Íslendingur - 30.05.1956, Side 2
ÍSLENDINGUR
MiSvIkudagur 30. maí 1956
Röngfterö ummceli
Ég sé í „Tímanum", að lög-
fræðingar Framsóknarflokksins
hafa í greinargerð sinni til and-
svara kæru Sjálfstæðisflokksins
til landskjörstjórnar tekið orðrétt
upp nokkur ummæli úr þingræðu
eftir mig. Eiga þau ummæli að
sanna það, að raunverulega hafi
Sjálfstæðismenn lýst samþykki
sínu við þá misnotkun kosninga-
laganna, sem Framsókn og Al-
þýðuflokkurinn hafa í frammi.
Hér er um algera mistúlkun á
ummælum mínum að ræða. Þar
er það eitt sagt, að 6amkvæmt
gildandi kosningalögum sé ekkert
við því að segja, að flokkar styðji
hver annan á þann hátt, að einn
flokkurinn bjóði fram í þessu
kjördæmi, en annar í hinu og
veiti þannig hvor öðrum gagn-
kvæma aðstoð. Um það sagði ég
hins vegar ekki neitt, hvort þess
konar atkvæðaverzlun væri æski-
leg, enda tel ég ekki líklegt, aS
kjósendur láti flokksforingja
sína ráðstafa sér á þenna hátt.
Þaðan, af síður felst það í um-
mælum mínum, að eðlilegt sé cða
heimilt að flokkur velji frambjóð-
endur til þess að taka sæti á lista
annars flokks, án þess þó að um
sameiginlegt framboð sé að ræða.
Slík fásinna kom víst ekki í hug
neins þess þingmanns, sem til
máls tók við þessar umræður, —
að minnsta kosti kom hún ekki
fram í ræðum þeirra.
Og sízt af öllu felst í orðum
mínum viðurkenning á þeirri
misnotkun kosningalaganna um
uppbótarþingsæti, sem er undir-
staða allra reikningskúnsta þeirra,
sem kosningasamstarf Framsókn-
ar og Alþýðuflokksins byggist á.
Uppbótarsætin eiga að vera til
jöfnunar milli þingflokka en ekki
til þess að auka galla kjördæma-
skipunarinnar.
í því sama tölublaði „Tímans“
og ummæli mín birtust, getur a5
líta þá röksemd GuSmundar í.
Guðmundssonar, talsmanns Al-
þýðuflokksins fyrir landskjör
stjórn, að framboð hinna sér-
stöku landslista Framsóknar og
j Alþýðuflokksins séu í samræmi
| við ákvæði kosningalaganna, og
landskjörstjórn hafi ekki heimild
til að auka við þau skilyrði. Mér
verður nú á sama hátt á að benda
lögfræðingum Framsóknarflokks-
ins á það, að það er bæði gagns-
laust og ósæmilegt í málflutningi
að telja ummæli viðurkenningu á
atferli, sem ummælin ails ekki
snerta.
Magnús Jónsson.
Skot út i loftið
í „Degi“, er út kom 25. þ. m., getur
að líta ritsmíð, sem á að vera svar við
greinarkorni því, er ég skrifaði í „ís-
lending" 16. maí.
Eftir atvikum get ég verið mjög á-
nægður með „svarið", því engin til-
raun er gerð til að hnekkja einu at-
riði af því, sem ég hélt fram í grein
minni.
Barnalegt gaspur, lélega fyndni og
ókurteisleg orð, sem greinarhöf. er að
slá um sig með, met ég ekki til svars.
Til þess er mál það, er um er rætt,
allt of alvarlegs efnis.
En það, sem ég vildi bæta við áður
sagt, er þetta:
Engin skömm mun hvorki mér né
neinum skynibornum manni að íhalds-
nafni, réttskildu, og sannast sagt mun
okkur mörgum liafa þótt Sjálfstæðis-
flokkurinn vera full framgjarn og
tefla stundum á tæpasta vaðið í ákefð
sinni að ná sem fyrst marki í fram-
faramálum þjóðarinnar. Hitt mundi
mér þykja rnikil hneisa að vera í
stjórnmálaflokki, sem kennir sig við
framsæknina, en er sótsvart afturhald.
Fjórmagn
til flokksstarfsemi.
Ekkert veit ég um það, hvort ein-
hverjir heildsalar kunni að leggja fram
fé til starfsemi stjórnmálaflokka, en
þykir það ekki ósennilegt. Hitt veit
ég, að það eru fleiri heildsalar en
Sjálfstæðismenn. f þeirri stétt er að
finna æði marga Framsóknarmenn, Al-
þýðuflokksmenn og Kommúnista. Mjög
þykir mér líklegt, að hver leggi 8Ínum
flokki eitthvert lið fjárhagslega. En svu
er langstærsti heildsalinn á íslandi,
sem mun, að því að ég hefi heyrt ugt,
hafa með höndum allt að eða um helm-
ing af öllum innflutningi þjóðarinnar,
það er Samband ísl. samvinnufélaga.
Til að fylgja sömu rökum og greinar-
höfundur, ætti þetta fyrirtæki að haldj
uppi stjórnmálastarfsemi Framsóknar-
flokksins og þar sem greinarhöf. miðar
við gjaldstyrkleika heildsalanna, geri
ég ráð fyrir, að Framsóknarflokkurinn
ætti ekki að vera á flæðiskeri staddur
fjárhagslega og hafa ekki Sjálfstæðis-
flokkinn af neinu að öfunda í því efni,
enda ætti þá Framsóknarflokkurinn
ekki að vera minni flokkur en Sjálf-
stæðisflokkurinn, ef stærð flokka ætti
aðeins við fjárhagsgetu að miðast.
Samvinnumenn,
Sjólfstæðismenn.
Ekki gerir greinarhöf. neina tilraun
til að hrekja það, að fjöldi samvinnu-
manna sé í Sjálfstæðisflokknum, enda
mundi slíkt algerlega tilgangslaust, en
hann reynir að snúa dæminu við og
láta líta svo út, að Sjálfstæðismenn
verzli við kaupfélögin af því að svo
gott sé að verzla þar. Hann má þetta
fyrir mér, en það er ekki hægt að
leysa dæmið öfugt upp sett. Staðreynd-
in er, að fjöldi samvinnumanna eru í
Sjálfstæðisflokknum, og hvar þeir
verzla, kemur þessu máli ekki við, og
ekkert merkilegt við það, að samvinnu-
menn verzli við kaupfélög. Einnig
verzlar fjöldi Framsóknarmanna við
kaupmenn og er að sjálfsögðu ekkert
merkilegt við það heldur, en í sam-
ræmi við það, sem ég hefi áður haldið
fram. Þessir menn hafa bara augun op-
in fyrir því, að verzlun og ttjórnmál
eru sitt hvað.
Greinarhöf. ráðleggur mér að kynna
mér samvinnumál, svo ég geti lært
hvernig farið sé að því að nota til
framkvæmda peninga, sem búið sé að
greiða út. Það væri nú að vísu freist-
andi að gamna sér svo lítið við svona
umsögn, en sleppi því, en af því að ég
veit nægilega mikið um útgreiðsluað-
ferðir þær, sem greinarhöf. talar um,
þarf ég ekki kennslutíina hjá honum í
því, en gjarna hefði ég viíjað mega
njóta kennslu hans í því, hvernig
bændurnir hérna úti i sveitunum fara
að því að bæta bú sín og jarðir fyrir
slíkar útgreiðslur.
Mjólkursamlagið.
Hreinn útúrsnúningur er það, að ég
hafi gert árás á Mjólkursamlag KEA,
enda reynir greinarhöf. ekki að hrekja
neitt, sem ég sagði um það. Þessa
stofnun tók ég sem dæmi, vegna þess
að það hefir, að heita má, einokunar-
aðstöðu, að lögum, en ckki vegna þess
að það er samvinnufélag. Framleiðslu-
gæði þess hefi ég ekki dregið í efa,
enda þessu óviðkomandi. Ekki heldur
hefi ég neitt sagt um það, hvort þetta
fyrirkomulag geti verið hagkvæmt fyr-
ir framleiðendurna eða ekki. En á
þessu máli, eins og öðrum, eru fleiri
en ein hlið. Á því er hlið, sem snýr að
neytendunum, og það er sú hliðin, sem
ég ræddi um. En úr því að greinarhöf.
minnist á byrjunarframkvæmdir injólk
urlaganna, þá væri ekki úr vegi fyrir
hann að kynna sér hvernig farið var að
því að eyðileggja, með framkvæmd
mjólkurlaganna, stórkostlegasta bú-
rekstur, sem nokkru sinni hefir verið
stofnað til hér á landi, en það var
Korpúlfsstaðabúið. Fleiri dæmi hirði
ég ekki að nefna, þótt af nógu sé að
taka.
Olíufélagið.
Greinarhöf. neitar ekki réttmæti þess
dóm8 er það fékk. En hvernig ætli
söngurinn hefði orðið, ef SÍS og kaup-
félögin hefðu ekki verið jafn stórir
hluthafar i því fyrirtæki og þau eru?
Ekki hefi ég aðgang að reiknings-
haldi olíufélaganna og veit ekki um
gróða þeirra, en ég veit ekki betur cn
vörur þeirra séu undir verðlagseftirliti
ríkisins og ætti það, 6amkvæmt kenn-
ingu Framsóknarmanna, að vera trygg-
ing fyrir réttu verði. En hitt veit ég, að
á sama tíma og „hin“ olíufélögin
greiddu viðskiptamönnum sínum af-
slátt af viðskiptum sínum í beinhörð-
um peningum, greiddi KEA sínum
olíuviðskiptamönnum sams konar af-
slátt með færslu í stofnsjóð. Hvers
virði það kann að verða veit enginn,
en það gæti verið skemmtilegt rann-
sóknarefni fyrir greinarhöfund að finna
út, hvers virði krónan er í dag, með
vöxtum og vaxtavöxtum, sem lögð var
í stofnsjóð KEA t.d. um sl. aldamót,
og gæti þá útkoman orðið uppistaðan
í nýja hólgrein um samvinnufélags-
skapinn í næsta Degi,
Byggingameistaraícl. Akureyrar
heldur AÐALFUND sinn að Hótel KEA (Rotarysal)
föstudaginn 1. júní n. k. kl. 8,30 síðd.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Framboðsfundir
verða haldnir í Eyjafirði sem hér segir:
Ólafsfirði, föstudaginn 8. júní kl. 8.30.
Hrísey, laugardaginn 9. júní kl. 2.
Dalvík, mánudaginn 11. júní kl. 8.30.
Þinghúsi Árskógshrepps, þriðjudaginn 12. júní kl. 2.
Þinghúsi Skriðuhrepps, miðvikudaginn 13. júní kl. 2.
Þinghúsi Saurbæjarhrepps, fimmtud. 14. júní kl. 2.
Frambjóðendur.
hverjum sem um þær vill fara, þrátt
fyrir þennan framlagsmun.
Lokaorð.
Lengra mun ég nú ekki hafa þetta,
en mér sýnist greinarhöfundur muni
vera óþarflega óstilltur á geðsmunun-
um og ekki sé trútt um, að honum
finnist einhver slæðingur f kring um
sig, eins og einsetukarlinum, sem
fannst stundum vera óhreint í kring
um kofann sinn, rauk þá á fætur, greip
byssuna sína og „fíraði" út í loftið, en
vita má hann að hvernig og hvað oft
sem hann hleypir af hólknum, tekst
honum aldrei að hitta sannleikann.
Hann fer sinna ferða og mun sigra að
lokum, þrátt fyrir allan klaufalegan á-
róður greinarhöfundar og annarra.
Skrifum þessum er lokið af minni
hendi.
Bœjarbúi-
Kaupið nestið
þar sem úrvalið er mest
BORGARSALAN
Ráðhústorgi 1. Sími 1100
Hann œtlaði að hyssa hana, en
liún maldaði í móinn og sagði:
Þú mátt alls ekki kyssa mig. Hann
svaraði'- Ég sver við guð, að ég
verð að fá að kyssa þig. Þá sagði
hún: Jœja, úr því þú hefir svarið
það, þá hejirðu sjálfsagt rétt fyr-
ir þér, en þú mátt ekki gera svona
nokkuð að reglu eða ávana.
Steypustyrktarjórn
Bindivír (trönuvír)
Bindilykkjur
Byggingavöruverzlun
Akureyrar h.f.
Harðviður
Valborð
T rétex
Tjörupappi
Byggingavöruverzlun
Akureyrar h.f.
Ndlcðjr strammi
nýkominn.
Aðeins eitt stykki af hverri
tegund.
Anna & Freyja
Vanur flatningsmakr
óskast til Grímseyjar í á-
kvæðisvinnu við fiskaðgerð
í sumar. Upplýsingar gefur
BJARNI MAGNÚSSON,
Grímsey.
Göturnar.
Greinarhöf. virðist ekki skilja það,
að ég tók göturnar aðeins sem dæmi
um það að gjaldendur yfirleitt í bæn-
um greiða til viðbótar sínum réttmæta
hluta, einnig verulegan hluta af því,
sem KEA ætti að réttu lagi að greiða,
til opinberra framkvæmda í bænum.
Auðvitað eru svo göturnar eign bæj-
arins að svo miklu leyti, sem um eign
getur verið að ræða, og jafnfrjáUar
J
«
fyrir Akureyri og Eyjafjarðarsýslu
verður framvegia í HAFNARSTRÆTI 101 (Amaróhúsinu).
Skrifstofan verður opin fyrst um sinn alla virka
daga kl. 10—19 og 20—22. Simi skrifstofunnar
er 1578 og 1325.
Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og í Eyja-
fjarðarsýslu eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna
varðandi öll mál, sem við koma kosningaundirbúningi. —