjavík, þ. e. flyt-
ur fregnir og upplýsingar, sem
varða alla þá, sem fást við kaup-
sýslu og viðskipti, en er þó eigi
að síður til fróðleiks fyrir hvern
sem er.
Fyrst er í heftinu skxá yfir
þ'nglesin afsalsbréf á tímabilinu
írá 1. jan. s. 1. og fram í júnímán-
uð, þá lóðasanmingar (þinglesn-
ir), skrá yfir veðskuldabréf út-
gefin á tímabilinu og aflýsingu
annarra. Loks eru dómar, upp-
kveðnir á bæjarþingi Akureyrar
1. jan. til 31. maí, þ. á„ en þeir
fjalla einkum um víxil- og skulda-
mál, skaðabó'amál og annað, er
að almennum viðskiptum lýtur.
Aftast í heftinu er svo firmaskrá
iðnaðar- og kaupsýslumanna og
nokkurra annarra einstaklinga,
stofnana og fyrirtækja.
Þe'ta nýja tímarit fyllir autt
rúm í upplýsingaþjónustu blað-
anna, og má því vænta þess, að
margir vilji gerast kaupendur að
því. Upplagið mun vera lítið.
Tómstundflstörí í {élöguin og áfenglsnautn
Sænska bindindisnefndin frá'
I
1944 skilaði niðurstöðum af
rannsóknuin sínum um tóm-
stundas'örf og félagslíf æskulýðs-
ins í sambandi við áfengisnautn.
I Hér eru fáeinar af þessum niður-
stöðum:
Náið samband er á milli þess,
hvernig tómstundum er varið og
áfengisnaulnar æskulýðsins. Á-
fengisnaulnin er bundin við tóm-
s'undirnar. Það er því mikilvægt
í þessu sambandi, hvar unglingar
verja tómstundum sínum. Undan-
farin ár hefir verið mikið rætt um
það í Sviþjóð, hvað hægt er að
gera, svo að unglingarnir verji
tómslundunum vel, en ekki sér íil
tjóns. Það sýnir sig, að félagslíf
æskulýðsins eykur ábyrgðartil-
finninguna gagnvart samfélaginu
og dregur úr áfengisnautn. Hins
vegar er mikil þátttaka í ahnennu
skemmtanalífi líkleg til að liafa
gagns'æð áhrif.
Fleiri unglingar, sem eru í fé-
lögum, eru bindindissamari en
þeir, sem ekki eru í neinum fé-
lögum. Hins vegar virðist enginn
munur vera á því, hvort það eru
stjóri, Húsavik, endurskoðendur.
í námskeiðsnefnd voru kjörn-
ir: Marinó L. Stefánsson, kenn-
ari, Þors'einn Einarsson, íþrótta-
fulltrúi og Þórður Kristjánsson,
kennari, allir í Reykjavík.
Félagsmenn B. I. K. eru nú um
70. Fjölgaði þeim um 10 á síðast-
liðnu ári.
1 íþróttafélög eða önnur æskulýðs-
félög.
Rannsóknir nefndarinnar leiða
í Ijós, að af piltum á aldrinum
17—20 ára, sem eru í félögum
eru 49,6% bindindismenn, en af
þeim sem ekki eru í neinum fé-
lögum eru aðelns 31,9% bindind-
ismenn. Tilsvarandi tölur hjá
stúlkum á sama aldri eru í félög-
um 56,8% bindindismenn, en
41% af hinum.
En þegar kemur að aldrinum
21—26 ára lækka þessar íölur að
mun. Áfengissýkin smi'ar marga
á þessum aldri. Af körlum, sem
eru í félögum eru 25,9% bind-
indismenn, en af þeim, sem ekki
eru í félögum aðeins 12,9%. Til-
svarandi tölur bjá konum eru
52,5% og 28,6%. Sýná þessar
tölur að miklu meiri hundraðs-
hluti af konum eru bindindismenn
en karlar. Enda hafa konur jafn-
an tekið virkan þátt í bindindls-
starfsemi.
Af þessu sézt, að heilbrigt fé-
lagslíf er æskilegt fyrir ungt fólk.
Þar fær það félagsþörf sinni full-
nægt á heilbrigðan hátt. En mik-
ið er undir því komið, að öll
æskulýðsfélög séu bindindissöm
og vinni gegn áfengisnautn. Séu
þau það, vinna þau þjóðfélaginu
mikið gagn með því að halda
æskulýðnum sem lengst frá áfeng-
isnau'n og skaðlegum afleiðing-
um hennar.
(Frá skrifstofu Áfengisvarna-
nefndar Akureyrar.)