Íslendingur

Ataaseq assigiiaat ilaat

Íslendingur - 30.05.1956, Qupperneq 1

Íslendingur - 30.05.1956, Qupperneq 1
XLII. árg. ð í. A. h.f. greiddi 15,5 millj. í YÍiniii- lann s.l. ár Stjórn íélagsins öll endurkjörin Aðalfundur Útgerðarfélags Akureyringa h.f. var haldinn síðast- liðinn laugardag. Formaður félagsstjórnar, Helgi Pálsson, setti fundinn og nefndi til fundarstjóra Erling Friðjónsson, en hann kvaddi Pétur Hallgrímsson til að gegna störfum fundarritara. Þessi fundur var 10. aðalfundur félagsins. Dýr klössun. Þá flutti formaður yfirlits- skýrslu um starfsemi félagsins á árinu 1955. Kvað hann afkomu félagsins hafa verið verri en fvr- irfarandi ár, og kæmi þar margt til, sem allur atvinnurekstur í landinu ætti nú við að búa. En sérstaklega væri kostnaðurinn við „klössun“ togaranna vaxandi, eftir því sem þeir eltust. Hefði samanlagður kostnaður á klössun togara félagsins sl. ár numið full um tveim milljónum króna, en hún hefði farið að nokkru leyti fram í Reykjavík, þar sem engin togara-dráttarbraut væri enn til hér í bænum. 1284 úthaldsdagar. næsta ár á undan. Eins og áður segir, voru greiðslur til skips- hafna fullar 10 millj. kr. en hitt greiðslur til verkafólks við af- skipun togaranna hér, fiskverkun í fiskvinnslustöð og netahnýting- ar á netaverkstæði félagsins. Stjórnarkjör. í fundarlok var gengið til kosninga á stjórn félagsins og endurskoðendum. Fráfarandi stjórn félagsins var öll endurkjör- in, en hana skipa: Steinn Stein- sen, Helgi Pálsson, Jakob Frí- inannsson, Albert Sölvason og Óskar Gíslason. Endurskoðendur, Jón E. Sigurðsson og Þovsteinn Stefánsson bæjarritari, voru einn- ig endurkjörnir. Landskjörstjórn telur brotið gegn anda kosningalaganna, en telur lagaheimild skorta til að úrskurða sameiginlegan landslista kjósendur að baki sér, en atkvæði Framsóknar í þeim kjördæmum, þar sem þeir geta ekki unnið þingsæti, flutt yfir á Alþýðuflokk- inn. Á Alþýðuflokkurinn þannig að fá óeðlilega mörg uppbótar- sæti. Þannig hugsa þessir flokkar sér með augljósum rangindum að fá hreinan meiri hluta á Alþingi, þótt þeir auki ekki neitt fylgi sitt. Úrskurður Á árinu fór togarinn Kaldbak- ur 13 veiðiferðir fyrir heima- markað og 2 fyrir erlendan mark- að. Svalbakur 15 fyrir heima- markað og 3 fyrir erlendan. Slétt- bakur 15 fyrir heimamarkað og I fyrir erlendan. Harðbakur 9 fyr- ir heimamarkað, 4 fyrir erlendan og 2 ferðir í leit að fiskimiðum á vegum ríkisstjórnarinnar. Alls urðu úthaldsdagar togaranna 1234, en það er rúmum 200 dög- um fleira en árið áður. Þegar stjórnmálaflokkarnir, sem hafa menn í kjöri við kosning- ar til Alþingis, lögðu landslista sína fyrir landskjörstjórn, lýstu urn- boðsmenn Sjálfstæðisflokksins þeirri skoðun sinni, að Alþýðuflokk- urinn og Framsóknarflokkurinn gætu ekki hvor um sig haft lands- lista, þar eð hér væri raunverulega um einn kosningaflokk að ræða. Óskuðu þeir úrskurðar landskjörstjórnar um þetta atriði. Tóku umboðsmenn Alþýðubandalagsins og Þjóðvarnarflokksins undir þessa kröfu. Sameiginleg framboð. í greinargerð umboðsmanna Sjálfstæðisflokksins var vitnað til margra ummæla forustumanna Framsóknarflokksins og Alþýðu- fl. um „algert kosningabanda- lag“, um „sameiginleg framboð“ og „sameiginlega 6tefnuyíirlýs- ingu“. Var á það bent, að t. d. í Árnessýslu og Reykjavík er sam- vinna flokkanna svo náin, að ann- ar flokkurinn velur frambjóðend- ur á lista hins flokksins. Jafn- framt hafa forustumenn flokka þessara lýst yfir, að þeir muni liafa samvinnu eftir kosningar um framkvæmd hinnar sameiginlegu stefnuskrár. Biotið gegn anda stjórnarskrórinnar. Loks er það ljóst, sem er al- varlegast í málinu, að kosninga- samvinna flokkanna byggist ívrst og fremst á því að misnota á- kvæði stjórnarskrár og kosninga- laga um uppbótarþingsæti. Er að jþví stefnt, að þingmenn Fram- , sóknarflokksins hafi sem fæsta landskjörstjórnar. Landskjörstjórn kvað upp úr- skurð í málinu seint á mánudags- kvöld. Var þar fellt með 3:2 at- kvæðum að taka kröfuna um sam- eiginlegan landslista til greina. Kröfuna studdi annar fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í landskjör- stjórn, Einar B. Guðmundsson, hæstaréttarlögmaður, og fulltrúi AIþýðufIokksins,Vilmundur Jóns- son, landlæknir, en andvígir voru báðir fulltrúar Framsóknarflokks- ins, Sigtryggur Klemensson, ráðuneytisfulltrúi, og Vilhjálmur Jónsson, hæstaréttarlögmaður, og ennfremur Jón Ásbjörnsson, hæstaréttardómari, annar fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Þá bar Jón Ásbjörnsson fram þá tillögu í nefndinni, að listar Framsóknar og Alþýðuflokksins í Revkjavík og Árnessýslu yrðu taldir utan Framh. á 8. síðu. 4 milljónir í auknar launagreiðslur. Að ræðu formanns lokinni las framkvæmdastjóri félagsins, Guð- mundur Guðmundsson, reikninga félagsins og skýrði þá. Kvað han.i afurðasöluna hafa numið 24.782 millj. króna, en óseldar birgðir um áramót hafa verið melnar á. 15.6 millj. kr. Launagreiðslur til skipshafna togaranna hefðu hækkað um 3.246 millj. kr. (voru nú fullar 10 milljónir) og í landi | um 670 þús. kr., en öll þessi |hækkun stafar af hækkun kaup- gjalds í landinu. Vinnulaun 15.4 millj. kr. Félagið greiddi 15.388 millj. kr. í vinnulaun á árinu, og er Iþað milli 3 og 4 millj. meira en ___*___ D-listinn er listi Sjdifstffðismanna Utankj örstaðaatkvæðagreiðslu, er hefjast skyldi sl. sunnudag, var frestað um 2 daga með bráða- birgðalögum,meðan landskjör- stjórn fjallaði um kæru Sjálf- stæðisflokksins, sem sagt er trá á öðrum stað í blaðinu. Hófst utan- kjörstaðakosning í gær, og hafði þá landskjörstjórn úrskurðað landslista, þannig merkta: A-listi, listi Alþýðuflokksins, B-Iisti, listi Framsóknarflokks- ins, D-listi, listi Sjálfstæðisflokks- ins, F-listi, listi Þjóðvarnarflokks- ins, G-listi, listi Alþýðubandalags- ins. Listar flokkanna í tvímennings- kjördæmum og í Reykjavík eru merktir á sama hátt og landslist- arnir. ___*___

x

Íslendingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.