Íslendingur - 30.05.1956, Side 8
íslendingur kemur nœst út laugar-
daginn 2. júní. Bíður mikið efni þess
blaðs.
Aðaljundur Kaupfélags Eyfirðinga
hófst hér í bænum í gær og mun vænt-
anlega Ijúka í dag.
Kappreiðar. Hinar áður auglýstu
kappreiðar Hestamannafélagsins Léttis
sem féllu niður vegna flóða f Eyja-
fjarðará, verða haldnar næstkomandi
laugardag, 2. júní, kl. 15.30.
Kyljingar. Keppnin um Gunnarsbik-
arinn hefst laugardaginn 2. júní kl. 2.
Leiknar verða 18 holur. Keppnin held-
ur svo áfram um aðra helgi. Laugar-
daginn 9. júní kl. 2 18 holur og sunnu-
daginn 10. júní kl. 8.30 36 holur. —
Keppt er með fullri forgjöf. Keppend-
ur eru beðnir að mæta 15 mín. fyrir
auglýstan tíma vegna útdráttar. Kapp-
leikanefndin.
Leiðrétting. Sú villa slæddist inn í
grein um kjósendafjölgun í landinu í
síðasta miðvikudagsblaði, að þrír
kaupstaðir væru í Gullbringu- og Kjós-
arsýslu, en þeir eru aðeins tveir (Kefla-
vík og Kópavogur).
Bijreiðaskoðun. Miðvikudag 30. maí
A-901—950. Fimmtudag 31. maí A-951
—1000. Föstudag 1. júní A-1001—1050.
Tónlistarskóla Akureyrar verður slit-
ið í Lóni á morgun kl. 6 síðdegis.
Sprettutíð hefir vcrið góð að undan-
förnu, og er þegar farið að slá lóðar-
bletti hér í bænum. Á Eiðsvelli er kaf-
gras, og var byrjað að slá hann í fyrra-
dag.
Dánardœgur. SI. laugardag andaðist
í Fjórðungssjúkrahúsinu Ingibjörg
Tryggvadóttir frá Kristnesi 84 ára að
aldri. Ingibjörg var greind mannkosta-
kona, hjartahrein og velviljuð öllum,
er hún hafði kynni af.
Hjálprœðisherinn. Föstudaginn kl.
20.30: Söng- og hljóðfærahátið. Kapt.
Tellefsen og frú stjórna og tala. Ein-
söngur, tvísöngur, einleikur á cornett
og fleira. Sunnudaginn kl. 16: Útisam-
koma; kl. 20.30 almenn samkoma. —
Verið hjartanlega velkomin.
Kirkjan. Messað f Akureyrarkirkju
n.k. sunnudag kl. 1.30 e.h. Sjómanna-
dagurinn. Sálmar: Nr. 68, 364, 124,
660 og 58. Athugið breyttan messu-
tíma. (K. R.)
____*_____
t
Gestur Kristinsson
bóndi í Ytra-Dalsgerði í Saurbæj-
arhreppi varð bráðkvaddur að
heimili sínu á annan hvítasunnu-
dag, aðeins 46 ára gamall. Gestur
var sonur hjónanna Kristins
Jónssonar írá Torfufelli og konu
hans Guðrúnar Guðmundsdóttur
(frá Þormóðsstöðum í Sölvadal)
er Iengi höfðu búið að Ytra-Dals-
gerði.
Fyrir nokkrum árum kvæntist
Gestur Jakobinu Sigurvinsdóttur
frá Völlum, og áttu þau 5 ung
börn. Gestur heitinn var dugnað-
armaður, sem gerði sér far um að
bæta jörð sína eftir mætti, hóg-
vær í dagfari og vinsæll meðal
sveitunga sinna. Kom það bezt í
Ijós við útför hans í fyrradag.
Var hann þá jarðsunginn að
Möðruvöllum við meira fjöl-
menni en kirkjan gat rúmað.
Með fráfalli Gests er sár harm-
Miðvikudagur 30. maí 1956
ur kveðinn að ungri konu hans
og börnum, og sveitin hans hefir
orðið að sjá á bak góðum og
gegnum dreng.
Markvörður Keflvíkinga grípur j.nöttinn. Ljósm. H. Ingimarsson.
Bsjaihcppni Ahureyrar
09
Síðastliðinn laugardag fór fram
hér í bænum bæjarkeppni í knatt-
spyrnu milli Akureyrar og Kefla-
víkur. Keppt var um fagran silf-
urbikar, sem gefinn var af Aðal-
stöðinni h.f., Keflavík.
Akureyri vann bikarinn í þetta
sihn með 3:2. Bikarinn vinnst til
eignar með því að vinna hann
þrisvar í röð eða 5 sinnum alls,
og verður keppt til skiptis á stöð-
unum.
Fyrirhuguð er bæjarkeppni milli
Akureyrar og Reykjavíkur í
Reykjavík 15. ágúst næstkomandi.
___❖____
Gleymdi síðustu
kosningum
Alþýðumaðurinn birtir í gær
töflur yfir kjósendafylgi Sjálf-
stæðisflokksins á Akureyri við
nokkrar kosningar til Alþingis og
til samanburðar sameiginlegt
fylgi Alþýðuflokksins og Fram-
sóknar við þær hinar sömu. Sam-
anburður blaðsins nær þó ekki lil
síðustu kosninga, 1953, og virð-
ist ritstjórinn hafa gleymt þeim.
E. t. v. stafar gleymskan aí því,
að þær kosningar vann Sjá'fsiæð'
isflokkurinn hér með glæsilegri
sigri en nokkrar áður.
___*____
Ndlefnasnautt b!að
Svo snauður er Alþýðumaður-
inn af málefnum nú fyrir kosn
ingarnar, að hann eyðir í gær
nær tveim síðum af takmörkuðu
rúmi sínu undir skriftamál Áka
Jakobssonar, sem a. m. k. hafa
verið birt í 3 blöðum áður. I
blaðinu getur ekki einu sinni lo
líta uppörvunarorð til bændanna
í Austur-Húnavatnssýslu ;im að
taka vel á móti tryggingastjóran
uin á Akureyri og styðja vel við
bakið á honum í kosningunum í
vor.
Athvieðabraslijð
Framhald aj 1. siðu.
flokka, þar eð það væru ekki
hreinir landslistar, en sú tillaga
var einnig felld með 3:2 atkvæð'
um.
Álit einstakra
landskjörstjórnar-
manna.
Landskjörstjórnarmenn gerðu ?
fcrnu lagi grein fyrir atkvæði
sínu.
Einar B. Guðmundsson kvaðst
álíta, að hér væri um algert kosn-
ingabandalag að ræða, og því
ætti að vera einn landslisti. í
kosningalögunum væru engin
bein ákvæði um kosningabanda-
lög, en Ijóst væri, að ineð fram-
boðstilhögun Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins væri brotið
gegn anda stjórnarskrárinnar og
kosningalaganna.
Jón Ásbjörnsson taldi ekki eðli-
Iegt að úthluta hvorum flokki
uppbótarsætum sérstaklega, en
hins vegar væri ekki lagaheimild
til að úthluta tveimur flokkum
uppbótarsætum sameiginlega.
Vilmundur Jónsson kvað það
hlutverk landskjörstjórnar að
standa vörð um kosningalögin og
koma í veg fyrir, að ákvæði
þeirra og andi væru brotin eða
sniðgengin. Lagði hann áherzlu
á, að algert kosningabandalag
væri milli Alþýðuflokksins og
Framsóknarflokksins og bæri því
að úthluta þeim uppbótarsætum
sameiginlega.
Sigtryggur Klemenzson og Vil-
hjálmur Jónsson töldu verða að
halda fast við bókstaf kosninga-
laganna.
Landskjörstjórn íelur
broíið gegn anda
stjórnarskrór og
kosningalaga.
Þótt meiri hluti landskjörstjórn-
ar telji ekki auðið að taka til
greina kröfuna um sameiginlegan
landslista vegna orðalags kosn-
ingalaga, liggur samt ótvírætt
fyrir, að meiri hluti landskjör-
stjórnar telur brotið gegn anda
stjórnarskrár og kosningalaga
með atkvæðabraski Hræðslu-
bandalagsins. Það er staðfest, að
þetta brask er svo fráleitt, að höf- j
undum kosningalaganna hefir
ekki komið í hug slikt atferli,
þegar kcsningalögin voru samin.
Meiri hluti landskjörstjórnar
hefir þannig staðfest þá ákæru
Sjálfstæðismanna, að Hræðslu-
bandalagið hugsi sér að auka
þingmannatölu sína með rangind-
um. í allan vetur hafa lögfræð-
ingar Hræðslubandalagsflokk-
anna setið við að reikna út,
hversu lengst mætti ganga í því
að misnota kosningalögin. Lands-
kjörstjórn staðfestir, að rangind-
um sé beitt, en meiri hlutinn tel-
ur sig skorta lagaheimild til að
koma í veg fyrir það.
Dókstajur kosningalaganna
verndar þannig atkvœðabrask-
ið, en kjósendurnir sjálfir
munu sjá um það, að ekki
verði brotið gegn anda stjórn-
arskrár og kosningalaga. Pann
dóm geta Hrœðslubandalags-
foringjarnir ekki umflúið.
Óltinn magnast
Aðstandendur H-bandalagsins
hafa litið sofið undanfarna daga,
eftir að kæran yfir atkvæðabraski
jieirra var lögð fyrir landkjörstjórn.
Framsókn hafði troð.'ð 4 mönnum
inn ó lista Alþýðuflokksins í Rvik.
og í þriðja sætinu trónaði Rann-
veig Þorstsinsdóttir fyrrv. þing-
kona, cftir að hafa hlotið sigur í
þrcnnum cða fernum harðsóttum
prófkosningum í Framsóknarfé-
lögum Reykjavikur. Þetta ótví-
ræða traust flokksmanna galt
hún með því að segja sig úr flokkn
um og genga hinum deyjandi Al-
þýðuflokk ó hönd, cftir að spurzt
hafði, cð reikningsmelstari Alþfl.
„rciknaði með" 1500 otkvæ?:
tapi listans, vcgna nafns Rani.-
veigar ó listanum!
Svo mikill fclmtur er nú í hinni
„sigurvissu" fylkingu Hræðslu-
bandalagsins, að vænta mó dag-
lcga hinna ólíklegustu frcgna
þaðan.
- Golífréttir -
Um síðustu lielgi hófst keppnin
um stigabikarinn. Leiknar voru
18 holur.
Eftir 9 holur stóðu leikar þann-
ig, að Hermann hafði leikið í 37
höggum og Gestur í 38. Gestur
lék þenna hring afbragðs vel, og
var þó svo óheppinn á 6. holu að
slá kúluna út fyrir vallartakmörk,
er kostaði hann tvö víti-högg.
Eftir tvó hringi var Hermann
ÍSLENDINGUR
'æst í lausasöln á eftirtöldum RtöSum'.
AKUREYRI:
Rlaðasalan. Ilafnarstræti 97,
Blaða- og sælgætissalan v. Ráðliústorg,
Bókaverzlun Gunnlaugs Tryggva,
Bókaverzl. Edda,
REYKJAVfK:
Bókaverzlun ísafoldar,
Söluturninn við Lækjartorg.
SICLUFJÖRÐUR:
Bókaverzlun BlöndaU.
DALVfK:
Bókaverz.lun Jóh. G. Sigurðssonar.
orðinn sex höggum beztur, og
stóðu leikar þannig:
Hermann Ingimarsson 77 högg
Hafliði Guðmundsson 83 högg
Gunnar Konráðsson 83 högg
Jóhann Þorkelsson 84 högg.
í forgjafarkeppninni standa
leikar svo eftir 18 holur:
Þröstur Leifsson 74 högg nettó
Hermann IngimarEson 75 högg
nettó, Gunnar Konráðsson 78
högg nettó.
Shcmmdir if vatnavöxtum
Síðastliðinn laugardag gekk
mikil hitabylgja hér yfir Norður-
land, og komst hitinn yfir 20 stig
hér í Eyjafirði. Um nóttina kóln-
aði aftur í veðri, og á sunnudags-
kvöld gengu hríðarél yfir, svo að
snjóaði niður undir byggð í
Kræklingahlíð. Á mánudaginn,
fyrir hádegi, var allhvöss vestan-
átt með snöggum byljum. Var
mold- og 6androk svo mikið í
byljunum, að varla sá milli húsa
sums staðar í bænum.
í hitanum á laugardaginn gerði
mikla vatnavexti. Voru ár kolmó-
rauðar og flæddu víða yfir bakka
sína, þar á meðal Eyjafjarðará.
Gekk hún upp á skeiðvöll Hesta-
mannafélagsins Léttis, svo að
fresta varð kappreiðum þeim, cr
félagið hafði boðað til á sunnu-
daginn. Glerá brauzt úr farvegi
8Ínum ofan við ósana og eyði-
lagði nokkra skreiðarhjalla Út-
gerðarfélags Akureyringa. Fy!I-
ingu tók af við bráðabirgðabrú á
Þverá á Staðarbyggð, og varð
þar ófært yfirferðar. Einnig bil-
aði gömul brú á Eyjadalsá í
Bárðardal og er ófær. Hjá Grund
í Svarfaðardal tók veginn sundur
á nokkurra metra kafla, og í Dals-
mynni og Höfðahverfi urðu tals-
verðar vegaskemmdir. Vaðlaheiði
1 er hins vegar orðin fær bifreið-
um, og hefir umferð verið leyfð
yfir hana að nýju.
Á Suðurleiðinni urðu miklar
skemmdir í Hólminum í Skaga-
firði og við brýrnar á Kotá og
Valagilsá í Norðurárdal. Bráða-
birgðaaðgerð hefir farið fram
þar, en hætt er við, að þar verði
aftur ófært, ef mikla vatnavexti
gerir.
___*_____