Íslendingur


Íslendingur - 22.03.1957, Blaðsíða 2

Íslendingur - 22.03.1957, Blaðsíða 2
2 ÍSLENDINGUR Föstudagur 22. tnarz 1957 Ilvað verðnr ofaná í varnarniáEunum? Fyrirspurn fril blaðs ufranríkismólaráðherra. Fyrir kosningarnar í sumar töldu bæði Alþýðuflokks- og Framsóknarmenn brottför varn- arliðsins héðan helzta barúttumál sitt. Blöð þessara tveggja ílokka skrifuðu um þetta nýja hugðar- mál dag eftir dag, og frambjóð- endur töluðu um „dollarahlekki" og fordæmdu „hernaðarvinnu“. Herferðin gegn varnarliðinu var ekki hvað sízt öflug hér í bæn- um. í útvarpsræðu rétt fyrir kjör- dag fórust Friðjóni Skarphéðins- syni m. a. þannig orð: „Þessir flokkar, Alþýðuflokk- ur og Framsóknarflokkur, lcggja mcginóherzlu á það, að losa landið undan þeim gullnu doll- arahlekkjum stórþjóðar, sem ekki verður annað séð en stefna Sjólf- stæðisflokksins leiði beint til. Sonnir íslendingar og sannir Sjólfstæðismenn, ef maður mætti nota það orð í réttri meikingu, vilja róða því sjólfir, hvort her er hér í landinu eða ekki, þeir una því ekki, að her sé í landinu á friðartímum. Það særir sjólfsvirð- ingu þjóðarinnar og leiðir til ó- farnaðar fyrir framleiðslustarf- semina. Því lengur sem hernað- arvinnan varir, þvi erfiðara verð- ur að koma atvinnuvegunum i samt lag og þvi meiri hætta á, að við sem umfram allt viljum vera frjólsir og sjólfstæðir, meðal frjólsra þjóðo, því meiri hætta á að við verðum ómerkilegt lepp- riki stórþjóðar." Friðjón Skarphéðinsson er þarna ekki myrkur í máli. Hann telur, að framkvæmdirnar fyrir varnarliðið leiði til ófarnaðar fyrir framleiðslustarfsemina og beinlínis „hætta á að við verð-! um ómerkilegt leppríki stórþjóð- j ar“. í sama strenginn tóku aðrir 1 forustumenn Hræðslubandalags-! ins. Skömmu eftir stjórnarmyndun Hermanns Jónassonar er samið við Bandaríkin um áframhald- andi dvöl varnarliðsins hér á landi, og í leiðinni fengið lán úr öryggissjóði Bandaríkjaforseta. Kommúnistar mölduðu í móinn, en sátu þó sem fastast í ráðherra- stólunum. Margir stuðningsmenn ríkis- stjórnarinnar hafa haldið því á lofti, að hinn nýi varnarsamning- ur ætti aðeins að fresta brottför varnarliðsins um skamman tíma, og allar framkvæmdir á vegum þess yrðu því stöðvaðar. Þannig hefir einn stj órnarflokkanna túlk- að samninginn. Nýlega gefur hins vegar „Tím- inn“, blað forsætisráðherra það ótvírætt í skyn, að framkvæmdir á vegum varnarliðsins muni hefj- ast aftur með vordögunum. Und- ir þetta hefir „Alþýðublaðið“ tek- ið. Áki Jakobsson ritar í það blað síðastliðinn sunnudag: „Með hinum nýju somningum vi3 Bondarikin er ólyktunin fró 28. marz endonlega cfgreidd og óafturkallanlega úr sögunni sem fyrirmæli þingsins til ríkisstjórn- orinnar." Ennfremur: „En úr því ólyktunin er þann- ig afgreidd, þó er varnarsamn- ingurinn fró 1951 ■ fullu gild: eins og hann var fyrir 28. marz 1956, og þó er Bandarikjostjórn bæSi heimilt og skylt að fram- kvæma hér ó landi þó mann- virkjagerð til landvarna, sem nauðsynleg verður talin og íslenzk stjórnarvöld hafa, samkvæmt ó- kvæðum varnarsamningsins sam- þykkt." Um þessi mál hefir engin yfir- lýsing komið frá sjálfri ríkis- Síðastliðinn laugardag fór út- för Péturs H. Lárussonar kaup- manns fram frá Akureyrarkirkju að viðstöddum fjölda manns. Pétur Hafstein — en svo hét hann fullu nafni — var fæddur i Pétur H. Lárusson. Stykkishólmi 15. nóvember 1897, og var því á 60. aldursári, er dauða hans bar að höndum. For- eldrar hans voru Lárus H. Bjarnason sýslumaður, síðar hæstaréttardómari, og kona hans Elín Hafstein, dóttir Péturs Haf- steins amtmanns. Var Pétur því ættborinn maður, kominn af sterkum kynkvistum bæði í föð- ur- og móðurætt. Pétur missti móður sína þegar í frumbernsku, en amma hans, móðir Elínar, tók þá við umönn- un og uppeldi dótturbarnanna á heimili þeirra og gekk þeim í móðurstað. Árið 1908, er Pétur var 10 ára gamall, flutti fjöl- skyldan til Reykjavíkur, og þar ólst Pétur upp til fullorðinsára. Ilóf hann ungur nám í Mennta- skólanum í Reykjavík, lauk það- stjórninni. „Alþýðublaðið“ og „Tíminn“ skýra almenningi frá því, að varnarliðsvinnan muni hefjast aftur, og ályktun Alþingis frá 28. marz 1956 sé jafnvel úr sögunni (Áki Jakobsson). Blað kommúnista mótmælir. Vegna afstöðu Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins til varn- arliðsmálanna fyrir kosningar. sem skýrð liefir verið, á almenn- ingur nú ekki hvað sízt beimtingu á, að fá að vita hver sé raunveruleg stefna ríkisstjórn- arinnar í þessum mólum, og þó fyrst og fremst, hvort hefja eigi framkvæmdir ó Kcflavikurflug- velli ó næstunni. Það er því ein- drcgið óskað eftir því, að blað ut- anrikismólaróðherra hér i bænum skýri viðhorfin scm ollra fyrst. Braga Sigurjónssyni ætti ekki að verða skotaskuld úr því, með þeim samböndum, sem hann hef- ir, oð afla sér upplýsinga um fyr- irætlanir rikisstjórnarinnar. Yrðu bæjarbúar þó fróðari ó eftir. an gagnfræðaprófi og íór síðan til náms í Búnaðarskólann á Hvanneyri. Otskrifaðist hann þaðan sem búfræðingur. Eftir það vann hann um skeið við ís- landsbankann í Reykjavík. Árið 1920 kvæntist Pétur eftir- lifandi konu sinni, Sigurlaugu Lárusdóttur, Lúðvígssonar kaup- manns í Reykjavík. Sköinmu síð- ar veiktist hann af berklum og fór utan til að leita sér lækninga. Fékk liann góðan bata, en er heim kom taldi hann óráðlegt með til- liti til undangenginnar vanheilsu að setjast aftur að bankastörfum. Keypti hann því jörðina Eskiholt í Borgarfirði, og þar bjuggu þau hjón næstu 3 ár. Árið 1925 flytj- ast þau til Akureyrar, og hér stofnaði Pétur skóverzlun, er hann rak til dauðadags, eða fulla 3 áratugi. Börn Péturs eru öll á lífi, en þau eru: Ásta, búsett í Reykjavík, Lárus framkvæmda- stjóri í Reykjavík, Elín (í Dan- mörku) og Hrefna, sem á heima hér á Akureyri. Pétur H. Lárusson var glæsi- menni í sjón, manna kurteisastur í umgengni, hógvær í öllu fasi og óáleitinn. Hann var manna hlé- drægastur og tók lítinn þátt í al- mennu félagslífi. En hann var góðum gáfum búinn og hefði því notið sín vel í opinberu lífi, ef til hefði fengizt. Heimili hans var snyrtilegt og vistlegt menningar- heimili, þar sem hann undi sér löngum við lestur góðra bóka, enda var Pétur margfróður af umgengni sinni við bækurnar, en safn hans var mikið og vandað og um margt fágætt. Þó mun það hafa orðið fyrir verulegri rýrnun og skemmdum, er íbúðarhús hans brann fyrir nokkrum árum. Má nærri geta, að »á skaði hefir vald- f Pétur II. Lárii§§on kaupmaður. Margir telja œskulýðinn orðinn ajliuga kirkjugöngum. Myndin hér að ojan, sem tekin er í Akureyrarkirkju, virðist rœkilega afsanna þá kenningu. Æskiilýðsnicssur verða fluttar á sunnudaginn kein- ur í mörgum kirkjum norðan lands og austan og e. t. v. víðar. Hafa sóknarprestarnir á Akur- eyri liaft forgöngu um, að kirkj- an eignist sérstakan sameiginleg- an messudag, er sérstaklega væri ætlaður æskulýðnum: skólanem- enduin og öðrum unglingum. Hafa þessar æskulýðsmessur ver- ið haldnar í kirkjum hér norðan- lands nokkur undanfarin ár með ánægjulegum árangri. Hafa skóla- nemendur sótt þær hópum sam- an, og vitað er, að nú á sunnu- daginn ætla nemendur framhalds- skólanna hér í bæ að fylkja liði til kirkjugöngu. Mál þetta hefir verið rætt á prestastefnum og hlotið þar góð- ar undirlektir, en enn hefir þess- ÁTTRÆÐUR varð í gær Guðmundur Kristjáns- son Ránargötu 4 hér í bæ, áður bóndi í Saurbrúargerði í Laufás- sókn. Guðinundur er enn all-ern, en sjónin með öllu farin fyrir nokkrum árum. Guðmundur var annálaður vinnuvíkingur, meðan hann var upp á sitt bezta og mjög eítirsótt- ur til verka. Synir hans fjórir, sem enn eru á lífi, eru einnig harðduglegir menn. Vinna þeir allir á Akureyrartogurunum og tveir dóttursynir Guðmundar að auki. ið Pétri nokkurri eftirsjá, þvi fátt er verra að sjá verða eldi að bráð en fágætar, hugfólgnar bækur, sem ekki verða bættar, þó íé sé í boði. Pétur hafði yndi af ljóðum og lausavísum. Kunni hann mikið af alþýðukveðskap og vissi mörgum belur skil á uppruna vísna og höfundum. Sjálfur var hann prýðilega hagmæltur, en var ó- tamt að hafa yfir vísur sínar nema við nánustu vini. Eítirlifandi eiginkona og börn Péturs H. Lárussonar hafa skyndilega orðið að sjá á bak góðum lieimilisföður og hollráð- um vini. En margir Akureyring- ar, honum óskyldir, fiiina líka til tómsins, sem eftir verður við brottför han». ari æskulýðsstarfsemi þó ekki ver- ið valinn sérstakur dagur. En að þessu sinni mun þátttaka verða almennari en að undanförnu. Hefir t. d. heyrzt, að í Suður- Múlaprófastsdæmi verði æsku- lýðsmessur í öllum eða flestum sóknarkirkjum. Við æskulýðsmessuna í Akur- eyrarkirkju á sunnudaginn pré- dikar prófasturinn, séra Sigurður Stefánsson, en sóknarprestar þjóna fyrir altari. Jhíiflmét við Niðfiúsd- htflppir um tielgino Eysfreinn Þórðarson keppir á mófrinu Nú um helgina verður skíða- mót haldið hér ofan við bæinn, er hefst með stökkkeppni í Mið- liúsaklöppum kl. 3 síðdegis á morgun, en á sunnudaginn verð- ur henni baldið áfram kl. 2 e. h., og fer síðan fram svigkeppni í brekkunum neðan við Fálkafell, væntanlega kl. 4. Meðal keppenda á mótinu verður Eysteinn Þórð- arson skíðakappi úr Reykjavík. Þá munu Ólafsfirðingar og Dal- víkingar taka þátt í mótinu og e. t. v. fleiri aðkomumenn. Siglfirð- ingar höfðu ráðgert þátttöku, en hafa nú afboðað hana. Meðal Akureyringa keppir á mótinu Hjálmar Stefánsson, sem í vetur dvaldi ásamt Eysteini Þórðarsyni í Mið- og Suður-Evrópu við skíðaæfingar og tók ásamt hon- um þátt í mótum í Þýzkalandi, Sviss, Ítalíu og Noregi. Ferðir verða frá Ferðaskrif- stofunni, en akfært er talið lang- leiðina að Miðhúsaklöppum. Togararnir. Kaldbakur fór á veiðar 12. marz. Er á veiðuni, — Svalbakur fór á veiðar frá Siglufirði 19. marz. Er á veiðum. Losaði þar 235 tonn. — Harðbakur fór á veiðar frá Reykjavík 14. marz. Er á veiðurn. — Sléttbakur fór á veiðar 4. marz. Landaði á Siglu- firði 19. marz ca. 35 tonnum af nýjum fiski. Er væntanlegur hingað upp úr helgi. — Allir togararnir veiða í ealt nema Svalbakur. sem veiðir fyrir ía- hút.

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.